Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 39
Flautuleikarar Áshildur Haraldsdóttir og Ewa Murawska vinna vel saman.
Morgunblaðið/Kristinn
NÝLEGA kom út geisladiskur sem
á má finna þverskurð af tónlist sem
samin var fyrir flautu í Póllandi og á
Íslandi á síðustu öld. Diskurinn
nefnist Together In Music og er
ávöxtur samstarfs Áshildar Har-
aldsdóttur flautuleikara og pólska
flautuleikarans Ewu Murawska.
„Verkin á disknum eru öll samin á
20. öld en eiga fátt annað sameig-
inlegt, þau eru svo ólík. Elsta verkið
á disknum er eftir Szeligowski og á
rætur í þessar löngu tónlistarhefð
sem er í Póllandi. Það er líka mjög
ólíkt íslensku verkunum sem eru að
mörgu leyti nýstárlegri og frjáls-
legri,“ segir Áshildur um verkin.
Á disknum eru tónverk eftir Jónas
Tómasson, Atla Heimi Sveinsson,
Atla Ingólfsson, Þorkel Sigurbjörns-
son, Paul Kletzki, Henryk Mikolaj
Górecki, Tadeusz Szeligowski og
Árna Björnsson en hann á elsta ís-
lenska flautuverkið, „Fjögur íslensk
þjóðlög“.
Það var Ewa, sem er mikill Ís-
landsvinur, sem fékk hugmyndina
að disknum og hafði samband við
Áshildi um samstarf.
„Ég og Ewa erum orðnar miklar
vinkonur. Í febrúar tek ég þátt í
flautuhátíð í Póllandi. Þar leikum við
Ewa inn á geisladisk með hljómsveit
og öðrum flautuleikurum, m.a. Guð-
rúnu Birgisdóttur. Ég er líka að að-
stoða Ewu við að skrifa bók á ensku
um sögu flautunnar á Íslandi, mest
er þó frá tímanum eftir 1970.“
ingveldur@mbl.is
20. aldar flaututónlist
Íslensk og pólsk tónverk fyrir flautu eiga fátt sameiginlegt
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
Þetta er annað sánd
núna. Eins og 20. ald-
ar útgáfur af Händel miðað
við 19. aldar útgáfur ...40
»
FINNSKA listakonan Elena
Schuvaloff-Maijala sýnir nú málverk
í Gerðarsafni. Hún er af rússneskum
ættum og í bæklingi sem fylgir
sýningunni af hálfu listakonunnar
segir frá sérstökum bakgrunni
hennar. Hér kemur fram saga afans
sem átti súkkulaðiverksmiðjur í Pét-
ursborg, fjölskyldunnar sem faldi
skartgripi og gull í konfektmolum og
kjólföldum þegar þau flúðu heima-
slóðir sínar á tímum rússnesku
byltingarinnar. Einnig silfursleginn
heimur bernsk-
unnar, en faðir
listakonunnar var
skartgripasali.
Þessi sérstaki
bakgrunnur er hluti
af list Shcuvaloff-
Maijala. Hann birt-
ist í mynstri og myndum úr blaðsilfri
og blaðgulli, flúruðu mynstri sem
kallast á við myrkan og óræðan
heim, byggðan upp í mörgum lita-
lögum þar sem ýmist er bætt á eða
skafið af. Stærsta verkið á sýning-
unni er lýrískt landslagsverk, Noct-
urne (2009). Hugtakið Nocturne hef-
ur gjarnan verið notað af
tónskáldum, frægar eru noktúrnur
eftir Chopin. Málarar hafa einnig
notað hugtakið, eins og noktúrnur
eftir James Whistler eru dæmi um.
Verk sem bera þetta heiti vísa til
næturstunda, tunglsljóss og hug-
hrifa nætur. Í næturmálverki
Schuvaloff-Maijala birtist landslag
norðursins í birkitrjám í forgrunni
en síðan umbreytast strá við ár-
bakka í eilítið villtan gróður sem
kallar fram hugmyndir um innri
átök.
