Norðurland - 18.03.1977, Síða 2
„Bænakvak bjórunnandans"
Nýlega er lokið félagsmála-
námskeiði á vegum Ung-
mennafélagsins Reykhverf-
ungs og Kvenfélags Reykja-
hrepps í S-Þing., í félagsheim
ili Reykjahrepps. Þátttakend-
ur voru 14 talsins, kennslu-
kvöld 7 og leiðbeinendur þeir
Arnaldur Bjarnason, Fosshóli,
og Gunnlaugur Ámason, kenn
ari, Hafralækjarskóla.
Stuðst var við námsefni frá
félagsmálaskóla U.M.F.Í. Og
fólst kennsla einkum í fundar
stjórn, ræðumennsku og fé-
lagsstörfum. Margt var sér til
gamans gert t. d. voru þátt-
takendur látnir flytja ræður
með og á móti bjórfrumvarp-
Alster
sigraði 23
inu svonefnda, og urðu all-
snarpar umræður um það og
látum við hérmeð fylgja eina
ræðuna sem nefnist „Bæna-
kvak bjórunnandans". Flutt af
Jóni Þór Buch, Einarsstöðum:
„Ó, guð ég þakka þér fyrir
að hafa sent oss, aumum vesa-
lingum á hjara veraldar, ann-
an eins kyndilbera og hr. Sól-
nes, til að lýsa upp í myrkr-
inu og glæða hjá okkur örlít-
inn vonarneista um að nú sé
aðeins að rofa til, senn líði að
því, að hinn blessaði bjór megi
væta varir okkar og renna
ljúflega niður um kverkar okk
ar, og lyfta sálum okkar, upp
úr eymd hversdagsins svo að
við getum sungið þér og Sól-
nes, lof og prís um aldir alda.
Veit þú oss þá náð að þing-
menn vorir skilji og meti að
verðleikum hinar gullnu veig-
ar og samþykki, allir sem einn,
tillögu okkar elskaða Sólness,
um framleiðsu og sölu á sterku
öli.
Megi upp rísa hundruð bjór
kráa í Reykjavík og minnsta
kosti ein í hverju félagsheim-
ili á landinu, til blessunar fyr-
ir þjóð vora og þó alveg sér-
staklega fyrir æskuna til þess
að hún komist sem fyrst í
snertingu við hin göfgandi
áhrif hinna gullnu veiga.“
Síðasta kvöldið var haldin
vel heppnuð kvöldvaka. Þátt-
takendur voru mjög ánægðir
með námskeið þetta, og töldu
að það glæddi áhuga á félags-
starfsemi, einnig hjálpaði það
fólki, sem ætti t. d. í erfiðleik-
um að tjá sig til þess að öðlast
sjálfstraust. Vilja þeír hvetja
önnur félagssamtök til að
koma á slíkum námskeiðum
fyrir félagsmeðlimi sína, þeim
til ánægju og félagsþroska.
Til páskanna
PÁSIÍAEGG — glæsilegt úrval
Páskahænur — 2 stærðir
Saltstengur
Saltar kringlur
Saltkex
Saltar hnetur
Franskar kartöflur í dósum — margar gerðir
Kartöfluflögur í pökkum — margar gerðir
Carlsberg-bjór
ESSO-nestin
H-PANTOTEN töflur við hárlosi
Melbrosia P.L.D.
Nýtt hunang. — Var að koma!
GIN-SENG vítaminin vinsælu
Verslunin ESJA
Norðurgötu 8, sími 2-26-76
Eiðsvallagötu 18, sími 2-39-18
Hrísey 17. mars. — Tékkneski
stórmeistarinn Ladislav Alst-
er, aðstoðarmaður Horts í ein
víginu, tefldi fjöltefli í Hrísey
um síðustu helgi og vann all-
ar skákir á 23 borðum. Helm-
ingur keppenda voru börn og
unglingar. Auk fjölteflisins
var erindi Alsters til Hríseyj-
ar að heimsækja Kára Vals-
son, sem einnig er frá Tékkó-
slóvakíu.
Næg vinna er hér um þess-
ar mundir og landaði Snæfell-
ið 90 tn. í dag. Veðrátta hef-
ur verið góð og snjór er held-
ur að minnka.
