Morgunblaðið - 10.09.2009, Page 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
✝ Erla Sveina Jór-munds fæddist í
Reykjavík 19. des.
1924 og lést á Land-
spítalanum 3. sept.
2009. Foreldrar henn-
ar voru Una Guð-
mundsdóttir frá Þver-
læk í Holtahreppi,
fædd 12. maí 1898, d.
17. mars 1989, og Hin-
rik Jórmundur
Sveinsson, f. 25. febr-
úar 1897, d. 26. des-
ember 1982. Hálf-
systur Erlu eru
Guðrún Hinriksdóttir, f. 19. sept-
ember 1936, d. 25. nóvember 1983,
og Margrét I. Hinriksdóttir, f. 3.
janúar 1944. Erla ólst upp hjá móð-
ur sinni og eiginmanni hennar,
Þórði Þórðarsyni frá Þorgeirsfelli,
f. 26. nóvember 1893, d. 24. sept-
ember 1986, fyrst vestur á Snæfells-
nesi en síðan í Reykjavík. Bræður
hennar voru Þorgeir Snæfells Þórð-
arson, f. 21. júlí 1934, d. 26. apríl
1935, og Óli Guðmundur Hreiðar
Þórðarson arkitekt, f. 21. júní 1936,
kvæntur Lovísu Christiansen. Hinn
19. desember 1947 giftist Erla Boga
Jóhanni Bjarnasyni, f. 2. júlí 1919,
fyrrverandi aðalvarðstjóra lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann er sonur
Bjarna Jóhanns Boga-
sonar og Þórunnar
Jóhannesdóttur frá
Neðri-Hóli í Stað-
arsveit. Börn Erlu og
Boga eru: Bjarni Jó-
hann, f. 25.2. 1949,
kvæntur Kolbrúnu Jó-
hannsdóttur Snæfeld,
þeirra börn eru Bogi
Snær og Sóley.
Guðný, f. 6.4. 1955,
hennar börn eru Erla
Björk og Einar Björn,
og Þórður, f. 1.12.
1959, kvæntur Elínu
Hildi Ástráðsdóttur, þeirra börn eru
Þórður Daníel, Svandís Erna og
Arnar Jóhann. Fyrir átti Elín Krist-
in Elfar Haraldsson.
Erla stundaði verslunar- og skrif-
stofustörf áður en hún gifti sig en
var heimavinnandi meðan börnin
voru ung eins og venja var á þeim
tíma. Þegar um hægðist fór hún svo
út á vinnumarkaðinn og vann við
ýmis verslunar- og skrifstofustörf,
seinast hjá Hitaveitu Reykjavíkur,
þar til hún hætti vegna aldurs. Erla
starfaði árum saman með Odd-
fellowreglunni.
Útför Erlu Sveinu fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 10. sept-
ember 2009, og hefst athöfnin kl. 13.
Í dag kveðjum við hana Erlu
tengdamóður mína.
Ég kynntist Erlu og Boga, eig-
inmanni hennar, fyrir 26 árum, þeg-
ar ég og Þórður, yngsti sonur
þeirra, fórum að vera saman.
Þegar ég hugsa til baka til þess
tíma sem ég hitti hana fyrst, þá ber
hæst hvað mér fannst hún vera
kraftmikil og virðuleg kona, síðar
þegar ég kynntist henni betur
komu fleiri eiginleikar í ljós.
Duglegri manneskju hef ég varla
kynnst um ævina, hún var alltaf að
vinna að einhverju, aldrei féll henni
verk úr hendi eins og fallegt heimili
þeirra hjóna ber vott um.
Árum saman áttu Erla og Bogi
stóran og mikinn kartöflugarð, allir
í fjölskyldunni tóku þátt í að rækta
kartöflur. Dugnaður Erlu í garð-
inum var svo mikill að eftir var tek-
ið, hún var hreinlega eins og storm-
sveipur, gekk í öll verk, hún taldi
aldrei neitt eftir sér í því og engin
verk voru henni ofviða.
