Ísfirðingur - 15.12.1954, Blaðsíða 6
i
>
6
ISFIRÐINGUR
Jörgen Bukdahl:
Veðurtepptur á
I safirði.
Svo sera menn muna var danski
bókmenntai'rœðingurinn — Jörgen
Bukdalil á í'erð liér síðastiiðið
liaust og ílutti fyririestra um liand-
ritaináiið og íslenzka menningu á
nokkrum stöðum hérlendis.
J.B. nýiur álits sem einn hinna
merkustu bókmenntafræö.nga á
Norðurföndum, þótt hann hafi ver-
ið allmjög umdeildur.
Hann hýr yfir ótrúlega víðtækri
þekkingu á menningu og hók-
menntum Norðuriandaþjóðanna
fyrr og síðar, og heldur því fram
að í þessum efnum sé órofa sam-
hand milli fortíðar og nútíðar lijá
hverri þjóð fyrir sig. Þess vegna
sé hver einstök af þessum þjóðum
sjálfstæð menningarlieild og eigi
fyllsta tilkall til þess menningar-
arfs, sem fortíðin hefur skilað
henni (sbr. ísl. handritin).
Þrátt fyrir þetta hvetur Bukdahl
eindregið til gagnkvæmrar vináttu
og náins samstarfs Norðurlanda-
þjóðanna í sem flestum greinum.
Eftirfarandi grein birtist í
dönsku blaði skömmu eftir heim-
komu hans til Danmerkur.
Þýð.
ísafirði.
Ég er veðurtepptur hér. Það er
hvassviðri og þoka. Engip flug-
vél getur lent í þröngum firði
milli hárra fjalla í slíku veðri.
Menn hughreysta mig með því
að ég muni ekkert komast héðan
næsta hálfan mánuðinn.
Glæsilegt útlit það!
Annað kvöld átti ég að flytja
fyrirlestur í Reykjavík, í næstu
viku annan, þá í. grennd við Ár-
ósa í Danmörku.
Umhverfis rísa há og snar-
brött fjöll, lykjast um mig eins
og ókleifir múrar, aðeins skarð
út að Grænlandshafinu þar sem
glyttir í blágráan heimskauts-
himin.
Isafjörður er á norðvesturodda
íslands, norður undir heimskauts-
baug.
Skip mundi vera aðeins hálft
annað dægur á siglingu þaðan
að strönd Grænlands.
I kvöld léku bragandi norður-
Ijós yfir fjöllunum, líkt og til-
raunir með litgeisla færu þar
fram, dularfull eins og andasær-
ingar, töfrandi eins og stórfeng-
leg sýning leifturmynda. Annað
veifið eins og væru ljósfjólublá
tjöld blaktandi í dimmum glugga
norðursins.
Ef til vill kæmist ég landleið-
ina með því að fara fyrst á skipi
inn í Isafjarðardjúp, það er að
segja ef ekki hefur snjóað á
fjallvegina, en vegalengdin er
svipuð og frá Skagen á Jótlandi
til Hamborgar.
Þá eru skipaferðir. En þau
hafa víða viðkomu — og svo
geta þau tafizt vegna veðurs.
Það skyldi þó aldrei vera að héð-
an færi skip til Grænlands og ég
gæti 'komizt heim eftir þeirri
krókaleið ?
Vindurinn ýlfrar við húshomið
og það hrikktir í gluggakrókun-
um.
Kannske ég komist aldrei héð-
an. og ein af þjóðsögum síðari
tíma segi frá Dana nokkrum á
fyrirlestraferð, sem lokaðist inni
milli ísfirzkra fjalla og varð að
lifa þar lífi sínu sem fiskút-
flytjandi og ljósmynda...
Ég geng um gólf í þrönga her-
berginu mínu og heyri öldumar,
sem oltið hafa undan storminum
utan af sollnu úthafi, skella upp
á hafnarbakkann.
Það er gott að hafa Norræna
félagið og norræna samvinnu, en
nú verður það mér ekki að miklu
liði.
Og veðrið, sem var svo fagurt
í gær, þegar ég flaug hingað
vestur.
Island, snævi þakið, var eins og
ævintýraland, fannhvít fjalllendi
og bláar ár í dalbotnunum.
