Ísfirðingur - 09.01.1957, Page 5
ISFIRÐINGUR
5
Yfirlit um afiabrogð i Vestfirðiuga-
fjórðungi i desember 1956
Patreksf jörður. Togaramir seldu
báðir í Þýzkalandi, um 200 lestir
hvor. Ekki voru önnur skip þar
að fiskveiðum í mánuðinum.
Tálknafjörður. Vélbátarnir
Tálknfirðingur og Freyja héldu úti
til 15. des. Var bæði sjaldgjöfult
og rýr afli. Fóru einungis 3—4
sjóferðir og fengu 3000 til 4000 kg.
í sjóferð.
Bíldudalur. Aðeins rækjubátarn-
ir þrír voru þar að staðaldri að
veiðum og öfluðu jafnan vel. —
Annar hinna nýkeyptu báta, Vörð-
ur fór og í sjóferð síðast í mán-
uðinum og fékk um 4000 kg.
Flateyri. Togararnir voru að
veiðum til 12. des., en þá fóru Fær-
eyingarnir, sem á þeim voru til
heimkynna sinna í bili. — Afli
þeirra frá 1. des. var: Guðmundur
Júní 105 lestir, Gyllir 94 lestir.
Suðureyri. Fimm bátar stunduðu
veiðar. Afli yfirleitt góður, en
sjaldgjöfult. Bátar fengu mest
10 lestir í sjóferð. — Aflahæsti
báturinn er vb. Freyja II. með 86
lestir í 12 sjóferðum.
Bolungavík. Afli stærri bátanna
í mánuðinum varð þessi: Einar
Hálfdáns 90 lestir, Flosi 89 lestir í
16 sjóferðum hvor. Hugrún með
89 lestir, Víkinkur 81 lest í 15 sjó-
ferðum hvor. — Smærri bátarnir,
er sóttu í Djúpið, fengu :Álftin og
Húni 33 lestir, Kristján 24 lestir,
í 15 sjóferðum. Desemberaflinn má
teljast í bezta lagi þarna.
Hnífsdalur. V.b. Mímir var einn
að veiðum, fékk 69 lestir í 12 sjó-
fgerðum
Isaf jörður. Togararnir voru báð-
ir á veiðum og öfluðu vel seinni
part mánaðarins. Sólborg fékk 405
lestir í 3 veiðiferðum, ísborg 221
lest í tveimur veiðiferðum. — Vél-
bátaaflinn var í bezta lagi. Afla-
Éfl sjálfur
KafaS hef ég kalda dröfn,
kaiuiske mörgum verri.
BráSum lífsins heim í höfn,
lield ég lestum knerri.
Fgsli mig ei fella lár,
þó fengi á milli slettur,
sjötíu rúm ég séð hef ár,
saml er andiiui léttur.
Ei skal gráta eSa slá
undan, bát þó fylli.
Helzli er mátinn hverju á,
liafa gát, meS snilli.
Þó sævar meyjar dansi dátt,
dugir ekki aS sýta.
SærSu fleyji í sólar átt,
sjálfsagt greyin flýta.
Helgi frá Súðavík.
hæst er v.b. Guðbjörg með 112
lestir í 16 sjóferðum. Guðbjörg er
langaflahæst vestfirzkra báta í
haust. — V.b. Gunnvör fékk 97
lestir í 16 sjóferðum. V.b. Már (áð-
ur Páll Pálsson frá Hnífsdal) eign
hlutafélagsins Hlér á Isafirði, hóf
veiðar um miðjan des. og fékk 50
lestir í 9 sjóferðum. — V.b. Ás-
björn byrjaði veiðar 22. des., fór
3 sjóferðir og aflaði 18 lestir. Enn-
fremur var v.b. Víkingur að veið-
um, fór aðeins á grunnmið og fékk
30^2 lest í 16 sjóferðum. —
Rækjuveiðabátarnir voru að veið-
um fram undir jól og öfluðu jafn-
an vel.
Súðavík. V.b. Trausti (nýr 40
lesta bátur) hóf veiðar 7. des., fór
11 sjóferðir og aflaði 54 lestir. —
Fiskurinn var veginn óslægður, en
hvarvetna annarsstaðar er um
slægðan fisk að ræða, og ber að
hafa það í huga.