Það er tæpast hægt að segja að
málverk Elenu Schuvaloff-Maijala
séu einstök eða nýstárleg, til þess
fetar listakonan of troðnar slóðir.
Ætlunarverk hennar er fyrst og
fremst að vinna með þekktar breyt-
ur; landslag og birtubrigði á vand-
lega afmörkuðum litaskala, samspil
hins hlutbundna og óhlutbundna,
andstæður sem birtast í skrautlegu
mynstri á myrkum litaflötum eða í
kyrrð morgunsins við vatnið annars
vegar og í óreiðu gróðursins hins
vegar. Landslag og umhverfi, litir,
efni og efnismeðferð eru notuð til
þess að endurspegla innra sálar-
ástand líkt og tíðkaðist á tímum
rómantíkurinnar á nítjándu öld.
Forvitnilegt hefði verið að fá nán-
ari upplýsingar um tilurð sýningar-
innar af hálfu Listasafns Kópavogs,
einnig hefði ekki sakað að snara
texta í sýningarskrá yfir á íslensku.
Fyrir dögun
Gerðarsafn
Dyr draumanna, málverk, Elana
Schuvaloff-Maijala
bbbnn
Til 27. september. Opið alla daga nema
mán. frá kl. 11-17. Aðgangur ókeypis.
RAGNA SIGURÐ-
ARDÓTTIR
MYNDLIST
TRÍÓ rússneska
harmonikusnillingsins
Vadim Fyodorov held-
ur tónleika á Kaffi Ró-
senberg í kvöld og
hefjast þeir kl. 21.
Leikin verður tónlist
af fyrstu plötu tríósins
Papillions noirs sem
þeir félagar gáfu út í sumar auk laga úr ýmsum
áttum. Tríó Vadim Fyodorov er nefnt eftir stofn-
anda hennar, rússneska harmonikkusnillingnum
Vadim. Tríóið leikur franska músettu- og djass-
tónlist. Auk Vadims skipa hljómsveitina Gunnar
Hilmarsson á gítar og Leifur Gunnarsson á
kontrabassa. Vadim fæddist í Pétursborg 1969, en
hefur búið á Íslandi í nær áratug.
Tónlist
Vadim Fyodorov
á Rósenberg
Tríó Vadim Fyodorov
BÓKAFORLAGIÐ Veröld
hefur samið við stærsta forlag
Rússlands, AST, um útgáfu á
tveimur fyrstu glæpasögum
Yrsu Sigurðardóttur, Þriðja
tákninu og Sér grefur gröf.
Yrsa verður ekki í amalegum
félagsskap því forlagið gefur
m.a. út bækur Dan Brown,
Stephen King, Stephanie
Meyer, Chuck Palanick og
John Grisham.
Bækurnar tvær hafa komið út í fjölda landa og
hlotið jákvæða gagnrýni. Yrsa er einn margra höf-
unda sem þátt taka í Bókmenntahátíðinni í
Reykjavík og les upp úr væntanlegri glæpasögu
sinni í Iðnó annað kvöld kl. 20.
Bókmenntir
Hjá stærsta for-
lagi Rússlands
Yrsa Sigurðardóttir
HLJÓMSVEITIN
Melchior heldur tón-
leika á Græna hatt-
inum, Akureyri, í
kvöld kl. 21. Sveitin
gaf nýverið út plötu
sem ber sama titil og
sveitin.
Melchior er skip-
uð þeim Hilmari
Oddssyni, Hróðmari
I. Sigurbjörnssyni og Karli Roth, en þeir félagar
syngja og leika á gítara og hljómborð. Gunnar
Hrafnsson leikur á bassa og Steingrímur Guð-
mundsson á trommur. Kristín Jóhannsdóttir
syngur sem fyrr með hljómsveitinni. Melchior var
stofnuð árið 1973.
Tónleikar
Melchior á
Græna hattinum
Hljómsveitin Melchior
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ALLAR persónurnar í leikritinu hafa þýðingu sem lykl-
ar eða dyr, sem annaðhvort opnast eða lokast fyrir
Fridu,“ sagði Brynhildur Guðjónsdóttir, höfundur leik-
ritsins Frida … viva la vida, í samtali hér í blaðinu í
sumar. Brynhildur leikur sjálf mexíkósku listakonuna
Fridu Kahlo í verkinu, sem verður frumsýnt á morgun.
