Norðurland


Norðurland - 15.02.1979, Qupperneq 6

Norðurland - 15.02.1979, Qupperneq 6
NORÐURIAND Fimmtudaginn 15. feb. 1979 WÁLGAGN SÓSÍALISTA NORÐURLANDSKJÖR- TÆMI EYSTRA trimm - trimm - trimm - Útivistardagur f sambandi við almennan úti- vistardag eða trimmdag Skíða- sambands fslands sem verður um allt land 18. febrúar n.k. standa eftirtaldir aðilar að undirbúningi og framkvæmd dagskrár þann dag hér á Akur- eyri: Trimm-nefnd ÍBA, fþrótta ráð Akureyrar, Ferðafélag Ak- ureyrar, Skíðahótelið, skáta- félögin í bænum, útivistarsvæð- ið í Kjarna, Skautafélag Akur- eyrar, garðræktin og Skíðaráð Akureyrar. Tilgangurinn með útivistar- degi er að hvetja fólk til þess að stunda íþróttir og útilíf þennan dag, s. s. gönguferðir, skauta- og skíðaferðir. Hvatt er til að öll íjölskyldan sé samtaka um að njóta dagsins saman og þeim sem ekki eru þegar byrjaðir að trimma er bent á að hér er tilval- ið tækifæri til þess að byrja þátttöku í skíðatrimmi Skíða- sambandsins og síðan að sjálf- sögðu í öðrum íþróttagreinum eftir því hvað veður og aðstæð- ur leyfa. Skíðaráð Akureyrar og Skíðahótelið sjá um að halda opnum skíðagönguleiðum í Hlíðarfjalli, auk þess sem allar hefðbundnar skíðabrekkur verða troðnar. Leiðbeiningar í meðferð gönguáburðar verða við Skíðahótelið ásunnudaginn kl. 10.30 ogafturkl. 13.30ogsér Stefán Jónasson um þennan þátt auk þess sem hann gefur góð ráð um annan skíðaút- búnað ogskíðagöngu. Nýrsnjó- plógur sem markar spor í göngu brautir var tekinn í notkun um síðustu helgi í Hlíðarfjalli og verða göngumenn mun betur settir eftir tilkomu hans. Árl^gt Hermannsmót, sem er punktamót í svigi og stórsvigi verður haldið í Hlíðarfjalli um helgina og verða keppendur víða að af landinu. Á laugar- dag hefst keppni í stórsvigi kl. 11.30 og á sunnudag með keppni í svigi kl. 11.30. Ferðafélag Akureyrar og Skátafélögin sjá um gönguferð- ir fyrir almenning svo sem hér segir: 1. Fjölskylduganga um úti- vistarsvœðið í Kjarnaskógi. Létt og róleg gönguferð fyrir alla fjölskylduna með kynn- ingu á möguleikum svœðisins. 2. Fjölskylduferð um Kjarna- skóg og upp á Löngukletta. Byrjar eins og ferð 1, en síðan verður farið lengra upp í brekk- urnar til að. njóta útsýnis yfir Kjarnaland og Akureyrarbœ. 3. Ekið upp að Fálkafelli. Þaðan verður gengið suður Súlumýrar og að Steinmönn- Framhald á bls. 4. Ahureyri og Dalvíh: Áríðandi fundir Samtök herstöðvaandstæðinga starfa með nokkrum blóma um þessar mundir, svo sem tilefnin gefa ástæðu til. Víða um landið er hafinn undirbúningur til að minnast þrjátíu ára NATO- aðildar. Um helgina eru fyrir- hugaðir tveir fundir nyrðra. Á Akureyri munu herstöðva- andstæðingar funda laugardag- inn 17. feb. nk. Ásmundur Ásmundsson formaður mið- nefndar mun mæta á þann fund. Ætlunin er að fjalla um undir- búning 30. mars móts, sem halda á á Akureyri. Þá verður félagafjölgun í samtökunum rædd og hvernig rjúfa beri „ein- angrun“ samtakanna á Akur- eyri. Á Dalvík mun Ásmundur aðallega skýra frá starfsemi samtaka herstöðvaandstæðinga á liðnum misserum. Herstöðva- andstæðingar hafa ekki verið skipulagðir á Dalvík og ná- grenni undanfarið. Fundurinn þar verður á sunnudaginn 18. feb. kl. 13.30 og verður auglýst- Ásmundur Ásmundsson. ur nánar með götuauglýsingum í bænum. Norðlenskir her- stöðvaandstæðingar eru hvatt- ir til að mæta á þessa fundi hafi þeir tök