Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Bolir
Bolir með ermum að olnboga.
Litir: Lilla, svartir, bláir. Bolir með
stuttum ermum. Litir: Lilla, turk-
is, svartir, kremaðir. St. S – XXL.
Sími 588 8050.
Meyjarnar,
Austurveri - sími 553 3305
Þessi góði í BC-skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950.
Mjúkur og yndislegur í BCD-
skálum á kr. 3.950, - buxur í stíl á
kr. 1.950.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Dömur, mjúkir og þægilegir
inniskór úr leðri og skinnfóðraðir
Margar gerðir og litir. Stærðir 36 - 42
Verð frá: 7.950.- til 10.900.
Misty skór, Laugavegi 178.
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Geymdu gullin þín í Gónhól
Ferðabílar, hjólhýsi og fleira og fleira.
Upplýsingar og skráning á gonholl.is
og í síma 771 1936.
Sumarhús
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Ólafur Ragnar og fangavaktin,
Eiður Smári, Tiger Woods,
Räikkönen og allir hinir verða
með okkur í vetur
Já þú last rétt. Þú missir ekki af neinu
í bústað hjá okkur. Frábær aðstaða
fyrir fjölskyldur og hópa.
Heitir pottar og grill - hvað annað?
Minniborgir.is
Spennandi gisting á góðum stað.
Nudd
Temple Massage
Whole Body Healing Massage based
on Tantric principles. For men,
women and couples. Tel. 698 8301.
www.tantra-temple.com
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
Hreinsa þakrennur fyrir veturinn o.fl.
Upplýsingar í síma 847 8704.
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Geymslur
Ýmislegt
Óska eftir
Hefilbekkur
Óska eftir notuðum hefilbekk.
Sími 892 1449.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Föndurnámskeiðin eru að byrja -
Mörkin 1 - s. 553-1800
Kortagerð - Lampa-, skerma- og
kertaskreytingar - Skartgripagerð -
Skrapp. Rússneskur spírall.
Sjá www.fondurstofan.is
Amma Lóló er farin
frá okkur eftir erfið
veikindi.
Amma og afi bjuggu lengst af á Há-
mundarstöðum og þangað vorum við
barnabörnin ætíð velkomin. Á stund
sem þessari leitar hugurinn til baka
og minningarnar streyma fram. Ein
situr mér ofarlega í minni en hún er af
ömmu þar sem hún stendur í eldhús-
inu á Hámundarstöðum og býður upp
á „vatnamjólk“, sem hún hafði mikið
dálæti á og taldi allra meina bót og
ekki þótti verra ef kringla fylgdi með.
Fyrir ungan dreng hafði umhverfi
Hámundarstaða yfir sér ævin-
týrablæ. Þar var hægt að laumast í
jarðarberjareitinn hennar ömmu, tína
rifsber, veiða nokkrar köngulær, sulla
í læknum og allra best var að klifra í
trjánum í garðinum.
Ég man vel eftir að hafa farið í
berjamó með ömmu inn í Seldal. Eitt-
hvað var afraksturinn lítill og fékk ég
góðlátlegar ábendingar um að berjaát
og berjatínsla færu ekki saman. Þetta
hef ég ætíð haft í huga og geymi átið
þar til heim er komið.
Mér er sérstaklega minnisstætt
þegar ég var að koma í heimsókn og
afi var að vinna við innrömmun í kjall-
aranum, að í stað þess að vera að
hrópa niður á afa sem hafði takmark-
aða heyrn, stappaði amma einfaldlega
hressilega í gólfið þangað til hún fekk
viðbrögð.
Eftir að ég flutti suður urðu sam-
verustundirnar vissulega færri en áð-
ur, en ætíð var tekið vel á móti mér og
minni fjölskyldu þegar við komum í
heimsókn. Þegar ég sagði sonum mín-
um frá því að að amma væri dáin var
það fyrsta sem Arnar Már sagði, „en
amma var svo góð við okkur, hún gaf
okkur alltaf ís“.
Við áttum góðar stundir með
ömmu og afa um páskana og aftur nú í
júlí þegar við komum austur í sum-
arfrí. Amma var hress, sýndi okkur
myndir og talaði um liðna tíma. Þetta
eru mjög dýrmætar minningar sem
munu lifa með okkur.
