Organistablaðið - 01.10.1984, Qupperneq 9
Víst ertu
dr. Hallgrímur... klár
Ég er einn þeirra, sem les reglulega hið látlausa „músiktímarit"
ORGANISTABLAÐIÐ. Blaðið er ekki síst sérstætt fyrir þær sakir að vera,
að ég held, eina sértímaritið hér á landi sem fjallar um „klassíska" tónlist.
Til þessa hefur verið flutt efni tekið fagmannlegum tökum eins og það heitir
á vondu máli. Aldrei hefi ég þau 16 ár sem ég hefi blaðið augum litið, og hef
ég lesið þau öll, rekist á það sem kalla mætti að gera lítið úr verkum látins
manns, sem ekki verður til svara, allavegana ekki þessa heims.
í 3. tbl. 16. árgangs sem út kom í desember 1983 kveður allt í einu við
annan tón. Á ég þar við grein dr. Hallgríms Helgasonar, „Gömlu lögin og
sálamsöngsbókin.“ í miðri greininni víkur greinarhöfundur að útsetningu dr.
Páls ísólfssonar á því sem greinarhöfundur nefnir „gamalt grallaralag, Víst
ert þú, Jesús kóngur klár,“ og fjallar það sem eftir lifir greinarinnar um þessa
útsetningu nánast eins og hann hafi festst við þessa einu útsetningu þegar
penninn bar hann á þá leið. Ekki fer á milli mála að greinarhöfundur telur
að lesendur blaðsins viti lítil deili á dr. Páli sbr.: „Páll var um langt skeið
forvígismaður íslenskra tónlistarmála, dómorganisti, skólastjóri og tónlistar-
stjóri. Sem tónskáld samdi hann smærri og stærri verk (Alþingishátíðar-
kantata), sem mörg hafa náð talsverðri útbreiðslu innanlands," (undirstrik-
anir mínar). Dr. Hallgrímur þarf ekki að fræða lesendur Organistablaðsins
um dr. Pál. Dr. Páll þarfnast ekki dr. Hallgríms til þess. Hvað
greinarhöfundur á við með orðinu „talsverðri" veit ég ekki, þar sem ég þekki
ekki til orðaskilnings hans. Hins vegar virðist hann ekki vita eöa vilja
viðurkenna að dr. Páll var eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar og einnig að
mörg af lögum hans, ekki síst smálögin, eru á hvers manns vörum. Hvað
snertir útbreiðslu innanlands skal ennfremur á það bent og það hlýtur
greinarhöfundur að vita að nokkur orgelverka dr. Páls eru leikin utanlands
og ekki eingöngu af íslenskum organistum, heldur og erlendum.
Um útsetningu dr. Páls á sálmalaginu, Víst ert þú Jesús kóngur klár, ætla
ég ekki að fjalla hér, enda ekki í stakk búinn til þess sakir skorts á þekkingu.
Hafa mér færari menn gert sig að fíflum með ýmiss konar fræðilegum
útskýringum. Eitt veit ég þó að dr. Páll taldi sig aldrei hafa verið að stílfæra
lagið til „samræmis við uppruna sinn“ og aldrei heyrði ég dr. Pál halda því
fram að hann væri það sem sumir kalla þjóðlegt tónskáld, hvað svo sem
það þýðir þegar í hlut á tónlist á Islandi.
Einhver kynni að spyrja hví ég sé að setja ofanritað á blað. Hvers vegna
ORGANISTABLAÐIÐ 9