Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 26

Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 26
Markaðsátak í ferðaþjónustu haustið 2009 Ferðamálastofa í samstarfi við iðnaðarráðuneytið, Útflutningsráð og Reykjavíkurborg, auglýsir eftir tillögum frá íslenskum ferðaþjónustuaðilum að samstarfsverkefnum til markaðssetningar Íslands á tímabilinu október til desember 2009. Um er að ræða verk- efni sem dreifast á meginmarkaðssvæði íslenskrar ferðaþjónustu í Bretlandi, á meginlandi Evrópu, í N-Ameríku og á Norðurlöndum. Heildarráðstöfunarfé/-framlag til samstarfs- verkefnanna er 50 milljónir króna sem komið getur til útgreiðslu í fyrsta lagi 1. nóvem- ber 2009. Mótframlag umsóknaraðila skal vera að lágmarki tvöfalt hærra en framlag Ferðamálastofu (2 kr. á móti einni). Með þessu móti er gert ráð fyrir að heildarframlag til átaksins nemi að lágmarki 150 millj. kr. Lágmarksframlag til eins verkefnis miðast við kr. 5.000.000,- Hámarksframlag til eins verkefnis miðast við kr. 10.000.000,- Eftirfarandi forsendur verða lagðar til grundvallar mati á verkefnum: - Áhersla verði á fjölmenn svæði/borgir sem staðsettar eru innan tiltölulega stuttrar vegalengdar frá flugvöllum í Skandinavíu, Bretlandi, meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum sem íslensk félög fljúga til og frá á tímabilinu október 2009 til mars 2010. - Um sé að ræða markaðs- og söluverkefni, sem hvetji neytendur til Íslandsferðar í haust eða vetur. - Megináhersla sé á að nota kynningu/auglýsingar á Internetinu og í dagblöðum. - Markmið verkefnis skulu vera skýr, hnitmiðuð og vel skilgreind. - Þeir markhópar sem verkefnið beinist að skulu skilgreindir með skýrum hætti. - Fjárhagsáætlun sé skýr og uppsett í umsókn. - Tímaáætlun skal tíunduð en gert er ráð fyrir að fjármunir nýtist í síðasta lagi til markaðssetningar í mars 2010. - Lagt verði mat á það hverju verkefnið geti hugsanlega skilað, m.a. með tilliti til útbreiðslu þeirra miðla sem um ræðir og markhópa sem verkefnið beinist að. - Greint verði frá því með hvaða hætti árangur verði metinn að verkefni loknu og hvaða mælikvörðum verði beitt. Kallað verður eftir slíku árangursmati. - Um sé að ræða verkefni sem ekki hefur þegar verið gert ráð fyrir í markaðsáætlunum umsækjenda. - Mótframlag umsækjanda í krónum talið - Raunhæfi framkvæmdaáætlunar umsóknarinnar - Annarra markaðsaðgerða sem eru í framkvæmd á sama tíma Umsóknareyðublað Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að sækja á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is. Umsóknum sé skilað á íslensku og til þeirra vandað. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2009. Ekki verður tekið tillit til annarra gagna en umsóknarinnar sjálfrar. Umsóknir verða metnar af úthlutunarnefnd á grundvelli ofangreindra atriða og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir í síðasta lagi 10. október 2009. Ákvarðanir verða teknar á grundvelli ofangreindra forsendna og verður fyllsta jafnræðis gætt við mat á tillögum. Framlag Ferðamálastofu getur aldrei numið hærra hlutfalli en 33% af heildarútgjöldum vegna verkefnis. Ferðamálastofa hefur umsjón með verkefninu og samningagerð við samstarfsaðilana. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Heimili og hönnun Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru að huga að breytingum á heimilum sínum. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569-1105, kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 14. september. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heimili og Hönnun föstudaginn 18. september 2009 Meðal efnis verður : Ný og spennandi hönnun.. Innlit á falleg heimili. Áberandi litir í haust og vetur. Lýsing á heimilum. Sniðugar lausnir á heimilum. Upprennandi hönnuðir. Stofan. Eldhúsið. Kósý hlutir fyrir haustið. Þjófavarnir. Ásamt mörgu öðru spennandi efni. ENN og aftur þurfa borgarbúar að verja miðbæinn sinn fyrir borgaryf- irvöldum. Í þetta sinn er slagurinn um Ing- ólfstorg, en það er svo sem aukaatriði, því umgjörðin er þekkt: Peningamönn- um tekst að sannfæra borgaryfirvöld um mikilvægi þess að reisa enn eitt háhýsið á kostnað upprunalegu lágreistu húsanna sem standa þar fyrir. Þau á að „færa“, minnka skal Ingólfstorg, breyta því í við- varandi skuggatorg og ýmislegt annað misgáfulegt þarf að gerast svo hótelið geti risið. Á undanförnum árum og áratug- um hefur svipaður slagur staðið yfir um hús í Þingholtunum, á Laugaveginum og Hverfisgötunni, í gamla Skuggahverfinu, Túna- hverfinu, um Bernhöftstorfuna og Grjótaþorpið. Stundum hafa borg- arbúar borið sigur úr býtum (Bernhöftstorfan og Grjótaþorpið), stund- um ekki (gamla Skuggahverfið, Túna- hverfið, Laugaveg- urinn og Hverfisgata). Mér leikur aftur á móti forvitni á að vita hvers vegna slíkur slagur þarf að eiga sér stað. Er í alvöru eðli- legt að borgarbúar þurfi að verja og rök- styðja með nokkurra ára millibili að gömlu húsin í miðbænum fái að vera á sínum upprunalega stað, að þau séu ekki rifin eða færð eða klófest í ævarandi skugga vegna nýbygg- inga sem peningamenn vilja reisa? Fyrir hrunið mátti allt í borg- inni. Húsafriðunarnefnd og Borgarfulltrúi voru eins og læður í fangi útrásarvíkinganna sem fóru sínu fram og ollu ómetanlegum skaða á gömlu húsum miðborg- arinnar, sem hefðu sum hver átt að vera ósnertanleg sökum aldurs. Tæplega ár er liðið frá hruninu og nú eru góðhjörtuðu peningamenn- irnir aftur komnir á stjá – vilja vafalaust „gera miðbæ Reykjavík- ur fallegri, líflegri og samkeppn- ishæfari við erlenda miðbæi“ eins og stundum heyrist, líkt og hótelin séu reist af mannúðarástæðum – og það er víst hlutverk okkar borgarbúa að taka hinn furðulega slag við borgaryfirvöld um að verja menningarverðmæti mið- borgarinnar. En áður en slagurinn hefst að þessu sinni, er til of mikils mælst af borgaryfirvöldum að þau finni ögn uppbyggilegri leiðir til að gæða miðbæinn lífi en með nið- urrifi? Eftir Óttar Martin Norðfjörð Óttar Martin Norðfjörð »… er til of mikils mælst af borgar- yfirvöldum að þau finni ögn uppbyggilegri leiðir til að gæða miðbæinn lífi en með niðurrifi? Höfundur er borgarbúi og rithöfundur. Slagurinn um miðbæinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.