Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 48

Morgunblaðið - 10.09.2009, Síða 48
FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 253. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»  Eyjólfur Sverr- isson, þjálfari 21 árs landsliðsins í knatt- spyrnu, hefur komið við sögu í tveimur stærstu sigrum Íslands í Evrópukeppninni í þessum aldursflokki. Þegar læri- sveinar hans gjörsigruðu Norður- Íra í Coleraine í fyrrakvöld, 6:2, jöfnuðu þeir met sem Eyjólfur átti sjálfur allan heiðurinn af. Fyrir sléttum 20 árum, þann 5. september 1989, skoraði Eyjólfur öll fjögur mörk Íslands í glæsilegum sigri á Finnum, 4:0, á Akureyrarvelli í þess- ari sömu keppni. Þá var Eyjólfur markahæsti leikmaðurinn í næst- efstu deild, með Tindastóli, og gerð- ist atvinnumaður hjá Stuttgart skömmu síðar. Eyjólfur, 20 árum síðar                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-+* +./-.0 **,-12 +,-*11 +.-333 *1-4*0 **3-40 *-0,+, *2/-,, *12-22 5 675 2# 89 6 +..2 *+,-/* +./-/0 **/-*0 +,-+,3 +.-2/ *1-44/ **3-24 *-0,40 *24-.+ *3.-,2 +00-.12* &  :8 *+,-3* +.4-.0 **/-,1 +,-0*2 +*-.*+ *1-1*1 **2-+2 *-0/.+ *24-4 *3.-22 Heitast 15° C | Kaldast 7° C Suðlæg átt, 5-13 m/s, og rigning, fyrst SV- lands en hægari og þurrt fram eftir degi fyrir norðan og austan. » 10 Málverk á sýningu í Gerðarsafni eru tæpast einstök eða nýstárleg, að því er segir í myndlistar- gagnrýni. »39 MYNDLIST» Dyr drauma í Kópavogi FÓLK» Ragga og Gummi ætla að flytja til Berlínar. »40 Ný plata er vænt- anleg frá Á móti sól. Forsprakki sveit- arinnar er ekki frá því að platan sé sú besta í heimi. »44 TÓNLIST» „Besta plata í heimi“ TÓN- OG LAGALISTINN» Hjálmar og Björgvin á toppnum. »43 FÓLK» Gene Simmons er kom- inn í jólaskap. »46 Menning VEÐUR» 1. Jörð skelfur í Ölfusi 2. Kynlíf fyrir heimilisfriðinn 3. Átök á Geirsnefi 4. Fullorðnir menn með tangir  Íslenska krónan veiktist um 0,20% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Á undan fyrirlestri Olli Rehn, stækk- unarstjóra ESB, í Háskóla Íslands í gær flutti Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra ávarp og kvað Rehn mikinn bandamann Ís- lands. Þá væri Rehn mikill fótbolta- áhugamaður, en sér þætti leitt að hann styddi Liverpool í enska bolt- anum, en ekki Manchester United. Ekki stóð á Rehn að snúa talinu yfir á fundarefnið. Sagði hann að hvor gæti haft sitt viðkvæðið í viðræðun- um. Össur slagorð Manchester „United we stand“, eða Sameinaðir stöndum vér. Sjálfur myndi hann syngja „You’ll never walk alone“, eða Þú arkar aldrei einn, á íslensku. „Þú arkar aldrei einn“  Tónlistarmaðurinn Helgi Hrafn Jónsson fer í tónleikaferð undir merkjum Norðursins, tónleikaraðar sem Út- flutningsskrifstofa ís- lenskrar tónlistar (ÚT- ÓN) stendur að í samstarfi við Iceland Express o.fl. Tónleikaferð Helga mun standa yfir dagana 25.- 29. nóvember nk. og mun hann flytja tónlist í München, Vínarborg, Köln, Hamborg og Berlín. Leitin að upphitunaratriði fyrir Helga stendur enn yfir og rennur umsóknarfrestur ÚTÓN út á mið- nætti á morgun. Helgi fer til Þýskalands „ÞETTA er önnur nálgun. Ekki kópíering. Það er stuðst við orgínalinn,“ sagði Megas en í kvöld flytja hann og hljómsveitin Senuþjófarnir á tón- leikum öll lögin af hljómplötu hans, Millilendingu, sem kom út árið 1975. Var það önnur plata Megasar og á henni eru mörg af kunnustu lögum hans. „Það eru svona smáhittarar, sem hafa gengið gegnum tíðina,“ sagði Megas þegar litið var inn á æfingu hjá þeim Senuþjófunum í gær. | 40 Megas og Senuþjófarnir leika öll lögin af hljómplötunni Millilendingu Morgunblaðið/Einar Falur „Það eru svona smáhittarar“ OFURRÓMANTÍSK fyrstu kynni, dagsetningin 09.09.09 og sameig- inlegur áhugi á Íslandi varð til þess að finnsku brúðhjónin Jenni Hokk- anen og Lasse Kurki ákváðu að sleppa öllu umstangi í kringum brúð- kaupið sitt og ganga í hjónaband í Ár- bæjarsafnskirkju í gær. „Ég hef vitað það nokkuð lengi að ég vildi ekki hefðbundið stórt brúð- kaup með öllu því stressi sem fylgir,“ útskýrir Lasse. „Ég sá alltaf fyrir mér að vígslan yrði á afar sérstökum stað og enginn yrði viðstaddur nema sú sem ég elska og presturinn.“ Þar sem bæði höfðu lengi haft augastað á Íslandi varð sá staður fyrir valinu og kirkjuna fundu þau á netinu. Þá átti „ofurrómantísk saga“ sinn þátt í að þeim þótti Ísland viðeigandi staður fyrir brúðkaupið. „Við hittumst fyrir fjórum árum og í u.þ.b. hálft ár fyrir það hafði ég þá tilfinningu að ég myndi hitta þann eina sanna þegar fyrsti snjórinn kæmi um haustið,“ segir Jenni. „Eiginlega var þetta hálf- gerður brandari: vinir mínir voru alltaf að spyrja af hverju ég ætti ekki kærasta og ég kom mér upp þessu svari: „Það gerist þegar fyrsti snjór- inn kemur“. Á fyrsta stefnumótinu okkar opnaði ég gluggann og sá að fyrsti snjórinn hafði fallið um nóttina. Þá hugsaði ég með mér að Lasse hlyti að vera sá rétti.“ Nokkur erlend pör notuðu tæki- færið og gengu í hjónaband hér á landi í gær, hinn 09.09.09, að sögn sr. Þórs Haukssonar sem gaf þau Lasse og Jenni saman. ben@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Brúðkaup Þór Hauksson, sóknarprestur í Árbæjarkirkju, gaf finnsku brúð- hjónin saman í gær. Engir gestir voru viðstaddir, utan ljósmyndarinn. 09.09.09 er vinsæl dagsetning hjá er- lendum brúðhjónum Ísland minnti á fyrsta snjóinn og fyrstu kynnin ÍSLENSKA karlalandsliðið í knatt- spyrnu vann sinn fyrsta sigur í sjö mánuði þegar það vann Georgíu örugglega, 3:1, í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 2:1. Íslenska liðið var mun sterkara allan leikinn. Garðar Jóhannsson kom íslenska liðinu yfir á 14. mínútu og fjórum mín- útum síðar bætti Ólafur Ingi Skúlason við öðru marki. Þetta voru fyrstu landsliðsmörk þeirra. Veigar Páll Gunnarsson skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu á 55. mínútu. | Íþróttir Langþráður sigur hjá landsliðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.