Morgunblaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
8 4 5 2
1
9 4
5 2 1 8 6
6 7 5 4
2 1
4 6 9 7
8 7 6
9 7 4 1
6
7 4 2
7 5 4 3
3
6 1 7
1 5
5 2 9 6
9 6 7
9 3 8 2 7
3 6 4
5 8 3
9 4
5 9 6 4
6
2 7 5
9 2 6 1
6 1 4 2 7 9 3 8 5
2 5 3 8 4 6 9 1 7
8 9 7 3 1 5 2 4 6
9 4 5 6 3 7 8 2 1
7 8 1 5 2 4 6 9 3
3 6 2 9 8 1 5 7 4
4 2 8 7 5 3 1 6 9
5 7 6 1 9 2 4 3 8
1 3 9 4 6 8 7 5 2
2 9 7 8 6 1 5 4 3
8 6 1 5 3 4 9 7 2
4 3 5 9 7 2 8 1 6
3 7 6 1 9 5 4 2 8
9 8 2 3 4 7 1 6 5
1 5 4 6 2 8 7 3 9
6 4 8 7 5 3 2 9 1
5 2 9 4 1 6 3 8 7
7 1 3 2 8 9 6 5 4
7 6 8 9 4 5 2 1 3
1 9 5 2 3 7 6 4 8
2 3 4 6 1 8 5 7 9
6 4 9 1 7 2 3 8 5
8 1 2 3 5 6 7 9 4
3 5 7 8 9 4 1 6 2
5 7 6 4 8 3 9 2 1
4 2 1 5 6 9 8 3 7
9 8 3 7 2 1 4 5 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 7. desember,
341. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér
gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér
gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.)
Ætlið þið að drepa niður allavon hjá þjóðinni?“ spurði
góður vinur Víkverja þegar fréttir
síðustu daga bar á góma. Af nógu
var að taka.
Einn þingmaður varaði við því að
Ísland stefndi í greiðsluþrot og hjó
þar með í sama knérunn og hann
hafði gert upp úr miðjum nóv-
ember.
Bloggarinn Asdis Sig, eins og
hún kallar sig, brást svo við frétt-
inni:
„Held ég hætti öllum fréttalestri
í bili og einhendi mér bara í bakst-
ur og dúllerí. Það er engum manni
hollt að fylgjast með þeim fréttum
sem yfir okkur dynja. Annaðhvort
eru allir að ljúga eða ég veit ekki
hvað, ég ætla allavegana ekki á
hausinn, ég stend keik og er hér
með komin í jólafrí.“
x x x
Önnur frétt og jafnvel ennskemmtilegri var að skuldir
þjóðarbúsins væru komnar í 350%
af þjóðarframleiðslu og þar af leið-
andi orðnar meiri en við síðustu
áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
20. október. Þá voru þær aðeins um
310%.
x x x
Af öðrum skemmtifréttum áundanförnum vikum má nefna
fregnir af vaxtahækkunum Norr-
æna seðlabankans á íslenska lán-
takendur, stigvaxandi álögur á elds-
neyti, fólksfækkun á höfuðborgar-
svæðinu, skort á svínaflensubólu-
efni, stóraukna ásókn í matargjafir
hjálparstofnana og fjöldauppsagnir
hjá rótgrónum fyrirtækjum.
Af fréttaflutningnum mætti ætla
að annar hver maður lepti dauðann
úr skel. Ítali sem Víkverji hitti
kannaðist þó einhverra hluta vegna
ekki við þessar lýsingar þótt hann
hefði búið hér í nokkur ár.
Hann benti á sjónvarpsskjáina
sem þöktu veggi knæpunnar og
sagði svo að venjulegur Ítali væri
tvo mánuði að vinna sér inn fyrir
einum þeirra. Svo kvaðst hann hafa
betri laun á Íslandi, þrátt fyrir
gengishrun, en félagi sinn hjá Ferr-
ari. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 saggi, 4 deila,
7 heiðursmerkið, 8 bár-
an, 9 nöldur, 11 gras-
svörður, 13 hæðir, 14
ákveðin, 15 listi, 17 jurt,
20 bókstafur, 22 eld-
stæði, 23 rotnunarlyktin,
24 japla, 25 fæddur.
