Morgunblaðið - 31.12.2009, Síða 1
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
LYKILORÐIÐ ER
SVEIGJANLEIKI!
Momentum greiðslu- og innheimtuþjónusta ehf. | Suðurlandsbraut 18, 108 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Milliinnheimta sem er kröfuhafa að kostnaðarlausu
Kynntu þér innheimtuaðferðir okkar á momentum.is
A
R
G
U
S
0
8
-0
1
7
4
Hvort sem það snýr að innheimtuferlinu eða greiðslum
viðskipti
Tollar Sverfur til stáls milli
Kína og Bandaríkjanna. 07
Viðskipti
mbl.is
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
HLUTI erlendra kröfuhafa Kaup-
þings, sem nú hafa eignast ráðandi
hlut í Arionbanka, funduðu með for-
svarsmönnum Þjóðarhags á dögun-
um. Þjóðarhagur hefur lýst yfir
áhuga á að kaupa smávöruverslana-
keðjuna Haga, en formlegu tilboði
hefur verið skilað inn til Arionbanka,
sem er þó háð áreiðanleikakönnun.
Morgunblaðið náði tali af þessum til-
teknu kröfuhöfum. Þeir sögðu að
fundurinn hefði ekki snúið að því að
veita Þjóðarhag stuðning í tilboði
sínu í Haga, eða aðstoð við fjármögn-
un. „Okkur sýnist þó sem tilboði
Þjóðarhags hafi ekki verið tekið vel
af íslenskum bönkum, hverjar svo
sem ástæður þess kunna að vera,“
sagði talsmaður kröfuhafahópsins í
samtali við Morgunblaðið. Um er að
ræða bandaríska fjárfesta.
Ákvörðunin hjá bankanum
Brynjar Níelsson, lögmaður Þjóðar-
hags, staðfestir að hann hafi fundað
með kröfuhöfum í þrotabú Kaup-
þings um málefni verslunarkeðjunn-
ar. Fundur kröfuhafanna með
fulltrúum Þjóðarhags snerist meðal
annars um hvort þeir síðarnefndu
hefðu enn áhuga á að kaupa versl-
unarkeðjuna.
Aðspurðir hvort þeir hefðu skoðun
á því hvort fyrrverandi eigendur
Haga ættu að fá að halda fyrirtæk-
inu sögðust þeir ekki geta haft áhrif
á slíkar ákvarðanir. Slíkt væri skila-
nefndar og stjórnar bankans að
ákveða. „Það eina sem við getum
gert er að afla okkur upplýsinga um
eignirnar sem eru innan bankans,
reyna að komast að verðmæti þeirra
og ákvarða þannig virði fjárfestingar
okkar í bankanum,“ sagði talsmaður
kröfuhafanna við Morgunblaðið.
Eignarhaldsfélagið 1998, sem á
Haga, skuldaði Arion tæplega 50
milljarða króna áður en bankinn
neyddist til þess að taka félagið yfir
fyrr í vetur. Skuldin varð til þegar
Kaupþing lánaði 1998, sem er í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl-
skyldu, fé til þess að kaupa Haga út
úr Baugi í fyrra. Fram hefur komið
að bankinn hefur veitt fyrrverandi
eigendum 1998 tímafrest til þess að
leggja fram nýtt fé til að endurfjár-
magna skuld félagsins við bankann
og þar með tryggja eignarhald sitt
yfir Högum, í það minnsta að hluta.
Langlíklegast er að ákvörðun um
Haga verði tekin fyrir miðjan kom-
andi janúar.
Kröfuhafar funda
með Þjóðarhag
Lögmaður Þjóðarhags inntur eftir því
hvort enn sé áhugi fyrir hendi á Högum
Morgunblaðið/Ómar
Hagar Vænta má ákvörðunar Arionbanka um hverjir hreppa Haga um miðj-
an janúar. Erlendir kröfuhafar hafa fundað með fulltrúum Þjóðarhags.
UM áramótin munu fasteignalán
að andvirði tæpra 80 milljarða evra
renna inn í hina nýstofnuðu rík-
isstofnun National Asset Manage-
ment Agency. Stofnunin mun
gegna hlutverki einskonar rusla-
fötu fyrir lánasöfn helstu banka Ír-
lands og þangað geta þeir sett eitr-
uðustu fasteignalán sín gegn því að
fá írsk ríkisskuldabréf.
Viðskiptin fara fram á gengi sem
er lægra en bókfært verðmæti
þeirra í efnahagsreikningi bank-
anna og munu þeir því taka á sig
umtalsvert tap. Það eykur líkurnar
á að þeir þurfi frekar fjárframlag
til þess að styrkja eiginfjárstöðu
sína. | 6
Slæmur banki
tekur til starfa
á Írlandi
MARKAÐURINN með skulda-
bréf náði sér á strik á árinu. Þetta
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, en hann reiknar
með umskiptum á hlutabréfamark-
aðnum í lok þess árs sem nú er að
ganga í garð. Heildarveltan á
árinu var 2.776 milljarðar sem
jafngildir 11,2 milljarða veltu á
dag. Rúm 98% veltunnar voru með
skuldabréf. Skuldabréfavísitala
GAMMA hækkaði um tæp 17% á
árinu. | 5
Líflegur
skuldabréfa-
markaður