Ólöf Ólafsdóttir
✝ Ólöf Ólafsdóttirfæddist á Siglu-
firði 24. september
1925. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað
laugardaginn 29.
ágúst sl.
Útför Ólafar var
gerð í kyrrþey frá
Norðfjarðarkirkju 5.
september sl.
Afi hefur staðið eins
og klettur við hlið
ömmu alla tíð og verið
ómetanlegur stuðning-
ur í hennar veikindum.
Ég sendi afa, pabba
og systkinum hans og
ættingjum öllum mínar
bestu samúðarkveðjur.
Minningin um góða
og hjartahlýja konu lif-
ir í hugum okkar, elsku
amma, takk fyrir allt.
Þinn sonarsonur,
Ásmundur.
Þú ert ein fallegasta sál sem ég hef
kynnst á lífsleiðinni. Af öllu því sem
ég hef upplifað í lífi mínu þá stendur
þú upp úr með góðmennsku þinni og
ekkert annað er mikilvægara að taka
sér til fyrirmyndar.
Allar mínar minningar um þig eru
svo yndislegar og ljóslifandi að lofa
skal ég því, elsku amman mín, að allt
til enda skal ég muna þær.
Ég á eftir að sakna þín og erfitt er
að hugsa til þess að fá ekki að hitta þig
aftur og aftur. Takk fyrir að vera
amma mín.
Ólafur Helgi Þorgrímsson.
Elsku amma Lóló,
Mig langar að minnast þín í örfáum
orðum.
Þú varst alltaf hjartahlý og góð.
Gott var að ræða málin við þig. Mikið
þótti Jóni Aroni mínum vænt um þig,
hann átti það til að klappa þér og
strjúka þegar við hittum þig.
Það var best af öllu að fá ristabrauð
og kakóið þitt á köldum degi, enda
besta kakó sem til er.
Ein minning er mér ofarlega í huga
er við Steinunn frænka strukum af
leikskólanum saman til þín, okkur
langaði svo í kakóið þitt og risabrauð.
Þrátt fyrir ungan aldur og prakkara-
skap vorum við ekkert skammaðar
heldur bara sagt að við mættum alltaf
koma en ekki fara af leikskólanum án
þess að hafa leyfi til.
Síðasta ár reyndi mikið á þig, það
var oft erfitt að horfa upp á þig þjást.
En nú hefur þú fengið hvíld frá þján-
ingum og veikindum.
Elsku afi, þú hefur staðið eins og
hetja við bakið á ömmu í veikindum
hennar. Biðjum guð að gefa þér styrk
að takast á við lífið án hennar.
Elsku amma, takk fyrir allt
Þeir segja mig látinn, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem að mun ykkur gleðja.
Fjóla Rún Jónsdóttir
Mig langar að minnast ömmu í ör-
fáum orðum. Lóló amma var hlý, góð
og vildi öllum vel. Þegar ég hugsa til
baka kemur efst í huga góða kakóið
hennar. Á yngri árum gerðum við
Helga Hafdís okkur ófáar ferðir til
ömmu og afa einungis til að fá kakóið
hennar ömmu ásamt öðru góðgæti.
Seinustu ár hafa verið þér erfið en
þú reyndir alltaf að bera þig vel og
tókst vel á móti þeim sem til þín
komu.
Börnum mínum fannst alltaf gott
að koma til ykkar langafa því þú pass-
aðir alltaf upp á að eiga eitthvert góð-
gæti til að stinga upp í litla munna.
Þrátt fyrir mikil veikindi vildir þú allt-
af vera vel til höfð, þú varst óttaleg
pjattrófa og þannig munum við þig.
Elsku afi, við biðjum góðan Guð að
gæta þín og veita þér styrk.
Þín
Elva.
Fyrir tæplega 36 árum fór ég í
fyrsta skiptið fljúgandi austur á Nes-
kaupstað, með kærustunni, Sólveigu,
sem ég hafði með nokkurri lagni náð
að fanga þá fyrr um sumarið. Að eigin
áliti var þarna á ferð harðsnúinn 18
ára gamall töffari „úr bænum“ en
með kvíðahnút í maganum yfir því að
hitta tengdaforeldrana tilvonandi í
fyrsta skiptið.