Ekki var hjálpsemin minni, hún
var alltaf boðin og búin til þess að
hjálpa til, ef eitthvað var að eða ef
eitthvað stóð til.
Af tengdamóður minni lærði ég
margt, hún kenndi mér t.d. að taka
slátur og alltaf var hún tilbúin að
koma og hjálpa til við sláturgerð-
ina.
Erla var mikil fjölskyldumann-
eskja, hún lifði fyrir manninn sinn,
börnin og barnabörnin. Barnabörn-
in voru henni mjög hugleikin, enda
var hún dugleg að fá þau til sín og
alltaf lærðu þau eitthvað nýtt í
hvert skipti, því hún var alltaf að
kenna þeim eitthvað nýtilegt. Alltaf
fannst krökkunum gott að koma til
ömmu og afa í Jökulgrunn og fá
grjónagraut og rúgbrauðið sem
amma bakaði.
Nú á Bogi, tengdafaðir minn, um
sárt að binda, því nú hefur hann
misst lífsförunaut sinn. Ég bið góð-
an Guð að veita honum styrk.
Hvíl í friði, elsku Erla,
þín tengdadóttir,
Elín Ástráðsdóttir.
Þær voru ekki öfundsverðar kon-
urnar sem lentu í því á fyrri hluta
tuttugustu aldar að standa uppi ein-
ar með barn sem þær þurftu að ala
önn fyrir. Þá var ekki þessi styrk-
urinn og þessar bæturnar eins og í
dag þykir sjálfsagt, þær þurftu
bara að bjarga sér sjálfar. Í þessum
sporum var Una, móðir Erlu, á
þriðja tug aldarinnar. Hún greip
því fegins hendi þegar bónda vestur
í Staðarsveit vantaði ráðskonu og
dreif sig vestur með litlu stúlkuna
sína. Og hún var svo heppin að
bóndinn var gull af manni, þau
rugluðu saman reytum sínum og
fluttu saman til Reykjavíkur, giftu
sig og Erla fékk Þórð á Þorgeirs-
felli fyrir stjúpföður.
Heimili Þórðar og Unu var um
langan aldur nokkurs konar félags-
heimili fyrir Staðsveitunga. Þau
voru ákaflega gestrisin og sveit-
ungum þeirra þótti gott að koma
við hjá þeim og jafnvel gista eins og
þá var alvanalegt, ekki var algengt
á þessum árum að fara á hótel til að
leita sér húsaskjóls, enda gaman að
hitta sveitunga sína þegar stoppað
var í bænum.
Einn af sveitungunum var Bogi
Bjarnason frá Neðri-Hól sem var
ungur og glæsilegur Staðsveitungur
sem farinn var að leita sér vinnu í
bænum. Hann var mikill vinur
þeirra hjóna og smátt og smátt tók-
ust ástir með unga fólkinu og þau
ákváðu að ganga saman æviveginn.
Og gangan var löng. Í dag er Erla
hér kvödd af eiginmanni eftir sextíu
og tveggja ára farsælt hjónaband.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið og barnabörnin eru orðin átta.
Ég kynntist þeim hjónum fyrst
árið 1953 þegar ég og Páll Steinar,
yngri bróðir Boga, vorum byrjuð að
vera saman. Þau voru þá nýbúin að
byggja sér íbúð við Eskihlíðina og
koma sér þar vel fyrir. Heimili
þeirra var glæsilegt enda þau hjón
samhent með snyrtimennsku og
myndarskap. Og þarna áttum við
margar ánægjustundir með þeim
hjónum gegnum árin. Alltaf var gott
að leita til þeirra ef einhvers þurfti
með. Erla var ákaflega myndarleg
húsmóðir og lék allt í höndum henn-
ar, auk þess sem hún stóð við hlið
manns síns af glæsibrag en hann
þurfti að sinna mörgu varðandi
störf sín hjá lögreglunni. Þá var hún
útivinnandi meðan hún hafði aldur
til. Einnig starfaði hún með Odd-
fellow-reglunni til margra ára.
