Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 Á ÍSLANDI geisar faraldur sem leggur varlega áætlað yfir 300 Íslendinga í gröf- ina árlega. Ég er ekki að tala um svína- flensu eða drepsótt af völdum sýkla heldur um faraldur tóbaks- reykinga sem veldur stórum hluta dauðs- falla úr hjartasjúk- dómum, lungnasjúkdómum og krabbameinum árlega. Faraldur þessi fer um samfélagið eins og fé- lagslegt smit. Það smitast meira en tvö ungmenni daglega og helm- ingur þeirra mun deyja fyrir aldur fram af völdum reykinganna. Hag- fræðiútreikningar Læknafélags Ís- lands benda til að kostnaður af tóbaksnotkun hérlendis sé tæpir 30 milljarðar á ári. Það slagar upp í rekstrarkostnað Landspítalans á einu ári. Læknafélag Íslands telur þetta ástand óviðunandi og vill vekja þjóðina til vitundar um þennan far- aldur. Þess vegna boðar félagið til Tóbaksvarnarþings föstudaginn 11. september 2009 í tengslum við að- alfund félagsins. Á þinginu verða ræddar leiðir til að draga enn úr tóbaksnotkun og helst að gera Ísland tóbakslaust að mestu á 15 árum. Til fundarins er boðið fulltrúum fjöl- margra aðila úr þjóð- félaginu sem geta lagt baráttunni lið. Verulegur árangur hefur náðst á umliðn- um áratugum í barátt- unni við tóbaksnotkun. Þannig hefur hlutfall reykinga- manna meðal þjóðarinnar minnkað úr 30% í tæplega 20% á síðustu ár- um. Reykingabann á opinberum stöðum sem sett var á Íslandi árið 2007 var síðasti landvinningurinn í þessari baráttu. Skaðsemi óbeinna reykinga kem- ur sífellt betur í ljós. Kransæða- þræðingum vegna bráðra krans- æðasjúkdóma fækkaði um 21% meðal karlmanna sem ekki reykja eftir að reykingabann hérlendis tók gildi fyrir tveimur árum. Þessi nið- urstaða bendir til að skaðsemi tób- aksreyks sé enn meiri en áður hef- ur verið talið. Svipaðar niðurstöður hafa komið fram í öðrum löndum og auk þess hafa rannsóknir Hjartaverndar bent til að reyk- ingar hafi hingað til verið vanmet- inn áhættuþáttur hjarta- og æða- sjúkdóma. Þorri landsmanna deyr úr reyk- ingatengdum sjúkdómum. Yfir 90% af lungnakrabbameinum og nær öll tilvik lungnaþembu orsakast af tóbaksreyk. Um 80% þeirra 2.000 einstaklinga sem fara í hjartaþræð- ingu árlega hafa reykt. 75% sjúk- linga sem liggja á lungnadeild Landspítalans eru reykingamenn eða fyrrverandi reykingamenn. Tóbaksfíkn er stærsta og alvarleg- asta heilsufarsvandamál Íslend- inga. Börnin okkar og unglingarnir byrja því miður ennþá að reykja. Þau ánetjast nikótínfíkninni og hún mun fylgja þeim ævilangt og mun draga allt að helming þeirra til dauða. Þetta er hinn nakti sann- leikur. Því er tímabært að ræða hvort alfarið eigi að taka tóbak úr sölu á almennum markaði í áföng- um. Með því næst mikilvægasta markmiðið til frambúðar, sem er að takmarka aðgengi ungmenn- anna okkar að þessu ávana- og fíkniefni. Huga þarf að meðferð reykingamanna og auka reykleys- ismeðferð og þeir sem ekki geta hætt fengju tóbak eða nikótínlyf undir eftirliti heilbrigðisstarfs- manna. Mótrök eru auðvitað einhver. Einhverjir munu missa spón úr sínum aski, t.d. ríkissjóður. Smygl á tóbaki gæti aukist. Menn geta haft skoðanir á frelsi einstaklings- ins til að eitra fyrir sér og öðrum. Þó ber að líta til þess að tóbaks- reykur er eitraður einnig fyrir þá sem verða óbeint fyrir honum og rétturinn til hreins lofts hlýtur að vera enn ríkari en rétturinn til að reykja. Ef geislavirkur úrgangur væri staðsettur í Öskjuhlíðinni sem ylli tugum dauðsfalla á ári yrði unnið hratt að því að koma í veg fyrir geislunina án tillits til slíkra mótraka. Aðaláherslan þarf að beinast að því að fækka þeim sem ánetjast nikótíninu, það er barátta upp á líf og dauða. Hækka verður