Djúpavík. V.b. Örn hætti veiðum
um miðjan des. Fór aðeins 3 sjó-
ferðir, aflaði um 3000 kg. í sjó-
ferð.
Steingrhnsfjörður. Mjög rýr
afli og sjaldgjöfult. V.b. Barði fór
7 sjóferðir og fékk 22 lestir. V.b.
Guðmundur frá Hólmavík fór 5
sjóf. og fékk um 18 lestir. Hinir
tveir Hólmavíkurbátar minna.
Frá Norrænafélaoinu
á IsafirOi
Aðalfundur ísafjarðardeildar
Norrænafélagsins var haldinn hér
í bænum 16. f. m.
Áður en gengið var til dagskrár
minntist fráfarandi formaður
deildarinnar, Kristján Jónsson,'
frá Garðsstöðum, látinna félaga,
þeirra Guðmundar Jónssonar frá
Mosdal, Önnu Bjömsdóttur,
kennslukonu, Sigurðar Guðmunds-
sonar, bakarameistara, og Sigurð-
ar Dahlmanns, umdæmisstjóra.
Vottuðu fundarmenn hinum látnu
virðingu sína með því að rísa úr
sætum. Guðmundur frá Mosdal var
lengi gjaldkeri deildarinnar og
vann mikið starf í hennar þágu.
Kristján frá Garðsstöðum flutti
skýrslu stjórnarinnar og las upp
reikninga.
Þá var gengið til stjórnarkjörs,
en Kristján frá Garðsstöðum baðst
eindregið undan kjöri sem formað-
ur.
Form. var kjörin mag. Hólmfríð-
ur Jónsdóttir, og meðstjómendur
Þorbjörg Bjarnadóttir, skólastjóri,
Björn H. Jónsson, skólastj., Birg-
ir Finnsson, bæjarfulltrúi, og
Kristján Jónsson frá Garðsstöðum.
Happdræíti Háskóla íslands
Verð happdrættismiða hefur verið tvöfaldað og vinningar
hækkað að sama skapi.
Á þessu ári eru 10.000 vinningar, samtals 13.440.000 krónur.
Hæztu vinningar y2 miljón krónur.
Enginn vinningur lægri en 1000 krónur.
Umboðið hefur nú fengið viðbót af heilmiðum. Einnig eru til
sölu hálfmiðar og fjórðungsmiðar.
Viðskiptamenn hafa forkaupsrétt að miðum sínum til
14. janúar.
Dregið í 1. flokki 21. janúar.
Hæzti vinningur í 1. flokki 5Ó0.000 krónur.
Umboð Happdrættis Háskóla Islands
A\WTf*TWTrjrfgJ
JÓKAS AR TÓMA8 8 0NAR<
TEIKNUN
ÍSFIRÐINGAR — VESTFIRÐIN G AR
TEllíNA HÚS OG INNIiÉ T TIN GAH
JENS SUMAKLIÐASON
ASalstræti 22' - IsafirSi.
ÞAKKARÁVARP
Hjartans þakklæti færi ég hér með félögum minum í Vöru-
bílstjórafélagi ísafjarðar, fyrir rausnarlega peningagjöf, er þeir
færðu mér í veikindum mínum nú fyrir jólin. Bið ég Guð að gefa
ykkur aftur af gnægð sinni og launa þegar þið þurfið mest með.
Svo óska ég ykkur góðs og farsæls nýárs með þökk fyrir sam-
veruna á liðnu ári.
Megi gæfa fylgja ykkur í starfi.
Sjúkrahúsi ísafjarðar, 20 desember 1956.
Guðmundur Gúðmundsson.
Tiikpning
Nr. 1/1957.
Athygli smásöluverzlana er hér með vakin á því, að sam-
kvæmt lögum um útflutningssjóð o. fl. frá 22. desember s.l. fell-
ur 2% söluskattur niður í smásölu frá þessum áramótum og er
(Jgert ráð fyrir, að vöruverð lækki, sem því svarar, frá sama tíma.
Reykjavík, 2. janúar 1957.
V erðlagsstj órinn.