Norðurland - 15.02.1979, Blaðsíða 4
Helgi
Olafsson
Skákþrautin
Skákþraut síðasta þáttar var að
sjálfsögðu ákaflega létt en lausn
in er á þessa leið:
1. Hc8 Kxg3
2. Dc7 mát.
- Og þá er það þraut vikunnar.
Pal Benkö heitir snjall náungi
sem hefur sérhæft sig í svoköll-
uðum hjálparmátsdæmum. Hér
kemur eitt af afkvæmum hans.
Svartur á að hjálpa hvítum til
að máta sig í 2 leikjum. Það er
hvítur sem leikur fyrst.
En ekki er öll sagan sögð.
Aftur á svartur að láta máta sig í
2 leikjum og í þetta sinn leikur
hann fyrst.
Námskeið
BSRB
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja hefur mörg undanfarin ár
staðið fyrir miklu fræðslustarfi,
einkum í formi stuttra námskeiða.
Á næstu vikum eru tvö slík nám-
skeið fyrirhuguð hér í bæ. Hið fyrra
er í framsögn, ræðumennsku og
upplestri, undir leiðsögn Bald-
vins Halldórssonar leikara. Hefst
það í Barnaskóla Akureyrar n.k.
föstudagskvöld 16. febrúar kl. 20.
Kennt verður 3 tíma á kvöldi alls 4
kvöld. Þátttaka tilkynnist Erlingi
Aðalsteinssyni, tæknifræðingi, for-
manni Starfsmannafélags Akur-
eyrar eða Guðmundi Gunnarssyni,
starfsmanni á Skattstofu Norður-
landsumdæmis eystra.
Dagana 22.-24. mars verður
námskeið um kjarasamninga og fé-
lagsmál. Leiðbeinendur verða úr
forystusveit BSRB í Reykjavík.
Sömu menn og áður voru nefndir
taka við þátttökutilkynningum, en
auk þeirra Jóna Fjalldal, hjúkrun-
arfræðingur, Agnar Árnason, raf-
magnseftirlitsmaður og Hörður
Ólafsson, skólastjóri Lundarskóla.
Lárusarhús
Svo sem alkunna er þá var
ópnaður samkomusalur {
Lárusarhúsi að Eiðsvalla-
götu 18 á sl. vetri. Nú
standa yfir viðgerðir og
nýjar framkvæmdir á veg-
um húsnefndarinnar. Ekki
þarf að taka fram að sósíal-
istar á Akureyri eru lítt
búnir veraldlegum auði til
slíkra framkvæmda. Þaðer
því einlæg bón, að þeir sem
geta séð af nokkrum aurum
til framkvæmdanna rétti
þá að Háraldi Bogasyni,
sem sér um þau mál fyrir
hönd hússins. Og ekki ætti
að þurfa að þurfa að taka
fram, að mikil og brýn
nauðsyn er á, að menn til-
kynni sig til sjálfboðaliðs-
starfa. Verkefnin hrópa og
kalla á fólk til ýmissa
starfa. Hafið samband við
Jón Hafstein í þessum til-
gangi.
Peningamálin
rædd í bæjarstjórn
væri ráð fyrir of miklum rekstr-
arkostnaði á fjárhagsáætlun-
inni. Þar mætti sneiða lítil-
lega af og veita til þarfra
verkefna, sem væru á biðlista.
Nefndi hún nokkur slík dæmi:
Atvinnumálanefndin væri tæp-
ast starfshæf vegna fjárskorts.
Þótt atvinnuþróun á Akur-
eyri hefði verið sérstæð að því
leyti að hún hefði verið hæg og
jöfn á undanförnum árum, væri
því miður ekki útlit fyrir að svo
yrði áfram. Til dæmis hefðu yfír
100 manns misst atvinnuna fyrir
varalaust í síðustu viku, - að
mestum hluta konur. Þetta
gengi nú hávaðalaust fyrir sig
máske vegna þess, - en bæjar-
félagið yrði að mæta slikum
áföllum. (Nú kallaði Sigurður
Óli Brynjólfsson inn i: „Var
síldin líka kvenkyns?“)
Þá sagði Soffía að afstaðan til
einstakra málaflokka á fjár-
hagsáætlun endurspeglaði oft
lífsskoðanir þeirra sem um hana
fjalla. Soffía rakti nú nokkuð
hvernig hér hefði ríkt kyrrstaða
í félagsmálum um árabil. Þegar
svo loks var hafist handa varð
kostnaður eðlilega mjög mikill.
Þá sagði hún frá því, að allir
flokkar hefðu verið sammála
því að hraða uppbyggingu dag-
vistarheimila. Væri þarft að
bæjarfulltrúar fíettu upp í kosn-
ingaloforðum sínum þar um.
Þá kallar Þorvaldur Jónsson:
„Hver vill það ekki?“ Soffía:
„Ég er að tala fyrir mig, - aðrir
bæjarfulltrúar geta talað fyrir
sig hér á eftir ef þeir vilja. Síðan
vænti ég þess að menn láti
verkin tala“. Lýsti Soffía síðan
skoðunum og breytingatillög-
Framhald af forsíðu.
um sósíalista i bæjarstjórninni
og nefndi sérstaklega byggingu
dagvistarheimilisins í Glerár-
hverfi, þannig að hún yrði
tilbúin til notkunar sumarið
1980, svo sem segir í samstarfs-
yfirlýsingu meirihlutafíokk-
anna. Yrði aukin fjárveiting
fengin með fyrgreindum hætti
af rekstrarfé á áætlun.