á, - og láta hvergi deig- an síga fyrir þýlyndi Natosinna og erfiðum tímum. Myndlistarmenn Þann 9. janúar komu saman þátttakendur samsýningar þeirrar er haldin var í Iðnskól- anum í nóv. síðastliðnum undir nafninu „Myndhópurinn sýn- ir“, og stofnuðu með sér félags- skap er hlaut nafnið Mynd- hópurinn. Markmið félagsins verður m.a. að efla samskipti á milli myndlistarmanna á Akur- eyri og víðar. Stjórn félágsins skipa: Úlfur Ragnarsson, formaður. Iðunn Ágústsdóttir, gjaldkeri. Valgarður Stefánsson, ritari. Aðalsteinn Vestmann, meðstj. örn Ingi, meðstjórnandi. Þeir sem óska eftir inngöngu og vilja gerast stofnfélagar sendi formanni Úlfi Ragnarssyni inn- tökubeiðni fyrir framhaldsstofn- fund, sem verður haldinn þann 9. mars næstkomandi. GERIST ÁSKRIFENDUR - Síminn er 2-18-75 - AUGLYSIÐ I NORÐURLANDI - Síminn er 2-18-75 (Ljósm. Vinnan, Haukur Már.) Niðursuðuverksm. K. Jónsson A tvinnu leysi Sl. föstudag munu tugir starfs- manna Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar, að stærstum hluta konur, hafa orðið atvinnu lausir fyrirvaralaust. NORÐ- URLAND reyndi ítrekað að ná sambandi við eigendur verk- smiðjunnar en án árangurs. Blaðið hafði samband við Fjólu Þorbergsdóttur trúnað- armann starfsfólks í verksmiðj- unni. Sagði Fjóla að verkafólk hefði lesið tilkynninguna um það á föstudaginn að frá og með mánudegi yrði ekki unnið i verk smiðjunni vegna hráefnisskorts um óákveðinn tíma. Jafnframt frétti stárfsfólk að haft hefði verið samband við Einingu vegna málsins. Þætti verkafólki þetta að vonum nöturleg staða, en málið væri í höndum verka- lýðsfélagsins. Jón Helgason gat ekki sagt blaðinu hve margir hefðu misst atvinnuna, fólk væri að hafa samband við þá þessa dagana og skrifstofan vísaði verkafólki til atvinnuleysisskráningar. Sagði Jón að Kristján Jónsson hefði haft samband við hann fyrir helgi og tjáð honum hvern- ig komið væri. Þá lægi fyrir úr- skurður Vinnuveitendasam- bandsins um að þetta væri gert með lögmætum hætti. Samkv. lögum frá 1958 mætti segja fólki fyrirvaralaust upp vegna hrá- efnisskorts. Jón sagði að verka- fólk væri næsta varnalaust gagnvart þessu og væri verka- lýðsfélagið að kanna lagalega stöðu þess nú. Annars gengu flestar uppsagnir ekki form- lega í gildi fyrr en um nk. mánaðamót. Víst er að verkafólkið verður að njóta meira atvinnuöryggis en svo, að það geti tugum sam- an orðið atvinnulaust, án þess að sjá pokkra hyllingu úrbóta. NORÐURLAND mun skýra nánar frá málavöxtum fljót- lega. Rannsóknarstofa fisk- iðnaðar opnar í vor Á Akureyri er fyrirhugaður rekstur rannsóknarstofu á veg- um Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins. Hafist var handa um framkvæmdir samkv. ljár- veitingu á árinu ’78. Slík útibú frá Rannsóknar- stofnun fískiðnaðarins eru nú starfandi í Vestmannaeyjum, ísafirði, Neskaupstað og nú verður það fjórða sett á laggirn- ar hér á Akureyri. Sigurlinni Sigurlinnason útibússtjóri greindi NORÐURLANDI frá því að starfsemi útibúsins yrði þríþætt: eftirlit, þjónusta og ráðgjöf. Útibúið verður í hús- næði niðursuðuverksmiðju K. Jónsson og Co. Það er um 100 m2 að stærð og rúmar skrif- stofu, undirbúningsherbergi og rannsóknarstofu. Þar verða öll fullkomnustu tæki tilefnagrein- ingar oggerlarannsókna. Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins hefur eftirlit með höndum á sjávarafurðum til útflutnings. s.s. lagmeti, mjöl og lýsi, - en aðrar sjávarafurðir eru undir eftirliti Framleiðslueftirlits sjávarafurða. Þessir tveir rann- sóknaraðilar áttu samkv. fjár- lagafrumvarpi þessa árs að fá fyrir árið 1979 660 milj. - eða: Rannsóknarstofnun Fiskiðnað- arins um 230 milj. og Fram- leiðslueftirlit fiskiðnaðarins 430 milj. króna. Þá sagði Sigurlinni að ástæða væri til að undirstrika að úti- búið væri reiðubúið að taka að sér hvers konar þjónustu og ráðgjöf fyrir fiskiðnaðinn. Framkvæmdirnar, sem hafa verið undir stjórn Sigurlinna hafa kostað um 20 miljónir. Þær eru það langt komnar, að reikna má með opnun útibús- ins í aprílbyrjun. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Félagsfundur ABA heldur almennan félagsfund f immtudaginn 15. febr. í Lárusarhúsi, Eiðsvailagötu 18. Fundurinn hefst stundvís- lega kl. 20.30. FUNDAREFNI: 1. Tillaga Böðvars Guðmunassonar sem lögð var fram á síð- asta félagsfundi. 2. Soffía Guðmundsdóttir kynnir drög að fjárhagsáælun Ak- ureyrarbæjar fyrir árið 1979. 3. ðnnur mál. Félagar eru eindregið hvattir til að koma STJÖRNIN: Vörður fimmtugur Félag ungra íhaldsmanna kennt við unga sjálfstæðis- menn Vörður á Akureyri er fimmtugt um þessar mundir. Þar hefur margur slyngur peningamaðurinn setið á skör og uppvaxið til borgaralegra metorða. Fé- lagið hefur haldið „athafna frelsi einstakiinganna“ mjög á lofti og varað við kommúnismanum og ann- að verið í sams konar hefð- bundnum afturhaldsstíl. Kunnir svarthöfðar hafa verið í forsæti félagsins, svo sem Indriði G. Þorsteins- son og Halldór Blöndal. Ótaldir eru þeir lögfræð- ingar og framámenn úr við- skiptalífinu, sem setið hafa í stjórn Varðar með at- hafnabjarma í augum. í upphafi var meginmark- miðið að vinna gegn kommúnismanum og vist munu margir æði dökkir í sinni hafa gist herlegheitin á árunum í kringum 1930. En það er liðin tíð og nú hefur flest annað orðið að víkja fyrir „frelsi einstak- lingsins". ViðáNORÐUR- LANDI höfum nægilega gamansemi til að bera til að óska afmælisbarninu til lukku. ístendingur á shjánum Mikill kyrkingur er nú í auglýsingum norðanblað- anna. Blaðið fslendingur hefur sprengt auglýsinga- taxta blaðanna með fá- dæma kátbroslegum hætti í anda „frjáls markaðar“. Ritstjóri íslendings er kom- inn í samkeppni við sjálfan sig með því að gefa út blaðgrey með sjónvarps- dagskrá og svo auðvitað auglýsingum. Þessi „menn- ingarauki“ hefur valdið tregðu auglýsenda við að auglýsa í vikublöðunum hér nyrðra. íslendingur hef ur einn brugðist við með sönnum samkeppnisanda, - og býður auglýsingapláss falt með allt að 30-50% afslætti á myndrænum síð- um sínum. Sætir þolin- mæði blaðstjórnar íslend- ings furðu kunnugra, - en þar virðist ríkja óendan- legur skilningur á tak- markalausu frelsi einstak- lingsins til athafna. Blöðin ættu að koma sér saman um auglýsingastarfsemi nú þegar, því illilega er vegið að útgáfu þeirra með sam- drætti augíýsinga, svo sem Dagur benti réttilega á fyr- ir skemmstu. Alþýðuleih- húsið Reykvíkingar skutu Akur- eyraríhaldi ref fyrir rass á dögunum. Alþýðuleikhús- ið, sem sækir nú í fyrsta sinn um styrk frá Reykja- víkurborg fékk á áætlun íjórar miljónir króna. Skemmst er að minnast aft- urhaldsóláta vegna nokk- urra krónu styrksóveru, sem var á áætlun Akureyr- arbæjar fyrir einu ári.

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.