Morgunblaðið - 07.12.2009, Page 25
Menning 25DÓMAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Fim 10/12 kl. 19:00 aukas Fös 18/12 kl. 19:00 aukas Mið 30/12 kl. 19:00
Fös 11/12 kl. 19:00 14.K Lau 19/12 kl. 19:00
Sun 13/12 kl. 19:00 Þri 29/12 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sun 13/12 kl. 14:00 Sun 27/12 kl. 19:00 Sun 10/1 kl. 14:00
Sun 27/12 kl. 14:00 Sun 3/1 kl. 14:00
Nýjar aukasýningar í sölu. Tryggðu þér miða strax
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Lau 12/12 kl. 19:00 46.K Fös 8/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00
Lau 12/12 kl. 22:00 47.K Fös 8/1 kl. 22:00 Lau 23/1 kl. 22:00
Sun 13/12 kl. 20:00 48.K Fös 15/1 kl. 19:00 Sun 24/1 kl. 20:00
Fös 18/12 kl. 19:00 49.K Lau 16/1 kl. 19:00 Fös 29/1 kl. 19:00
Fös 18/12 kl. 22:00 50.K Lau 16/1 kl. 22:00 Lau 30/1 kl. 19:00
Lau 19/12 kl. 16:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 22:00
Sun 27/12 kl. 22:00 Fim 21/1 kl. 20:00 Sun 31/1 kl. 20:00
Mán 28/12 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 20:00
Sala hafin á sýningar í janúar
Jesús litli (Litla svið)
Mið 9/12 kl. 20:00 6.K Fös 11/12 kl. 19:00 7.K Lau 19/12 kl. 21:00 9.K
Fim 10/12 kl. 20:00 aukas Fim 17/12 kl. 20:00 8.K Sun 20/12 kl. 20:00 Ný aukas
Nýjar aukasýningar í sölu.
Rautt brennur fyrir (Nýja svið)
Fös 11/12 kl. 20:00 Lau 12/12 kl. 20:00
Ekki við hæfi barna. Snarpur sýningartími.
Dauðasyndirnar (Litla sviðið)
Þri 8/12 kl. 20:00 aukas
Síðustu sýningar. 20% afsláttur til Vísa kreditkorthafa
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Mið 30/12 kl. 21:00 aukas
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Lau 12/12 kl. 19:00 Lau 12/12 kl. 22:00
ATH ! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Gjafakort Borgarleikhússins í jólapakkann
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00
Nýjar sýningar komnar í sölu!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Sun 3/1 kl. 20:00 6. K Lau 23/1 kl. 15:00
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. Fös 29/1 kl. 19:00
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Lau 30/1 kl. 15:00
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 30/1 kl. 19:00
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Sun 10/1 kl. 20:00 8. K Fös 5/2 kl. 19:00
Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Fim 14/1 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 15:00
Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Lau 16/1 kl. 15:00 Lau 6/2 kl. 19:00
Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 16/1 kl. 19:00
Gjafakort á tilboðsverði til jóla!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lau 12/12 kl. 15:00 Sun 27/12 kl. 15:00 Mið 30/12 kl. 15:00
Sun 13/12 kl. 15:00 Þri 29/12 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Leitin að jólunum (Leikhúsloftið)
Fim 10/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 13/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 13:00
Lau 12/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 14:30
Lau 12/12 kl. 13:00 Mið 16/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 12/12 kl. 14:30 Fim 17/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 20/12 kl. 13:00
Sun 13/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Aukasýningar komnar í sölu!
GJAFAKORT
ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Einstakt tilboð til jóla
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Lykillinn að jólunum (Rýmið)
Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 15:00 Sun 13/12 kl. 13:00
Lau 12/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 13:00
39 þrep (Samkomuhúsið)
Fim 7/1 kl. 20:00 fors. Fös 15/1 kl. 19:00 5. k. Lau 23/1 kl. 19:00 10. k.
Fös 8/1 kl. 20:00 frums. Lau 16/1 kl. 19:00 6. k. Lau 23/1 kl. 22:00 Aukas
Lau 9/1 kl. 19:00 2. k Sun 17/1 kl. 20:00 7. k. Sun 24/1 kl. 20:00 11. k.
Sun 10/1 kl. 20:00 3.k. Fim 21/1 kl. 20:00 8.k. Fös 29/1 kl. 19:00
Fim 14/1 kl. 20:00 4. k. Fös 22/1 kl. 19:00 9.k. Lau 30/1 kl. 19:00
Forsala er hafin
Tónlistarferillinn er enginnsmáspölur. 65 ár eru liðinfrá því Guðmundur „PapaJazz“ Steingrímsson sett-
ist við trommu-
settið 15 ára gam-
all og kom fyrst
fram opinberlega.