Ólafur H. Jónsson tengdapabbi
sem kom út á flugvöll til að ná í okkur
og hitti þar með tengdasoninn í fyrsta
skiptið, var ljúfur og rannsakandi, en
ábyrgðarfullur á svipinn. Ekið frá
flugvellinum og sem leið lá að Há-
mundarstöðum þar sem Lóló, þessi
myndalega og geislandi kona, stóð á
tröppunum, skælbrosandi, faðmaði
mig að sér og bauð mig innilega vel-
kominn. Þetta er myndin sem birtist
mér nú, þegar ég hugsa til hennar og
ykkar hjónanna með þakklæti fyrir
samveruna og öll þau góðu gildi sem
þið laumuðuð svo fimlega og af ein-
lægni inn í mína sál.
Nú ert þú Lóló mín lögð af stað til
heimahafnar en skildir eftir til afkom-
enda þinna skærlogandi kyndil sem
geislar af kærleika og yndisleik. Það
sem nú bætir líðan okkar sem syrgj-
um þig sárt eru þau forréttindi að
eiga eingöngu um þig góðar minning-
ar.
Þorgrímur Ólafsson.
Elsku Lóló og langamma, takk fyr-
ir allt saman, núna ertu komin á betri
stað þar sem þér líður miklu betur
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Hvíldu í friði.
Óðinn Ólafsson, Kristjana Vala
og Viktoría Sólveig.
Fleiri minningargreinar um Ólöfu
Ólafsdóttur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Eggert Snorri
Símonsen
✝ Eggert SnorriSímonsen fædd-
ist í Reykjavík 6. maí
1943. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans við Hringbraut
24. ágúst síðastlið-
inn.
Útför Eggerts var gerð frá Graf-
arvogskirkju 2. september sl.
Meira: mbl.is/minningar
Konur langefstar
hjá BR
25 pör mættu til leiks á fyrsta
spilakvöldi vetrarins.
Spilað var fyrra kvöld tveggja
kvölda tvímennings þar sem besta
samanlagða skor er sigurvegari.
Staðan er þessi:
Guðrún Jóhannesd. – Arng. Jónsd. 66,8%
Símon Símonars. – Páll Valdimarss. 60,6%
Sveinn R. Eiríkss. – Ómar Olgeirsson 59,5%
Skúli Skúlason – Rúnar Einarss. 57,3%
Guðjón Sigurjónss. – Ísak Ö. Sigurðss.
55,6%
Næsta þriðjudag verður spilað
seinna kvöldið. Keppnisstjóri er
Vigfús Pálsson.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, 3. sept. Spilað var
á 11 borðum. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S
Ragnar Björnsson – Jón Lárusson 279
Sigurður Pálsson – Þröstur Sveinsson 261
Ólafur B. Theodórs – Höskuldur Jónss. 252
Árangur A-V
Jórunn Kristinsd. – Ólöf Ólafsdóttir 275
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 252
Soffía Theodórsd. – Elín Guðmannsd. 243
Tvímenningskeppni 7. sept. Spil-
að var á 12 borðum. Meðalskor 216
stig.
Árangur N-S
Rafn Kristjánsson – Guðbjörn Axelsson
246
Magnús Oddsson – Oliver Kristófersson
239
Siguróli Jóhannss. – Sigurður Jóhannss.
233
Árangur A-V
Ægir Ferdinandss. – Þröstur Sveinss. 255
Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 251
Friðrik Hermannsson – Björn Árnason 234
Gullsmárinn
Spilað var á 12 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 3.
september. Úrslit í N/S
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 208
Ari Þórðarson – Páll Guðmundss. 204
Guðm. Magnúss. – Leifur Jóhanness. 181
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 180
A/V
Elís Kristjánsson – Páll Ólason 218
Dóra Friðleifsd. – Heiður Gestsdóttir 211
Ragnhildur Gunnarsd. – Ásgr. Aðalstss. 197
Einar Elíasson – Magnús Thejll 178
Spilað er alla mánudaga og
fimmtudaga og hefst spilamennska
kl. 13.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Minningar á mbl.is
Soffía Margrét
Jónsdóttir
✝ Soffía MargrétJónsdóttir fædd-
ist á Patreksfirði 16.
október 1969. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi 25. ágúst sl.
Útför Soffíu Mar-
grétar fór fram frá Hafnarfjarðarkirkju
3. september sl.
Meira: mbl.is/minningar