Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 7
Íþróttir 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 BIRGIR Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, náði sér ekki almennilega á strik síð- ustu tvo hringina á Opna austurríska mótinu í golfi sem lauk í gær. Hann lék þriðja hringinn á 73 höggum, eða tveimur höggum yfir pari Fontana-vallarins, og í gær lék hann á 74 höggum, þremur yfir pari. Hann lauk því leik á mótinu á tveimur höggum yfir pari og skilaði það honum í 62.-63. sæti, en 130 kylfingar hófu leik í mótinu á fimmtudaginn var. Birgir Leifur fær sem nemur 470.000 íslenskum krónum fyr- ir árangurinn í mótinu. Birgir Leifur átti frábæran hring á föstu- daginn er hann lék völlinn á fimm höggum undir pari, en hann náði ekki að fylgja því nægilega vel eftir síðustu tvo dagana. Á laugardaginn fékk hann þrjá skolla og þrjá fugla á fyrri níu holunum og var því á pari á þeim, byrj- aði síðan á fugli en fékk þrjá skolla það sem eftir var. Í gær fékk hann þrjá skolla á fyrri níu holunum en var á pari síðari níu, tveir fuglar og tveir skollar. Þeg- ar hann lék annan hringinn á fimm undir pútt- aði hann mjög vel, en púttin duttu ekki síðustu tvo dagana. skuli@mbl.is Birgir Leifur aftarlega á merinni Birgir Leifur Hafþórsson HEIÐAR Helguson skoraði tvö mörk fyrir Wat- ford er liðið gerði 3:3 jafntefli við Leicester í ensku 1. deildinni og Gylfi Þór Sigurðsson skor- aði annað marka Reading sem tapaði 2:3 á úti- velli fyrir Peterborough. Gylfi og félagar í Reading komust í 2:0 í fyrri hálfleik og gerði Gylfi fyrra markið. Brotið var á honum nokkru utan teigs og hann tók spyrn- una sjálfur og sendi boltann neðst í vinstra markhornið. Snoturt mark hjá honum. En þetta dugði ekki því heimamenn skoruðu í þrígang, sigurmarkið rétt fyrir leikslok. „Við áttum að fá þrjú stig úr þessum leik, en hann sýnir bara óheppni okkar það sem af er vetri. Vonandi vakna menn nú til lífsins,“ sagði Brendan Rod- gers, stjóri Reading. Watford lenti 2:0 undir á heimavelli á móti Leicester en minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik og Heiðar jafnaði metin með skallamarki og kom síðan liðinu yfir með því að skora af stuttu færi á 77. mínútu og var síðan tekinn af velli þremur mínútum síðar. „Ég hefði þegið þetta stig í hálfleik en í lokin voru það vonbrigði að fá á sig jöfnunarmarkið í lok- in,“ sagði Malky Mackay, stjóri Watford, eftir leikinn. skuli@mbl.is Heiðar með tvö og Gylfi eitt Heiðar Helguson Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is ÞAÐ er ekki algengt að tæplega 36 ára gamall leikmaður spili sem tengiliður hjá einu besta liði heims og gegni þar svo gríðarlega mikil- vægu hlutverki sem Giggs gerir hjá United. Aldurinn virðist hins vegar ekki gera honum frekara mein en úrvals rauðvíni og sú ákvörðun hans að hætta að spila með velska lands- liðinu í júní 2007 virðist hafa blásið nýju lífi í frábæran feril kappans en hann var valinn besti leikmaður síð- ustu leiktíðar af leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar og hefur farið vel af stað á þessari leiktíð. Ryan Giggs hóf feril sinn með United 17 ára gamall í mars 1991 en hans fyrsti leikur í byrjunarliði var einmitt gegn Manchester City skömmu síðar og þar skoraði Giggs eina markið í 1:0-sigri. Það var í raun kaldhæðnislegt í ljósi þess að Giggs var í unglingaakademíu City og allt útlit því fyrir að hann yrði leikmaður liðsins í framtíðinni áður en Sir Alex Ferguson gekk til fund- ar við hann