Norðurland - 27.09.1979, Side 2

Norðurland - 27.09.1979, Side 2
efnahagsmálum dæmi af fyrirtækjum sem greiddu hærri upphæðir i vexti en laun á árinu. Hvað snerti verslunina sagði Stefán að augljóst væri að hún hagnaðist á hávötunum þar er auðvelt væri fyrir hana að hrinda af sér vaxtakostnaði út í verðlagið. Stefán sagði að vafalaust væru nú framundan átök um stefnuna í efnahagsmálunum og væri mjög brýnt að Alþýðu- bandalagsmenn ynnu vel og kæmu vel undirbúnir á flokks- ráðsfundinn í haust. Það sem hann taldi að flokkurinn yrði að leggja höfuðáherslu á væri eftirfarandi: Afnám raunvaxta- stefnunnar, verðtryggður lífeyris sjóður fyrir alla landsmenn, og fæðingarorlof fyrir allar konur. Þá taldi hann að taka bæri upp verðstöðvun og bindingu gengis. Um næstu áramót eru samningar lausir og þá munu kröfur miðast við að tryggja sama kaupmátt og fékkst með sólstöðusamningunum 1977. Nokkrar umræður urðu að ræðu Stefáns lokinni einkum eftir ádrepu Einars Petersens á Kleif um stöðuna í landbúnaðarmál- unum. Taldi Einar að þau áföll sem dunið hafa yfir bændur í sumar og enginn endir sæist á væri alvarlegra mál fyrir íslenskt efnahagslíf og íslenskt þjóðlíf en olíukreppan. næði yrði ekki undir fimmtíu milljarðar á þessu ári. Hundruð launamanna í Reykjavík væru þegar búnir að missa húsnæði sitt ef bankarnir kæmu ekki í veg fyrir það vegna veðanna. Stefán benti einnig á að hávext- irnir væru hrein hengingaról fyrir útflutningsiðnaðinn og tók Hörð átök framundan í Nokkrir fundarmanna undir tölu Stefáns. - Ljósm. Loftur. S.l. laugardag var haldinn í Lárusarhúsi fundur í Alþýðu- bandalagsfélagi Akureyrar. Þar voru kjörnir fulltrúar á kom- andi kjördæmisþing og flokks- ráðsfund og Stefán Jónsson alþingismaður ræddi ástand og horfur í stjórnmálum. Stefán hóf mál sitt með því að rifja upp aðdraganda stjórnar- myndunarviðræðnanna í fyrra og fyrstu mánuði stjórnarinnar, en hann taldi að fram að setningu Olafslaganna í mars s.l. hefði Alþýðubandalagið mót andi áhrif á framgang mála en síðan hefði sigið á ógæfuhlið varðandi áhrif þess í ríkisstjórn- inni. Hann taldi þó að rétt hefði verið að sitja áfram í stjórninni og vitnaði m.a. til þess að það hafi verið eindreginn vilji verka- lýðshreyfingarinnar og víða hefðu þær raddir heyrst þegar hugur manna var kannaður fyrir setningu Olafslaga, að Alþýðubandalagið yrði að seil- ast mjög langt til samkomulags ef það mætti verða til að treina líf stjórnarinnar. Sagði Stefán að ekki hefði verið hægt að daufheyrast við þessum röddum. Nú á síðustu mánuðum sagði Stefán að mjög hefði snúist á verri veg og taldi til þess hefði einkum borið tvennt: verð- hækkanir á olíu sem hefðu valdið miklum útgjaldaauka fyrir þjóðarbúið. Hitt væri svo ákvæði Ólafslaga um raunvaxta stefnu auk þess sem binding fjárfestinga og opinberra fjár- veitinga væri Alþýðubandalags- mönnum mikill þyrnir í augum. Stefán ræddi síðan einkum hvernig raunvaxtastefnan kæmi við almennt launafólk og þann iðnað sem framleiddi til útflutn- ings annars vegar og verslunina hins vegar. Á þessu ári sagði Stefán að bankarnir tækju í vexti af húsbyggjendum um 20 milljarða króna og þegar vaxta- greiðslur af húsnæði fullgerðu húsnæði kæmu inn í myndina væri ljóst að vextirafíbúðarhús- Af mannlífl og Yfirvegaður og rór vangasvipur Jörundar holdanauts. Enga léttúð, segir hann, þetta verður að nægja núna, kroppinn ef til vill síðar. NORÐURLAND óskar að ráða mann til að taka að sér aug- Iýsingaöflun fyrir blaðið, gegn prósentum. Upplýsingar á skrifstofu NORÐURLANDS, Eiðsvallagötu 18, sími 21875. