Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 5
GAMMAi: Verðtryggt
GAMMA: GBI
GAMMAxi: Óverðtryggt
Skuldabréfavísitala Gamma frá ársbyrjun
2. jan.
2009
30. des.
2009
185
180
175
170
165
160
155
150
145
140
135
130 131,6
151,1
154,6
Vísitölurnar eru settar á 100 þann 1. janúar 2005
Skuldabréfavísitölurnar eru reiknaðar og birtar af GAMManagement hf.
156,0
176,4
181,2
FRÉTTASKÝRING
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
ÁRSÁVÖXTUN á ríkisskuldabréfa-
markaðnum var 16,7% sé miðað við
skuldabréfavísitölu Gamma. Sam-
kvæmt vísitölunni nam hækkunin á
verðtryggðum skuldabréfum 18,4% á
meðan óverðtryggð ríkisbréf hækk-
uðu um 17,2%. Skuldabréfamarkað-
urinn á árinu einkenndist af miklum
sviptingum. Á fyrri hluta ársins var
áberandi meiri eftirspurn eftir óverð-
tryggðum bréfum en þegar líða tók á
árið hækkuðu verðtryggðu bréfin
meira.
Þessi þróun endurspeglar meðal ann-
ars vaxandi verðbólguvæntingar
meðal fjárfesta. Það er að segja fram-
an af ári virðast þeir hafa haft trú á
því að verðbólga færi hratt niður eins
og spáð var við lok síðasta árs en þeg-
ar líða tók á árið virðast væntingar
hafa breyst og svartsýni á verðlags-
þróun aukist. Samkvæmt sérfræðing-
um GAM Management, sem reiknar
út skuldabréfavísitölu GAMMA,
stýrði aukning framboðs á óverð-
tryggðum ríkisskuldabréfum ekki
þessari þróun enda er eftirspurn eftir
þeim mikil.
Óvissan styður við markaðinn
Mikil óvissa, svo ekki sé sterkar að
orði kveðið, ríkir um efnahagshorf-
urnar hér á landi á komandi ári. Sér-
fræðingar GAM telja að þessi óvissa
ætti styðja við áframhaldandi þróun á
skuldabréfamarkaðnum. Þeir benda
hins vegar á að útgáfa Íbúðalánasjóðs
verði takmörkuð á næsta ári og verði í
raun neikvæð um 30 milljarða. Það
gæti þó vegið á móti ef samkomulag
næst hjá íslenskum stjórnvöldum um
ráðstöfun á veðum í íslenskum
skuldabréfum sem eru í eigu erlendra
seðlabanka á árinu. Að sama skapi er
fjárþörf ríkissjóðs svo mikil að ekki er
fyrirsjáanlegt að skuldabréfaútgáfa
hans minnki á komandi misserum.
Sennilega verða áframhaldandi
gjaldeyrishöft stærsti áhrifavaldur-
inn á þróun skuldabréfamarkaðarins
á því ári sem er að ganga í garð. Þau
gera að verkum að fjárfestar eiga í fá
hús að venda um þessar mundir. Sér-
fræðingar GAM telja að samanlagt
innflæði lífeyrissjóðanna ásamt vöxt-
um og afborgunum á skuldabréfum
muni nema um 130 milljörðum á
næsta ári og að öllu óbreyttu muni
stærstur hluti þessarar upphæðar
fara í kaup á skuldabréfum. Búast
megi við að útgáfa fyrirtækja í op-
inberri eigu og sveitarfélaga á verð-
tryggðum skuldabréfum verði með
líflegra móti á árinu. Hins vegar verð-
ur að teljast ólíklegt að einkafyrir-
tæki verði stórtæk í skuldabréfaút-
gáfu á komandi ári þar sem þau kjör
sem þeim standa til boða eru nánast
óyfirstíganleg.
Skuldabréf skjól á óvissutímum
Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 17% á árinu sem er að líða Mesta eftirspurnin eftir óverð-
tryggðum bréfum í fyrstu en samhliða vaxandi verðbólguvæntingum færðu fjárfestar sig í verðtryggð bréf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
Fréttir 5
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
LEIKJAIÐNAÐURINN á Íslandi
hefur tekið stakkaskiptum á örfáum
árum, en lengi vel var í raun aðeins
eitt fyrirtæki í tölvuleikjagerð hér á
landi, CCP. Undanfarin ár og misseri
hefur þeim fjölgað gríðarlega og svo
virðist sem ný tölvuleikjafyrirtæki
spretti upp í viku hverri. Á árinu voru
samtök íslenskra leikjafyrirtækja,
IGI, stofnuð og eru meðlimir nú tíu
talsins.
Þessi gróska var til umfjöllunar í 28
síðna sérriti hins virta tölvuleikja-
tímarits Edge fyrir skömmu. Segir
þar að íslenski iðnaðurinn sé um
margt merkilegur, m.a. fyrir þær sak-
ir að í stað þess að berjast innbyrðis
sé samgangur og samvinna meðal ís-
lensku fyrirtækjanna mun meiri en
gerist og gengur erlendis.
