Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.09.2009, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009 STÆRSTA BÍÓOPNUN Í ÁR! YFIR 47.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU! 20.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU Í REYKJAVÍK SÝND MEÐÍSLENSKU TALI EIN ALLRA BESTA DISNEY- PIXAR MYND TIL ÞESSA TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD, EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI “BESTA MYND ÁRSINS” HHHH „SKEMMTILEG, HJARTNÆM OG DREPFYNDINN“ - T.V. KVIKMYNDIR.IS HHHH „HÉR ER ENN EITT MEISTARAVERK FRÁ PIXAR, SEM RYÐUR BRAUTINA Í NÚTÍMA TEIKNIMYNDAGERÐ.“ - ROGER EBERT 100/100 – VARIETY 100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER „EKKI F YRIR HÚMOR SLAUSA “ HHH ÓTRÚLEGA VEL UNNIN OG SKEMMTILEGUR SVARTUR HÚMOR” T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHH „...MARKAR NÝJA SLÓÐ Í ÍSLENSKRI KVIKMYNDAGERГ ÓHT RÁS 2. HHH “ONE PERFORMANCE BLEW ALL OF THE OTHERS OUT OF THE WATER ... HELGI BJÖRNSSON” AO ICELAND REVIEW Venjulegt verð – 1050 kr. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI / ÁLFABAKKA REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 6 - 8 - 10 16 UP m. ensku tali kl. 8 L REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 8 - 10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 5:50 LÚXUS VIP INGLOURIOUS BASTERDS kl. 8 - 11 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:503D L DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L PUBLIC ENEMIES kl. 10 16 THE PROPOSAL kl. 8 - 10:20 L G-FORCE m. ísl. tali kl. 5:50 L HARRY POTTER 6 kl. 5 10 / KRINGLUNNI BEETHOVEN TÓNLEIKARÖÐ í kvöld kl. 6 í beinni útsendingu L DIGITAL REYKJAVÍK WHALE WATCHING MASSACRE kl. 8:30 - 10:30 16 UP m. ensku tali kl. 83D - 10:103D L DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:303D L DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:30 L PUBLIC ENEMIES kl. 10:10 16 THE PROPOSAL kl. 8 L Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HLJÓMSVEITIN var stofnuð 1995 eða 1996, en fyrir nákvæmlega tíu árum varð púsluspilið tilbúið – við höfum verið í núverandi mynd í tíu ár og erum að fagna því,“ segir Magni Ásgeirs- son forsprakki hljómsveitarinnar Á móti sól sem ætlar að fagna tíu ára afmæli sínu nú um helgina. Það var nefnilega um miðjan sept- ember árið 1999 sem Magni kom fram með sveitinni í fyrsta skipti – á réttaballi í Hellubíói. „Við ætlum að fagna þessu á okkar hátt. Við höfum verið að grínast með að fara og skila mér því það eru tíu ár síðan ég kom fljúgandi frá Eg- ilsstöðum. Við erum nefnilega að fara að spila þar á laugardaginn og ef ég stend mig ekki verð ég bara skilinn eftir,“ segir Magni í léttum dúr, en þeir félagar verða með ball í Valaskjálf á laugardagskvöldið. Annað kvöld, föstudagskvöld, verður Á móti sól hins vegar á réttaballi í Árnesi í Gnúpverja- hreppi, og mun það ball marka ákveðin tíma- mót. Löng meðganga „Þetta verður síðasta ballið sem verður haldið í þessu merka húsi, sem er eitt af þessum gömlu og góðu sveitaballahúsum. Mér skilst að það eigi að fara að nota það í eitthvað annað,“ út- skýrir Magni og bætir því við að þá sé ekki allt upp talið því sveitin leiki líka á skólaballi í Borg- arholtsskóla í kvöld. Aðspurður segir Magni að sér finnist þessi tíu ár hafa liðið nokkuð hratt. „Mér finnst hins veg- ar að það sé mjög langt síðan ég var með hár – ég var frekar hárprúður á fyrstu myndunum sem teknar voru af bandinu,“ segir söngvarinn hárfagri og hlær. „En að öðru leyti finnst mér þessi tími hafa liðið ansi hratt, ég veit ekki hvað við erum búnir að spila oft en það hleypur örugglega á hundruðum skipta.