Norðurland


Norðurland - 15.02.1979, Blaðsíða 5

Norðurland - 15.02.1979, Blaðsíða 5
IÞROTTIR DULIÐ BLAK Keppni Islandsmótsins í blaki er óvenju lúmsk. Lítið er um auglýsingar á leikjum og blaða- skrif af skornum skammti en mikið blakað. Þetta kom ber- lega í Ijós um helgina hér fyrir norðan. Á meðan körfuknatt- leiksmenn ærsluðust í Skemm- unni læddust Eyfirðingar og stúdentar um í íþróttahúsi Gler- árskóla. ÍS liðið er alls ráðandi á blak- geiranum um þessar mundir. Er það ekki að undra, því að flest allir leikmenn liðsins námu list- ina í M A og búa að því æ síðan. En UMSE átti sem sagt ekki Judo 11. febrúar síðastliðinn fóru 3 judomenn, á vegum JRA, suð- ur. Kepptu þeir þar á móti sér- staklega ætluðu þeim er ekki hafa náð 2. kyu. Til viðmiðunar má hafa, að hæst gráðuðu keppnismennirnir hér á Akur- eyri eru 4. kyu. Skipt var í. 3 þyngdarflokka. Kristján Þorkelsson, er glímdi í þyngsta flokknum, veitti sunn- anmönnum harða keppni og lenti í 4. sæti, en hann hefur mjög skamman tíma æft judo. í léttasta flokknum glímdu þeir Jón Hjaltason og Brynjar Aðalsteinsson. Jón varð í fyrsta sæti en Brynjar þriðji. Er þetta mjög góður árangur hjá Brynjari er glímdi við sér nokkuð þyngri menn. Reyndar átti fjórði maðurinn héðan, Guðmundur Kr. Guð- mundsson, að taka þátt í mótinu, en vegna falskrar aug- lýsingar fórst það fyrir. J. H. • - - . iggj r Stórkostleg hljómplötu- ÚTSALA n.k. föstudag 16. febrúar. ROKK JASS BLUES DISCO Einnig úrval af eldri plötum. Lítið inn og gerið góð kaup. SÍMI (96)21400 smugu í stúdentana og töpuðu öllum hrinunum hlálega. Á eftir léku KA og IBV og er fátt um þann leik að segja nema hvað KÁ-menn sigruðu 3-1. Þvínæst kepptu ÍMA-stúlk- urnar við þær Breiðablikur úr Kópavogi í 1. deild kvenna. Góð eining var ríkjandi innan ÍMA-liðsins og stelpurnar geta örugglega unnið flest íslensk lið með fornkvenna skaplyndi sínu. Þær gjörsigruðu UBK með 3-0. - A sunnudaginn var enn blakað í Glerárskólahús- inu. Þá var annarar deildar keppni karla framhaldið með leik ÍMA og ÍBV. ÍMA-piIt- arnir bjuggu þar að öguðu uppeldi og reglusömu líferni upp á síðkastið og rústuðu blak- lúna Eyjaskeggja með 3 gegn 1. Leikfélag Akureyrar Stalín Sýning í kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30. Uppselt. Sýning á laugard. kl. 20.30 og sunnudag kl. 16.00 Síðustu sýningar. Aðgöngumiðaslan erop- in daglega kl. 17-19. Og kl. 17-20.30, kvöld- sýningardagana. Sími 24073. Þindarlaus skothríð Jóns Indriðasonar var áhorfendum mikið augnayndi. Gloppótt Þórslið Nýlega var dregið í Bikarkeppni KKÍ. Þór frá Akureyri kom úr hattinum næst á undan fþrótta- félagi Reykjavíkur eða IR. Þessi lið mættust á laugardaginn í Skemmunni og gafst þá ÍR- ingum tækifæri á að hefna ófar- anna í Úrvalsdeildinni. Mönn- um er eflaust í fersku minni viðureign þessara félaga á þeim vettvangi þegar Þórsarar unnu með einu stigi. Svo sannarlega náðu ÍR- ingar að hefna sín og skutu Þórsurum algjörlega ref fyrir rass. Strax á upphafsmínútun- um fengu áhorfendur að sjá að hverju stefndi. Þórsliðið fór mjög illa af stað og fyrstu 3 mínúturnar voru Þórsarar nán- ast sem statistar á vellinum. Þetta lélega start Þórs dró þungan dilk á eftir sér og náðu okkar menn aldrei að rétta hlut sinn til fulls þrátt fyrir allsæmi- lega leikkafla. Það sem undirrituðum þótti sárast við þennan leik var hversu mjög áhorfendahópur- inn var svartsýnn og virtist á andrúmsloftinu í salnum sem fyrirfram væri ákveðið hverjir færu með sigur af hólmi. Lítið var um bein hvatningarhróp og meira gert úr mistökum okkar manna en efni stóðu til. Það verður þó að viðurkennast hve mjög varnarleikur Þórs var slakari en ÍR. Sunnanmenn voru á allan hátt ákveðnari og blátt áfram frekir og æstir í að ná tuðrunni þegar hún nálgað- ist t.d. í fráköstum. Þessi mikla hógværð og kurteisi Þórsliðsins gekk einum of langt í þessum leik og mun enginn sakna þessara þátta í fari liðsins. Leik- menn liðsins verða að gera sér grein fyrir því að hver leikur er leikur mikillar baráttu og í næstkomandi leikjum verða allir að leggjast á eitt að berjast fyrir tilverurétti liðsins í Úr- valsdeildinni. Það sem einkum yljaði áhorf- endum um hjartaræturnar í þessum leik voru nokkrar fallegar körfurhjá Jóni Indriða- syni. Að minnsta kosti sex stig unnust á þann