Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
2 Fréttir
78,0
80
70
60
50
40
30
-0,5%
245
240
235
230
225
30.11. 30.12.
Gengisvísitala ÍSK
25
20
15
10
5
0
ma.kr.
miðv.fim. fö. þri.mán.okt. nóv. des.sept.
hlutabréf
skuldabréf
dollarar hver tunna
Gengi í
New York
30.11. 29.12.
18
16
14
12
10
30.11. 29.12.
80
75
70
65
60
-8,3%
+28,0%
Brent-hráolía
Velta í KauphöllinniAlcoa
Gengi í
New York
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang
vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
EKKERT hefur verið rætt við líf-
eyrissjóðina um að selja erlendar
eignir til að kaupa íslensk ríkis-
skuldabréf og íbúðabréf af ríkinu.
Þetta segir framkvæmdastjóri
Landssambands lífeyrissjóða, Hrafn
Magnússon, í samtali við Morgun-
blaðið. Gylfi Magnússon, viðskipta-
ráðherra, sagði í Morgunblaðinu 22.
desember síðastliðinn að litið væri til
lífeyrissjóðanna við sölu á þeim rík-
isskuldabréfum sem nú er fyrirhug-
að að kaupa af Seðlabanka Evrópu í
skiptum fyrir evrur.
Um það bil 30% af eignum lífeyr-
issjóðanna eru erlend. Í lok ágúst á
þessu ári námu þær eignir 515 millj-
örðum króna. Lítil breyting hefur
orðið á gengi krónunnar síðan þá, og
því má segja að erlendar eignir líf-
eyrissjóðanna jafngildi um það bil
2,8 milljörðum evra. Reikna má með
að lífeyrissjóðirnir fengju að kaupa
ríkis- og íbúðabréfin sem um ræðir á
einhverjum afslætti, en í öllu falli
þyrftu þeir að selja ríflegan hluta er-
lendra eigna til að festa kaup á þessu
ákveðna eignasafni, ef krafist yrði
greiðslu í evrum. Um er að ræða tvö
félög, Avens og Betula Funding, sem
Landsbankinn stofnaði til að gefa út
skuldabréf til að nota í endurhverf-
um viðskiptum við Seðlabanka Evr-
ópu. Fjallað hefur verið um Avens í
Morgunblaðinu, en inni í því félagi
eru íslensku skuldabréfin. Markaðs-
virði þess eignasafns er tæplega 120
milljarðar, en fyrirhugað er að
greiða einn milljarð evra fyrir það
bréf. Inni í Betula Funding eru ein-
ungis lán til breskra fyrirtækja, og
lánshæfismat skuldabréfs þess fé-
lags er nú B-. Ef af þessu samkomu-
lagi verður mun skilanefnd Lands-
bankans fá þá eign til ráðstöfunar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ætlunin með þessum
gjörningi að opna á þann aðgang fyr-
ir skilanefnd, og viðmælendur Morg-
unblaðsins skýrðu hið háa verð sem
greitt er fyrir skuldabréfapakkann
með því að skuldbinding íslenska
ríkisins vegna Icesave gæti lækkað.
Ekkert rætt við
lífeyrissjóðina
Eignir Betula Funding fyrst og fremst bresk fyrirtækjalán
Reuters
Evrur Viðskiptaráðherra hefur sagt að litið sé til lífeyrissjóðanna varðandi
það að selja eignasafn íslenskra skuldabréfa í skiptum fyrir evrur.
Í HNOTSKURN
»Framkvæmdastjóri Lands-sambands lífeyrissjóða
segir ríkið ekkert hafa rætt
við lífeyrissjóði um að kaupa
íslensk ríkisskuldabréf í skipt-
um fyrir evrur.
»Erlendar eignir lífeyr-issjóða nema um þriðjungi
kaupverðs ríkisins á íslenska
skuldabréfapakkanum, um 2,9
milljörðum evra.
»Eignir Betula Funding erufyrst og fremst bresk fyr-
irtækjalán. Lánshæfismat
skuldabréfs er B-.
ÁHÆTTA af því að ganga nú að
greiðsluákvæðum Icesave verður að
vega á móti áhættunni sem felst í því
að fresta málinu frekar. Þetta er
mat Friðriks Más Baldurssonar, pró-
fessors í fjármálum við Háskólann í
Reykjavík, en það kemur fram í
minnisblaði til efnahags- og skatta-
nefndar Alþingis frá 21. desember.
Friðrik telur óvíst hvaða áhrif frest-
un á úrlausn Icesave-málsins geti
haft á erlenda fjármögnun. Fram-
undan séu miklar greiðslur hjá rík-
issjóði og aðilum sem njóta rík-
isábyrgðar. Gjaldeyrisforði landsins
kunni að duga til að standa skil á
þeim skuldbindingum. „Ef frestun
Icesave-málsins veldur því að fjár-
mögnun fáist ekki á meðan málið er
í vinnslu þýðir það samsvarandi
frestun á áformum um fjárfest-
ingar,“ segir Friðrik, en fjárfesting í
hagkerfinu mun ráða miklu um hag-
vöxt og þar með greiðslugetu þjóð-
arbúsins. „Komi ekki til annarrar
fjármögnunar virðast því líkur á
greiðslufalli ríkisins, fyrirtækja með
ríkisábyrgð eða sveitarfélaga eftir
tvö til þrjú ár og er þá ekki reiknað
með greiðsluþörf vegna nýrra fjár-
festinga,“ segir Friðrik í minnisblaði
sínu. Friðrik segir mikla áhættu fel-
ast í þessari stöðu, sem finna þurfi
lausn á með góðum fyrirvara.
thg@mbl.is
Óvíst hvaða
áhrif frest-
un hefði
Icesave Friðrik Már Baldursson
prófessor telur óvíst um áhrif tafar.
