Norðurland - 27.09.1979, Síða 4

Norðurland - 27.09.1979, Síða 4
iMORÐURLAIMD NORÐLENSKT VIKUBLAÐ Ritnefnd: Böövar Guömundsson, Erllngur Slguröarson, Helgl Guömundsson, Sofffa Guömundsdóttlr, Tryggvl Jakobsson. Ritstjóri: Jón Guöni Kristjánsson (ábm.). Framkvæmdastjórl: Loftur H. Jónsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Elösvallagötu 18, simi 21875. Póstfang: Box 492, 602 Akureyrl. Offsetprentun: Prentsmlöja Björns Jónssonar. Gefiö út af kjördæmisráöi Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra. Hvað gerist? Það liggur í loftinu að ekki sé þess langt að bíða að ný rimma hefjist meðal stjórnarflokkanna um efnahagsmál. Framsóknarmenn og kratar hafa undanfarnar vikur verið að undirbúa tillögur sínar. Hugmyndasmiðir Alþýðu- bandalagsins munu vera sestir á rökstóla. Ólafslög hafa verið í gildi frá því í vor, lög sem áttu að verða allra meina bót gegn verðbólgunni. Árangurinn hefur enginn orðið. Þvert á móti standa landsmenn nú frammi fyrir þeim vanda að verðbólgan hefur aldrei í sögunni verið ágengari. Svo virðist sem úrræðin sem bent er á gegn þessu viti firrta ástandi séu ekki til marks um að nýjar og frumlega hugmyndir séu í fæðingunni. Tveir stjórnarflokkanna, framsókn og kratar, hafa nú sem fyrr hamrað á þeirri kenningu sinni að ekki verði ráðist gegn verðbólgunni með neinum árangri nema með því að rjúfa verðtryggingu launa og stórlækka með því kaupmátt launatekna. Samkvæmt þessari kenningu eru verkalaun í landinu óbærilega há. Verkafólk fær ósæmi- lega mikið í sinn hlut. Umbun þess fyrir 50-60 tíma strit á viku hverri er ein helst orsökin fyrir óðaverðbólgunni á íslandi. í samræmi við þessa skoðun mun síðan tillöguflutn - ingur þessara tveggja flokka verða nú í haust. Eina ferð- ina enn munu hefjast átök um Ieiðir út úr efnahagsöng- þveitinu. Á þessari stundu skal engu um það spáð hvernig þeim átökum lýkur en sé það rétt sem heyrst hefur að hugmyndir Framsóknarflokksins byggist á því að „frysta“ allar verðlagsbætur frá og með 1. desember n.k. í að minnsta kosti hálft ár og kratar muni vera reiðubúnir til að standa að slíkum ráðstöfunum, þá verður ekki ann- að sagt en að útlitið sé heldur dapurlegt fyrir þeirri ríkis- stjórn sem verkalýðshreyfingin hefur öðrum fremur kall - að sína. Þeim mönnum sem ráðið hafa ferðinni í efnahagsmál- um undanfarna tvo áratugi eða svo, ævinlega með þau slagorð á vör að berjast gegn verðbólgunni, hafa verið ærið mislagðar hendur. Árum saman hafa þeir lagt á ráðin og gera enn um þessar eða hinar aðgerðirnar og Íárangurinn sjá allir. Sé þetta tímabil skoðað kemur í ljós að ekki er hægt að staðfesta með rökum þá skoðun að verðtrygging launa þýði sjálfkrafa bullandi verðbólgu. Ekki verður heldur séð að lækkandi kaupmáttur launa leysi vandann því að dæmin sýna að verðbólgan varð aldrei meiri en á þeim tíma sem kaupmátturinn hrapaði mest. Samtökum Iaunafólks er ærinn vandi á höndum. Sitji þau nú hjá þegar stjórnmálamennirnir koma með sínar patent Iausnir á vandanum, þá eru miklar líkur fyrir því að niðurstaða þeirra verði sú, að meirihluti alþingis verði þeirrar skoðunar, að nú dugi ekkert nema stóraukin kjara- skerðing og lagasetning þingsins verði í samræmi við það. Það er því afar brýnt að verkalýðshreyfingin móti á næstu vikum og mánuðum sínar eigin hugmyndir um efna- hags- og launamálastefnu og geri úrslitatilraun til þess að koma henni fram í samvinnu við ríkisstjórnina. Þær hugmyndir mega ekki mótast af kaupgjaldsmálunum ein- um heldur ná til miklu fieiri þátta, ekki síst félags- og menningarmála auk nauðsynlegra aðgerða til þess að bæta og tryggja stöðu launafólks í margvíslegum efnum. Takist þetta ekki nú, eru ekki líkur á öðru tækifæri í bráð- ina til umtalsverðra þjóðfélagsbreytinga, verkalýðsstétt- inni í hag. - hágé. Ræða Hjörleifs Guttormsso: Góðir fundarmenn. Eg tel rétt að víkja hér að nokkrum atriðum varðandi stöðu iðnaðar hérlendis og vinnu að stefnumörkun um iðn- þróun svo og að einstökum brýnum úrlausnarefnum vegna iðnaðarmála, sem iðnaðarráðu- ineytið og ríkisstjórnin hafa fengist við á því rétta ári, sem núverandi