Allar götur síðan
hefur hann spilað
með helstu tón-
listarmönnum af
eldri og yngri
kynslóðum, verið
meðlimur í mörgum úrvalssveitum
jazz og danstónlistar og er enn að.
Guðmundur varð áttræður 19. októ-
ber sl. og af því tilefni hafa end-
urminningar hans nú verið gefnar
út.
Frásagnirnar eru litríkar og alltaf
forvitnilegar. Fylgt er lífshlaupinu
allt frá æskuárunum í Hafnarfirði til
dagsins í dag. Sagan er brotin upp í
marga stutta kafla með áhugaverð-
um sögum og lýsingum á hljóm-
sveitum, dansleikjum, tónleikahaldi
og spilamennsku í útlöndum að
ótöldum öllum frásögnunum af
fjölda tónlistarmanna sem Guð-
mundur starfaði með í gegnum tíð-
ina. Þeir Guðmundur og Árni Matt-
híasson hafa hér dregið saman
heilmiklar upplýsingar. Heimild-
argildið er ekki sísti kostur bók-
arinnar.
Guðmundur rekur uppvöxt sinn í
Hafnarfirði og segir frá kynnum sín-
um af mörgum Hafnfirðingum.
Fróðlegar eru frásagnir hans af
stríðsárunum í Hafnarfirði og með
hernum kom jazzinn. ,,Ég hafði fyrst
heyrt jazz í kömpunum hjá Bret-
unum en pældi ekkert í því, en þegar
Kaninn kom og þeir fóru að spila
plötur fyrir okkur og gefa svo plöt-
urnar kom jazzáhuginn, sem varð að
hugsjón,“ segir Guðmundur. Það
þvældust ekki fyrir þröskuldar á
milli jazz og danstónlistar á þessum
gullárum sveiflunnar. Áhrifavald-
arnir komu með stórsveitarsveiflu
Ellington, Basie, Glenn Miller og
Woody Herman. Á V-disc plötunum
sem hermennirnir höfðu í fartesk-
inu, hljómuðu trommuleikarar sem
urðu goðsagnir í jazzsögunni, Gene
Krupa, Jo Jones, Cozy Cole og allir
hinir en enginn stóð Guðmundi nær
en Buddy Rich. „...mitt idol frá byrj-
un, alveg klárt“. Fljótlega barst líka
latin-tónlistin til landsins og grunn-
urinn var lagður að spilamennsku
Guðmundar.
Hann var við settið í KK sextett-
inum stærstan hluta af líftíma þeirr-
ar rómuðustu jazz- og dans-
hljómsveitar íslenskrar
tónlistarsögu. Þar kostuðu menn
kapps um að vanda vel til allra
verka. Aginn var mikill og þetta hef-
ur verið þrotlaus vinna. Samhliða
spilamennskunni er Guðmundur í
fullri dagvinnu, fjölskyldan stór og
hann sinnir ólíkum störfum, m.a. í
verslun, vélsmiðju og svo á Skatt-
stofunni í Reykjavík í 32 ár. ,,…yf-
irleitt spilað sjö daga vikunnar og
það voru löng böll...“ segir í kafla þar
sem brugðið er upp mynd af annrík-
inu í bandinu hans Ragga Bjarna.
Hann segir líka frá kynngimögnuðu
samstarfi með Guðmundi Ingólfs-
syni píanóleikara, sem hefði gjarnan
mátt lýsa í lengra máli. Heims-
þekktir jazzleikarar sóttu landið
heim og Guðmundur fékk tækifæri
til að spila með mörgum þeirra, s.s.
Chet Baker og Lee Konitz. Hann
fjölyrðir ekkert um það en virðist
sérlega minnisstætt að hafa fengið
tækifæri til að leika með Toots Thie-
lemans og Ronnie Scott og ekki síst
á fyrstu listahátíðinni með Bengt
Hallberg.
Guðmundur kemur víða við. Hann
var potturinn og pannan í stofnun og
starfi Jazzvakningar á áttunda ára-
tugnum og í viðauka bókarinnar er
að finna skrá yfir tónleika þess ótrú-
lega fjölda erlendu listamannanna
sem hingað komu á vegum Jazz-
vakningar. Þar er einnig greinargott
yfirlit yfir tímarit sem gefin hafa
verið út um tónlist á Íslandi í gegn-
um árin.