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Starfið framundan Bæjarmálaráð kom saman s.l. mánudagskvöld og verða fundir hálfs- mánaðarlega í vetur. Allt alþýðubandalagsfólk nýtur fullra réttinda á fund- unum. Áríðandi að allir sem sitja í nefndum fyrir Alþýðubanda-- lagið mæti. Alþýðubandalagið á Akureyri. dýra í Hrísey í norðan garra í ágústlok. Gráarfjallshlíðarnarniðurundan þokunni tjákulda hið efra, en vonandi fmnur Ýmir mótvægi við honum, - það er nægan hita í ncðra. Jarðborinn Ýmir, sem borar fyrir heitu vatni í Hrísey, er nú kominn niður fyrir 500 metr- ana. Heitt vatn er ókomið en hitamælingar sem gerðar voru í holunni fyrir skömmu sýndu að þar er til hiti yfir 70 gráður. Þokkalegur heyfengur er kominn í hlöðu handa holda- nautum og mæðrum þeirra. Síð- asta heyið varsettinn l.septem- ber og síðan er óhætt að segja að ekki hafi viðrað til heyskapar. Viljum kaupa svart/hvítt sjónvarpstæki, einnig borðstofu- borð og stóla og e.t.v. fleiri húsgögn. Ef einhver á veggskáp með hvítu harðplasti úr gömlu eldhúsinnréttingunni sinni vildum við gjarnan sjá hann líka. Til sölu á sama stað gömul Rafha eldavél og Suithun barnavagn. Upplýsingar í síma 25520. Hann er upprisinn Félagi Helgi Guðmunds- son hefur að undanförnu verið á sjúkrahúsi í Reykja- vík þar sem hann var skorinn upp við illskeyttri bakveiki. Helgi er nú risinn upp af sjúkrabeði sínu og hefur þegar sest við ritvél- ina í þágu NORÐUR- LANDS eins og þetta blað ber með sér. Einhver bið mun verða á að Helgi komi til starfa á ný en félagar hans herna megin fjalla senda honum kveðjur sínar og óska honum skjóts og góðs bata. Esperanto í sókn Svo sem fram kom hér í blaðinu fyrr á þessu ári, er alþjóðamálið, Esperanto, í talsverðri sókn víðast hvar í heiminum, og sumstaðar hefir það hlotið byr, sem ekki finnst sambærilegt dæmi um í sögu þess. Til viðbótar við þær fréttir, sem tíundaðar voru í fyrsta maí blaðinu má hér nefna öran framgang máls- ins í Belgíu (einkum í Flandern) síðastliðin tvö ár samfara áhuga, sem fjöl- miðlar þar í landi hafa sýnt Esperantohreyfingunni í heiminum og starfsemi hennar. Þá sýnir það verulega stefnubreytingu Sovét- stjórnarinnar í garð Esper- antos, að fréttablöð á ensku, sem þaðan er dreift út um heiminn eru farin að ræða um Esperanto og Esperantohreyfinguna í Sovétríkjunum, en yfirvöld þar hafa í áratugi sem minnst viljað stuðla að framgangi alþjóðamálsins. Það voru því ekki lítil tíðindi, þegar „Moscow News“ fyrr á þessu ári birti fleiri síðna lesmál á Esper- anto. Frá félagi esperantista á Akureyri, Norda Stelo. 2 - NORÐURLAND

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.