Morgunblaðið - 10.09.2009, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2009
FRÁSAM RAIMI
LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN
MYNDANNA SEM ER Í TOPPFORMI Í SINNI
BESTU KVIKMYND TIL ÞESSA!GAGNRÝNENDUR ERU
Á EINU MÁLI:
ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100
LOS ANGELES TIMES- 100/100
WALL STREET JOURNAL - 100/100
WASHINGTON POST - 100/100
HHHH
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
S.V. - MBL
HHHH
- H.G.G, POPPLAND/RÁS 2
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG
STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA
HEIMURINN ÞARF STÆRRI HETJUR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
SÝND Í 3D
Í REYKJAVÍK
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Í KVÖ
LD K
L. 18
.00
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 8 - 10 16
THE PROPOSAL kl. 8 Síðustu sýningar L
DRAG ME TO HELL kl. 10 Síðustu sýningar 16
REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 8 - 10:10 16
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 8 L
KARLAR SEM HATA KON... kl. 10:10 16
REYKJAVÍK WHALE WATCHING kl. 8 - 10 16
G.I. JOE kl. 8 12
CROSSING OVER kl. 10:20 16
SMÁRALIND
NÝ SENDING AF
DAISY BOLUM
NÝJIR LITIR
MUSSA
2.990
LOÐVESTI
5.490
KATRÍN Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra afhenti í gær Ólafi de
Fleur Jóhannessyni kvikmynda-
gerðarmanni viðurkenningu fyrir
hönd Kvikmyndaverðlauna Norð-
urlandaráðs, en kvikmynd Ólafs,
The Amazing Truth About Queen
Raquela, hefur verið tilnefnd til
verðlaunanna fyrir Íslands hönd í
ár. Í umsögn dómnefndar segir að
myndin sé hrífandi og ögrandi
kvikmynd sem segir sögu titilpers-
ónunnar, stelpustráks frá Filipps-
eyjum.
Alls eru fimm kvikmyndir til-
nefndar til verðlaunanna, ein frá
hverri Norðurlandaþjóðanna, og
eru sigurverðlaunin 350.000 dansk-
ar krónur (um 8,5 milljónir ís-
lenskra króna), sem skiptast á milli
leikstjóra, handritshöfunda og
framleiðenda.
Hinar kvikmyndirnar sem eru
tilnefndar eru Antichrist eftir
danska leikstjórann Lars Von
Trier, Sána eftir finnska leikstjór-
ann A.J. Annilla, Norður eftir
norska leikstjórann Rune Denstad
Langlo og Ljósár eftir Svíann
Mikael Kristersson.
Allar myndirnar verða sýndar í
Háskólabíói nú um helgina. Verð-
launin verða svo veitt á þingi Norð-
urlandaráðs í Helsinki í október.
Morgunblaðið/Golli
Hið magnaða ævintýri
KARLATÍMARITIÐ
GQ hélt sína árlegu
veislu og verð-
launaafhendingu á
þriðjudagskvöldið í
London.
Ofurfyrirsætan
Kate Moss olli þar
uppnámi þegar hún
öskraði blótsyrði til
að trufla viðtal við
vinkonu sína Lily Allen, sem hlaut
viðurkenninguna Kona ársins, til
að láta hana vita að hún væri að
fara.
Moss öskraði: „Hann er svo hel-
víti ruddalegur, ég kem aldrei
hingað aftur.“ Talið er að hún hafi
móðgast vegna brandara sem írski
leikarinn James Nesbitt sagði þeg-
ar hann veitti verðlaun á samkom-
unni.
Í von um að róa vinkonu sína
öskraði Allen á eftir henni: „Hann
meinti þetta ekki svoleiðis, Kate.“
Fyrr um kvöldið þurfti Moss að
hrista leikarann Mickey Rourke af
sér en hann veitti henni óvenju-
mikla athygli og angraði kærasta
hennar, Jamie Hince. Annars var
Rourke valinn karlmaður ársins af
GQ.
Aðrir verðlaunahafar voru; Guy
Ritchie, valinn kvikmyndagerðar-
maður ársins, Take That var valin
hljómsveit ársins, Jenson Button
íþróttamaður ársins, stjórnmála-
maður ársins var George Osborne,
hönnuður ársins Giles Deacon,
leikari ársins Michael Sheen, sóló-
listamaður ársins Dizzee Rascal,
sjónvarpsmaður ársins Ross
Kemp, grínisti ársins Michael
McIntyre, flottasti maður ársins
David Walliams og fyrir fram-
úrskarandi afrek fékk Elvis Cos-
tello verðlaun.
Moss veldur uppnámi
Kate MossLily Allen James Nesbitt
HVER hefði trúað því fyrir einum
30 árum eða svo að bassaleikari
Kiss, Gene Simmons, þessi með
óeðlilega löngu tunguna, færi með
hlutverk í jólamynd með Elliott
Gould, Lindu Gray og Cybill Shep-
herd? Sú er nú staðreyndin, 37 ár-
um eftir að hin goðsagnakennda
rokksveit Kiss var stofnuð.
Simmons leikur sumsé í jóla-
myndinni The Christmas Movie en
hún segir af ungri konu á frama-
braut sem finnur ólétt ástina í hjól-
hýsahverfi. Betur er þeim sögu-
þræði ekki lýst á kvikmynda-
vefsíðunni IMDB. Simmons leikur
föður þessarar ungu konu en með
hlutverk hennar fer Olesya Rulin,
23 ára leikkona, rússnesk að upp-
runa.
Leikstjóri myndarinnar er Dan
nokkur Gordon, handritshöfundur
The Hurricane. Simmons hefur áð-
ur leikið í kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum, m.a. raunveru-
leikaþáttum um sjálfan sig, Gene
Simmons: Family Jewels. Þeir fjalla
einfaldlega um daglegt líf Sim-
mons, mannsins sem segist hafa
sængað hjá yfir þúsund konum.
Gene Simmons í jólamynd
Reuters
Simmons Málaður að hætti Kiss.