Margs er að minnast nú að ævi-
lokum, afmæla, jólaboða, veiðiferða
með tengdafólkinu og sólarlanda-
ferðanna mörgu og ógleymanlegu.
Þegar aldur færðist yfir þau
seldu þau í Eskihlíðinni og keyptu
sér lítið hús í Jökulgrunninu. Þar
gerðu þau sér annað hreiður, nú í
tengslum við Hrafnistu og þarna fór
vel um þau. Enn var sami mynd-
arbragurinn á öllu og nú gafst Erlu
meiri tími til að sinna áhugamálum
sínum. Liggja eftir hana mörg
glæsileg handverk því hún var ákaf-
lega listræn.
Ég vil að lokum þakka Erlu sam-
fylgdina fyrir hönd okkar fjölskyld-
unnar. Ég votta Boga og fjölskyld-
unni okkar hjartans samúð. Hafðu
þökk fyrir góð kynni, Erla mín, og
hittumst aftur á strönd eilífðarinn-
ar.
Gróa Ormsdóttir.
Þegar við í fjölskyldunni hennar
ömmu Þórunnar stöndum nú í þeim
sporum að kveðja Erlu, sem hefur
alltaf verið til staðar og við munum
ekki lífið okkar öðruvísi en hún væri
Erla hans Boga, er höggvið stórt
skarð í okkar fjölskyldu.
Þegar ég var lítil stelpa var ávallt
mikill samgangur á milli bræðranna
Boga og föður míns en Steinar,
yngsti bróðirinn, var þá búsettur á
Akranesi. Þar var líka okkar fasti
punktur í tilverunni því þar hittist
fjölskyldan við það að aðstoða
ömmu Þórunni, móður þeirra, við að
setja niður kartöflur og taka þær
upp eða annast bústofninn sem þá
var. Frá þessum tíma hefur Erla
verið sú trausta kona sem ávallt var
til taks og tók virkan þátt í öllu sem
viðkom okkar fjölskyldu. Ræktun
var eitt af því og áttu Bogi og Erla
yndisreit við Úlfarsfellsrætur þar
sem þau stunduðu mikla ræktun í
áratugi sem hefur verið arfleifð
þeirra frá mæðrum og síðan til
barna þeirra. Þarna naut Erla sín
við að gera ræktunartilraunir, m.a.
að rækta mörg afbrigði af kartöflum
og grænmeti auk trjáa. Þau áttu
erfitt með að taka því þegar reit-
urinn þeirra féll ekki lengur inn í
borgarskipulagið.
Ég minnist líka Erlu sem snill-
ings í að sauma og get séð fyrir mér
hvernig hún sneið föt á Bjarna,
elsta soninn, og við urðum alveg
undrandi hversu flottar flíkurnar
urðu eða eins og út úr búð. Mat-
argerð var eiginleiki sem hún átti
ríkulega og eru örugglega ekki
margir sem hafa tækifæri og getu
til að elda fram á hinsta dag í lífi
sínu.
Erla og Bogi áttu frábær ár þeg-
ar aldurinn fór að færast yfir og
voru margar ferðir þá farnar á er-
lenda grund sem þau nutu óspart.
Þau hjónin studdu mjög vel við bak-
ið á föður mínum þegar hann varð
ekkjumaður með því að sækja hann
í mat og heimsækja hann reglulega,
fyrir það viljum við þakka af heilum
hug. Sú vinátta sem hefur einkennt
þeirra samband er gjöf sem þakka
ber.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
fjölskyldu Sveinbjörns þakka sam-
fylgdina og votta Boga og börnum
þeirra innilega samúð við fráfall
sterkrar og traustrar eiginkonu,
móður og ömmu sem lifði svo sterkt
fyrir fólkið sitt og þau fyrir hana.
Hafðu þökk fyrir samfylgdina.
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir.
Erla Sveina H.