þann þröskuld sem unglingur klífur yfir til að byrja reykingar. Það er vís- indalega sannað að áhrifamest er að hækka verð, takmarka aðgengi og fækka stöðum sem má reykja á. Sennilega gætu reykingar meðal þjóðarinnar á fáum árum minnkað úr tæpum 20% sem er staðan í dag í 5% með markvissum aðgerðum. Fáar aðgerðir myndu spara meira í heilbrigðiskerfinu til langs tíma litið. Sá sparnaður veldur hvorki óvinsælum aukaverkunum eins og þjónustuskerðingu eða hækkun sjúklingagjalda, heldur byggir á bættu heilsufari þjóðarinnar. Þá sparnaðarleið ættu heilbrigðisyf- irvöld landsins að skoða sem fyrst. Ef til vill ætti að stofna embætti tóbaksvarnarlæknis sem hefði víð- tækar valdheimildir til að bregðast við þessum faraldri. Fyrirmyndin yrði embætti sóttvarnarlæknis, embætti sem hefur margsannað ágæti sitt gegnum árin og bregst ötullega við hættu á farsóttum enn í dag. Einnig er hægt að draga lærdóm af öðrum aðferðum sem reyndust vel á síðustu öldum við vá þess tíma sem voru smit- sjúkdómarnir. Þarna er átt við sjúkdóma eins og berkla, bólusótt og sullaveiki sem var útrýmt með samstilltu átaki þjóðarinnar. Ísland gæti gengið á undan með góðu fordæmi á heimsvísu í tób- aksvarnarmálum. Til þess þurfum við hvorki að vera sterkust í heimi, fallegust né ríkust. Við þurfum hins vegar að þora að vinna öt- ullega, opinskátt, heiðarlega og af festu. Slíkt forystuhlutverk í tób- aksvarnarmálum gæti verið ein leið til að bæta laskaða ímynd Ís- lands á alþjóðavettvangi. Eftir Þórarin Guðnason » Á Íslandi geisar tób- aksfaraldur sem deyðir yfir 300 Íslend- inga árlega. Daglega ánetjast tveir unglingar nikótíni, annar þeirra mun deyja vegna þess. Þórarinn Guðnason Höfundur er hjartalæknir á Land- spítala og varaformaður Læknafélags Íslands. Tóbaksfaraldurinn – Stærsti og dýrasti heilbrigðisvandinn HINN 7. mars sl. skrifaði starfsbróðir minn hér á Morgun- blaðinu, Þorbjörn Þórð- arson, frétt sem vakti þjóðarathygli og það með réttu, undir fyr- irsögninni „Hundraða milljarða lán til eig- enda“. Hann var í frétt sinni að vísa til stærstu eigenda Kaupþings og þar voru vitanlega stærstir hinir sannleikselskandi og með öllu vammlausu Bakkabræður, Ágúst og Lýður Guðmundssynir, sem senda mér tóninn í aðsendri grein hér í Morgunblaðinu í gær, undir fyrir- sögninni „Bíræfin blaðamennska“. Í fréttinni frá því í mars í vetur segir orðrétt: „Í lok júní 2008 voru útistandandi lán Kaupþings til eig- enda og tengdra aðila rúmlega 478 milljarðar króna, samkvæmt lána- bók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Lánin voru ýmist veitt til eigend- anna sjálfra, íslenskra fyrirtækja þeirra eða eignarhaldsfélaga í Hol- landi og á Tortola-eyju.“ Þar segir jafnframt: „Lánveit- ingar til Ágústs og Lýðs í gegnum Exista-samstæðuna nema 169,1 milljarði króna. Þar af er 108,4 milljarða lán til Exista hf. og 30,8 milljarða lán til eignarhaldsfélags þeirra bræðra, Bakkabraedur Holding BV. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings þegar bankinn féll.“ Hinn 11. mars, fjórum dögum eft- ir að frétt Þorbjörns birtist, gat að líta svargrein eftir Bakkabræðurna vammlausu í Morgunblaðinu sem hófst svo: „Á laugardaginn birti Morgunblaðið frétt um tölur sem blaðinu hafði borist frá ótil- greindum aðilum úr trúnaðargögn- um frá Kaupþingi banka. Við lestur þessarar fréttar er ekki við öðru að búast en fólk fyllist tortryggni og gremju, enda þeirri mynd brugðið upp að eigendur Kaupþings hafi mergsogið fé út úr bankanum.