Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 29

Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 ✝ Magnea Alberts-dóttir fæddist í Reykjavík þann 1.mars 1924. Hún lést á Droplaugarstöðum 5. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Albert Sigurðsson verka- maður f. 8.5. 1882, d. 25.2. 1951 og Jónína Jónsdóttir húsfreyja f. 14.10. 1890 d. 25.2. 1972. Bróðir Magneu var Jón Albertsson sjómaður f. 20.2. 1916, d. 7.4. 1977. Systur hennar voru Unnur G. E. Albertsdóttir f. 6.8. 1917, d. 10.2. 1996 og Anna S. Albertsdóttir f. 16.5. 1920, d. 22.11. 1997. Eftirlifandi systir Magneu er Svanhildur Bára Albertsdóttir f. 2.8. 1927. Barnsfaðir Magneu var Arnkell Bergmann Guðmundsson bók- bindari f. 7.12. 1924, d. 15.12. 2005. Dóttir Magneu er Hafdís Arnkels- dóttir lyfjatæknir f. 17.12. 1954, gift Jóni Valdimarssyni flugstjóra f. 16.7. 1944. Börn þeirra eru 1) Magnea Íris Jónsdóttir f. 6.10. 1983, eiginmaður hennar er Þórður Ey- dal Magnússon rafeindavirki f. 30.6. 1981, dóttir þeirra er Sara Karin f. 8.5. 2009. 2) Hjörtur Freyr Jóns- son f. 23.5. 1992. Magnea ólst upp í Reykjavík og hlaut hefðbundna skóla- göngu í Austurbæj- arskólanum. Hún stundaði einnig nám við Myndlistarskóla Íslands. Hún fór ung að vinna og vann lengi í sælgætisgerð- inni Freyju. Síðustu 26 árin sem hún var útivinnandi vann hún hjá dagblaðinu Tímanum. Magnea bjó lengst af ævi sinni í Álftamýri 30, ásamt systur sinni, Svanhildi Báru, systursyni, dóttur sinni og móður. Eftir að hún hætti að vinna, gaf hún sig listagyðjunni á vald og mál- aði, heklaði, saumaði út, prjónaði og skar út. Hún naut þess að hafa loksins tíma til að sinna áhuga- málum sínum sem voru ótalmörg. Árið 2007 seldi hún Álftamýrina og keypti sér fallega þjónustuíbúð á Skúlagötu 20 (Vitatorg) þar sem hún bjó, þar til hún fór á Droplaug- arstaði. Útför Magneu fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 16. september og hefst athöfnin kl. 15. Á fallegum haustmorgni, laugar- daginn 5. september, kvaddi móðir mín þetta jarðlíf 85 ára gömul. Rétt áður en hún lést horfði hún á mig í síðasta skipti þessum fallegu bláu augum, svo hvarf hún inn í ljósið. Heilsu hennar hafði hrakað tals- vert síðasta ár og hún vissi hvert stefndi, hún dó sátt við Guð og menn. Hún var næstyngst fimm systk- ina og fæddist í Kirkjustræti 6, í litlu gulu húsi við Tjörnina. Hún ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla ævi. Hún fæddist 1924 og ólst því upp í kreppunni þegar fólk átti varla til hnífs eða skeiðar. Hún fór því ung að bera út blöð til að létta undir með fjölskyldunni. Einnig hugsaði hún um og passaði yngstu systur sína, Sv. Báru, sem hafði fengið lömunar- veikina aðeins þriggja ára gömul. Ávallt þegar hún fór út að leika sér bar hún systur sína á bakinu hvert sem þær fóru. Föstudaginn 22. október árið 1937 gaus upp mikill eldur á Berg- þórugötu 16 þar sem fjölskylda hennar bjó og brunnu inni gömul hjón. Móðir hennar rétt komst út með yngsta barnið Sv. Báru, áður en eldhafið gleypti allt. Allar þeirra veraldlegu eigur sem e.t.v. voru ekki mjög miklar brunnu inni. Mamma var 13 ára og átti bara fötin sem hún stóð í. Þetta var fyrir daga trygginga og bóta. Við þetta áfall leystist fjölskyldan upp, faðir henn- ar flutti vestur í Kolbeinsstaða- hrepp og þær mæðgurnar leigðu litla kjallaraíbúð í bænum. Baslið og fátæktin var meiri en við í dag get- um gert okkur í hugarlund og þykj- umst við búa á krepputímum. En með dugnaði og sparsemi tókst þeim systrum að kaupa íbúð í Álftamýri 30, þar sem þær bjuggu með Alberti, syni Svanhildar, mér og móður