ríkisstjórn hefur ver- ið við völd. Ég vænti þess að örstutt ágrip um þessi efni af minni hálfu verði til glöggvun- ar varðandi umræðu um iðnað- armál á þessum fundi. Nauð- synlegt er að líta á sem flest í samhengi, og á það ekki síst við um iðnþróun sem lið í atvinnu- uppbyggingu í landi okkar. Iðnaður er af ýmsum ástæðum margslungnari og vandasamari en önnur atvinnustarfsemi í landinu, eigi árangur að nást. Þar reynir á samstarf margra, stjórnvalda, rannsóknaraðila og þjónustustofnana og þeirra sem í iðnrekstrinum starfa, og jafnframt reynir á sveigjanleika til að mæta breyttum aðstæðum og leita lags við stofnun nýrra fyrirtækja. Breytt valdahlut- fall Þau ár sem við nú lifum eru tími örra og róttækra breyt- inga og vaxandi erfiðleika á mörgum sviðum í atvinnustarf- semi iðnríkja á Vesturlöndum, erfiðleika sem lýsa sér m.a. í aukinni verðbólgu og hægari hagvexti ásamt miklu atvinnu- leysi í mörgum ríkjum. Ofan á þessa erfiðleika hefur síðan bæst orkukreppan með stórfelldri hækkun olíuverðs og eftirspurn umfram framboð á alþjóða- markaði. Ein ástæðan fyrir þess- um breytingum eru ný styrk- leikahlutföll milli hinna gömlu og grónu iðnríkja annars vegar og þróunarlands þriðja heims- ins hins vegar. Hin síðartöldu reyna að slá skjaldborg um auð- lindir sínar og hráefni og hefja iðnvæðingu með ódýrara vinnu- afl og ólíkan bakgrunn á mörg- um fleiri sviðum í samanburði við hin eldri iðnríki, sem áður höfðu húsbóndavaldið óskorað. Því er þetta rifjað upp hér, að einnig við íslendingar förum ekki varhluta af þessum breyt- ingum og verðum að taka tillit til þeirra í mótun atvinnustefnu í landi okkar og þá ekki síst á sviði iðnaðar ef vel á að fara. Við erum vitni að stórfelldum erfið- leikum heilla iðngreina í grann- löndum okkar, svo sem á sviði vefja- og fataiðnaðar og skó- gerðar, og það gefur okkur vís- bendingu um, hvað beri að var- ast. Skipasmíðaiðnaður á einnig víða í miklum erfiðleikum sem útflutningsgrein vegna offram- leiðslu og breyttra spmkeppnis- aðstæðna. Fyrir okkur íslendinga, sem erum nánast byrjendur á sviði útflutningsiðnaðar, er alveg sér- stök ástæða til að fylgjast með og glöggva sig á þessum alþjóð- legu aðstæðum og hagnýta okk- ur þá kosti, sem öðrum fremur eru vænlegir í útflutningsiðnaði og í samkeppni hér á innan- landsmarkaði horft til lengri tíma og þá um leið fyrirtæki sem eru okkur viðráðanleg f]ár- hagslega og af öðrum ástæðum. Við þurfum þannig að sæta lagi og nýta okkur það hagræði, sem því getur á stundum fylgt að koma seint til leiks. Skapa þarf í atvinnu í iðn Iðnaður afskiptur Stjórnvöld og almenningur í landinu hafa til skamms tíma engan veginn gefið iðnaðinum sem atvinnuvegi þann gaum sem verðugt væri og æskilegt getur talist. Á það bæði við um þjónustuiðnað og framleiðslu- iðnað og þann skerf sem iðnað- urinn getur lagt til þjóðarbús- ins atvinnulega og í gjaldeyris- öflun og gjaldeyrissparnaði með beinum og óbeinum hætti. Þannig hefur vantað samkvæma og sæmilega heilsteypta iðnað- arstefnu af hálfu hins opinbera og fjárhagslegur stuðningur og aðbúnaður að iðnrekstri hefur verið allsendis ófullnægjandi svo ekki sé meira sagt. Þetta á við um framlög af opinberri hálfu til þjónustustofnana iðn- aðarins og til lánasjóða hans, sem hafa farið hlufallslega lækkandi undanfarin 5 ár og iðnaðurinn þannig setið tilfinn- anlega eftir í samkeppninni um takmarkað fjármagn til atvinnu vega og fjárfestingar. Þetta hef- ur gerst á sama tíma og mikill og vaxandi hluti af framleiðslu- iðnaði okkar hefur þurft að mæta harðnandi samkeppni vegna minnkandi tollverndar í samræmi við samningsbundin ákvæði í fríverslunarsamning- um sem við erum aðilar að innan EFTA og gagnvart Efnahags- bandalagi Evrópu. Sá ávinn- ingur sem margir höfðu vænst af tollfrjálsum aðgangi að þessum mörk’uðum hefur þannig orðið mun minni en skyldi, og aðstaða samkeppnisiðnaðar á innan- landsmarkaði reynst erfið í mörgujn greinum. Jafnframt hafa nýiðnaðarkostir ekki feng- ið þá meðferð og athugun með stuðningi af opinberri hálfu sem 4 - NORÐURLAND

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.