Morgunblaðið - 07.12.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
Í fréttum hefur komið fram aðóefnislegar eignir 365 miðla
séu tæpar sex þúsund milljónir
króna.
Því hafði verið spáð af mönnum,sem rétt þótti að hlusta ekki á
mánuðina og árin fyrir hrun, að
hinar óefnislegu
eignir væru loft-
kenndar í meira
lagi. Það væri
svo sem hugs-
anlega skaðlítið
að vitna til
þeirra á meðan
allt væri á fljúgandi ferð í þjóð-
félaginu. En ef harðnaði á dalnum
og grípa ætti til slíkra eigna yrði
lítið handfast.
Það vill svo til að eigendur 365miðla áttu mikið safn af óefn-
islegum eignum í fjölda félaga,
sem hafa horfið eða skroppið sam-
an eins og blöðrur sem leka lofti.
Þeir eigendur en þó ekki síst
kröfuhafar þeirra ættu að vera á
tánum þegar aðalgreiðslugetan og
þó einkum veðhæfnin felst í óefn-
islegum efnum. Því verður nefni-
lega ekki neitað að margir hafa
skaðast á að festa veð sín í froðu.
Myndu margir bankar taka viðsjálfskuldarábyrgð frá ósýni-
lega manninum? Þeir gerðu það
að vísu í töluverðum mæli sumir
fram á haust ársins 2008 en eru
þeir enn við það heygarðshorn?
Auðvitað er hægt að hugsa séraðstæður þar sem svokallaðar
óefnislegar eignir gætu orðið eft-
irsóttar.
Það má til dæmis hugsa sér al-þjóðlega ráðstefnu spíritista á
Íslandi. Þeir myndu ekki slá hendi
á móti því að vera styrktir til
fundarhaldanna með óefnislegum
eignum. Og þá sérstaklega ef svo
frábærlega vildi til að akkúrat
365 miðlar væru þar saman komn-
ir til fundar.
Efnilegar óefnislegar eignir
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 4 léttskýjað Lúxemborg 9 skúrir Algarve 19 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað Brussel 11 skýjað Madríd 11 alskýjað
Akureyri 4 skýjað Dublin 7 skúrir Barcelona 15 léttskýjað
Egilsstaðir 3 rigning Glasgow 8 skúrir Mallorca 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 4 léttskýjað London 10 heiðskírt Róm 13 heiðskírt
Nuuk -5 heiðskírt París 11 léttskýjað Aþena 15 alskýjað
Þórshöfn 8 þoka Amsterdam 11 léttskýjað Winnipeg -9 snjókoma
Ósló 2 súld Hamborg 9 skúrir Montreal 0 skýjað
Kaupmannahöfn 6 þoka Berlín 7 skýjað New York 2 heiðskírt
Stokkhólmur 3 skúrir Vín 2 þoka Chicago -1 skýjað
Helsinki 2 skýjað Moskva -4 alskýjað Orlando 14 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
7. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.39 0,7 9.58 4,0 16.23 0,7 22.35 3,5 11:02 15:38
ÍSAFJÖRÐUR 5.46 0,3 11.54 2,1 18.35 0,3 11:42 15:07
SIGLUFJÖRÐUR 2.16 1,1 7.58 0,3 14.18 1,2 20.42 0,1 11:27 14:49
DJÚPIVOGUR 0.43 0,2 7.09 2,1 13.29 0,5 19.26 1,8 10:40 14:59
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8
m/s og skýjað með köflum, en
úrkomulítið. Austan 8-15 og
rigning sunnanlands síðdegis.
Hiti kringum frostmark inn til
landsins, en annars 1 til 7 stig.
Á miðvikudag
Austan og síðan suðaustan 8-
13 m/s og rigning sunnan- og
austanlands, en skýjað og úr-
komulítið annars staðar. Snýst í
sunnanátt seinni partinn. Hiti 2
til 9 stig.
Á fimmtudag, föstudag og
laugardag
Útlit fyrir suðaustlæga átt með
vætu, en úrkomulítið norðaust-
anlands. Milt veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg norðaustlæg átt, skýjað
og þurrt að mestu, en dálítil
rigning með köflum á aust-
anverðu landinu. Hiti 2 til 7 stig.
www.noatun.is
CHICAGO TOWN
DEEP PAN PIZZUR
KR./STK.599
VERÐ
GOTT
Fljótlegt
og gott á
mánudegi
699
ENGIN áform eru um hækkanir bifreiðatrygginga nú um áramót, umfram
vísitöluhækkanir, að sögn forstjóra þriggja stærstu tryggingafélaganna.
Aðspurðir segja þeir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár, Guðmundur Örn
Gunnarsson, forstjóri VÍS og Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, engar gjald-
skrárhækkanir fyrirhugaðar á bílatryggingum, hvorki á ábyrgðartrygg-
ingum né kaskótryggingum. Þær hækki eingöngu í takt við verðbólgu.
„Þetta er náttúrulega mikill samkeppnismarkaður, þannig að það er mjög
erfitt að vera með einhverjar einhliða hækkanir,“ segir Lárus. ben@mbl.is
Engar gjaldskrárhækkanir á bílatryggingum
STOFNUN Styrktarfélagsins Lífs sem starfa
mun í þágu kvennadeildar Landspítalans fer fram
í safnaðarheimili Háteigskirkju í kvöld, mánudag-
inn 7. des. kl. 20. Líf mun styrkja alla þætti
kvennadeildar, bæði fæðingarþjónustu og kven-
lækningar. Fyrsta verkefni nýstofnaðs félags er
að ljúka við framkvæmdir við húsnæði meðgöngu-
og sængurkvennadeildar.
Að félaginu standa núverandi og fyrrverandi
starfsmenn kvennadeildar ásamt breiðum hópi
fólks víðsvegar úr þjóðfélaginu. Félagið er fyrir
karla og konur enda njóta karlar einnig þjónustu
kvennadeildar þar sem börn þeirra fæðast og
margir dvelja þar einnig meðan á fæðingu/sæng-
urlegu stendur.
Samkvæmt upplýsingum frá Hildi Harðardótt-
ur, yfirlækni á kvennasviði, var húsnæði deildar-
innar byggt árið 1973 og hafa nánast engar end-
urbætur verið gerðar á því síðan. Fyrr á árinu var
um helmingur deildarinnar endurnýjaður fyrir fé
frá framkvæmdastjórn spítalans. Kostnaður við
þessar endurbætur á tæplega 400 fermetra svæði
nam 73 milljónum. Ekki tókst að afla fjár til að
ljúka verkinu. Eftir eru um 400 fermetrar sem
þarf að lagfæra og er áætlaður kostnaður um 80
milljónir. Endurnýjun er dýr þar sem t.d. þarf að
setja upp loftræstikerfi sem í dag er ekki til stað-
ar.
„Þó þetta stóra verkefni sé hvati að stofnun fé-
lagsins þá er félagið stofnað með langtímaverkefni
í huga,“ segir í tilkynningu.
Stofnfundur nýs styrktarfélags