“ Vei! Ó, vei! Hverjum gæti nokk- urn tíma dottið í hug að Ágúst og Lýður Guðmundsynir og aðrir eig- endur Kaupþings hafi mergsogið fé út úr bankanum?!!! Tilefni skrifa hinna vammlausu, mér liggur við að segja heilögu Bakka- bræðra, mér til heið- urs hér í Morgun- blaðinu í gær, var pistill sem ég skrif- aði í sunnudagsblað Morgunblaðsins síð- asta sunnudag undir fyrirsögninni „Bí- ræfnir Bakkabræð- ur“. Mér þóttu þetta nú heldur saklaus skrif, svona aðallega árétting á ýmsu því sem gerst hefur hjá Bakkabræðr- um nútímans, ótrúlegt jarð- sambandsleysi þeirra í garð þess umhverfis sem við nú lifum í (þeir búa greinilega í öðru og verndaðra umhverfi kaupmáttar breska pundsins í Bretlandi). Hvað fór fyrir brjóstið á bræðrunum í því sem ég skrifaði? Jú, að ég skyldi halda því fram að með bíræfni, óskammfeilni og gegndarlausri græðgi hafi þeir reynt að koma undan eignum sem þeir ekki eiga og reynt að ná yf- irráðum í félögum án þess að borga það sem þeim bar að borga. Þessar staðhæfingar kunnu bræðurnir vammlausu ekki að meta og alls ekki staðhæfingu í þá veru að þeir hafi með lögleysu greitt tvo aura, segi og skrifa TVO AURA, fyrir hvern hlut við 50 milljarða króna hlutafjáraukinginu í Exista, til þess að ná yfirgnæfandi meiri- hluta í Exista, þegar þeir ákváðu að slíkur gjörningur þjónaði þeirra hagsmunum. Lítum aðeins nánar á það: Fyrir- tækjaskrá úrskurðaði hinn 30. júní sl., eins og ég tilgreindi í pistli mín- um á sunnudag, að þar hefði verið um ólöglegan gjörning að ræða. Og hvers vegna var það? Jú, það var vegna þess að bræðrunum bar að bjóða eina krónu í hvern hlut, ekki tvo aura. Halló! Eitthvert jarð- samband? „Back to Earth“! En hvers vegna skyldu hinir sak- lausu og vammlausu hafa ákveðið að verðmæti hvers hlutar í 50 millj- arða króna hlutafjáraukningu í Ex- ista ætti aðeins að vera upp á tvo auma aura? Jú, höfuðskýringin á þessari ákvörðun hinna vammlausu er vitanlega ein af erfðasyndunum sjö: græðgi var það heillin! Ef þeir hefðu ákveðið í upphafi að leggja til við hluthafafund í Ex- ista að færa hlutafé félagsins niður í einn milljarð króna, áður en farið var í hlutafjáraukninguna, hefði það haft í för með sér að hlutur hinna hluthafanna í Exista hefði ekki rýrnað að sama skapi og bræð- urnir því ekki náð næstum 90% hlut í Exista fyrir eins milljarðs króna hlutafjáraukningu í stað þeirra 50 sem þeir hefðu átt að reiða fram. Vissulega er það rétt sem stend- ur í grein þeirra Bakkabræðra frá í gær, að hlutur þeirra bræðra í Ex- ista er skráður 52% vegna úrskurð- ar Fyrirtækjaskrár um ólögmæti hlutafjáraukningarinnar, en söm er gjörðin. Vonandi geta Bakkabræð- ur verið mér sammála um það, að í desember í fyrra ætluðu þeir að sölsa undir sig 90% í félaginu, með því að greiða aðeins tvo aura fyrir hvern hlut, þegar þeim bar að greiða að lágmarki eina krónu fyrir hvern hlut. Bakkabræður minnast ekki einu orði á aðra gagnrýni mína í grein sinni, eins og kröfu þeirra um evru- uppgjör við Kaupþing sem miðist við gengi Seðlabanka Evrópu. „Aðhald fjölmiðla og varðstaða þeirra um málefnalega umræðu hefur væntanlega aldrei verið mikilvægari í íslensku samfélagi en einmitt um þessar mundir,“ segja Bakkabræður undir lok greinar sinnar. Undir þessi orð þeirra tek ég heils hugar, en hlýt um leið að vekja athygli á því, að í hvert ein- asta skipti sem fjölmiðlar svo mikið sem ýja að því að hjá þeim, eins og svo mörgum öðrum útrásarvíking- um, sé að öllum líkindum óhreint mjöl í pokahorninu, þá ætla þeir að hrökkva af hjörunum af vandlæt- ingu og reiði og fá fjölmiðlaþjálfara sinn til þess að skrifa einhvern óhróður í þeirra nafni um viðkom- andi. Er það kannski svo með Bakka- bræður, að það megi skoða og hafa skoðun á öllum nema þeim? Hinir vammlausu Bakkabræður Eftir Agnesi Bragadóttur »Er það kannski svo með Bakkabræður, að