Lengst í austri keilumyndað
fjall, Hekla, til að sjá þögul og
köld, þótt eldur leynist þar undir
ísi og snjó. Niðri í dölunum sjást
gufustrókar frá laugum, bónda-
bæir hér og þar — og í suðri rís
Snæfellsnes
Hingað og þangað má greina
kulnaða eldgíga.
Svo beygir vélin fram hjá
Arnardal og sézt á sjóinn í hin-
um þrönga Isafirði.
En svo hvessti og gerði þoku.
Allar flugleiðir tepptar, flug-
völlurinn í Reykjavík lokaður.
Og nú er ég sem sagt hér,
og ekki útlit fyrir að ég komist
héðan í bráð.
Ég hefi séð mikið af Islandi,
bæði úr lofti og á löngum bíl-
ferðum austur- og vestur um
land.
Island er okkur Norðurlanda-
búum einkum hið foma land
sögunnar, og með hugarfari píla-
grímsins hefi ég heimsótt sögu-
staði Njálu: Hlíðarenda, Odda og
Bergþórshvol — Borg Egils
Skallagrímssonar — Reykholt,
höfuðból Snorra — og á Norður-
landi stöðvar Víga-Glúmssögu:
Eyjafjörð — Grund.
Hið horfna er manni hug-
leiknast.
öll hús voru úr timbri á sögu-
öld, og einu sjáanlegu merkin
um byggð frá þeim tíma eru
veggjabrot.
En staðimir, sem íslenzku
fornsögurnar hafa tengt hina
merkustu atburði við, geyma
minningaarf, sem er sameign
norrænna þjóða.
Þannig er Skálholt — gamla
biskupssetrið — miðstöð menn- j
ingarlífs á íslandi um aldaraðir
— höfuðból í fyllstu merkingu
orðsins — heilagt nafn enn í dag.
Nú sjást þar engin merki
um forna frægð. Dómkirkjan er
sigin í jörð, tættur þar sem stór-
býlið stóð.
Eitt bóndabýli stendur nærri
grunni gömlu dómkirkjunnar og
nokkur hundruð metra þaðan er
steinninn þar sem Jón Arason,
síðasti katólski biskupinn á ís-
landi, var hálshöggvinn af Dön-
um, ásamt tveim sonum Sínum,
þegar hann barðist gegn siða-
skiptunum.
— Sviflétt snjófjúk féll úr
lofti, þegar ég kom að Skálholti,
og fölgvaði eins og líkblæju væri
sveipað um staðinn og fortíð
hans..
En þótt sýnileg tákn um frægð
og helgi staðarins séu horfin,
geymast minningarnar í ódauð-
legum bókmenntum um víða ver-
öld — en þó fyrst og fremst í
hjarta hvers einasta íslendings.
Það rofaði til lofts, og septem-
bersólin sló bleiku skini á um-
hverfið.
Mér varð litið til steinsins, þar
sem Jón var höggvinn.
Var blóð í sporum?
Svo lifandi er lýsing sögunnar
á atburðum þessum að sérhver
íslendingur sér þau — sporin —
spor harðstjórnarinnar hér sem
annarsstaðar.
Nokkuð af fólki úr nágrenninu
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllll
| Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
| Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Bókaverzlun Jónasar Tómassonar.
!‘ll>llllllllllllllllllllltllllllllllll|||||||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll =
| Gleðileg jól! ★ • ★ Farsælt nýtt ár! |
5 ™
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
| Happdrætti Háskóla lslands,
Umboðið á Isafirði: Gunnlaugur Jónasson. |
S>IIIÍIIIIIIIIIIII||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||j|il|||||||||||||||||||||||||||||||||pi||||||||J|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||iS
| Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
m ™
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
| Vélsmiðjan Þór h.f. |
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111'
fllllllllllllllllBlllllllllllllllllllllllllillllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllll'llllllllllllllllillllllllillilllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllll
| Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt árl |
| Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Bökunarfélag ísfirðinga h.f.
! iiiiiiiiitiaiiiiiiiiaiiiuitliiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii =
| Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! 1
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
BJÖRNSBÚÐ |
S i
= lllllllllllllllllllllllllllll||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|lllllllllllfllllllllllllllllllllllllll|lllilll |
| Gleðileg jól! ★ # ★ Farsælt nýtt ár! |
Þökkum viðskiptin á líðandi ári. |
| Prentstofan lsrún h.f. |
- i
| |