Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
6 Fréttir
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
N
ú um áramótin munu eitruð veð
úr bókum sex írskra banka
verða færð til National Asset
Management Agency
(NAMA), en svo nefnist „vondi
bankinn“ sem stjórnvöld hafa sett á lagg-
irnar með það að augnamiði að skapa ein-
hverskonar ruslakistu fyrir helstu banka
landsins. Bókfært verð veðanna sem færð
verða í NAMA er 77 milljarðar evra en nú-
verandi markaðsverð er ríflega 40 milljarðar
evra. Um er að ræða fimmtung af heildarútl-
ánum bankanna sex og þar af leiðandi er
ekki um neinar smáupphæðir að ræða. Með
þessu markast skil í írsku fjármálakreppunni
sem er að mörgu leyti keimlík þeirri sem
skall á hér landi þó svo að stjórnvöld í Dyfl-
inni hafi brugðist við henni með allt öðrum
hætti en þau íslensku.
Tvíeggjað sverð
Írska efnahagsundrið einkenndist af bætt-
um lífskjörum og miklum hagvexti. En að
sama skapi óx skuldsetning mikið og írska
hagkerfið var afar háð erlendu láns-
fjármagni. Segja má að aðild Írlands að
Efnahags- og myntbandalagi Evrópu hafi
verið tvíeggjað sverð stærstan hluta þess-
arar aldar: Það er að segja að hagkerfið naut
góðs af því að eiga greiðan aðgang að er-
lendu fjármagni en á sama tíma voru stýri-
vextir, sem tóku fyrst og fremst mið af hæg-
um gangi þýsku hagvaxtarvélarinnar,
sennilega of lágir fyrir hið kraftmikla írska
hagkerfi. Þetta tvíeggjaða sverð er reyndar
enn á lofti yfir írska hagkerfinu í dag þar
sem evran útilokar gengisfellingu í takt við
breyttar aðstæður í hagkerfinu og þarf því
öll aðlögun að fara fram í gegnum lækkun
raunlauna og kaupmáttar; þó ber að nefna
að evran gerir hinsvegar fjármögnun auk-
innar skuldabyrði írska ríkisins vegna björg-
unaraðgerða á fjármálamarkaði bærilegri en
ella.
Það voru þessar ytri aðstæður sem lögðu
grunninn að þeirri eignabólu sem nú hefur
hrunið. Þáttur bankanna í þeirri bólumyndun
er sérstaklega áhugaverður með hliðsjón af
því sem gerðist á Íslandi. Á áratugnum sem
leið eftir að Írar tóku upp evruna sjöföld-
uðust útlán írskra banka og námu alls 400
milljörðum evra rétt fyrir hrun. Samkvæmt
rannsóknum hagfræðingsins Martin Kelly,
sem er einn þeirra manna sem orðinu dóms-
dagur hefur verið skeytt fyrir aftan doktors-
titil þeirra, uxu útlán úr því að vera 60% árið
1997 af landsframleiðslu í það að vera 200%
árið 2008 eða helmingi meira en það sem
gengur og gerist í öðrum þróuðum hag-
kerfum. Stór hluti af þessari útlánaaukningu
rann til byggingariðnaðarins og kynti undir
tröllaukinni fasteignabólu.
Bankamenn við fýsibelginn
Írskir bankamenn stóðu sveittir við fýsi-
belginn á meðan eignabólan bólgnaði út. Það
er sérstaklega áhugavert að skoða þátt
tveggja írskra banka í þessari þróun. Eins
og Dan White, sem skrifar dálka um við-
skipti í írska blaðið Evening Herald, bendir
á þá óx samanlögð markaðshlutdeild bank-
anna Anglo Irish og Irish Nationwide úr því
að vera nánast engin í það að verða meira en
fimmtungur á einum áratug. Þannig jókst
verðmæti lánabókar Anglo Irish úr því að
vera 2 milljarðar evra í það að vera ríflega
70 milljarðar á einungis tíu árum. White
spyr hvernig sé eiginlega hægt að auka útlán
í svo miklum mæli og á sama tíma að sýna
aðgát og hófsemi. Svar hans við spurning-
unni er einfalt: Það er ekki hægt. Enn-
fremur segir White að þessi ofvöxtur bank-
anna tveggja hafi leitt til þess að þeir sem
fyrir voru köstuðu frá sér allri aðgát og
reyndu að verja markaðshlutdeild sína. Þetta
ásamt sofandahætti regluvarða hins opinbera
hafi leitt til þess að það fór sem fór.
Þegar fjara tók undan fjármálamörkuðum
á haustmánuðum árið 2007 stóðu írsku bank-
arnir berskjaldaðir. Margboðað fárviðri skall
svo loks á þegar bandaríski fjárfestingabank-
inn Lehman Brothers féll haustið 2008. Þá
varð staða írsku bankanna nánast vonlaus og
sú skrýtla gekk á milli enskumælandi manna
að eini munurinn á Íslandi og Írlandi væri
einn bókstafur og sex mánuðir. Írsk stjórn-
völd fóru aðra leið en þau íslensku og gerð-
ust bakhjarl stærstu bankanna og tryggðu
skuldbindingar þeirra. Það dugði þó ekki til.
Stjórnvöld neyddust til þess að leggja bönk-
unum til nýtt eigið fé og jafnframt rík-
isvæddu þau Anglo Irish-bankann.