Það fer ekkert á milli mála að
Guðmundur gefur sig heilshugar að
öllu sem hann fæst við. Eldmóður,
drifkraftur og „swing“ hans að-
alsmerki allt frá því hann spilaði
með Gunnari Ormslev í GO-
kvartettinum í Gúttó í Hafnarfirði
um miðjan fimmta áratuginn og
fram á þennan dag. Bókin er einkar
læsileg, svellandi fín og skemmtileg
lesning.
Ævisaga
Papa Jazz – Lífshlaup Guðmundar
Steingrímssonar bbbbn
Árni Matthíasson skráði.
Hólar 2009 – 288 bls.
ÓMAR
FRIÐRIKSSON
BÆKUR
Sveiflandi lesning
Morgunblaðið/Heiddi
Papa Jazz „65 ár eru liðin frá því Guðmundur „Papa Jazz“ Steingrímsson
settist við trommusettið 15 ára gamall og kom fyrst fram opinberlega.“
Lokatónleikar Múlans 2009voru afbragðsskemmti-legir. Hljómsveitirnarvoru allólíkar. Straight
Ahead, þ.e.a.s. Jón Páll og tríó Andr-
ésar Þórs, lék upp úr bandarísku
söngbókinni en Brunahanarnir, sem
komu nú saman að nýju eftir 13 ára
hlé, léku fyrst og fremst verk Kjart-
ans Valdimarssonar, þar af a.m.k.
þrjú sem voru á dagskrá er kvart-
ettinn þreytti frumraun sína á Rú-
Rek-djasshátíðinni 1996. Þá vakti
spilamennska þeirra félaga feikna
athygli enda ekki daglegt brauð að
heyra jafn framsækna tónlist og
Kjartan skrifaði; hér skal leiðréttur
sá misskilningur er fram kom í mbl.
1996, að Ástvaldur Traustason hafi
verið píanistinn og tónskáldið. En til
nútímans: Næsta haust væri verð-
ugt verkefni fyrir Jazzhátíð Reykja-
víkur og Ríkisútvapið að standa
saman að tónleikum með Brunahön-
unum sem útvarpað yrði beint til
Eurovisionlandanna.
Fyrir utan söngdansana var
„Blues for Alice“ Parkers á dagskrá
Jóns Páls og félaga og var ásamt
„Yesterdays“ Jeromes Kerns og
„Star dust“ Hoagys Carmichels há-
punktur spilamennsku þeirra. Einar
og Þorgrímur voru heitir og þéttir
og strax í „Yesterdays“ var ljóst
hversu músíkalskur trommari Einar
er. Andrés var fínn að vanda, en há-
punkturinn var þó gítarleikur Jóns
Páls og túlkun hans á „Star dust“
unaðsleg. Laglínan glæsilega leikin
og sólóið í millitempói bráðfínt.
Brunahanarnir voru á slóðum
klassíska Coltranekvartettsins í
upphafsverkinu „Múrblús“ eftir
Kjartan. Síðan tók „Valsimar“ við,
lag eftir Kjartan sem oft heyrist.
Inngangurinn var í anda Evrópu-
módernismans, en áhrifa frá evr-
ópskri tónskáldatónlist, jafnvel rúss-
neskri nýklassísk, gætir oft í sólóum
hans. Ballaða hans „Sem mær við
lín“ var glæsilega blásin af Jóel og
túlkun þeirra fjórmenninga á „Lág-
marks veseni“ Jóels af Prímskífunni
var upp á fimm stjörnur. Tónaregn
Kjartans, af sama meiði og Errolls
Garners, var glæsilegt og blandaðist
vel við mjúkar trillur Jóels og symb-
alaþyrl Einars, vel stutt af djúptóna
bassa Þórðar. Eina verkið sem ekki
var frumsamið var klassík Miles
Davis „Solar“ af Walkin’-skífunni.
Einar hafði útsett þennan gamla
stríðsjálk djammsessjónanna og léð
honum ferskleika að nýju.
Fyrsta klassa djasskvöld með
jafnri stígandi frá upphafi til loka.
Múlinn á Café Cultura
Straight Ahead-kvartettinn og
Brunahanarnir bbbbn
a) Jón Páll Bjarnason og Andrés Þór
Gunnlaugsson gítara, Þorgrímur Jóns-
son bassa og Einar Scheving trommur.
b) Jóel Pálsson tenórsaxófón, Kjartan
Valdemarsson píanó, Þórður Högnason,
bassa og Einar Scheving trommur.
Fimmtudagskvöldið 26.11.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Múlalok 2009
Jón Páll Bjarnason Jóel Pálsson
Stórfréttir í tölvupósti