sinni. Alls bjó mamma 43 ár í Álftamýri og eignaðist þar góð- ar vinkonur, Jón og Sigríði, Lúlla og Guðrúnu, Jóa og Betu mína, eins og mamma sagða alltaf. Eins eignaðist hún góðar vinkonur í vinnunni á Tímanum. En besta vinkona hennar hét Ragnheiður Guðmundsdóttir (Heiða) og höfðu þær þekkst í yfir 70 ár þegar Heiða lést og ég veit að mamma saknaði hennar alla tíð. Hún tók hana til sín í Álftamýrina þegar Heiða var fárveik af krabba- meini og hugsaði um hana eins lengi og hún gat. Eftir að mamma hætti að vinna gat hún sinnt öllum áhugamálum sínum, hún var mjög ljóðelsk og las mikið af ljóðum, málaði mikið og eignaðist vinkonur í Norðurbrún- inni. Eftir að heilsu hennar fór að hraka keypti hún íbúð á Vitatorginu og bjó þar. Vinkonur hennar þar Kristín Einarsdóttir, Hrefna og Þorbjörg hjálpuðu henni eftir mætti, en það kom að því að hún gat ekki búið lengur ein og fékk vistun á Droplaugarstöðum þar sem Sv. Bára, systir hennar, bjó. Þar var hugsað einstaklega vel um hana, stúlkurnar sem vinna á 3b kallaði hún englana sína og þær sungu með henni og hlustuðu á hana fara með ljóðin sín. Umhyggjusemi þeirra var einstök. Hún hélt andlegri heilsu til loka. Esjan var henni hug- leikin, hún horfði oft til Esjunnar og sagði: Falla Hlés í faðminn út firðir nesjagrænir. Náttklædd Esjan ofanlút er að lesa bænir. (Stephan G, Stephanss.) Með ást, virðingu og söknuði. Þín áskær dóttir, Hafdís Arnkelsdóttir. Elsku amma, nú ert þú farin frá okkur og komin á betri stað og hitt- ir alla þá sem ég veit að þú saknaðir og hlakkaðir til að hitta. Þó er alveg víst að veröldin hér er orðin fátæk- ari og við eigum eftir sakna þín meira en orð fá lýst. Við getum þakkað þér fyrir svo ótal margt. Það var alltaf hægt að stóla á þig og þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Þú lagðir það á þig að læra að prjóna örvhent til að geta kennt mér að prjóna. Það lék allt í hönd- unum á þér hvort sem það var saumaskapur, útskurður eða mynd- list og þú varst svo stolt og ánægð þegar Hjörtur barnabarnið þitt fór á listabraut. Þú varst alveg einstök og hafðir svo frábæra útgeislun. Þú vildir vera amma allra vinkvenna minna sem eftir það kölluðu þig alltaf ömmu. Þú vildir öllum vel og elsk- aðir alla, stóra jafnt sem smáa og verður mér hugsað til þess þegar þú fórst að gefa snjótittlingum á svöl- unum hjá þér einn veturinn, svo einn morguninn gleymdirðu að gefa þeim og komu þeir þá nokkrir og görguðu og gogguðu á gluggann hjá þér. Þú varst alltaf svo atorkusöm, það var ekki hægt að bjóða þér í mat án þess að þú værir farin að vaska upp eftir matinn, jafnvel þó við værum með uppþvottavél. Eins varstu mikil félagsvera og man ég þegar grenitréð í Álftamýrinni var að deyja, þá sagðirðu „Það er að deyja af því það stendur eitt“. Þú áttir alltaf auðvelt með að sjá spauglegu hliðarnar á öllu og eitt skiptið komstu þegar enginn var heima og það gleymdist að læsa. Þegar við komum síðan heim var miði eftir þig á borðinu sem á stóð „Takk fyrir sjónvarpið og græjurn- ar, kær kveðja, innbrotsþjófurinn“. Seinustu 3 – 4 árin voru þér svo- lítið erfið. Þú fluttir úr Álftamýrinni og upp á Skúlagötu um það leyti sem ég var að gifta mig en þú lést það ekki stoppa þig og mættir gal- vösk í brúðkaupið þar sem tekin var þessi fína mynd af okkur og mömmu, þrír ættliðir í kvenlegg. Þú, mamma og ég, svo núna í maí þá kom sá fjórði, litla langömmubarnið þitt hún Sara. Ég sit hérna og horfi á kertið sem þú gafst mér, þú áttir alveg eins og sagðir við mig, við skulum kveikja á þessum kertum og þá loga þau sam- an. Nú kveiki ég hins vegar á mínu kerti fyrir