Magni - 01.05.1971, Side 1
Árnaðaróskir
1. maí
1. tölublað
Akranesi, laugardaginn 1. maí 1971
11. árgangur
Listi Framsóknarflokksíns ó Vesturlandi
■11
Asgeir Bjamason bóndi í
Ásgarði, f. 6. sept. 1914 I Ás-
garði. Nam í Reykholti, búfr.
frá Hóluni 1937. Framhalds-
nám í búfræði í Noregi og
búnaðarstörf þar og í Sví-
l»jóð. Alþingismaður Dala-
manna 1949 og Vesturlands-
kjördæmis síðan 1959. Hefur
longi átt sæti á Búnaðarþingi
og fundum Stéttarsambands
bænda. Átti sæti í Norður-
landaráði 1953-57. Nýkjörinn
form. Búnaðarfélags íslands
Ásgeir var kvæntur Emmu
Benediktsdóttur frá Kvem-
grjóti, en hún er látin. Seinni
kona Ásgeirs er Ingibjörg Sig
nrðard. frá Hvoli í Saurbæ.
Halldór E. Sigurðsson f. að
Haukabrekku í Fróðárhreppi.
Nám í Reykholti 1937, búfr.
frá Hvanneyri 1938. Bóndi í
Staðarfelli 1937-55, sveitar-
stjóri í Borgamesi 1955-67.
Þingmaður Mýramanna 1956
og Vesturlandskjördæmis síð
an 1959. Hefur gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum í
skóla- ungmennafélags- bún-
aðar- og sveitarstjómarmál-
um héraðs síns. Hefur mjög
látið f járhags- og atvinnumál
til sín taka á Alþingi. Halldór
er kvæntur Margréti Gísla-
dóttur frá Æsustöðum í
Langadal.
Alexander Stefánsson, odd-
viti, f. í Ólafsvík 6. okt. 1922.
Nám í héraðsskólanum á
Laugarvatni og Samvinnu-
skólanum 1942-1943. Kaup-
félagsstjóri Dagsbrúnar í Ól-
afsvík 1947 til 1960. í hrepps-
nefnd Ólafsvíkur síðan 1954.
Stofnaði Trésmiðju Ólafsvík-
ur 1945 og stjómaði henni.
Hefur lengi átt sæti í stjórn-
um samtaka Framsóknar-
manna á Snæfellsnesi og í
Vesturlandskjördæmi og
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum öðrum í sveit og hér-
aði. Alexander er kvæntur
Björgu Hólmfríði Finnboga-
dóttur frá Gerðum í Garði.
Daniel Ágústínusson, forseti
bæjarstjórnar Akraness, f.
18. marz 1913 á Eyrarbakka.
Daníel tók kennarapróf
1936. Kennari héraðsskólan-
um Núpi 1936-37, kennari í
Stykkishólmi 1937-39 og
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
Rvík 1947-54. Erindreki
Framsóknarfl. 1939-47. Bæj
arstjóri Akranesi 1954-1961,
nú forseti bæjarstjórnar. Sam
bandsritari UMFl 1933-57. Á
sæti í miðstj. Framsóknarfl.
og hefur verið varaþingm.
Vesturlandskjördæmis. Á
sæti í Orkuráði ríkisins. Daní
el er kvæntur Önnu Erlends-
dóttur frá Odda.
Davíð Aðalsteinsson kenn-
ari er fæddur á Arnbjargar-
læk í Borgarfirði 13. des.
1946 og ólst þar upp. Hann
stundaði nám í Reykholti og
fór síðan I Kennaraskólann,
þar sem hami lauk kennara-
prófi 1967. Með námi stund-
aði hann búskap lieima á
sumrum. Síðan hefur hann
stundað búskap heima, sjó-
sókn og ýmis önnur störf.
Um skeið var hann einnig er-
indreki Framsóknarmanna á
Vesturlandi. Davíð er kvænt-
ur Guðrúnu Jónsdóttur frá
Akranesi.
Magnús Óskarsson á Hvann-
eyri, er fæddur 5. júlí 1927
&ð Saurum í Mýrasýslu. Hann
stundaði nám á Hvanneyri
°g lauk þaðan kandidatsprófi
1953. Síðan stundaði hann
nam í Landbúnaðarháskólan-
,lrn í Kaupmannahöfn og lauk
þaðan prófi 1955. Þá fór hann
Hvanneyri og hefur verið
þar kennari síðan en jafn-
framt haft þar umfangs-
•niklar jarðræktartilraunir.