Brynhildur bætti við að Frida notaði fólk til að koma sér
áfram eða vinna sig úr vandamálum eða framhjá þeim.
„Diego gegnir þýðingarmiklu hlutverki í þessu öllu sam-
an því án hans er Frida ekki til. Þau eru yin og yang eig-
inlega og þurfa hvort á öðru að halda sem andstæðir pól-
ar.“
Diego Rivera var eiginmaður Fridu, 20 árum eldri og
orðinn afar þekktur listamaður þegar þau kynntust. Hún
lifði alla tíð í skugga frægðar hans og öðlaðist sjálf ekki
heimsfrægð fyrr en eftir dauðann.
Ólafur Darri Ólafsson leikur Diego Rivera. Hvernig
skyldi honum hafa gengið að setja sig í spor þessa stór-
brotna listamanns?
„Það hefur gengið nokkuð vel en þetta hefur líka verið
talsverð törn,“ segir hann. „Það kemur svo í ljós þegar
við byrjum að sýna hvernig hefur tekist til. En það hefur
verið forvitnilegt að skoða ævi þessa merka manns.
Hann var mikill listamaður, merkiskarl.“
Ólafur Darri segir að leikritið sé aðallega um Fridu og
síðan samskipti þeirra Diegos, hvaða áhrif hann hafði á
hana. „Þetta ástarsamband var ansi sérstakt, oft erfitt,
en ég held að þetta hafi verið stór, mikil og stormasöm
ást. Frida var frekar ung þegar þau kynntust og sam-
bandinu lauk ekki fyrr en hún dó. Það er óhætt að segja
að hann hafi haft gríðarleg áhrif á hana og hennar líf.“
Er orðin stærri en lífið
Frægðarsól Fridu Kahlo hefur risið hratt síðustu ára-
tugi og málverk hennar seljast fyrir metfé. Ólafur Darri
var í Mexíkó fyrir tveimur árum og þótti athyglisvert að
sjá hvað Frida er mikil alþýðuhetja. „Alls staðar eru
minjagripir með henni og myndir af henni. Maður sér
varla myndir af Diego nema hún sé með. Vytautas
Narbutas, sem hannar leikmyndina, sagði við mig að sér
fyndist Diego Rivera töluvert merkilegri listamaður en
hún. En saga Fridu, hvernig hún barðist við bæklun og
aðra erfiðleika, er stórmerkileg. Hún er orðin stærri en
lífið.“
Þegar Ólafur Darri er spurður að því hvort það hafi
verið erfitt að leika á móti Brynhildi, því hún sé ekki
bara aðalleikonan heldur líka höfundurinn, virðist hann
undrandi.
„Nei, alls ekki. Brynhildur er svo mikill fagmaður að
höfundurinn tók aldrei yfir. Ég dáist í rauninni að því
hvað Brynhildur er óhrædd við að það sé verið að setja á
fjalirnar nýtt og spennandi íslenskt verk eftir hana.“
„Mikil og stormasöm ást“
Leikrit Brynhildar Guðjónsdóttur, Frida … viva la vida, verður frumsýnt á morgun
Frida og Diego Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson í hlutverkum sínum.
LEIKRITIÐ Frida … viva la vida
eftir Brynhildi Guðjónsdóttur
verður frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu annað kvöld, 11. sept-
ember. Verkið byggist á lífi
mexíkósku myndlistarkon-
unnar Fridu Kahlo (1907-
1954) sem er af mörgum talin
ein forvitnilegasta listakona
20. aldar. Hún var gift Diego
Rivera (1886-1957), einum
þekktasta myndlistarmanni
síns tíma, og var ást þeirra
stormasöm á köflum.
Brynhildur leikur Fridu en
Ólafur Darri Ólafsson Diego.
Atli Rafn Sigurðarson leik-
stýrir verkinu.
Stormasamt lífshlaup mexíkóskra myndlistarmanna