Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréf-
sími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
PHOENIX Mercury fagnaði sigri í
bandarísku atvinnukvennadeildinni
í körfubolta, WNBA, en liðið hafði
betur gegn Indiana Fever í odda-
leik 94:86 sem fram fór í gær.
Diana Taurasi skoraði 26 stig
fyrir Phoenix en hún var mikilvæg-
asti leikmaður úrslitakeppninnar
samkvæmt dómnefnd og fékk hún
því MVP-verðlaunin. Þetta er í ann-
að sinn á síðustu þremur árum sem
Phoenix vinnur deildina.
Þetta er í fjórða sinn sem úrslit í
WNBA ráðast í oddaleik síðan leikj-
unum var fjölgað í fimm í úrslitum
árið 2005. Leikmenn karlaliðs
Phoenix Suns tóku virkan þátt í
fjörinu og keyptu þeir Amare Stou-
demire, Steve Nash og Grant Hill,
okkur hundruð aðgöngumiða á
oddaleikinn sem þeir gáfu síðan í
borginni. Uppselt var á leikinn en
alls voru 17.313 áhorfendur á leikn-
um.
WNBA-deildin var stofnuð árið
1997 en alls taka 13 lið þátt í þess-
ari atvinnumannadeild. Til sam-
anburðar eru 30 lið í NBA-deild
karla. Keppnistímabilið hjá kon-
unum hefst í júní og úrslitakeppnin
hefst í september. NBA-deildin
hefst í lok október og úrslitin í
þeirri deild ráðast um miðjan júní.
Phoenix
meistari
í WNBA
KA er í efsta sæti í 1. deild karla og
kvenna í blaki eftir tvo sigra um
helgina gegn Þrótti og Stjörnunni í
Mikasa-deildinni. KA sigraði
Stjörnuna á laugardag 3:2 í kvenna-
flokknum, þar sem að úrslitin réð-
ust í oddalotu, 15:9. KA vann fyrstu
hrinuna 25:20, Stjarnan jafnaði
25:23 og KA komst yfir á ný 25:25.
Stjarnan jafnaði í fjórðu lotu 25:22
en það dugði ekki til.
KA er með fjögur stig í efsta sæti
líkt og karlalið félagsins.
Kempisty góður
Piotr Kempisty skoraði 30 stig
fyrir KA gegn Stjörnunni í 3:2 sigri
karlaliðsins. KA vann fyrstu tvær
loturnar 25:21, 25:20. Stjarnan
vann næstu tvær hrinur, 26:24 og
25:22. Oddahrinan endaði 15:10.
Jóhann Eiríksson skoraði 7 stig
fyrir KA. Í liði Stjörnunnar voru
Róbert Karl Hlöðversson og Emil
Gunnarsson með 17 stig hvor.
KA í efstu
sætum í
blakinu
GARÐAR Gunn-
laugsson, knatt-
spyrnumaður frá
Akranesi, er enn
að leita fyrir sér
á atvinnumark-
aðinum í Evrópu.
Garðar fékk sig
lausan frá búlg-
arska liðinu
CSKA Sofia á
dögunum en
hann fékk fá tækifæri hjá liðinu og
þar að auki glímdi hann oft við
meiðsli. Skagamaðurinn fór í að-
gerð vegna kviðslits í júlí á þessu
ári en samningum hans við CSKA
Sofiu var rift í ágúst.
Garðar hefur fengið fyrirspurnir
frá liðum í neðri deildum á Ítalíu og
í efstu deild á Grikklandi. Hann
getur hinsvegar ekki skipt um félag
fyrr en í janúar á næsta ári.
Garðar er enn
í biðstöðu
Garðar
Gunnlaugsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Morgunblaðið leit inn á æfingu
Gerplu á laugardaginn en eins og áð-
ur segir sendir Kópavogsliðið tvö lið
til keppninnar, kvennalið og karlalið
og það í fyrsta sinn sem karlalið
keppir á Norðurlandamótinu.
Það var fríður flokkur fim-
leikafólks sem æfði í glæsilegu
íþróttahúsi Gerplu á laugardaginn og
þeirra á meðal voru þær Sara Rut
Ágústsdóttir og Svava Björg Örlygs-
dóttir sem voru í Norðurlandameist-
araliði Gerplu fyrir tveimur árum.
