Morgunblaðið - 10.09.2009, Side 42
Vestur í Selárdal í Arnarfirðibjó Samúel Jónsson íBrautarholti sem hann
nefndi svo. Hann var listhneigður
og málaði myndir í frístundum. Þeg-
ar kirkjan í Selárdal varð 100 ára
málaði hann altaristöflu og færði
kirkjunni. Sóknarnefndin neitaði þó
að taka við gjöfinni, var sæl með
gömlu altaristöfluna og vildi ekki
skipta.
Samúel lét ekki deigan síga,steypti upp eigin kirkju og bar
efniviðinn, sand og möl, á bakinu úr
fjörunni þar fyrir neðan. Það er þó
ekki eina stórvirkið sem eftir hann
liggur, því hann gerði ýmsar styttur
og steypti einnig upp eftirmynd af
frægum gosbrunni sem hann hafði
rekist á í bók um suðurlönd.
Heimildir eru um það að Samúelhafi verið að dytta að verkum
sínum fram yfir áttrætt, en hann
lést 5. janúar 1969, þá 85 ára að
aldri. Eftir það var lítið hirt um
listaverkin í Selárdal, þau stóðu
óvarin fyrir veðri og vindum og fóru
svo illa að um síðustu aldamót sáu
menn að ef ekkert yrði að gert yrði
um seinan að bjarga verkunum.
Félag um endurreisn listasafnsSamúels Jónssonar í Selárdal
var svo stofnað í apríl 1998 og hefur
beitt sér fyrir viðgerðum á verk-
unum og húsakosti. Mikilvægur
þáttur í því starfi er að hingað til
lands hafa komið sjálfboðaliðar á
hverju ári víða að úr heiminum og
unnið við endurgerðina undir stjórn
þýska myndhöggvarans Gerhards
König. Verkin hafa líka flest gengið
í endurnýjun lífdaganna, viðgerð og
lagfærð og máluð í upprunalegum
litum.
Þeir listamenn sem kallaðir hafaverið bernskir eiga það sam-
eiginlegt að alla jafna átta menn sig
ekki á list þeirra fyrr en löngu eftir
fráfall þeirra. Svo var því farið með
Samúel að menn kunnu helst að
meta list hans löngu eftir að hann
lést og þegar þeir voru nánast búnir
að glata henni. Sumpart er það
vegna þess að umræða um það sem
gjarnan er kallað æðri menning
markast mjög af akademísku við-
horfi þar sem menn eru oft ekki
taldir listamenn nema þeir hafi bréf
upp á það. Verk þeirra eru því oft í
litlum metum í nánasta umhverfi;
víst kemur fólk langt að til að skoða
þau, en sveitungum finnst kannski
ekki svo mikið til þeirra koma.
Liður í ferðamennsku síðustu áraer að gefnir eru út kynningar-
bæklingar þar sem hvert hérað eða
landshluti kynnir það sem þar er
helst er að sjá eða upplifa. Vestfirð-
ingar láta ekki sitt eftir liggja þar
og þannig hefur Markaðsstofa Vest-
fjarða gefið út ýmislegt, þar á meðal
handhægan bækling sem heitir
Vestfirðir – ævintýrahandbók fjöl-
skyldunnar. Í þeim bæklingi segja
menn frá náttúrvætti og listasöfn-
um, þar á meðal listasafni Samúels
Jónssonar í Selárdal. Þær vanga-
veltur sem birtast í þessum pistli eru
einmitt sprottnar af heimsókn í Sel-
árdalinn í sumar, eða réttara sagt af
þeirri mynd sem skreytir umfjöllun
um Samúel og listaverk hans í ofan-
greindum bæklingi og sést hér til
hliðar. Hvað finnst þér, ágæti les-
andi? Birtist hér afstaða Markaðs-
stofu Vestfjarða til listaverka Sam-
úels og vinnu sjálfboðaliðanna
útlensku? arnim@mbl.is
Samúel og sveitungar hans
»Umræða um æðrimenningu markast af
akademísku viðhorfi þar
sem menn eru oft ekki
taldir listamenn nema
þeir hafi bréf upp á það
Markaðsskrifstofa Vestfjarða
Endurreisn Ferðalangur kynnir sér listaverk Samúels Jónssonar í Selárdal.
