Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009
Fréttir 7
CAMERON Buchanan, ræð-
ismaður Íslands í Edinborg í Skot-
landi, hefur verið staddur hér á landi
síðustu daga í því augnamiði að und-
irbúa ferð viðskiptasendinefndar frá
Skotlandi til Íslands á næsta ári.
„Samskipti á milli Íslendinga og
Skota hafa alltaf verið mjög góð en
það hefur sjaldan verið meiri ástæða
en einmitt nú til að styrkja og efla
þessi tengsl. Við vitum vel hvað
gengið hefur á milli breskra og ís-
lenskra stjórnvalda varðandi Ice-
save,“ segir Buchanan en vinnuheiti
þessarar ferðar er „breaking the
ice“ eða „brjótum ísinn“. Er mark-
miðið augljóslega að bæta sam-
skiptin og koma á nýjum viðskipta-
samböndum milli landanna.
Vonast hann til að fulltrúar sem
flestra atvinnugreina í Skotlandi
komi til Íslands, ekki standi til að
hafa neina sérstaka sérhæfingu í
þessari heimsókn eins og stundum
hefur verið gert áður.
Ræðismaðurinn segist ekki finna
neinar breytingar í viðmóti skoskra
eða breskra fyr-
irtækja í garð Ís-
lendinga, hin
stirðu samskipti
hafi meira verið
innan stjórnsýsl-
unnar og stjórn-
málanna. „Margir
halda í Skotlandi
og Bretlandi að
hér sé allt komið
á vonarvöl og öll
fyrirtæki meira og minna gjald-
þrota. Eftir heimsókn mína hingað
get ég farið heim og fullvissað menn
um að þjóðfélagið virki með eðlileg-
um hætti. Vissulega eru ekki eins
margir flottir bílar á götunum og áð-
ur en ég hef ekki orðið var við miklar
breytingar aðrar,“ segir hann.
Buchanan hefur átt viðræður við
Útflutningsráð og viðskiptaráðu-
neytið, auk fleiri aðila, og fundaði
einnig með forseta Íslands. Hann
vinnur sömuleiðis að því að skoskir
ráðamenn verði með í för til Íslands
á næsta ári. bjb@mbl.is
Vilja brjóta ísinn
Ræðismaðurinn í Skotlandi undirbýr
ferð viðskiptasendinefndar til Íslands
Cameron
Buchanan
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
KREDIA er smálánafyrirtæki sem
býður viðskiptavinum sínum lágar
upphæðir til láns sem greiða þarf
til baka innan
nokkurra daga.
Fyrir 10.000
króna lán þarf
að greiða 2.500
króna þóknun,
og fyrir 20.000
króna lán þarf
að greiða 4.750
króna þóknun.
Hlutfallsleg
þóknun fyrir-
tækisins lækkar
því lítillega með hækkandi láns-
fjárhæð. Sé miðað við 10.000 króna
lánið eru því nafnvextir á árs-
grundvelli tæp 608%. Leifur S.
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Kredia, segir að litið sé á þókn-
unina sem lántökukostnað, fremur
en vexti.
Leifur segir viðtökur þjónust-
unnar hafi verið betri en ráðgert
var. Hægt er að sækja um lán hjá
Kredia á heimasíðu fyrirtækisins.
Ræddu við Fjármálaeftirlitið
Um leið og notandi hefur skráð sig
sem viðskiptavin hjá fyrirtækinu
er hægt að sækja um lán með því
að senda smáskilaboð. Kredia
leggur þá umbeðna um fjárhæð inn
á reikning viðskiptavinar um hæl.
Greiða þarf lánið til baka innan 15
daga. Ef greiðsla hefur ekki borist
innan þess tíma er ráðist í hefð-
bundnar innheimtuaðgerðir.
Leifur segir að stofnendur Kredia
hafi átt fundi með Fjármálaeftirlit-
inu og Neytendastofu eftir að starf-
seminni var ýtt úr vör. „Við vildum
auðvitað ganga úr skugga um að
starfsemi okkar væri lögleg með
öllu.“ Leifur sagði að ekki þyrfti sér-
stök leyfi til að veita smálán. „Lögin
eru nokkuð víð og starfsemi okkar
fellur fyllilega innan ramma þeirra.“
Hann segir jafnframt að ekki hafi
þurfi að sækja um ákveðin leyfi fyrir
lánastarfsemi Kredia.
Fyrirmyndin erlendis frá
Leifur segir að forsvarsmenn Kredia
reki fyrirtæki sitt að norrænni fyr-
irmynd. „Ég kynntist starfsemi fyr-
irtækja í þessum geira í Svíþjóð og
Noregi fyrir 4-5 árum. Smálána-
starfsemi sem þessi nýtur nokkurra
vinsælda þar þó að þar í landi bjóði
menn jafnan hærri upphæðir en
Kredia býður,“ segir hann í samtali
við Morgunblaðið. Smálán til
skamms tíma, líkt og þau sem
Kredia býður upp á, eru nokkuð al-
geng utan landsteina Íslands.
Í Bandaríkjunum ganga slík lán
vanalega undir nafninu „payday
lending“ og þykja umdeild, ekki síst
vegna hlutfallslega hás vaxtakostn-
aðar. Því er jafnan haldið fram að
helstu viðskiptavinir smálánveitenda
séu einstaklingar með lágar tekjur í
fjárhagsörðugleikum sem ekki hafa
möguleika á fyrirgreiðslu í banka.