Dýr björgun
Þessar aðgerðir afstýrðu vissulega yfirvof-
andi áhlaupi á helstu banka Írlands. Að
sama skapi hafa flestar þær raddir sem boð-
uðu efnahagshrun og gjaldþrot írska ríkisins
að mestu þagnað. En þar með er ekki sagan
sögð: Írska ríkið hefur axlað miklar skulda-
byrðar vegna þessara aðgerða og nið-
ursveiflan í hagkerfi landsins er bæði djúp-
stæð og mikil. Samkvæmt breska blaðinu
Financial Times hefur ríkið gengið í ábyrgð
fyrir bankana fyrir um 400 milljarða evra en
það er um tvöföld landsframleiðsla. Fæstir
trúa því að írska ríkið gæti reitt slíkar upp-
hæðir fram ef örlögin höguðu því þannig að
áhlaup yrði gert á bankana. Þar að auki
stendur ríkið frammi fyrir miklum fjár-
lagahalla sem er mun hærri en reglur evru-
svæðisins kveða á um, hækkandi fjármagns-
kostnaði, atvinnuleysi og mikilli
skuldsetningu einkageirans.
Ríkisstjórn landsins hefur að vísu gengið
vasklega fram í niðurskurði til þess að koma
böndum á fjárlagahallann. Auk þess hefur
samkeppnisstaða írska hagkerfisins hríð-
versnað á undanförnum árum vegna geng-
isþróunar evrunnar og á því er aðeins ein
lausn: Laun verða að lækka. Þrátt fyrir
þetta eru sérfræðingar ekki eins svartsýnir
fyrir hönd írska hagkerfisins og fyrir ári.
Menn leita suður á bóginn, til Grikklands,
þegar þeir vilja benda á sjúka hagkerfið í
hópi evruríkja og segja írsk stjórnvöld vera
fyrirmynd sem aðrir ættu að líta til þegar
kemur að nauðsynlegum en sársaukafullum
niðurskurði í ríkisfjármálum.
Fjárvana uppvakningar
En á sama tíma eru mörg vandamál
óleyst. Áðurnefndur Kelly bendir á að írsk
stjórnvöld hafi aðeins leyst eitt af þremur
bráðavandamálum fjármálakerfisins: Útlána-
vanda bankakerfisins vegna hruns á fast-
eignamarkaðnum. Þau lán og eitruð veð
þeim tengd fara inn á bækur NAMA á næst-
unni. Eftir stendur vandinn við skuldbind-
ingar hagkerfisins til erlendra skuldabréfa-
eigenda og gagnvart Evrópska
seðlabankanum og í þriðja lagi sá vandi sem
mun stafa af frekari rýrnun lánasafna bank-
anna vegna slæmra efnahagshorfa. Kelly
segir að írska bankakerfið sé eins og upp-
vakningur sem hafi eingöngu þá áherslu að
draga úr skuldbindingum sínum og lána því
ekkert út til hagkerfisins og standi það
frammi fyrir mikill hættu vegna frekari
rýrnunar útlánasafna sinna. Það er því með
öllu óljóst hvort fjárhagslegt bolmagn írska
ríkisins til þess að standa bakvið bankana er
yfirhöfuð til staðar.
Reuters
Tígrisdýr Á uppgangsárunum á Írlandi var efnahagsundrið oft kennt við keltneskan tígur og kallaðist það nafn á við sambærileg heiti á útflutn-
ingshagkerfum í Suðaustur-Asíu á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Allt tal um tígra hefur þó þagnað að mestu að undanförnu.
Írski tígurinn er lafmóður,
skuldsettur og illa á sig kominn
Írskir bankar voru
á vonarvöl áður en
ríkið bjargaði þeim en
kostnaðurinn er ærinn.
Í apríl lýstu stjórnvöld því
yfir að þau hygðust setja á
laggirnar National Asset
Management Agency
(NAMA) sem myndi gegna
hlutverki einhverskonar
ruslatunnu fyrir útlánasöfn
bankanna. Helsta ruslið í
þeim tengist fasteignalán-
veitingum. Hugmyndafræðin
gengur út á að þessi lán renni
í NAMA og að bankarnir fái
þess í stað greitt fyrir þau
með írskum ríkisskuldabréf-
um. Bankarnir sem stendur
þetta til boða eru Bank of
Ireland, Allied Irish Banks,
framlagi að halda. Írska ríkið
hefur lýst því yfir að það sé
reiðubúið til þess að leggja
bönkunum til frekara fé gegn
eignarhlut í þeim.
NAMA er ekki óumdeilt
fyrirbrigði. Bent hefur verið
á að það er með öllu óljóst
hver kostnaður ríkisins verði
vegna aðgerðarinnar og þar
með sé verið að taka ótæpi-
lega áhættu á kostnað skatt-
greiðenda – þeirri áhættu sé
engan veginn deilt á milli
þeirra og bankanna, þeirra
sem eiga skuldabréfin í þeim
og stofnanafjárfesta.
Anglo Irish Bank, EBS, Irish
Life og Permanent and Irish
Nationwide.
NAMA mun kaupa lán,
sem eru bókfærð á 77 millj-
arða evra í bókum bank-
anna, með umtalsverðum af-
slætti. Bankarnir þurfa því
að taka tapið á sig og þar af
leiðandi er hugsanlegt að
þeir þurfi á endurfjár-
mögnun að halda. Reyndar
hafði Wall Street Journal
eftir írska seðlabankastjór-
anum á dögunum að allar
líkur væru á að þeir þyrftu á
umtalsverðu eiginfjárfram-
Reglulega vondur banki