Þá sé enga íslenska dreifingaraðila
á tölvuleikjum að finna og því hafi ís-
lensku tölvuleikjaframleiðendurnir
margir gripið til þess ráðs að gefa út
og selja leiki sína sjálfir, einkum á
netinu. Eins og með svo margt annað
hér hafi CCP riðið á vaðið, en lengi vel
var tölvuleikur fyrirtækisins, Eve On-
line, aðeins seldur yfir netið.
Margs konar fyrirtæki
Fyrirtækin Gogogic og Sauma,
sem reyndar á rætur sínar að rekja til
Finnlands, einbeita sér að hönnun
leikja, sem spilaðir eru í gegnum net-
vafrara. Dexoris hannar leiki fyrir
farsíma, eins og reyndar fleiri íslensk
leikjafyrirtæki. Þá eru aðilar sem erf-
iðara er að flokka eins og MindGames
og CADIA. MindGames hannar leiki
sem ætlað er að auðvelda fólki að
þjálfa hugann og slaka á. Markmiðið
er að með því að spilari noti tæki sem
mæla heilabylgjur til að spila leikinn.
Eftir því sem notandinn slakar meira
á eða nær betri einbeitingu nær hann
meiri framgangi í leiknum.
CADIA, sem er gervigreindarmið-
stöð Háskólans í Reykjavík, vinnur
eins og nafnið ber með sér að þróun
gervigreindarhugbúnaðar. Vinnur
CADIA meðal annars að þróun hug-
búnaðar sem getur lært og breytt sér
sjálfur með eins konar sjálfsforritun.
Fleiri fyrirtæki má nefna til sögunn-
ar, eins og Betware sem m.a. hannar
hugbúnað fyrir fjárhættuspil á net-
inu.
Í greininni segir að þegar nánar er
rýnt í stöðu mála hér á landi sé það
ekki eins undarlegt að hér sé að vaxa
blómlegur leikjaiðnaður og virst gæti
við fyrstu sýn. Hér séu langflestir íbú-
ar með háhraða nettengingu og
menntunarstig er mjög hátt. Þá sé
mikil frásagnarhefð hér á landi, en
leikjahönnun er jú aðeins ein birting-
armynd frásagnarlistarinnar.
Nýjungagirni Íslendinga hefur
stundum verið talin til lasta, en í til-
viki leikjahönnunar má líta á hana
sem mikinn kost. Fyrirtæki eins og
CCP og Betware njóta þess að stofn-
endur þeirra stukku strax á tækifæri
sem þeir töldu sig sjá. Erfiðara væri
fyrir þessi fyrirtæki að hasla sér völl á
sínum sviðum ef þau væru að stíga sín
fyrstu skref núna.
Gróska í íslenskum
tölvuleikjaiðnaði
Tímaritið Edge gerði íslenskan tölvuleikjaiðnað að umfjöll-
unarefni í myndarlegu sérriti, sem kom út rétt fyrir jól
Leikur Tölvuleikurinn Vikings of Thule er meðal afurða tölvuleikjafyr-
irtækisins íslenska, Gogogic, en leikurinn verður spilaður á Facebook.
íbúðabréfin með 928 milljarða
veltu. Í árslok höfðu 64 útgef-
endur alls 189 flokka skulda-
bréfa skráða í Kauphöllinni.
Heildarvelta í Kauphöll Íslands
var 2.776 milljarðar sem jafn-
gildir 11,2 milljarða veltu á
dag. Rúm 98% veltunnar voru
með skuldabréf og er því með-
aldagsveltan með skuldabréf
tæpir 11 milljarðar.
Á skuldabréfamarkaði var
MP banki með mestu hlutdeild-
ina eða 32%. Næstir koma Ís-
landsbanki með 28% og NBI
með 14%. Á hlutabréfamarkaði
var það Arion banki sem var
með mestu hlutdeildina eð 28%
en í kjölfarið fylgdu MP banki
með 18% og Saga Capital með
16% hlutdeild.
Á skuldabréfamarkaðnum
voru mest viðskipti með rík-
isskuldabréf eða fyrir 1.647
milljarða en þar á eftir fylgja
MP með mestu markaðshlutdeildina
Veltumestu skuldabréf
Heildarvelta 2009
milljarðar kr.
R
IK
B
19
0
22
6
R
IK
B
13
0
51
7
R
IK
B
10
12
10
H
FF
15
0
22
4
H
FF
15
0
6
4
4
500
400
300
200
100
0
Velta í kauphöll 2009
Ríkisbréf
Íbúða- og Húsnæðisbréf
Ríkisvíxlar
Skuldabréf fyrirtækja
Skuldabréf sveitarfélaga og LSS
Skuldabréf, erlend
Skuldabréf banka og sparisjóða
Skuldabréf lánastofnana
Húsbréf
Spariskírteini
ALLS
1.646.727
928.418
123.447
13.190
6.106
5.452
1.035
562
303
1
2.725.239
milljónir kr.