Lóðrétt | 1 eklu, 2 hagn-
aður, 3 duglega, 4 snúra,
5 odds, 6 korns, 10 væn-
an, 12 skjót, 13 flóns, 15
vind, 16 rásar, 18 talaði
um, 19 kvendýrið, 20
egna, 21 nota.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrakyrðin, 8 kofan, 9 tómur, 10 nón, 11 terta,
13 afræð, 15 skarf, 18 hraks, 21 jór, 22 árita, 23 elgur,
24 tillöguna.
Lóðrétt: 2 refur, 3 kenna, 4 rotna, 5 ilmur, 6 skot, 7
gráð, 12 Týr, 14 far, 15 smáð, 16 aðili, 17 fjall, 18 hregg,
19 angan, 20 sorg.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5.
Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Dc2 Rxc3 8.
bxc3 Be7 9. e4 O-O 10. Bd3 c5 11. O-O
Dc7 12. De2 Rd7 13. Bb2 Hfd8 14.
Had1 Hac8 15. Rd2 Rf6 16. f4 b5 17. f5
e5 18. d5 c4 19. Bc2 a5 20. Kh1 b4 21.
Ha1 Rd7 22. Hf3 b3 23. Bd1 Rb6 24.
Rf1 Ra4 25. Bc1 Rc5 26. Hg3 Hd6 27.
Rd2 Ba6 28. Dg4 Bf8 29. Rf3
Staðan kom upp í kvennaflokki Evr-
ópumeistaramóts landsliða sem lauk
fyrir nokkru í Novi Sad í Serbíu.
Heimsmeistari kvenna, Alexandra
Kostenjuk (2516), hafði svart gegn Zei-
nab Mamedjarova (2285) frá Aserbaíd-
sjan. 29… b2! 30. Bxb2 Rd3 31. Dh5
Rf2+! 32. Kg1 Db6 33. h3 Rxe4+ 34.
Kh2 Rxg3 35. Kxg3 Hh6 36. Dg5 Dxb2
37. Hc1 e4 38. Rh4 Bd6+ og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Bjargað af bófa.
Norður
♠97
♥95
♦KDG10
♣G7543
Vestur Austur
♠KG2 ♠1086543
♥7 ♥1042
♦765 ♦Á8
♣K109862 ♣ÁD
Suður
♠ÁD
♥ÁKD863
♦9432
♣ –
Suður spilar 4♥.
Þegar slegið er upp á Paul Soloway
(1941-2007) á Wikipedíu kemur tvennt
í ljós. Annars vegar er listi yfir marg-
vísleg afrek hans við spilaborðið, hins
vegar sá fróðleikur að hann hafi nærri
drukknað í sundlaug þriggja ára gam-
all, en verið bjargað á elleftu stundu af
landsfrægum gangster. Þetta segir
manni þá sögu að líf Soloways hafi frá
þiggja ára aldri að mestu verið helgað
bridsspilinu.
Soloway var hér í sagnhafasætinu í
tvímenningi. Út kom tígull, austur
drap strax og reyndi ♣Á. Soloway
trompaði, tók ♥Á-K-D, notaði síðan
tvær tígulinnkomur blinds til að stinga
lauf. Síðasti tígullinn þvingaði svo vest-
ur niður á ♠K blankan, sem var vanda-
laust að veiða, því austur hafði passaði í
upphafi. Tólf slagir og toppur.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú skilur ekki sársaukann sem
fjölskyldumeðlimur upplifir þessa dag-
ana, sýndu viðkomandi samúð og veittu
allan þinn stuðning. Óvæntar fréttir
koma með pósti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Af einhverri ástæðu ertu í sviðs-
ljósinu í dag. Njóttu þess. Sýndu þol-
inmæði í umferðinni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert þreytt/ur og mjög
áhugalaus á öllum sviðum og þarft að
gera eitthvað til að breyta því. Komdu
þér út úr húsi og reyndu að kynnast
skemmtilegu fólki.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að ganga úr skugga
um og vera öruggur um að ekki sé ver-
ið að ganga á rétt þinn. Biddu um það
sem þú vilt og fáðu það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú stendur óvenjufast á þínu en
finnur þó til samkenndar heima fyrir.
Mundu að gæfan getur verið fallvölt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gættu þess að missa ekkert út
úr þér sem þú þarft að iðrast síðar
meir. Oft er flagð undir fögru skinni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Dagurinn hentar vel til samskipta
við yfirvöld. Notfærðu þér það. Gerðu
góðverk í kvöld.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Haltu fast um budduna því
óvænt útgjöld eru handan við hornið.