Ingólfur Árnason talaði um
köku, sem þyrfti að skipta.
Sagðist hafa áhuga á öðrum
málafíokkum en dagvistarmál-
um. Nefndi ábyrgðaleysi full-
trúa Alþýðubandalagsins í
þessu sambandi. Þessu tali
svaraði Helgi Guðmundsson og
renndi fíeiri stoðum undir tillög
ur sósíalista. Nefndi hann að
aðeins þyrfti að taka 2.3% af
rekstrarfé því, sem bæjarstjóri
hefði sjálfur sagt ofreiknað í
áætlun til að standa straum af
þeim framkvæmdum sem Al-
þýðubandalagið gerði tillögur
um. Fór Helgi síðan nákvæmar
í saumana á tillögunum og
skaut liðlega á viðhorf þau er
Ingólfur Árnason væri fulltrúi
fyrir.
Þessum langa og þreytandi
fundi (einn bæjarfulltrúi var
lagstur fram á borð) lauk svo
með ræðu Sigurðar Sigurðs-
sonar, sem sagði m.a. að mikið
vantaði á nákvæmari sundur-
liðun áætlunarinnar, nefndi gíf-
urlegan kostnað við tannlækn-
ingar (80 milj.) Þetta var fyrri
umræða um íjárhagsáætlunina.
Sú síðari fer fram innan þriggja
vikna. NORÐURLAND mun
greina frá ýmsum málafíokkum
hennar síðar eftir því sem tilefni
gefst til.
Utivistardagurinn
um. Frá þeim niður í Kjarna-
skóg. Álíka létt ganga og ferð
no. 2.
4. Gengið um Súlumýrar og
upp á Súlur ef veður og fœri
leyfir. Nokkru erfiðari ferð en
hinar þrjár. Sagt verður til um
helstu örnefni á Glerárdal.
Lagt verður upp í ferðir 1, 2
og 3 frá Kjarnalandi kl. 13.30. í
Súlnaferðina verður lagt kl.
10.30 frá afíeggjaranum upp í
Fálkafell (á leiðinni upp að
öskuhaugum). Allar ferðir eru
ókeypis. Ferðirnar eru háðar
breytingum vegna veðurs og
færis. Ef færð leyfir, verður
hægt að fara þær allar hvort
heldur sem er á gönguskíðum
eða án þeirra.
Framhald af baksíðu.
Garðræktin sér um að halda
opnum skautasvellum í hverf-
um bæjarins ef veður leyfir og
íshockeyvöllur Skgutafélags
Akureyrar við Höpfner verður
opinn almenningi allan sunnu-
daginn og leiðbeina skautafé-
lagsmenn fólki á skautum ef
þess er óskað.
SKÍ-stjarnan verður til sölu
fyrir þá sem taka þátt í trimm-
deginum.
í Kjarnaskógi verða troðnar
göngubrautir eftir því sem að-
stæður leyfa, þar verða veittar
leiðbeiningar um meðferð
gönguskíða og áburðar. Skátar
verða með veitingasölu í Kjarna
skógi.
Tilboð óskast í hita- og loftræstitæki
fyrir nýbyggingu Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Utboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavík.
Tilboð verða opnuð föstudaginn
16. marz 1979, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTQFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Orðsending frá Heilsuverndarstöð
Ákureyrar vegna
rauðu hunda faraldurs
Konur eru hvattartil að leita til Mæðraeftirlitsins
jafnskjótt og þær vita að þær eru þungaðar og fá
mælt mótefni gegn rauðum hundum.
Þær sem engin mótefni hafa þurfa síðan að láta
mæla hjá sér mótefni vikulega fyrstu 3 mánuði
meðgöngutímans.
HEILSUVERNDARSTÖÐ AKUREYRAR.
Vegna breytinga á vinnutíma verða
Skrifstofur KEA
Hafnarstræti 91, opnar sem hér segir:
Afgreiðsla Fjármáladeildar kl. 9.00-15.30
Afgreiðsla Vátryggingadeildar K.E.A. kl. 8.00-16.00
Verksmiðjuafgreiðsla K.E.A. kl. 8.00-16.00
Þessar skrifstofur eru allar opnar í hádeginu.
Símaskiptiborð K.E.A. -21400- er opið kl.
9.00-18.00 en Verksmiðjuafgreiðsla K.E.A. hefur
beinan síma, númer 21403, milli kl. 8.00 og 9.00 f.h.
Kaupfélag Eyfirðinga
baðhandklæði
lítið gölluð á ótrúlega hagstæðu verði.
Verslunin er opin frá 9-18 alla
virka daga og á föstudögum frá 9-19.
Tryggvabraut 24 - Sími 21575.
AKUREYRARBÆR
AUGLÝSIR
Leiguíbúðir
Félagsmálastofnun Akureyrar auglýsir lausar til um-
sóknar leiguíbúðir af ýmsum stærðum. Er hér um að
ræða nýjar og eldri íbúðir. Við úthlutun íbúða verður
tillit tekið til mismunandi aðstæðna umsækjenda.
Gamlar umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknareyðublöðfástá skrifstofu Félagsmálastofn-
unar Akureyrar. Umsóknum skal skilað á sama stað
fyrir 1. mars nk.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN AKUREYRAR.
4 - NORÐURLAND