hátt, að Jón var inn í miðri þvögu undir körf- unni og brotið var á honum og þaðan skrapp knötturinn sem segulmagnaður væri ofan í körfuna. Nóg um það. í leikn- um á laugardag voru ÍR-ingar sterkari aðilinn og sigruðu þeir Þór frá Akureyri eftir að hafa haft yfirhöndina í hálfleik 53- 35. Leiknum lauk með sigri þeirra 101 stig gegn 86 stigum Þórsara. Stigin: Hjá Þór skoraði Jón 29, Mark 27v Birgir 12, Eiríkur 10, Karl og Ómar 4 hvor. Flest stig ÍR-inga skora ði Jón Jör- undsson 26 stig en Kristinn og Kolbeinn skoruðu 17 hvor. Aðrir minna. RISTILL VIKUNNAR Upplausn - upplausn! Á kvennaárinu blessuðu ruku allir upp til handa og fóta og fengu óstjórnlegan áhuga á jafnréttismálum. Sterk samstaða skapaðist og vildu ýmsir láta sem baráttan væri hafin yfir pólitískar skoðanir. öðrum fannst og sjá jafnvel betur nú - að auðvitað áttu ekki allir samleið. Það er nú einu sinni svo að flest mál eru pólitísk og lífsskoðun fólks hlýtur að móta afstöðu þess til allra mála. En nú er barnaár og allir tala um málefni barna, - en í þessu máli eru tóntegundirnar líka misjafnar. Heyrst hafa raddir um að ..upplausn heimilanna" sé mikið vandamál og sé undirrót margs sem illa fer í þessu þjóðfélagi. Gott og vel - en í hverju er þá upplausn heimilanna fólgin að mati þeirra sem þannig tala? Jú. hún er fólgin í því að konurnar eru farnar að vinna utan heimilisins. Reyndar heitir það á máli þessara manna ,,að báðir foreldrar vinni úti" - en „upplausnin" er fólgin í því að konan fór einnig út á vinnumarkaðinn. Það hefur nefnilega aldrei þótt nein upplausn þótt heimilisfeður sæjust varla heima hjá sér. E.t.v. hefur verið litið svo á að þeir ættu nokkurs konar aukaaðild að hinumfasta heimiliskjarna. Þegar konurafturá móti vilja ekki lengur láta kviksetja sig á heimilunum er hrópað: upplausn, - upplausn! Nú er töluvert til í því, að of mikil vinna foreldra geti skapað vandamál og svo sannarlega ætti jafnréttis- baráttan ekki að vera fólgin í því að gera konur að sömu vinnuþrælum og karlar hafa lengi verið. Þegar bæði hjón vinna utan heimilis ætti hvorugt að þurfa að vinna fullan vinnudag - svo ekki sé nú talað um alla auka- vinnuna. Það ætti að veraein aðalkrafa verkalýðsfélag- anna að vinnutíminn verði gerður sveigjanlegri, og fólk ekki skyldað til að vinna lengri tíma en það kærir sig um, eins og nú er oft tilfellið. Auðvitað þurfa launa- kjörin líka að vera þannig að unnt sé að framfleyta fjölskyldu án þess að leggja nótt við dag. En það er líka matsatriði hve fólk ,,þarf" mikið og vissulega eru fleiri hlutir eftirsóknarverðir en þeir sem keyptir verða fyrir peninga. Með rýmri vinnutíma gæfist betri tími til að sinna ýmsum áhugamálum og taka þáttí félagsstörfum. Eins væri miklu betri tími til samvista foreldra og barna. Þetta tvennt ætti líka að fara vel saman. Að fjölskyldan sé saman þýðir ekki að hún þurfi að einangra sig. Fé- lagsstarfsemi ætti að vera á þann veg, að ekki sé óbrúanlegt bil milli heims barnanna og heims hinna fullorðnu. Fátt er börnum meira virði en gott samband við foreldra sína - báða - og annað fullorðið fólk, hvort sem er í leik eða starfi. Þann tima sem báðir foreldrar eru við vinnu þurfa börnin að eiga vísan góðan samastað - en er það ekki furðulegt, að enn skuli umræðan um dagvistunarmál oft snúast um, hvort heppilegt sé að mæður vinni úti? Útivinna mæðra er staðreynd og þeirri staðreynd verður ekki breytt. Því ætti það að vera sjálfsagt mál að allir hafi aðgang að dagvistunarstofnunum. Þessar stofnanir eiga nefnilega svo sannarlega ekki bara að vera geymslur fyrir börnin heldur staðir sem auka og bæta þroska barnanna. Það er ánægjulegt að nú stendur til, m.a. Akureyri, að gera úttekt á innra starfi þessara heimila. það sýnir e.t.v. betur en allt annað hve vöntunin hefur verið mikil, að umræðan hefur sjaldan komist á það stig, að almenningur ræddi hvernig sjálft starfið á dagheimil- um og leikskólum ætti að vera. Umræða er sífellt í gangi um skólana og fólk er óhrætt við að gagnrýna störf þeirra og láta í Ijós skoð- anir um hvað betur megi fara. Hið sama ætti auðvitað að gilda um stofnanir fyrir börn undir skólaaldri. Von- andi kemur að því að þær þyki eins sjálfsagðar í uppeldi bama og skólarnir eru nú. NORÐURLAND - 5

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.