Leikfélagið Krafla
Leikfélag hríseyinga hefur
nú verið formlega stofnað og
nefnist „Krafla“, en einsog áð
ur hefur verið sagt frá í Norð
urlandi hafa æfingar staðið
yfir hjá leikhópnum í vetur og
er það „Orustan á Háloga-
landi“ sem á að sýna. Frum-
sýning er ákveðin 19, þ. m. í
Sæborg. - Guðjón
Akureyri nr. 4
Um síðustu helgi tefldu akur-
eyringar síðustu tvær umferð-
irnar í Deildakeppninni og
fengu 6 vinninga gegn 2 á
móti Keflavík, en 3% gegn
4V2 móti Kópavogi.
Þótt Mjölnir og Taflfélag
Reykjavíkur eigi enn eftir að
tefla er ljóst, að Kópavogur
verður í 3. sæti með 31 vinn-
ing og Akureyri í 4. með 27 v.
Hreyfill fellur niður í 2. deild
og vestfirðingar tefla í 1. deild
að ári.
Plastleikföng
BAMBOLA (dönsk)
GALANITE (sænsk)
PLASTO (finnsk)
Allt gæðavara
Leikfanga-
markaðurinn
Hafnarstræti 96,
sími 11423
PISTILL VIKIJIMNAR:
Eins og fljúgi
flugvél yfir
Sagt hefur það verið um mörlandann að kímnigáfa hans
sé stundum í minna lagi. Álútir menn og hoknir í hnjá-
um horfa með stillingu og festu á íslenska jörð næstum
hvar í sveit sem komið er. Á sama tíma og útlendir ólu
með sér trúðslistir og skrípishátt kváðu íslenskir endalaus-
ar rímur eða lágu sér til skaða í siðlitlum og hundleiðinleg-
um fornsögum. Stundum hafa þó risið meðal þessarar
þjóðar nokkrfr spámenn og föðurlandsvinir sem hafa
átt sér þá hugsjón að glæða hlátur í kverkum sinna
frænda. Þungur hefur þeirra róður stundum verið og
margur hefur kastað sér út af henni Löngubrú eftir að
honum var orðið Ijóst að æviköllun hans hljómaði sem
hjáróma óp í eyðimörkinni og einskis sigurs var að vænta.
Það er athyglisvert og lærdómsríkt fyrir þá sem enn
vænta sér nokkurrar gleði hér á landi og senn munu
ganga til kosninga, að þessi spámannahópur fylgir næst-
um óskiptur einum stjórnmálaflokki, flokki lýðræðis og
lýðfrelsis, drenglyndis, siðgæðis og sannleika, Sjálfstæðis-
flokknum.
Allir landsmenn hafa til dæmis getað fylgst með drengi-
Iegum tilraunum Matthíasar Johannesens til að glæða
hlátur meðal þessarar voluðu þjóðar, og það ekki hvað síst
vegna þess að Matthías hefur ekki verið að pukrast með
kímni sína í Ijótum launkofum, — sér að vettvangi hefur
hann valið blað allra landsmanna, Morgunblaðið. Hann
hefur einnig ort nokkur bráðsmellin gamankvæði.. en vei
yður þér lítilsigldir búrar og drussar, fæstum yðar stekk-
ur bros við svo góða gamandikti. Það væri kannski helst
þegar Matthías hefur gert létt grín að trúarlífi þjððar
sinnar sem einhverjum hefur stokkið bros.
Eins og fljúgi flugvél yfir
fjallabrún með drunum þungum
þannig veit ég, þjóð mín, Iifir
þríeinn Guð í brjóstum ungum.
Svo kvað Matthías og margt fleira, sumir brostu en
flestir héldu áfram að starblína með stillingu og festu
á íslenska jörð.
En nú í seinni tíð hefur þó eins og bjarmað fyrir glæð-
um á svartnættishimni alvöru og húmorleysis sem grúfir
yfir íslendingum. Upp er risinn meðal lýðsins nýr spá-
maður sem fer með trúðshátt af meiri list og vél en áður
hefur vitnast meðal þessarar þjóðar.
