Morgunblaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 1
FINNUR Sveinbjörnsson, banka- stjóri Nýja Kaupþings, segir það verkefni lögfræðinga að greiða úr réttarstöðu bankans, ef sölu Baugs Group á Högum til félagsins 1998 ehf., sumarið 2008, verður rift. Þrotabú Baugs Group gerir kröfu um riftun. 1998 ehf. er í eigu Gaums. Lögfræðingum, sem rætt hefur verið við, ber ekki saman um hvaða áhrif möguleg riftun hafi á rétt- arstöðu Nýja Kaupþings, sem á fyrsta veðrétt í hlut 1998 ehf. í Hög- um. Gamla Kaupþing veitti 30 millj- arða króna lán fyrir kaupunum. Lánsféð fór aftur til Kaupþings Annars vegar er það sjónarmið að veðrétturinn haldi sér óháð riftun. Fari svo að Hagar endi aftur undir hatti Baugs, þá fylgi veðréttur Nýja Kaupþings með óhaggaður. Hins vegar er það sjónarmið að umrædd sala var gerð að kröfu helstu kröfuhafa Baugs, þar á meðal Kaupþings, og Baugur ráðstafaði söluandvirðinu til að greiða skuldir við bankann. Þar af leiðandi geti önnur staða komið upp.  Skiptastjórar rifta | 14 Réttaróvissa um veð Nýja Kaupþings M I Ð V I K U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 251. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «MEISTARADEILDIN HAFIN RONALDO FÓR Á KOSTUM Í ZÜRICH «PATRICK SWAYZE LÁTINN Sjarmatröll og kyntákn fallið frá Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MIKILL áhugi er nú á orkufyrirtæk- inu Þeistareykjum ehf. Samkvæmt traustum upplýsingum hafa fulltrúar kínverskra stjórnvalda lýst í erindi til stjórnar fyrirtækisins áhuga á mögu- legum kaupum á 32% hlut í Þeista- reykjum ehf. Talið er fullvíst að erind- ið sé lagt fram fyrir hönd fyrir- tækisins Chinalco, stærsta álfram- leiðanda Kína. Hafa þeir óskað eftir frekari upplýsingum og fékkst stað- fest í kínverska sendiráðinu í gær að kínversk sendinefnd hefði boðað komu sína til Húsavíkur um eða upp úr næstu helgi vegna málsins. Fleiri sýna mögulegri orkuvinnslu á Þeistareykjum áhuga. Fram hefur komið að bæði Alcoa Fjarðaál og HS orka hafi haft til skoðunar möguleg kaup á hlutum í Þeistareykjum. Lífeyrissjóðir taki þátt? Viljayfirlýsing Alcoa, ríkisstjórnar- innar og Norðurþings rennur út 1. október. Mikil óvissa er um framhald- ið en Alcoa leitar enn leiða til að nýta jarðvarmaorkuna á Þeistareykjum. Þá hefur skv. heimildum Morgun- blaðsins verið rætt við forsvarsmenn lífeyrissjóða um mögulega þátttöku þeirra í fjármögnun virkjunarkosta á Þeistareykjasvæðinu. Það mál er þó enn á byrjunarreit en lífeyrissjóðirnir ætla að skoða verkefnið. Sveitarstjórn Norðurþings sam- þykkti í gær formlega að endurnýja viljayfirlýsinguna gagnvart Alcoa með átta atkvæðum gegn einu. Norðurorka, Landsvirkjun og Orkuveita Húsavíkur (OH) eiga um 32% hlut hver í Þeistareykjum en Norðurorka hefur lýst vilja sínum til að selja hlut sinn. Skv. heimildum hef- ur OH fullan hug á að nýta forkaups- rétt sinn. Forystumenn ríkisstjórnarinnar sögðu í gær samstöðu um að fyrsti kostur við orkuframkvæmdir væri bygging Búðarhálsvirkjunar. En einnig væri litið til Þeistareykja og Bjarnarflags. „Ég tel mjög mikilvægt að koma af stað framkvæmdum á borð við Búðarhálsvirkjun og að við getum komið málum þannig fyrir að menn geti líka haldið áfram fyrir norðan,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.  