Jórmunds
Það eru liðin yfir 20
ár frá því að ég hóf
störf hjá Kaupfélagi
Þingeyinga (KÞ) á
Húsavík og samstarf
okkar Hreiðars Karlssonar kaup-
félagsstjóra hófst. Samstarf sem
leiddi fljótt af sér góðan vinskap. Á
þessum tíma stóð KÞ í harðri varn-
arbaráttu, sem var nátengd varnar-
baráttu landsbyggðarinnar. KÞ var
umsvifamikið í sínu samfélagi, starf-
aði með hagsmuni þess í huga og
reyndi eftir því sem hægt var að
sinna sinni samfélagslegu skyldu.
Rekstrarumhverfi félagsins var hins
vegar þannig að ekki var hjá því kom-
ist að taka á rekstri þess og reyna að
aðlaga hann því. Það varð að taka erf-
iðar, sársaukafullar og umdeildar
ákvarðanir í samfélagi þar sem ná-
vígið var mikið. Ákvarðanir sem köll-
uðu m.a. á uppsagnir náinna sam-
starfsmanna til margra ára. Slíkar
ákvarðanir eru þær erfiðustu sem
stjórnendur þurfa að taka á hverjum
tíma. Ég man aldrei eftir að Hreiðar
hafi skipt skapi, hvorki undir þessum
erfðu aðstæðum né öðrum, þrátt fyrir
að hann hafi haft til þess ærnar
ástæður á stundum. Öllu þessu mætti
hann af æðruleysi, sem virtist honum
í blóð borið. Hann átti það til að taka
sér góðan tíma til að taka yfirvegaðar
ákvarðanir, þar sem hann vildi virki-
lega hafa þær réttar ef þess var nokk-
ur kostur. Ég held að hann hafi ekki
verið sammála því sjónarmiði sumra
að betra væri að taka ranga ákvörðun
en enga ákvörðun. Menn yrðu ein-
faldlega að taka þann tíma sem þyrfti
til að komast að þeirri niðurstöðu sem
Hreiðar Karlsson
✝ Hreiðar Karlssonfæddist í Saltvík í
Reykjahverfi 16. des-
ember 1944. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi 29.
ágúst sl. Útför Hreið-
ars var gerð frá
Húsavíkurkirkju 5.
september sl.
skilaði árangri. Allt
þetta varð mér mikill
skóli og manni varð
ljósara en áður að hóg-
værð, hófsemi og til-
litssemi, er eitthvað
sem menn verða að
hafa fyrir, samt með
mismikilli fyrirhöfn og
árangri.
Eftir erfitt umhverfi
og aðstæður, en
ánægjuleg og gefandi
fimm samstarfsár, liðu
nokkur misseri þar til
Hreiðar hætti einnig
störfum hjá KÞ. Samhliða störfum
sínum fyrir kjötframleiðendur hóf
hann að þjónusta ýmsa aðila á sviði
bókhalds, reikningsskila, uppgjörs og
framtalsgerðar. Hófst þá nýr kafli í
samstarfi okkar, sem staðið hefur síð-
an. Hann hafði þekkinguna, ná-
kvæmnina og samviskusemina, en
ekki háður óþarfa smámunasemi. Við
unnum að sameiginlegum verkefnum
og hann sendi mér vísur af og til, sem
léttu okkur Önnu lund og Anna hefur
safnað í gegnum tíðina og er orðið
efni í a.m.k. eina bók.
Samskipti okkar fóru mikið fram í
gegnum nútíma samskiptatækni, þ.e.
síma, póst og netpóst, þannig að við
gerðum allt of lítið af því að gera okk-
ur far um að hittast, en samt alltaf ef
tækifæri gafst. Því var það alltaf
ákveðið áfall þegar maður sá Hreið-
ar, því sjúkdómurinn fór augljóslega
illa með hann. Eitthvað sem maður
varð aldrei var við í okkar oft og tíð-
um daglegu nútíma samskiptum. Í
samtölum okkar kom aldrei fram að
þetta þjakaði hann. Hann bar sig allt-
af vel og var jákvæður. Einu skiptin
sem hann varð að viðurkenna að eitt-
hvað væri ekki alveg eins og það átti
að vera, var þegar hann neyddist til
að vera frá vinnu og verkum af heilsu-
farsástæðum.
