Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 8
sími: 511 1144 Vantar þig dælu? Við höfum úrvalið Stórar dælur - Litlar dælur Góðar dælur - Öruggar dælur Gæði - Öryggi - Þjónusta Danfoss hf • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.is Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is H örður Ægisson útskrifaðist með próf í stjórnmálafræði og hagfræði frá Háskóla íslands árið 2006 og að því námi loknu hóf hann störf á Viðskiptablaðinu. „Árið 2008 ákvað ég að söðla um og hóf nám við bandaríska háskólann Johns Hopkins School of Advanced International Studies (SAIS). Fyrst um sinn var ég í skólanum á Ítalíu, en er núna í Washington í Bandaríkjunum. Á árinu hef ég í raun búið í þremur lönd- um, þar sem ég eyddi tveimur mánuðum í sumar í Moskvu að læra rússnesku, og svo fyrra hluta ársins í Bo- logna á Ítalíu.“ Sérsvið Harðar í náminu er Rússland og Evrasía. „Gróft á litið eru um 40 prósent af náminu hagfræði og 60 prósent alþjóðastjórnmál. Þá verð ég að standast próf í rússnesku áður en ég útskrifast.“ Hörður segist alltaf hafa haft meiri áhuga á erlendum stjórnmálum en innlendum, og þá helst stjórnmálum í stórum ríkjum eins og Kína og Rússlandi. „Pólitíkin skiptir meira máli í þessum ríkjum, af ýmsum ástæðum. Til að geta átt viðskipti þar verður þú að skilja pólitíkina og viðskiptum erlendra aðila þar fylgir gríðarleg pólitísk áhætta. Þetta er svið sem ég hef mikinn áhuga á.“ Hann segir að undanfarin ár hafi verið erfitt fyrir vest- ræn fyrirtæki að fóta sig í Rússlandi, enda lagaumhverfið mjög flókið og á því geta orðið skjótar og ófyrirsjáanlegar breytingar. „Þegar ég var úti í Rússlandi í sumar ræddi ég við fólk þar í landi, sem lýsti því fyrir mér hvernig skattayfirvöld ættu það til að ryðjast inn í fyrirtæki til að gera þeim lífið erfitt og er markmiðið með aðgerðunum að kreista út úr fyrirtækjunum mútur. Ég tók nýlega nám- skeið um rússnesk lög og þar sagði prófessorinn að þetta væri gjarnan gert við erlend fyrirtæki, sem ekki kynnu á kerfið. Er þá ruðst inn á skrifstofur þeirra og gögn og tölvur teknar. Ég held hins vegar að breyttir tímar gætu verið framundan í Rússlandi. Menn virðast vera að gera sér grein fyrir því að ekki er heppilegt að treysta aðeins á einn geira atvinnulífsins, olíuna og gasið.“ Hörður sér því miður ekki mikið af tækifærum hér heima til að nýta þessa menntun og býst við því að þreifa fyrir sér með vinnu hjá vestrænu fyrirtæki í Rússlandi. Fótboltinn er helsta áhugamál Harðar. „Gengi minna liða, bæði hér heima og í Englandi hefur hins vegar dreg- ið aðeins úr áhuganum, en ég held með Skagamönnum og Liverpool. Ég hitti svo nokkra félaga til að spila fótbolta eða körfubolta hér í Washington. Ég hef hins vegar ekki dottið í bandarísku íþróttirnar, ruðning eða hafnabolta, sem mér finnst of hægar.“ Hörður Ægisson leggur stund á nám í alþjóðastjórnmálum við Johns Hopkins háskólann í Bandaríkjunum, með sérstaka áherslu á Rússland og Evrasíu. Morgunblaðið/RAX Áhætta Hörður hefur áhuga á pólitískri áhættu í við- skiptum, sem er meiri í Rússlandi en víða annars staðar. Bjó í þremur erlendum ríkjum í ár SVIPMYND» SPÆNSKUM vísindamönnum hefur tekist að einrækta geit af teg- und, sem varð útdauð árið 2000. Um er að ræða pýreneísku íbex- geitina, sem hvarf eftir ofveiði. Áð- ur en síðasta geitin drapst árið 2000 tóku vísindamenn lífsýni úr henni, sem þeir hafa nú notað til að einrækta huðnu. Drapst hún reynd- ar fljótlega eftir burð, en vís- indamennirnir eru bjartsýnir á að reisa megi geitarstofninn upp frá dauðum. bjarni@mbl.is Vakin upp frá dauðum AP VELTA í sölu tölvuleikja í Bretlandi fór á þessu ári í fyrsta sinn yfir veltu í kvikmyndaiðnaði, en tölvuleikir í Bandaríkjunum náðu þessu marki árið 2004. Sala á aðgöngumiðum í bresk kvikmyndahús nam á árinu um einum milljarði punda, eða um 200 milljörðum króna. Við það bætast svo tæpar 200 milljónir punda í sölu á DVD diskum. Til samanburðar velti tölvuleikjaiðnaðurinn þar í landi um 1,7 milljörðum punda. Þrátt fyrir þennan mikla mun á tölvuleikja- iðnaðurinn enn í vandræðum með að fá stjórnmálamenn og annað áhrifa- fólk til að taka iðnaðinn alvarlega. Tom Watson, fyrrverandi ráðherra í bresku ríkisstjórninni, segir í samtali við The Daily Telegraph of marga stjórnmálamenn líta á tölvuleiki sem áhugamál táningsdrengja. Sannleik- urinn væri sá að iðnaðurinn hefði þroskast mikið undanfarinn áratug og að spilarar væru nú mun fjölbreyttari hópur en áður. bjarni@mbl.is Leikir velta meiru en kvikmyndir ÚTHERJI hafði það á tilfinningunni í gær að hann væri að fylgjast með útsendingu frá amerískum ruðningi í Ríkissjónvarpinu, svo mörg voru leik- hléin. Hins vegar var raunin sú að stillt var á útsendingu frá Alþingi. Málum var háttað með þeim hætti í gær að jafnharðan og leikur var haf- inn á ný við Austurvöll var flautað til leikhlés. Grundvallarmunurinn á útsend- ingu frá störfum Alþingis í gær og amerískum ruðningi liggur hins vegar í því hvernig leikhléin voru nýtt. Í út- sendingum frá Bandaríkjunum flaut- ar dómari vart til leikhlés þegar aug- lýsingarnar taka völdin á skjánum. Auglýsingatekjur eru enda ein af allra öflugustu tekjulindum bandarískra hópíþrótta sem sýnt er frá í sjón- varpi. Þingstörf á Íslandi eru auðvit- að hópíþrótt líka, þar sem menn og konur fórna sér fyrir liðið. Frá útsendingum Alþingis er hins vegar skellt upp skjámynd af Alþingi, þar sem stendur stórum stöfum „Fundarhlé.“ Reikna má með að sjaldan hafi jafnmiklar auglýsinga- tekjur glatast, enda sátu margir límd- ir við skjáinn og biðu tíðinda af þingi. Selja ætti auglýsingar fyrir fundarhlé Alþingis. Með þeim tekjum væri jafn- vel hægt að fjármagna fréttaritara Ríkissjónvarpsins í Brussel. Auglýsingatekjur hins opinbera – ný sóknarfæri löggjafans ÚTHERJI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.