Reyna að leysa | 4 Stærsti álframleiðandi Kína spáir í Þeistareyki » Ríkisstjórnin reynir að ná saman um orkumálin » Ráðherrar mynda vinnuhóp um næstu skref » Búðarhálsvirkjun og Þeistareykir efst á blaði TVEIR starfsmenn Siglingastofn- unar unnu í gær að viðhaldi á vit- anum á Stóradrangi, Þrídranga- vita, skammt frá Eyjum. Það vildi þeim til happs að Landhelgisgæslan var á leið í flug og fengu þeir að fljóta með. Mennirnir voru látnir síga niður, skildir eftir og sóttir að nýju eftir tvær klukkustundir. VIÐHALD Á ÞRÍDRANGAVITA Morgunblaðið/Árni Sæberg  HVÍTVÍN í kössum er sá vöruflokkur sem tekið hefur stærsta stökkið í sölu í vínbúð- unum á milli ára. Magnaukningin nemur rúmlega 47 þúsund lítrum á milli ára eða 26,9%. Sala áfengis fyrstu 8 mánuði þessa árs jókst um 0,3% í magni frá sama tímabil í fyrra. Á sama tíma voru tekjur ÁTVR af sölu áfengis 2,5 milljörðum meiri en í fyrra. »8 Hvítvín í kössum hástökkv- ari ársins í vínbúðunum  BORGARSTJÓRN staðfesti á miklu hitafundi í gær samning Orkuveitunnar um sölu á rúmlega 31% hlut í HS orku til Magma Energy Corporation. Tillaga borg- arfulltrúa Vinstri grænna um að fresta afgreiðslunni, þar til nefnd um erlenda fjárfestingu hefur lokið við að skoða málið var felld. Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra vildi í samtali við Morgun- blaðið ekki leggja mat á það hvort heppilegra hefði verið að nefndin fjallaði um málið á undan eða eftir afgreiðslu borgarstjórnar. „En þessi nefnd er þarna auðvitað til að fjalla um álitamál varðandi lögmæti erlendra fjárfestinga. Og það verð- ur þá væntanlega næsta skref í mál- inu.“ Áætlað er að nefndin fundi í næstu viku. »6 Sala OR á hlut í HS orku samþykkt í borgarstjórn Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „SJÚKLINGUM er refsað fyrir að reyna að bjarga sér sjálfir eða nýta sér aðstoð ættingja í stað úrræða sem kerfið býð- ur upp á,“ segir Hjördís Guð- mundsdóttir. Móðir henn- ar greindist með alzheimer fyrir um tveim- ur árum. María Th. Jónsdóttir, formaður Fé- lags áhugafólks og aðstandenda alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma, segir að samdrátturinn í heilbrigðiskerfinu mæði mest á fólki með heilabilun sem geti ekki bjargað sér. Ekki sé hægt að ætlast til þess að aðstandendur taki að sér umönnunina og allra síst aldraður maki. Það sé ljótt að ætlast til þess að aldraður einstaklingur annist sjúkling með heilabilun. Hjördís segir að vistunarmats- kerfið virðist ekki gera ráð fyrir fólki sem glími við alzheimer og gangi því ekki upp. Ekki gangi að meta alz- heimerssjúklinga á sama hátt og aldraða. Þegar sótt var um vistunarmat fyrir móður Hjördísar vegna dvalar á sambýli ráku börnin sig víða á fyr- irstöður í kerfinu. „Við fengum neit- un þar sem hún hafði ekki nýtt öll úr- ræði sem eru í boði á höfuðborgar- svæðinu,“ segir Hjördís, en móðir hennar hafði til dæmis ekki nýtt sér aðstoð við það að fara í bað.  Vistunarmatið ekki | 12 Sjálfsbjarg- arviðleitni kemur sjúk- lingum í koll Samdráttur mæðir mest á heilabiluðum Aldraðir Sömu úrræði henta ekki öllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.