þig og rétt eins og þú kveiktir á kerti fyrir langömmu- barnið þitt þegar hún kom í þennan heim, þá kveikjum við á kertum núna þegar þú ert að kveðja. Eins sárt og það er að kveðja veit ég að við sjáumst aftur, þá tekur þú á móti okkur með pönnsum en þangað til viljum við þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið okkur og allt sem þú skilur eftir þig. Við eigum svo margar góðar minningar um þig. Ég er svo stolt af því að fá að vera nafna þín og svo þakklát fyrir að hafa þekkt þig. Eitt er alveg víst og það er að ég er betri manneskja fyr- ir að hafa haft þig í lífi mínu. Takk fyrir öll árin, elskum þig alltaf. Ég lifi’ í Jesú nafni, í Jesú nafni’ eg dey, þó heilsa’ og líf mér hafni, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti’ eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt (Hallgrímur Pétursson.) Magnea Íris og Hjörtur Freyr. Elsku Magga frænka. Mikil var sorg mín þegar ég frétti að þú værir dáin og lífið verður aldrei eins án þín. Nú ert þú farin frá okkur á ann- að tilverustig og eftir situr sökn- uður en margar ljúfar minningar. Ég er þakklát því hversu stutt er síðan við hittumst og gátum átt góð- ar stundir saman. Þú varst mér strax mikils virði sem litlu barni og ég gat alltaf stólað á væntumþykju þína í gegnum árin. Eftir að mamma dó bjó ég hjá þér þegar ég kom í heimsókn frá Eng- landi og met vel stundirnar sem við sátum saman og spjölluðum um gömlu dagana. Þótt þú ættir erfiða barnæsku var þér gefin sérstök sængurgjöf, sérlega ljúft skap og fallegt bros sem létu fallegu bláu augun ljóma af gleði yfir minnstu hlutum. Mikið var gaman að hlusta á þig fara með kvæðin sem þú kunn- ir svo mikið af. Ég man sem stelpa þegar þið bjugguð öll á Kárastígnum í pínu- litlu húsnæði. Samt tókuð þig mig inn þegar mamma fór á berklahæli. Við sváfum fimm í stofunni og borð- stofunni og amma í eina svefnher- berginu en samt virtist fara vel um okkur og ég man það sem góðan tíma. Oft vannst þú á tveimur stöð- um, einum á daginn og svo öðrum stað á kvöldin. Ég fór oft með þér á kvöldin og við hreinsuðum gler og þú varst svo þreytt á heimleiðinni að þú sofnaðir í strætó og ég þurfti að vekja þig þegar við komum heim. Þú og Bára systir þín bjugguð saman í mörg ár með ömmu og börnum ykkar og dugnaðurinn og krafturinn varð til þess að þið gátuð keypt nýja fína íbúð. Árin eftir að þú hættir að vinna voru þín „gullnu ár“ og þú gast sinnt öllum þínum áhugamálum og voru þau mörg. Þú hafðir sérstaklega fallega rödd, varst í kór sem ung kona og hafðir einstaka hæfileika til að teikna og mála. Svo varst þú flink að sauma út, hekla og prjóna og meira að segja skera út. Hæfileikarnir voru endalausir. Ekki gast þú eignast betri dóttur en Hafdísi og sagðir oft við mig: „Ég þurfti ekkert annað barn því ég fékk besta barn í heimi.“ Hafdís var móður sinni einstaklega góð og hugsaði um hana í fallegu þjónustu- íbúðinni sem hún átti heima í síð- ustu árin, eins lengi og hún gat búið ein. Á Droplaugarstöðum sá ég þig oft, betri stað hefðir þú ekki getað farið á því að allt starfsfólkið var draumafólk og kyssti þig og faðmaði daglega. Eins hittir þú systur þína daglega því hún dvaldi einnig á Droplaugarstöðum. Hafdís kom á hverjum degi í heimsókn og ég sá andlitið á þér ljóma í hvert sinn sem þú sást hana. Mér finnst gott að hugsa til þess að Hafdís var hjá þér síðustu dagana og gaf þér styrk og öryggi fram á síðustu stundu þangað til Guð tók við þér. Börn Hafdísar, Magnea og Hjörtur, voru þér til mikils yndis og svo gaf Magga þér langömmubarn, Söru Karin. Elsku Hafdís og fjöl- skylda, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum og í framtíð- inni. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra frá fjölskyldu minni. God bless aunty Magga. Elsku Magga mín, ég þakka þér fyrir vinskapinn og allar góðu stundirnar sem við áttum saman og bið algóðan Guð að geyma þig og varðveita. Ástarkveðja Jónína Elísabet Waltersdóttir (Jonný frænka.) „Besta vöggugjöf sem hægt er að fá er gott geð,“ sagði Magnea með sinni djúpu og kraftmiklu rödd. Sú gjöf hafði henni hlotnast ásamt svo mörgum öðrum kostum. Á unglingsárum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast sóma- konunni Magneu Albertsdóttur, mömmu Hafdísar, vinkonu minnar. Alltaf voru móttökurnar einstak- lega góðar í Álftamýrinni og gaman að hlusta á sögur og vísur sem Magnea fór svo vel með. Hún naut lífsins á svo ótal marga vegu, leidd- ist aldrei, sótti námskeið í útskurði og listmálun sem hún stundaði hvort tveggja af kappi auk alls kyns annars handverks, hafði gaman af söng, ferðaðist um heiminn og virt- ist njóta hverrar stundar. Með hlýju sinni og einlægni laðaði Magnea fram það besta í fólki. Elsku Haddý, Jón, Magga, Hjörtur, Bára og Alli – ég og fjölskylda mín vottum ykkur okkar dýpstu samúð og minnumst Magneu með þakklæti og söknuði. Ég minnist – þakka allt og óska þér um eilífð góðs er héðan burt þú fer. Far vel, far vel. Þig vorsins dísir geymi og vaki blessun yfir þínum heimi. (Hulda) Ingibjörg Karlsdóttir. Kveðja frá listahópnum Fyrir þetta blessa ég ykkur: Þið gáfuð mikið og vissuð ekki til að þið gæfuð neitt. (Kahil Gibran) Kæra vinkona. Þessi orð komu okkur í hug þegar við fréttum að Magnea vinkona okkar hefði kvatt þennan heim. Við kynntumst Magn- eu fyrir nokkrum árum í listnámi hjá Hafdísi Benediktsdóttur í Norð- urbrún í Reykjavík. Þessi hópur hefur náð einstaklega vel saman og hefur verið okkur sem þar erum mikill gleðigjafi. En gleðin kemur frá þeim sem þarna eru og Magnea átti stóran hlut þar að máli, hún átti til að standa fyrirvaralaust upp og hefja söng svo undur fallega og öll ljóðin kunni hún og flutti svo vel. Þetta er okkur öllum svo minnis- stætt. Ást hennar á íslenskri náttúru fór ekki á milli mála í verkum hennar, helsta viðfangsefni í myndlistinni voru íslenskir fossar og glímdi hún tímunum saman við að ná þeim sem fegurstum. Það er ekki ætlun okkar að fara að rekja lífshlaup Magneu enda aðrir betur til þess fallnir en við. En viðhorf hennar til lífsins sit- ur í okkur er nutum samvista við hana, hún var einstaklega falleg og vel gefin kona, æðrulaus og mikil hvunndagshetja. Við viljum þakka þér, kæra Magnea, allar þær gleðistundir er þú gafst okkur með því að vera til. Far þú í friði. Vinkonur í listahópnum, Karolína og Sigrún. Magnea Albertsdóttir ✝ Elskulegur sonur okkar og bróðir, VALDIMAR EINARSSON, lést á gjörgæsludeild Freemans Hospital í Newcastle mánudaginn 14. september. Sævör, Einar og systkini. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, SVANHILDUR GUÐNADÓTTIR, Hörgshlíð 6, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti laugardaginn 12. september. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Þ. Þórðardóttir, Þorvaldur K. Þorsteinsson, Svanhildur Þorvaldsdóttir, Þór Tryggvason, Margrét Á. Þorvaldsdóttir, Georg Garðarsson og barnabarnabörn. ✝ Systir okkar, mágkona og frænka, KATRÍN VIGFÚSDÓTTIR frá Sunnuhvoli, Vopnafirði, sem lést fimmtudaginn 10. september, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 19. september kl. 14.00. Herdís Vigfúsdóttir, Fanney Vigfúsdóttir, Haukur Vopni og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.