það megi skoða og hafa skoðun á öllum nema þeim? Agnes Bragadóttir Höfundur er blaðamaður. NÚ ER eðlilega kall- að eftir lausnum vegna skuldsettra heimila. Margir virðast telja að með einföldu penna- striki sé hægt að af- skrifa skuldir án þess að þær lendi á öðrum. Það væri auðvitað óskandi að svo væri en peningar vaxa hvorki á trjám né hverfa skuldir eins og hendi sé veifað. Ótti fólks þessa dagana snýst mjög um orð eins og eignir og öryggi. Á Ís- landi hefur löngum verið sett sama- semmerki á milli eigin fasteignar og öryggis en er það raunverulega svo? Hve öruggir hafa fasteignaeigendur á Íslandi í raun verið í því vaxta- og verðbólguumhverfi sem þeim hefur verið boðið upp á svo ekki sé talað um blessað gengið? Er kannski óör- yggi fólks einmitt fólgið í því að það veit ekki hver eignastaðan er né hverjar afborganir verða um næstu mánaðamót? Hvað þá eftir hálft ár? Er lausnin flöt skuldaniðurfelling sem hjálpar sumum, öðrum ekki en steypir þjóðinni allri í enn dýpra skuldafen með tilheyrandi skatta- hækkunum og niðurskurði á op- inberri þjónustu? Ég held ekki. Lán og skuld Óttinn og reiðin eru þær tilfinn- ingar sem oft leiða til andlegra og líkamlegra kvilla. Ef fólk er ótta- slegið er það slegið út af laginu. Með því að lágmarka óvissu er óttanum bægt frá. Hvað eigum við þegar upp er staðið? Eigum við annað fólk? Eigum við í alvöru hús og bíla eða höfum við afnot af slíkum hlutum á tímabilum lífsins rétt eins og við höfum fólk að láni í lífinu? Blessað barnalán var einhvern tíma talað um. Lán hefur jákvæða merkingu í íslensku máli en skuld ekki. Kannski er það svo að við eigum aðeins orðs- tír okkar þegar öllu er á botninn hvolft og eignarréttur á steinsteypu og álvagni á fjórum hjólum hefur ekkert með öryggi okkar að gera í sjálfu sér. Það er hrópað á að vísitölum sé snúið við til þess tíma þegar veislan stóð sem hæst. Nú hefur komið í ljós að engin innistæða var fyrir eyðslu þjóðarinnar á síðustu árum heldur var hún tekin að láni í útlöndum. Hvernig í ósköpunum ættum við að geta snúið til baka til einhvers ástands sem aldrei var til nema í formi hillinga, sjálfsblekkinga og skýjaborga? Annars staðar á Norðurlönd- unum býr meirihluti fólks í leiguhúsnæði, öfugt við Ísland. Flestir borga fasta leigu, geta gert áætl- anir fram í tímann sem standast og njóta lagalegrar verndar þannig að réttindi og skyldur eru skýrar. Al- gengt er að fólk búi áratugum saman í sömu leiguíbúð og uni hag sínum vel. Lán verði leiga Nú þurfum við að hugsa málin upp á nýtt. Stór hópur fólks hefur ekki efni á því lengur að vera skráður eig- andi að íbúðum sínum. Þetta er sárt en horfumst í augu við veruleikann. Gengi íslensku krónunnar mun ekki styrkjast að neinu marki á næstu misserum. Sennilega mun það veikj- ast enn. Afborganir lána munu ekki lækka og því þarf að tryggja fólki með nýjum hætti öruggt húsnæði á viðráðanlegum leigukjörum og bjóða upp á nokkra mismunandi valkosti í þeim efnum. Í þessu sambandi þurfa sveitarfélög og lífeyrissjóðir að taka höndum saman við fleiri aðila og lánastofnanir þurfa að breyta lánum í sanngjarna leigusamninga. Það sama mætti hugsa sér varðandi bíla- lánin. Með þessum hætti á enginn að þurfa að missa heimili sitt en fólk getur aftur um frjálst höfuð strokið, notið viðunandi lífsgæða og óttalaust gert áætlanir um framtíðina. Að eiga eða leigja? Eftir Sigurstein Róbert Másson »Hvernig í ósköp- unum ættum við að geta snúið til baka til einhvers ástands sem aldrei var til nema í formi hillinga, sjálfsblekkinga og skýjaborga? Sigursteinn Róbert Másson Höfundur er formaður Geðhjálpar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.