Einhverjum er mjög umhugað um vel-
ferð þína.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki bæla tilfinningarnar
inni. Afþakkaðu kurteislega ráð frá
öðrum. Haltu ró þinni því fyrr eða síð-
ar munt þú uppskera eins og þú sáir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert upp á þitt besta og
getur nánast samið um hvað sem er því
þú færð fólk svo auðveldlega á þitt
band. Taktu þér tíma til þess að sinna
sjálfum þér og byggja þig upp.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þess er krafist að þú sinnir
málefnum sem tengjast fjölskyldunni.
Hugsanlega tengjast þau endurbótum,
lagfæringum eða standsetningu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert með allt á hreinu þessa
dagana, nýttu þér það. Ekki bíða eftir
því að aðrir biðji þig fyrirgefningar,
réttu fram sáttahönd.
Stjörnuspá
7. desember 1879
Jón Sigurðsson forseti lést í
Kaupmannahöfn, 68 ára. Hann
var jarðsettur í Reykjavík 4.
maí 1880 ásamt Ingibjörgu
Einarsdóttur konu sinni, sem
lést 16. desember 1879.
7. desember 1881
Minnisvarði um Jón Sigurðs-
son var afhjúpaður á gröf
hans í Hólavallagarði í
Reykjavík, tveimur árum eftir
að hann lést. Varðinn var
reistur fyrir samskotafé og
var afhjúpaður „í viðurvist
mesta fjölmennis af öllum
stéttum,“ eins og sagði í Ár-
bókum Reykjavíkur.
7. desember 1933
Ríkisútvarpið útvarpaði mið-
ilsfundi í fyrsta sinn. Þar töl-
uðu ýmsar verur í gegnum
Láru Ágústsdóttur miðil.
7. desember 1936
Síld féll úr lofti í Bjarneyjum á
Breiðafirði, sennilega af völd-
um skýstróks.
7. desember 1970
Íslensk kona fékk nýra úr
bróður sínum. Skurðaðgerðin
var gerð í London. „Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem nýrna-
flutningur er gerður á Íslend-
ingum,“ sagði Morgunblaðið.
7. desember 1994
Bónus bauð tíu mest seldu
jólabækurnar með 15% af-
slætti. Nokkrum dögum síðar
fór afslátturinn í 30% og rætt
var um bókastríð. „Bókabúðir
eru allar með sama verð, sem
mér þykir ósvinna,“ sagði Jó-
hannes Jónsson í Bónus í sam-
tali við Morgunblaðið. „Bók-
menntir eru ekki eins og
sykur og hveiti,“ sagði bókaút-
gefandi við DV.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
ÉG er við góða heilsu og það er fyrir öllu þegar
þessum aldri er náð,“ sagði Stefán Pálsson, fyrr-
verandi bankastjóri Búnaðarbanka Íslands, en
hann er 75 ára í dag. Hann hélt upp á afmælið síð-
astliðið föstudagskvöld umkringdur fjölskyldu og
vinum. Stefán sagði að gærdagurinn hafi einnig
verið gleðidagur í fjölskyldunni því þá fagnaði
yngsta dóttir hans, Auður, fertugsafmæli. Stefán
sagði að það hafi verið mikil afmælisgjöf að eign-
ast litla dóttur daginn áður en hann varð 35 ára.
Stefán kvaðst hafa haldið stórar veislur þegar
hann varð fimmtugur, sextugur og einnig sjötug-
ur. Hann var í annasömu starfi sem bankastjóri og eignaðist fjölda
vina og vinnufélaga sem samfögnuðu honum á þessum merkis-
afmælum. „Mér finnst nú að menn eigi að fara að draga úr þessu þeg-
ar þeir eru orðnir sjötugir,“ sagði Stefán. Gríðarleg breyting varð á
bankakerfinu eftir að Stefán lét af störfum árið 2001.
Hann kvaðst harma hvernig fór fyrir bankakerfinu, einni af grunn-
stoðum þjóðfélagsins. En hvað leiðir til farsældar á lífsgöngunni? „Ég
tel að heiðarleiki við sjálfan sig og aðra sé undirstaða þess að fólki
farnist vel í lífinu,“ sagði Stefán. gudni@mbl.is
Stefán Pálsson, fyrrverandi bankastjóri, 75 ára
Heiðarleikinn er mikilvægur
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is