Hagnús hefur átt sæti 1
nreppsnefnd Andakílshrepps
gegnt ýmsum fleiri félags-
°g trúnaðarstörfum.
Leifur K. Jóhannesson
ráðunautur f. 12. nóv. 1932
að Saurum í Helgafellssveit.
Búfr. frá Hvanneyri 1954,
kandídatspróf í búfræði 1957.
Héraðsráðunautur Búnaðar-
sambands Austurlands 1957-
59 og hjá Búnaðarsambandi
Snæf. síðan 1959. Formaður
FUF á Snæfellsnesi 1959 og
hefur átt sæti í stjórn kjör-
dæmissambands Framsóknar
manna. 1 skólanefnd Stykkis-
hólms, þar sem hann býr.
Leifur er kvæntur Maríu
Steinunni Gísladóttur frá
Skáleyjum.
Elín Sigurðardóttir, ljós-
móðir í Stykkishólmi er fædd
22. júlí 1930 í Dal í Mikla-
holtshreppi. Hún útskrifað-
ist úr ljósmæðraskólanum
1950 og var eftir það Ijós-
móðir í fæðingarsveit sinni,
Miklaholtshreppi í þrjú ár.
Árið 1955 fluttist hún til
Stykkishólms og hefur verið
ljósmóðir þar síðan. Hún hef-
ur starfað að kvenfélagsmál-
um, átt sæti í stjórn Krabba-
meinsfélagsins og setið í
skólanefnd Stykkishólms. El-
ín er gift Sigurði Ágústssyni
bifreiðarstjóra í Stykkis-
hólmi og eiga þau sex börn.
Steinþór Þorsteinsson kaup
félagsstjóri í Búðardal f. 25.
maí 1937 á Hólanesi, Skaga-
strönd. Stundaði nám í Reyk-
holti og tók landspróf þar
1953. Próf frá Samvinnuskól-
anum 1958. Stundaði verzlun-
ar- og skrifstofustörf í Rvík
1954-56. Hefur verið kaup-
félagsstjóri Kaupfélags
Hvammsfjarðar í Búðardal
síðan 1959. Steinþór er kvænt
ur Gunni Axelsdóttur Svein-
bjömssonar kaupmanns á
Akranesi.
Ragnheiður Guðbjartsdótt-
ir húsfreyja á Akranesi er
fædd 15. febr. 1919 að Hjarð-
arfelli í Miklaholtshreppi og
ólst þar upp. Síðan fluttist
og átti þar heima nokkur ár
en fluttist síðan með manni
sínum, Hjálmi Hjálmssyni, að
Hvammi. Þar bjuggu þau
unz maður hennar lézt. Árið
1960 fluttist Ragnheiður til
Akraness og hefur búið þar
síðan með seinni manni sín-
um, Halldóri Jörgenssyni, tré
smið. Ragnheiður hefur gegnt
ýmsum félagsstörfum, en þó
helgað sig mest starfi kirkju
kórsins og er í stjóm hans.
1. ntaí
Magni, málgagn Framsókn-
armanna í Vesturlandskjör-
dæmi, sendir verkafólki, körl
um og konum, og öðrum laun
þegum á Vesturlandi árnað-
aróskir og samstarfskveðjur
á þessum hátíðis- og baráttu-
degi með von um, að dagurinn
efli sókn verkalýðsfélaganna
fyrir betri kjöram og starfs-
umbótum.
Framsóknarflokkurinn von
ar, að varnarbarátta verka-
Iýðshreyfingarinnar síðasta
áratug snúist senn í virka
sókn að nýjum áföngum,
sókn er færi nýja sigra í
kjarabaráttu, starfsaðbúð og
menntun stéttanna. Markið:
40 stunda vinnuvika með líf-
vænlegum launum, verður að
nást að fullu I næstu atrennu
og treysta þarf á ný launa-
stefnu með skynsamlegum og
hóflegum launamun.
Framsóknarflokkurinn
hvetur og eindregið til þess,
að fjöldahreyfingar almenn-
ings á Islandi, verkalýðshreyf
ingin og samvinnuhreyfingin,
efli og styrki hvor aðra sem
bezt með nánara og árangurs
ríkara samstarfi og samkomu
lagi um kjaramál.
Heill islenzkri verkalýðs-
stétt og launþegum til sjávar
og sveita á þessum hátíðis-
degi.