“ Það er annars að frétta af sveitinni að þeir fé- lagar eru að leggja lokahönd á nýja plötu um þessar mundir. „Við klárum vonandi upptökur um helgina, þetta er alveg að verða tilbúið. Platan á svo að koma út í byrjun nóvember, en við höfum verið að vinna að henni í þrjú ár. Við erum að vanda okkur heilmikið,“ segir Magni, en um áttundu plötu sveitarinnar verður að ræða. „Þetta er fyrsta platan okkar með frumsömdu efni frá árinu 2003 þannig að það var kominn tími á það. Ég held að þetta sé bara besta plata í heimi, enda erum við búnir að vera nógu lengi að gera hana,“ segir Magni að lokum. Afmæli Magni og félagar ætla að fagna árunum tíu með þremur böllum um helgina. Voru með meira hár  Á móti sól fagnar tíu ára afmæli sínu um helgina  Ný plata er væntanleg í nóvember  „Ég held að þetta sé bara besta plata í heimi,“ segir söngvarinn Áfrumburði Naglar, I Pro-udly Present, er rennt ígegnum rokkklisjur afkrafti. Tónlistinni má lýsa sem útvarpsvænu tilfinn- ingarokki. Þeir takast á við hluti eins og ástvina- missi, klær fíkn- arinnar, und- ankomuleysi, eftirsjá og, síð- ast en ekki síst, ástina. Hlutir sem meginþorri manna upplifir á ævi sinni og því er auðvelt að tengj- ast hugðarefnum Naglar. Hljómur plötunnar er fínn og andinn í honum fellur vel að tónlist- inni. Mikill metnaður hefur farið í gerð plötunnar en mér þykir það ekki skila sér. Hér er góð vísa of oft kveðin. Þetta hefur verið gert áður og þeir bæta litlu við. Ein tilraun er gerð til að syngja á íslensku í laginu „Lóan“, en til- raunin er heldur hrapalleg. Enskan fer þeim mun betur og hljómar meira sannfærandi þótt meira megi leggja í textagerðina. Það er vafa- laust til stór hópur fólks sem nýtur þess að hlusta á I Proudly Present, en fyrir mér ristir hún grunnt vegna einsleitni og skorts á frum- leika. Stundum þykir mér eins og plat- an sé einnig unnin með áheyrenda- hóp erlendis í huga og þá líkast til bandarískan. Þegar ég skoðaði myspace-ið þeirra sá ég að þar hafa þeir lagt land undir fót. Stílbrögð þeirra minna nefnilega um margt á það sem gerist vestanhafs. Á hljóm- disknum þykir mér vanta meiri dirfsku og fleiri nýjar hugmyndir, að frumleikanum ógleymdum. Spurningin er hvort þeir geri þetta á sínum forsendum eða annarra. Litlu bætt við Geisladiskur Nögl – I Proudly Present bmnnn Nögl: Kristófer Eðvarðsson gítar og söngur, Þorsteinn Ólafsson trommur og ásláttur, Jóhann Fannar Einarsson gítar, Örn Ingi Unnsteinsson bassi. Tekið upp í Stúdíó Stöðinni og víðar. Hljóðblandað af Þorvaldi Bjarna Þor- valdssyni. Masterað af Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni og Bjarna Braga. Upp- tökustjórn var í höndum Sigurðar Ingva Þorvaldssonar, Axels Ein- arssonar og Naglar. Framleiðandi er Nögl. Páll Ólafsson og Þorsteinn Ólafsson hönnuðu umbúðir. Record Records sáu um dreifingu. ARNLJÓTUR SIGURÐSSON TÓNLIST Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is FIMMTUDAGSFORLEIKUR Hins hússins hefst í sjöunda skipti næst- komandi fimmtudag, 17. septem- ber, þegar hljómsveitin Mikado og gestir stíga á svið. „Þetta verður með sama sniði nú og undanfarin ár. Eins og venjulega er ótrúlega mikil sókn í að taka þátt og við erum búin að bóka út októ- ber nú þegar,“ segir Þorvaldur H. Gröndal hjá menningardeild Hins hússins. „Síðustu tónleikarnir á þessu ári verða 26. nóvember. Svo verður aftur byrjað 7. janúar 2010 og haldið áfram fram í apríl.“ Fimmtudagsforleikur Hins húss- ins er tónleikaröð sem er hugsuð sem vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri jafnframt því að fá reynslu í því að sjá um tón- leika. Alltaf hægt að sækja um „Hljómsveitir geta sótt um, ein eða fleiri saman. Þeim er boðið að vera með eitt til tvö gestabönd með sér svo það eru allt upp undir þrjú bönd, jafnvel fjögur, á einu kvöldi. Umsóknarfrestur er alltaf í gangi og er hægt að finna eyðublað á vef- síðu okkar www.hitthusid.is,“ segir Þorvaldur. Spurður hvernig bönd sæki um í ár segir hann það spanna allan skal- ann. „Þetta endurspeglar bara flór- una. Harðkjarnametal er mjög al- gengt, raftónlist, dans og alls konar rokk. Við sjáum þær sveiflur sem eru í tónlistinni hverju sinni, það hefur kannski verið minnst um poppið hjá okkur í gegnum árin. Margir þeirra sem koma fram hjá okkur eru að taka sín fyrstu skref í tónleikahaldi og halda síðan kannski næst í Músíktilraunir. Fimmtudagsforleikurinn hefur ver- ið vettvangur fyrir margar hljóm- sveitir sem eru enn að starfa í dag og gera það gott,“ segir Þorvaldur að lokum. Minnst um poppið Morgunblaðið/Þorkell Hitt Húsið Harðkjarna metal er mjög algengt á fimmtudagstónleikunum.  Fimmtudagsforleikur Hins hússins að hefjast  Mest um harðkjarna- hljómsveitir en fáar poppsveitir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.