„Þetta er einfaldlega þjónusta sem
við bjóðum upp á og viðskiptavinir
ráða hvort þeir nýti sér hana eða
ekki. Ef fólk hefur þessa skoðun á
þeirri starfsemi sem við stöndum
fyrir get ég ekki breytt því,“ segir
Leifur.
Hann nefnir að þeirra þjónusta
komi til móts við fólk sem þurfi lágar
upphæðir. „Ef fólk þarf hærri upp-
hæðir en við bjóðum teldi ég eðli-
legra fyrir viðkomandi að semja um
slíkt við sinn viðskiptabanka.“
Bjóða smálán með
608% ársvöxtum
Smálán Kredia - vaxtakostnaður á ársgrundvelli
Nafnvextir
Upphæð Kostnaður Vextir Greiðsla á ársgrundvelli
10.000 2.500 25,00% 12.500 607,5%
20.000 4.750 23,75% 24.750 577,1%
30.000 7.000 23,33% 37.000 567,0%
40.000 9.250 23,13% 49.250 561,9%
Upphæðir eru í krónum.
Engin sérstök leyfi þarf til að reka smálánastarfsemi
Leifur
Haraldsson
Pantaðu
í síma
565600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
FERSKT& ÞÆGILEGT
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Skoðaðu nánar á somi.is
CCP HF., sem framleiðir tölvu-
leikinn Eve Online, og MP banki
hafa undirritað samninga um endur-
fjármögnun CCP og flutning allra
bankaviðskipta félagsins á Íslandi til
MP banka.
Í kjölfar samningsins hefur CCP
greitt upp víxla félagsins sem skráð-
ir voru í Kauphöll Íslands og voru á
gjalddaga þann 28. október. Önnur
eldri og óhagstæðari lán hafa einnig
verið greidd upp og í stað þeirra og
víxlanna kemur ný lánsfjármögnun
til tveggja ára.
Hagnaðaraukning
Í tilkynningu er haft eftir Vilhjálmi
Þorsteinssyni, stjórnarformanni
CCP, að félagið nái með þessu hag-
stæðri áframhaldandi lánsfjármögn-
un í íslenskri krónu með miklum
sveigjanleika, sem hentar rekstri fé-
lagsins.
Segir þar jafnframt að CCP sé
með skrifstofur í Bandaríkjunum,
Kína og Bretlandi ásamt höfuðstöðv-
um á Íslandi. Bankaþjónustan sé því
alþjóðleg og í fjölmörgum myntum
en tekjur CCP séu nær eingöngu í
Bandaríkjadölum og evrum. Rekst-
ur félagsins skilaði 6,4 milljóna dala
hagnaði, um 800 milljónum króna, á
fyrstu sex mánuðum ársins, saman-
borið við rétt rúmar tvær milljónir
dala á sama tíma í fyrra. Tekjur af
EVE Online-tölvuleiknum námu
25,4 milljónum dala, um 3,18 millj-
örðum króna, fyrri helming þessa
árs en það er rúmlega fjögurra millj-
óna dala aukning frá í fyrra.
gummi@mbl.is
Leikjaframleiðandinn
CCP í viðskipti við MP
Gengið frá endurfjármögnun CCP til næstu tveggja ára
„NIÐURSTAÐA mín er sú að
margt gerðist með svipuðum hætti
hér í aðdraganda bankahrunsins og
í Bandaríkjunum í undanfara
kreppunnar miklu á árunum 1930
til 1932,“ segir Már Wolfgang Mixa
fjármálafræðingur um fyrirlestur
sem hann flytur á ráðstefnunni
Þjóðarspeglinum í Háskóla Íslands
á morgun, föstudag.
Fyrirlesturinn ber heitið Once in
Khaki Suits, sem í lauslegri þýð-
ingu gæti væri „Eitt sinn í tein-
óttum jakkafötum“. Vísar titillinn
til línu í þekktu söngleikjalagi er
varð til upp úr kreppuárunum í
Bandaríkjunum, Brother, can you
spare a dime?
Már segir að
þótt 80 ár skilji á
milli þessara at-
burða þá megi
sjá marga líka
þætti. Nefnir
hann óhefta
bjartsýni um
framtíðarhorfur,
áhrif nýrrar
tækni í sam-
skiptum og aukið
aðgengi fólks að fjármagni, sem
aftur leiddi til aukinnar neyslu.
Einnig mun Már líta í fyrirlestr-
inum til þeirra breytinga sem urðu
í þjóðfélagsmunstri beggja þjóða á
þessum tímabilum.
Már segir það hafa gerst bæði
hér á landi og í Bandaríkjunum að
spákaupmennska jókst, tvíræðir
fjárfestingarsjóðir voru stofnaðir,
skattar lækkaðir og staða fjár-
magnseigenda bætt með ýmsum
hætti. Bendir hann m.a. á að í
Bandaríkjunum hafi þeim verið
mest refsað í niðursveiflunni sem
mest voru í sviðsljósinu í góðærinu.
Verðmat margra sjóða hafi verið út
úr öllu korti og tekur hann Exista
sem dæmi í sínum fyrirlestri.
Fyrirlestur Más hefst kl. 11.20 á
Háskólatorgi 105 en hægt er að
nálgast frekari upplýsingar um
Þjóðarspegilinn á vef Háskólans;
www.hi.is. bjb@mbl.is
Már
Wolfgang Mixa
Eitt sinn í teinóttum