á 14 ára afmælisdegi Wales-verjans. Giggs var gallharður stuðnings- maður United og því þurfti ekki langan tíma til að sannfæra hann en sennilega er þessi fundur sá mikil- vægasti sem Ferguson hefur átt, og hefur hann þó átt þá nokkuð marga. Giggs, sem er eini leikmaðurinn sem skorað hefur á hverri einustu leiktíð í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, hef- ur nefnilega átt stærstan þátt leik- manna í ótrúlegri sigurgöngu Unit- ed frá árinu 1991 þar sem liðið hefur ellefu sinnum orðið Englandsmeist- ari, fjórum sinnum bikarmeistari og tvisvar sinnum Evrópumeistari. Hann gaf sínu gamla félagi engin grið í slagnum um Manchester-borg í gær í mögnuðum knattspyrnuleik. Þar lagði hann upp þrjú af fjórum mörkum með sínum baneitraða vinstri fæti, það síðasta eftir að hafa leikið rúmar 95 mínútur svo ljóst má vera að ellikerling hefur ekki náð sterkum tökum á honum. Þá sendi hann boltann á varamanninn Mich- ael Owen sem skoraði laglega en áð- ur hafði Darren Fletcher gert tvö mörk og Wayne Rooney eitt en hann hefur nú gert sex mörk í sex leikjum á leiktíðinni. City jafnaði metin þrí- vegis, þar af Craig Bellamy tvisvar og Gareth Barry einu sinni, en tvö þessara marka skrifast nær alfarið á reikning þeirra Bens Fosters mark- varðar United og Rios Ferdinands sem gerðu sig seka um slæm mis- tök. Sir Alex Ferguson fagnaði ákaft í leikslok á meðan fyrrverandi læri- sveinn hans, Mark Hughes, kvartaði sáran yfir því hve miklum tíma var bætt við leikinn og hafði nokkuð til síns máls. Ferguson kaus frekar að einblína á hve skemmtilegur leik- urinn hefði verið. „Mistökin sem gerð voru urðu til þess að þetta var líklega besti ná- grannaslagur liðanna frá upphafi. Við hefðum getað niðurlægt þá með 6:0-sigri ef við hefðum varist al- mennilega en í staðinn varð þetta frábær skemmtun. Hvort viltu frek- ar; besta grannaslag allra tíma eða vinna 6:0?“ sagði Skotinn sem virtist frekar kjósa hið fyrrnefnda. Eins og úrvals rauðvín  Ryan Giggs lagði upp þrjú mörk gegn „uppeldisfélagi“ sínu  Fundaði fjórtán ára með Ferguson  United vann 4:3-sigur í mögnuðum nágrannaslag Í HNOTSKURN »Manchester United vann4:3-sigur á Manchester City eftir að hafa komist fjór- um sinnum yfir í leiknum. »Ryan Giggs lagði upp þrjúmörk í leiknum en hann var á sínum tíma í ung- lingaakademíu City. »Sigurmarkið skoraði Mich-ael Owen í uppbótartíma. Ryan Giggs sýndi enn og aftur og sannaði hve magnaður leikmaður hann er þegar Manchester United lagði granna sína í Manchester City í gær, 4:3, í hreint út sagt ótrúlegum fótboltaleik. Giggs lagði upp þrjú af mörkunum en það síðasta skoraði varamaðurinn Michael Owen þegar rúmlega fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma, skömmu eftir að Craig Bellamy hafði jafnað metin fyrir þá bláklæddu sem voru hundsvekktir með fyrsta tap sitt á leiktíðinni. Reuters Eldist vel Ryan Giggs verður betri með árunum og í gær átti hann flottan leik í Manchestarslagnum. Bjarni Þór Viðarsson, leikmaðurmeð Roeselare í Belgíu, fékk að líta rauða spjaldið í leik liðsins við Mechelen í belgísku 1. deildinni á laugardaginn. Bjarni Þór, sem lék annan leik sinn með liðinu, fékk sitt annað gula spjald á 77. mínútu leiks- ins og því varð hann að víkja af velli. Roeselare er í neðsta sæti deild- arinnar með tvö stig eftir sex leiki.    