Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 1
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009
viðskipti
Hjól Sonur Jóhannesar dregur
hann með í mótorkross 08
Viðskipti
mbl.is
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
VIÐSKIPTABANKARNIR uppfylla ekki reglur
Fjármálaeftirlitsins (FME) um stórar áhættu-
skuldbindingar fjármálafyrirtækja þar sem
stærstu áhættuskuldbindingar nema meira en
sem nemur 25% af eiginfjárgrunninum. Þetta
kemur fram í skýrslu Seðlabankans um fjármála-
stöðugleika og er vísað til upplýsinga sem bankinn
hefur undir höndum frá FME.
Viðskiptabankarnir eru fjórir; Nýja Kaupþing,
Íslandsbanki, Nýi Landsbankinn (NBI) og MP
Banki. Samkvæmt FME er meginskýringin á því
að stærstu áhættuskuldbindingar eru umfram
25% hámarkið sú að við uppskiptingu bankanna
haustið 2008 voru fluttar til nýju bankanna kröfur
á stóra viðskiptaaðila sem reyndust umfram 25%
af þeim eiginfjárgrunni sem gert er ráð fyrir í stof-
nefnahagsreikningi bankanna.
Það að bankarnir uppfylli ekki þessi skilyrði um
þessar mundir bendir til þess að þeir uppfylli ekki
einstaka áhættuþætti og mikið verk sé óunnið við
að koma áhættustýringu þeirra í ásættanlegt horf.
Reglur FME kveða á um að hægt sé að veita
fjármálafyrirtækjum frest til þess að laga sig að
takmörkunum um áhættuskuldbindingar séu sér-
stakar aðstæður fyrir hendi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá FME eru mál viðskiptabankanna nú í
slíkum farvegi en það vill ekki upplýsa til hvaða
tímamarka sé nú horft til í þessum efnum né hvaða
banka.
Ljóst er að fjármálafyrirtæki sem getur ekki
dregið úr áhættu með beinum aðgerðum þarf á
endanum að styrkja eiginfjárgrunn sinn til þess að
geta uppfyllt skilyrði reglnanna.
Skammt á veg komnir
Að sögn Snorra Jakobssonar, sérfræðings hjá
IFS-greiningu, ætti það ekki að koma mönnum á
óvart að viðskiptabankarnir uppfylli ekki skilyrðin
um þessar mundir: Það sé skiljanlegt í ljósi fjár-
málahrunsins í fyrra og þess mikla umbreytinga-
ferlis sem hófst í kjölfarið. Snorri segir þó þessar
upplýsingar benda til þess að menn séu enn
skammt á veg komnir við að byggja upp nægilega
heilbrigt bankakerfi.
Staðan sýnir einnig hversu litlir efnahagsreikn-
ingar bankanna eru. Snorri segir að nýju bank-
arnir séu mjög litlir í samanburði við forvera
þeirra og þar af leiðandi þurfi ekki að koma til
neinnar meiriháttar lánafyrirgreiðslna til umsvifa-
mikilla rekstrarfélaga til þess að reynt sé á þanþol
reglna um áhættuskuldbindingar til einstakra við-
skiptavina. Að mati Snorra er þetta umhugsunar-
efni við endurreisn bankakerfisins enda hljóti ein
af forsendum hennar að búa til nægilega öflugt
kerfi sem getur stutt við bakið á atvinnulífinu.
Viðskiptabankarnir upp-
fylla ekki skilyrði FME
Morgunblaðið/Ómar
Stórar áhættuskuldbindingar banka mega ekki vera yfir 25% af eiginfjárgrunni
Í HNOTSKURN
»Stóru viðskiptabankarnir eru fjórir:Nýja Kaupþing, Íslandsbanki, Nýi
Landsbankinn og MP Banki.
»Vikið er að starfsemi bankanna ínýrri skýrslu Seðlabankans um fjár-
málastöðugleika, þar sem vitnað er til
upplýsinga frá FME.
»Mikið verk er óunnið að komaáhættustýringunni í viðunandi horf.
LANDSNET, sem á og rekur all-
ar helstu flutningslínur rafmagns á
Íslandi, lauk á dögunum við skulda-
bréfaútgáfu að andvirði fimm millj-
arða króna. Um er að ræða verð-
tryggð skuldabréf til 25 ára.
Umframeftirspurn var í útboðinu
en upphaflega stóð til að bjóða út 3
milljarða. Samkvæmt upplýsingum
frá Landsneti er það hópur íslenskra
lífeyrissjóða sem fjárfesti í útboðinu.
Fjárfestingarbankinn Saga Capital
hafði umsjón með útgáfunni og mun
bankinn jafnframt skrá bréfin í
Kauphöll Íslands.
Landsnet mun nota andvirði út-
gáfunnar til þess að standa straum
af uppbyggingu suðvesturlínu og
flutningi raforku frá Helliseiði til
Reykjaness. ornarnar@mbl.is
Landsnet
aflar fimm
milljarða
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á SAMA tíma og McDonald’s
hættir starfsemi hér á landi er önnur
erlend skyndibitakeðja að færa út
kvíarnar. KFC á Íslandi, sem Helgi
Vilhjálmsson í Góu rekur, undirbýr
nú opnun nýs staðar í Grafarholti
með vorinu. Er það áttundi stað-
urinn hér á landi en KFC starfrækir
einnig Taco Bell-staðina.
Kristín Helgadóttir hjá KFC seg-
ir engan bilbug vera að finna á fyrir-
tækinu þrátt fyrir erfitt rekstrar-
umhverfi nú um stundir. | 5
Nýr KFC
LYKILORÐIÐ ER
SVEIGJANLEIKI!
Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf. | Suðurlandsbraut 18, 108 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Milliinnheimta sem er kröfuhafa að kostnaðarlausu
Kynntu þér innheimtuaðferðir okkar á momentum.is
A
R
G
U
S
0
8
-0
1
7
4
Hvort sem það snýr að innheimtuferlinu eða greiðslum