Við Anna vottum Jónínu og fjöl-
skyldu samúð og hluttekningu. Guð
gæti sómamanns.
Ragnar Jóhann Jónsson.
Í dag kveð ég ynd-
islega manneskju,
hana Kristínu Önnu
Baldvinsdóttur eða
Önnu eins og hún var alltaf kölluð.
Árið 1975 fór ég til Vestmannaeyja
að vinna í fiski og ætlaði bara að vera í
2 mánuði. Það breyttist og árin urðu
mörg sem ég bjó í Eyjum. Ég kynntist
syni Önnu og Grétars, honum Val
Smára eða Smára eins og hann var
alltaf kallaður. Ég var því mikið inni á
heimilinu hjá þeim Önnu og Grétari,
þar sem alltaf var fullt hús af fólki og
allir voru þar velkomnir. Mikið var um
góðan mat hjá Önnu, brauðtertur,
kleinur og annað góðgæti.
Við Smári eignuðumst 2 börn, þau
Aðalbjörn Þorgeir og Önnu Dóru.
Krakkarnir vildu ólmir vera hjá þeim
og alltaf voru þau Grétar og Anna
tilbúin að passa þau. Margar góðar
minningar eiga þau frá þeim tíma sem
þau voru hjá þeim.
Árið 1984 fórst Smári með Hellis-
eynni VE og var það þungur baggi á
þessa fjölskyldu, þar sem þau höfðu
einnig misst son sinn, Steindór, sem
tók út af togaranum Klakk VE 5 árum
áður. Síðar kynntist ég núverandi eig-
inmanni mínu, Örnólfi Lárussyni, sem
hefur gengið börnunum mínum í föður
stað. Við Örnólfur eigum 2 börn sam-
an, Eddu Rós og Sævar Helga, það
lýsir Grétari og Önnu vel hvað þau
Kristín Anna
Baldvinsdóttir
✝ Kristín AnnaBaldvinsdóttir
fæddist á Týsgötu í
Reykjavík 20. ágúst
1938. Hún lést 26.
ágúst sl.
Útför Kristínar
Önnu var gerð frá
Selfosskirkju 5. sept-
ember sl.
hafa tekið Örnólfi og
börnum okkar vel. Það
voru ekki ófáir jóladagar
sem þau og strákarnir
þeirra og Anna Lea
komu til okkar. Yndis-
legur tími.
Mér eru minnisstæð
öll ferðalögin sem við
fórum í saman, þar var
mikið sungið og alltaf var
Anna kát og glöð. Ótrú-
legt hvað hefur verið lagt
á eina fjölskyldu því þau
misstu 3 unga syni.
Einnig misstu þau Svein Ragnarsson.
Anna var mér sem tengdamóðir,
móðir og vinur. Hún var amma
barnanna minna og langamma dótt-
ursonar míns, hans Örnólfs Smára.
Ég mun sakna hennar sárt því hún
var kona sem auðvelt var að elska. En
með hlýhug í hjarta á ég yndislegar
minningar um hana.
Ég vil votta elsku Grétari, börnum,
barnabörnum, barnabarnabörnum,
tengdabörnum og öðrum ættingjum
og vinum mína dýpstu samúð.
Linda Sigurborg
Aðalbjörnsdóttir.
Elsku Anna. Ég er glöð að hafa
fengið að kynnast þér. Minningarnar
um þig geymi ég í hjarta mínu. Guð
geymi þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku fjölskylda, megi góður Guð
styrkja ykkur á þessum erfiða tíma
Sigurbjörg Sigurðardóttir
(Sibba).
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
GUÐMUNDUR R. KARLSSON
bifvélavirki,
Dalbraut 16,
andaðist á Landspítalanum mánudaginn
7. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
14. september kl. 11.00.
Hjördís Þórðardóttir,
Þórður Guðmundsson, Gerða Farestveit,
Andrea Katrín Guðmundsdóttir, Rúnar Magnússon.