,,Við erum að fara á mótið til að
gera okkar besta og halda titlinum,“
sagði Sara Rut við Morgunblaðið. Ég
er búin að æfa frá því sumar fyrir
þetta mót,“ sagði Sara, sem er 21 árs
gömul og hefur æft fimleika frá sex
ára aldri. Fyrst lagði hún stund á
áhaldafimleika en 17 ára gömul hóf
hún að æfa og keppa í hópfimleikum.
,,Hópfimleikarnir eru lúmskt erfiðir.
Þeir reyna mjög á líkamann og mað-
ur þarf að hafa góðan styrk og gott
þol. Ég bý vel að því að hafa verið í
áhaldafimleikunum,“ sagði Sara Rut.
,,Markmiðið hjá okkur er auðvitað
að reyna að vinna. Við munum reyna
að gera okkar besta til þess og svo
verður bara að koma í ljós hvort það
dugar til sigurs,“ sagði Svava Björg
við Morgunblaðið. ,,Liðið okkar hef-
ur breyst nokkuð frá því við urðum
Norðurlandameistarar. Það eru
komnar nokkrar nýjar yngri í liðið
og mitt mat er að liðið sem við erum
með í dag sé sterkara en fyrir tveim-
ur árum. Við gerum okkur alveg
grein fyrir því að keppnin í Finnlandi
verður hörð,“ sagði Svava Björg.
Spurð að því hversu mörgum tímum
á viku hún eyddi í æfingar sagði hún;
,,Síðustu vikurnar höfum við æft
fimm til sex sinnum í viku, þrjá
klukkutíma í senn. Svo það fer mikill
tími í þetta en er algjörlega þess
virði,“ sagði Svava, sem er 22 ára
gömul.
Morgunblaðið/Ómar
Glæsilegur hópur Karla- og kvennalið Gerplu undirbýr sig af krafti fyrir Norðurlandamótið í fimleikum sem fram er í Finnlandi um næstu helgi.
Gerum okkar besta
Norðurlandameistarar Gerplu á leið til Finnlands til að verja titilinn í hópfim-
leikum Erum með sterkara lið heldur en fyrir tveimur árum, segir Svava Rut
NORÐURLANDAMÓTIÐ í hópfim-
leikum fer fram í Finnlandi um næstu
helgi og senda þrjú íslensk félög lið
til keppni. Gerpla sendir tvö lið, eitt
kvennalið og eitt karlalið og frá Ár-
manni og Stjörnunni keppa kvenna-
lið. Gerpla varð Norðurlandameistari
í hópfimleikum kvenna fyrir tveimur
árum.
Morgunblaðið/Ómar
Meistarar Svava Björg Örlygsdóttir, til vinstri, og Sara Rut Ágústsdóttir
eru í liði Gerplu sem keppir á Norðurlandamótinu í Finnlandi.
,,VIÐ gerum væntingar um mjög góðan árangur og að krakkarnir okkar
klári sínar æfingar eins vel og mögulegt er. Svo verður bara að koma í ljós
hverju það skilar. Það er stór kjarni af Norðurlandameisturunum sem eru
enn til staðar í liðinu. Nokkrar eru hættar en það er algengt að þær hætti í
kringum 26-27 ára aldur,“ sagði Björn Björnsson, þjálfari hjá Gerplu, í
samtali við Morgunblaðið.
Í fyrsta sinn tekur karlalið frá Gerplu þátt í Norðurlandamótinu. ,,Við
höfum verið með blandað lið en nú erum við komin með eitt lið og höfum
fengið stráka í það úr áhaldafimleikunum og það hefur gengið mjög vel.
Við erum að vonast til að strákarnir standi sig vel og taki fyrsta skrefið í
átt að einhverju stærra,“ sagði Björn, en meðal þeirra sem eru í liðinu er
Dýri Kristjánsson, fyrrverandi Íslandsmeistari.
Í hópfimleikum er keppt í gólfæfingum, í æfingum á dýnu þar sem gólfið
er fjaðrandi og á trampólíni. Um undirbúninginn fyrir mótið sagði Björn;
,,Keppnistímabilinu lauk í maí og eftir það tókum við þriggja vikna pásu.
Frá því í lok júní höfum við svo verið að undirbúa okkur fyrir mótið og það
er mikil alvara í þessu hjá okkur.“
Gerpla og Ármann tóku þátt í mótinu fyrir Íslands hönd í kvennaflokki. Í
blönduðum flokki keppir lið Stjörnunnar úr Garðabæ og í karlaflokki
keppir lið frá Gerplu. gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Tilþrif Það voru glæsileg tilþrif sem sáust á æfingu Gerplukrakkanna.
Gerum væntingar um góðan
árangur, segir þjálfarinn