BRESKT fjármálafyrirtæki, Int-
ermarket, mun leggja inn tilboð í
knattspyrnufélagið West Ham, sem
er nú að stærstum hluta í eigu
Straums-Burðaráss fjárfestinga-
banka.
Í samtali við breska blaðið Daily
Telegraph segir talsmaður Int-
ermarket að tilboð verði lagt fram
á mánudaginn og að hann geri ráð
fyrir því að fljótlega skýrist hvort
það sé Straumi þóknanlegt.
Í frétt Telegraph segir að Int-
ermarket verðmeti West Ham upp
á um 100 milljónir punda, um 20
milljarða króna. Hugsanlegur
ágreiningur við Straum geti hins
vegar falist í því að Intermarket
metur skuldir West Ham um 48
milljónir punda, en eigendurnir
standa hins vegar á því fastar en
fótunum að skuldirnar séu um 38
milljónir punda.
West Ham komst í eigu Íslend-
inga þegar Björgólfur Guðmunds-
son og Ellert Magnússon keyptu fé-
lagið árið 2006. Eins og áður segir
er það nú í eigu Straums-Burðar-
áss. bjarni@mbl.is
Reuters
Knattspyrna Frá leik Tottenham og West Ham á mánudag, en búist er við nýju tilboði í West Ham eftir helgi.
Intermarket með tilboð í
West Ham á mánudag
FINNUR
Sveinbjörnsson,
fráfarandi banka-
stjóri Arion-
banka, mun
starfa áfram sem
slíkur þar til
gengið hefur ver-
ið frá ráðningu
nýs bankastjóra.
Finnur hafði áður
gefið út að hann
myndi hætta hjá bankanum um ára-
mótin, enda teldi hann eðlilegt að
nýr maður tæki við hans starfi á
þeim tímamótum sem fólust í yf-
irtöku kröfuhafa á meirihluta bank-
ans. „Ég verð eitthvað lengur fram í
janúar, þar til nýr maður tekur við.
Svo að bankinn verði ekki án banka-
stjóra, það væri verra,“ sagði Finnur
í samtali við Morgunblaðið. Um-
sóknarfrestur fyrir starf banka-
stjóra Arionbanka rann út 20. des-
ember síðastliðinn.
Finnur segist ekki vera viss um
hvað tekur við, en telur þó líklegt að
hann verði í „einhverri lausa-
mennsku“ framan af. Hann hafi ekki
ráðið sig í neitt starf að svo stöddu.
thg@mbl.is
Finnur
ætlar að
brúa bilið
Finnur
Sveinbjörnsson
ELÍN Jónsdóttir hefur verið ráð-
in forstjóri Bankasýslu ríkisins og
mun hún taka til starfa 1. janúar
næstkomandi. Í tilkynningu frá
Bankasýslunni segir að Elín sé 43
ára gömul, lögfræðingur að mennt
með cand. jur.-próf frá Háskóla Ís-
lands og LL.M.-gráðu frá Duke-
háskóla í Bandaríkjunum. Þá hefur
hún lokið prófi í verðbréfa-
viðskiptum.
Elín starfaði sem lögfræðingur
hjá Fjármálaeftirlitinu 2001-2005 og
sem framkvæmdastjóri Arev-
verðbréfafyrirtækisins 2005-2009.
Þar á undan vann hún m.a. við laga-
deild Duke-háskóla, hjá hugbún-
aðarfyrirtækinu Oz og hjá Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Elín hefur
starfað fyrir rannsóknarnefnd Al-
þingis frá miðju sumri.
Bankasýsla ríkisins var stofnuð
með lögum á árinu 2009 til að fara
með eignarhluti ríkisins í fjármála-
fyrirtækjum og ákveður Bankasýsl-
an meðal annars stjórnarmenn þá
sem ríkið á kost á að skipa í stjórnir
þeirra fjármálafyrirtækja sem það á
hlut í.
Forstjóri Elín Jónsdóttir er nýr for-
stjóri Bankasýslu ríkisins.
Forstjóri
banka-
sýslunnar
Elín Jónsdóttir tekur
við um áramótin
EINUNGIS tvö félög í úrvals-
vísitölu Kauphallarinnar hækkuðu í
verði í ár. Það var gengi Össurar
sem hækkaði um 53% og Færeyja
banka um 7%. Hlutabréfaverð Ice-
landair og Atlantic Petroleum lækk-
aði aftur á móti mest, eða um ríf-
lega 70% fyrir hvort félag. Þetta
kemur fram í Hagsjá Landsbank-
ans.
Það var tíðindalítið árið sem nú
er að renna sitt skeið á íslenskum
hlutabréfamarkaði. Úrvalsvísitalan,
sem áður stóð saman af 15 félögum,
hefur nú aðeins sex félög undir sín-
um hatti og þar til viðbótar eru
fjögur félög sem mynda svokallaðan
aðallista. Heildarvísitala aðallistans
lækkaði um nærri 90% á síðasta ári
en í ár lækkaði hún um 16%. Fyrri
hluti ársins, eða öllu heldur fyrsti
ársfjórðungur, var slæmur en á
honum lækkaði heildarvísitalan um
þriðjung. Staðan batnaði umtalsvert
eftir veturinn og hækkaði heildar-
vísitalan t.a.m. um tæp 18% í maí.
Dapurt ár á
hlutabréfa-
markaði