Eins og flestum meisturum þykir sæma, fór hann sér
hægt í fyrstu. Dvaldist löng og fögur manndómsár við
fábrotin störf norður á Akureyri, var útibússtjóri Lands-
i bankans um háa tíð þar í sveit og reyndi að útbreiða
i...............................................
í kyrrþey kátínu og gleði meðal heimamanna. Mörg er
hún ekkjan og margur er hann umkomuleysinginn sem
hann gladdi, — eða reyndi að gleðja, — með Iéttum
spaugsyrðum á borð við þau, þegar liann veitti þeim víxil-
lán á sömu vaxtaskilyrðum og öðrum viðskiptavinum
bankans, að þetta gerði hann nú bara fyrir þau vegna
sérstakrar manngæsku. Stundum brostu ekkjurnar í
gegnum tárin, — sjaldnast þó af því að þær væru með
á nótunum í þessari sérstæðu gamankviðu útibústjórans.
Stundum skemmti hann, eða reyndi að skemmta, — sömu
aðilum með því að neita þeim um lán og segja um Ieið,
að það væru því miður engir peningar til. Þegar ekkjurn-
ar svo horfðu á framkvæmdamenn og flokksbræður úti-
bússtjórans ganga í fjárhirslur peningastofnunarinnar þá
gladdi það þær oft ekki hætishót, sumar urruðu af heift
og húmorsleysi, svo algerlega er þessari voluðu þjóð fyrir-
munaður hláturinn.
Jesús Kristur lagði frá sér hamar og sög og yfirgaf
smíðaverkstæði Jóseps til að frelsa heiminn. Eiríkur frá
Brúnum yfirgaf konu og börn, jörð og heimahaga til að
boða íslendingum ídýfuskírn og boðskap Brighams Young
og mormónsbókar. Jón Sólnes hætti að kæta, — eða
reyna að kæta, — félitla akureyringa og lagði útidyr lands-
bankaútibúsins í hálfa gátt að baki sér. Hann hélt níðs-
ókvíðinn á dýpri mið.
Og síðan er eins og rofað hafi til. Hann hefur gert
bæjarstjórn Akureyrar og alþingi íslendinga að vettvangi
sínum, og það sem er undarlegast og ánægjulegast af öllu,
með þó nokkrum árangri.
Með spaugsyrði á vör hefur hann lagt íslensku þjóð-
inni lið I þröngum stakki á erfiðum tímum. Mörgum mör-
landanum varð dillað í sálarinnum sínum þegar fréttir
bárust austan frá Japan af spaugsömum íslendingi í silki-
slopp og ilskóm að bergja á sakíbikar í hópi skríkjandi
geisha. Það fylgdi fréttum að hann væri þar að kaupa
gufutúrbínur til að troða ofan í eldgíg. Og brosgretta
sást á mörgu búrafésinu þegar gufutúrbínurnar römbuðu
á barmi eldgígsins og postula gleðinnar varð að orði að
senn yrði bæði birta og ylur í nágrenni þeirra. Við hin
ólíkustu tækifæri hefur hann látið gamansamar athuga-
semdir falla, skírt upp fræðigreinar í léttum tóni, kallað
sálfræði til dæmis brjálfræði, — auðvitað til óendan-
legrar ánægju fyrir þá sem eiga vangefin eða þroskaheft
börn og hafa hingað til ekki tekið örlögum sínum með
glaðværum hlátrasköllum.
En úr tók þó steininn með öllu gamansemi hans þegar
hann boðaði drykkfelldri þjóðinni áfengt öl svo hún
mætti um aldurdaga njóta himinsælu áfengisvímunnar
á götukrám og vertshúsum. Þá skellti hreinlega margur
mörlandinn uppúr. Og þegar það svo vitnaðist að mikil
tilfærsla varð í eignarhaldi á hlutabréfum gosdrykkja-
verksmiðjunnar Sana hf. á Akureyri þá orgaði hreint og
beint langvoluð þjóðin af hlátri. Síðan hefur hláturinn
kraumað svo fyrir brjósti hennar að engu er saman að
jafna nema helst því að flugvél fljúgi yfir fjallabrún með
þungum drunum. — Böðvar Guðmundsson
..........■■■■■■■...”"■"■■■■....r....■■■■..............
2 — NORÐURLAND