Árni Matthíasson
AF LISTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
SÝNDUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
ALLIR ÞEIR SEM FRAMVÍSA LEIKHÚSMIÐA FRÁ
HELLISBÚANUM FÁ 25% AFSLÁTT Á BÍÓMYNDINA:
theuglytruth
FRUMSÝND 18. SEPTEMBER
HHH
“Með öllum líkindum
frumlegasta ástarsaga
sem hefur komið út
síðustu misseri.”
T.V. - Kvikmyndir.is
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM
OG BORGARBÍÓI
Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára
Magnað og blóðugt
framhald af Halloween
sem Rob Zombie
færði okkur
fyrir tveimur árum.
Hinn stórhættulegi og snargeðveiki
raðmorðingi Michael Myers heldur
áfram að myrða fólk á hrottalegan hátt!
Bráðskemmtileg heimildarmynd um mestu goðsögn
tískuheimsins, Önnu Wintour, fyrirmynd persónu
Meryl Streep í myndinni The Devil Wears Prada.
HHH
„Ótrúlega skemmtileg!“
- S.V., MBL
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓÍSÝND Í SMÁRABÍÓI
Inglorious Basterds kl. 6 - 9 B.i.16 ára
The Taking of Pelham 123 kl. 6 (Síðasta sýning) B.i.16 ára
Time Travelers Wife kl. 8 B.i.12 ára
The Goods kl. 10 B.i.14 ára
September issue kl. 6 - 8 LEYFÐ Stelpurnar okkar kl. 10 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 á. Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 á.
Time Travelers w... kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 á.
G.I. Joe kl. 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára
The Goods, live hard... kl. 5:50 - 8 - 10:10 750 kr B.i.14 ára
Taking of Pelham kl. 5:30 - 8 - 10:30 750 kr. B.i.16 ára
FRÉTTIR um söguþráð næstu Sex
and the City-myndar eru þegar byrj-
aðar að leka um netið. Þeir sem ekkert
vilja um hann vita eru hér með varaðir
við. Í myndinni, sem er í tökum um
þessar mundir, mun Charlotte York
Goldenblatt, sem Kristin Davis leikur,
fara frá Harry manni sínum þegar
hún telur hann standa í framhjáhaldi.
Hún er svo sannfærð um að hann
haldi framhjá að hún flytur út úr íbúð
þeirra í Manhattan með dæturnar
Lily og Rose. Svo kemur í ljós að
Charlotte hefur rangt fyrir sér og
Harry er ekki að laumast til annarra
kvenna heldur er hann í laumi að hitta
verktaka sem er að byggja drauma-
heimilið fyrir Charlotte án vitundar
hennar.
Í myndinni flytja Carrie Bradshaw
og Big líka inn til Charlotte og Harry
tímabundið eftir að hafa tapað miklum
peningum í efnahagslægðinni. Big,
leikinn af Chris Noth sem fyrr, ferðast
til Mið-Austurlanda til að reyna að efla
tekjur þeirra. Miranda Hobbs, sem
Cynthia Nixon leikur, hættir að starfa
sem lögfræðingur og opnar veitinga-
stað með eiginmanni sínum, Steve.
Því er líka haldið fram að í mynd-
inni muni samkynhneigður vinur Car-
rie, Stanford Blatch, giftast samkyn-
hneigðum vini Charlotte, Anthony
Marentino, en í sjónvarpsþáttunum
voru þeir svarnir óvinir. Söngkonan
Liza Minnelli syngur í brúðkaups-
veislu þeirra. Von er á því að Sex and
the City-kvikmyndin verði frumsýnd í
maí á næsta ári.
Beðmál Sarah Jessica Parker og
Cynthia Nixon við tökur á dögunum.
Blaðrað um
Beðmálin