Theódór ElmarBjarnason lagði upp annað mark sænska liðs- ins IFK Gauta- borg er liðið lagði Hammarby 2:0 í sænsku úrvals- deildinni í gær. Hann lagði upp fyrra markið fyrir Tobias Hysén, sem einnig skoraði síðara mark liðs- ins. Elmar lék á miðjunni allan leik- inn og þeir Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson stóðu vaktina í hjarta varnar Gautaborgar, sem fór í efsta sæti sænsku deildarinnar.    Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrrihálfleikinn þegar Mónakó vann sinn fyrsta sigur á útivelli á leiktíð- inni í frönsku deildinni. Mónakó lagði Nice 3:1 og átti Eiður Smári þátt í öðru marki Mónakó.    Rafael Bení-tez, knatt- spyrnustjóri Liv- erpool, var ánægður með að fara með öll þrjú stigin frá Upton Park þar sem Liverpool lagði West Ham 3:2. Fernando Torres skoraði fyrsta og síðasta mark Liver- pool og var stjórinn sérlega ánægður með frammistöðu hans. „Ef hann heldur áfram að spila svona þá getur hann orðið einn sá besti, en það eru margir mjög góðir leikmenn í deild- inni þannig að það er erfitt að nefna aðeins einn sem þann besta,“ sagði Benítez.    Alessandro Diamanti skoraðimark fyrir West Ham úr víta- spyrnu og virtist renna til um leið og hann spyrnti knettinum. „Maður var hálfhræddur við þetta víti. Mér sýnd- ist hann renna um leið og hann spyrnti en hann segir mér að hann hafi ætlað að gera þetta svona,“ sagði Gianfranco Zola, stjóri West Ham, um vítaspyrnuna.    Belgíski mið-vörðurinn í liði Arsenal, Thomas Vermae- len, hefur farið mikinn í síðustu leikjum liðsins. Á laugardaginn skoraði hann tvö mörk þegar Arsenal vann slakt lið Wigan 4:0 í leik þar sem heimamenn réðu gjörsamlega gangi mála og hefðu getað unnið mun stærra. Fólk sport@mbl.is „ÞAÐ áttu allir leikmenn mínir fínan leik í dag. Síðari hálfleikurinn var fremur þægilegur fyrir okkur,“ sagði Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, eftir að lið hans hafði lagt Tottenham, 3:0. Chelsea er eina liðið sem hefur ekki tapað stigi í deildinni til þessa og er með fullt hús. En sigurinn gæti hafa tekið sinn toll því Didier Drogba var borinn af leikvelli meiddur. „Við vonum auðvitað að þetta sé ekki alvarlegt. En við höfum áður leikið án Drogba, við gerðum það á móti Porto og við erum með marga fína menn sem geta leikið hans stöðu,“ sagði Ítalinn og nefndi Nicolas Anelka, Salomon Kalou, Daniel Sturridge og Fabio Borini, sem hann hrósaði sér- staklega, en Borini er 18 ára ítalskur strákur. „Hann er ungur og það er mikilvægt að leyfa honum aðeins að prófa þetta,“ sagði Ancelotti, en Chelsea vann þarna sinn ellefta leik í röð, sem er félagsmet. Tottenham vildi fá víta- spyrnu í leiknum en Ancelotti vildi ekki ræða það. „Ég veit ekki hvort Tottenham hefði átt að fá víti. Ég er ekki dómari og ég vil ekki ræða störf dómara, ég vil miklu frekar ræða um leikinn,“ sagði Ítalinn. Hann fylgdist með leik Manchesterliðanna fyrr um daginn og var hrifinn. „Það var frábær leikur, alveg ótrúlegur, en ég hef bara áhuga á að Chelsea spili vel og vinni,“ sagði stjórinn. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, gæti átt í vandræðum á næstunni með miðverði því Sebas- tien Bassong og Ledley King meiddust báðir í leiknum og þeir Michael Dawson og Jonathan Woodgate eru báðir á sjúkralista. „Nú hef ég eng- an miðvörð lengur,“ sagði stjórinn um vandamál næstu vikna. Þetta var annað tap Tottenham í röð en liðið byrjaði á því að sigra í fyrstu fjórum leikjum sín- um í deildinni. skuli@mbl.is Chelsea enn með fullt hús stiga Var miklu sterkara liðið þegar það mætti Tottenham í uppgjöri Lundúnaliðanna Carlo Ancelotti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.