Norðurland - 09.01.1980, Blaðsíða 7
D. Á. Daníelsson:
Gamlar þýðingar
KOLAMOLINN
(Eftir Brecht)
1.
Heyrt hef ég, að í byrjun þessarar aldar hafi kona
nokkur, María að nafni, átt heima í Bidwell í Ohio-
fylki í Bandaríkjunum. Hún bjó við armóð, var ekkja
Mikaels, er verið hafði hemlari á járnbrautarlestum.
2.
Á nóttu hverri, þegar drunandi lestir járnbrautar-
félagsins Wheeling Railroad brunuðu framhjá, kastaði hemlari
kolarnola yfir rimlagirðingu kartöfiugarðholunnar
og hrópaði í fiýtinum, rámri röddu: „Til Mikka!“
Og á nóttu hverri, þegar kolamolinn til Mikka skall í
kolagafiinn, reis gamla konan upp og klæddi sig hálf-
sofandi í pilsið, hirti kolamolann, gjöf hemlaranna
til Mikka, hins látna en ekki gleymda.
4.
Svona löngu fyrir morgunskímuna fór hún á fætur, til
að fjarlægja úr augsýn manna þessa gjöf, svo að heml-
ararnir féllu ekki í ónáð hjá Wheeling Railroad.
Ljóð þetta er tileinkað félögum Mikaels hemlara, í
viðurkenningarskyni fyrir félagslyndi. (Lungna-
eyðing var banamein Mikaels hemlara á kolalestum
Ohiofylkis).
VORIÐ 1938
(Eftir Brecht)
í dag, páskadagsmorgun árla,
brast á stórhríð hér á eyjunni.
Snjór lá milli grænkandi limgerðanna.
Ungur sonur minn leiddi mig
að litlu aprikósutré við múrinn, tók mig
frá ljóði í smíðum, þar sem ég benti á
menn þá, sem undirbúa styrjöld, er gæti
eytt meginland Evrópu og þessa eyju,
tortímt þjóð minni
fjölskyldu minni og mér sjálfum.
Þegjandi
breiddum við poka
yfir kaldan baðminn.
í SLATURHUSINU
(Eftir Strindberg)
Við steinlagða torgið stendur
sláturhús, fornt að sjá,
og brygði ég mér í bæinn,
bar mig einatt þar hjá.
í gaiopnum, stórum glugga
sást glampa hið rauða blóð,
á kaldan marmara komið
rauk kjötið nýja sem glóð.
í kvöld hékk kálfshjarta lítið
á króki, við dyragler,
vafið í velktan pappír
var það og nötraði sér.
Brúarbasarnum gamla
mér brá fyrir sjónir þá,
með röðum af Iýstum Ijórum
sem lýðurinn staldrar hjá.
Ég leit í ljóranum smæsta
litla, þunnklædda bók:
hún er útskorið hjarta
hengt á sinn dinglandi krók.
SVIPMYND
(Eftir Eliot)
Stattu hæsta stigaþrepinu á -
styð þig við garðsins ker -
vef þú, vef þú sólskinið í þitt hár -
þrýstu blómum að barmi, undrandi, sár -
fleygðu þeim, snúðu þér frá,
með fióttans reiðiblik í augum þér:
en vef þú, vef þú sólskinið í þitt hár.
Þannig væri hans þaðanför,
þannig stæði hún, með sorg í lund,
veg sinn veldi hann
eins og hugur flýr jaskað hrör,
eins og sálin að lyktum flýr líkamann.
Einhver leið
ætti að vera, undurlétt og heið,
okkur báðum skiljanleg og greið,
einföld og án trúnaðs eins og bros og handaband.
Hún fór. En þegar haustfjöll héluð stóðu,
í huga mínum vakin oft hún bjó,
margar stundir, marga daga:
um barm og arma blóm og lokkar flóðu.
Víst gat ei orðið önnur þeirra saga!
Það augnablik ég vildi ei hafa misst.
Þess mynd á stundum hefir hjá mér gist,
ef hurfu næturværð og miðdagsró.
NORÐURLAND - 7
Herstöðvaandstæðingar á Akureyri héldu jólatrésskemmtun á þrettándanum í Alþýðuhúsinu og þar var þessi mynd tekin.
Skemmtunin var ágætlega sótt. Ljósm.: hágé.
Rauði krossinn
- Akur-
eyrardeild. Skrifstofa deildar-
innar er til húsa að Skólastíg 5,
gengið inn að austanverðu.
Síminn er 24803 og skrifstofan
er opin fyrir hádegi alla virka
daga.
Heimsóknartímar
Almennir heimsóknartímar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyrierufrá kl. 15-16 og 19-20
alla daga. - Hjúkrunarforstjóri.
MALOAQN SOStAUSTA
I NOAOURLANÐS.
IIUOSOXMI EYSTRA
Frétlir af Norð-
urlsndi.
Hressilag póli-
tisfc umrssða.
Skrif um llstir og
menningarmál.
Skákþraut Halga
ólafssonar.
Krosagátan.
Iþróttir.
Norðuiiand
kemur út
vikulaga.
Askriftargjald Inn
haimtist tvisvar á ári.
Askriftargjald fyrir
hálft árið ar kr. 3.500.
Simi 21878
EMavallasata 18
PósthóH 492
Akurayri