Ísfirðingur - 17.05.1957, Síða 5
ISFIRÐINGUR
5
Frá Sundboll ísafjarðar.
Oskammfeilin stjórnaranðstaða.
Forstjóri Sundhallar ísafjarðar,
hr. Gísli Kristjánsson, bað blaðið
fyrir eftirfarandi útdrátt úr bréfi
frá íþróttafulltrúa. Sundhöllin
verður opnuð á ný næstu daga,
eða undir helgina. Hér á eftir fer
svo útdráttur úr bréfi íþróttafull-
trúans:
„Kringum sundlaugar á veggj-
um þeirra ofan vatnsborðs eru
rennur, sem til þessa hafa verið
kallaðar hrákarennur. Rennur
þessar hafa verið álitnar að þjóna
hlutverki hinna gömlu hrákadalla,
enda sézt og heyrist of mikið í ísl.
sundlaugum, að þær eru þannig
notaðar. Sundfólk er við þær
skyrpandi, ræskjandi og snýtandi.
Af því, sem hér að framan var
sagt, verður skiljanleg sú mikla
hætta á gerla- og þar með sýkla-
mengun, sem laugarvatninu staf-
ar frá sundgestum þeim, sem
þannig nota rennurnar.
Heimskunnur sund- og
sundlaugafræðingur Robert J. H.
Kiphuth, sem hér dvaldi 1954,
hrósaði mjög ísl. sundmennt og
sundlaugum — en á einu furðaði
hann sig mjög og hafði orð á því
oft, að við skyldum leyfa baðgest-
um að hrækja og snýta sér í renn-
urnar. Erlendis er þetta ekki leyft,
vegna þeirrar úðunar á gerlum,
sem hætta er á úr vitum baðgesta.
Þurfi þar einhver að hreinsa kok
eða nef, þá fer hann upp úr og
notar þar til gerða vaska, sem
komið er fyrir á stéttum lauganna.
Með því að leyft er að hrækja
í rennurnar, verður að vera út-
rennsli úr þeim niður í skolpleiðsl-
ur. Þetta hefur það í för með sér,
að laugin leikur um rennurnar. Nú
er laugin í Sundhöll ísafjarðar
hringrásarlaug. Sama vatninu er
dælt frá upphitunartæki í laug og
svo til baka. Að morgni er laugin
full af vatni upp að rennubörmum.
Við það, að sundgestur steypir sér
til sunds ryður hann frá sér vatni,
sem rúmmáli hans nemur, auk
þess, sem hann framkallar öldu-
hreyfingu í lauginni, sem hvort-
tveggja leiðir af sér rennsli yfir
brúnir rennunnar niður í skolp-
leiðslur. Eftir því, sem fleiri fara
í laugina og eru þar í einu, eftir
því tapast meira vatn út um nið-
urföll rennanna. Algengt er því að
sjá allt upp í 25 cm. borð á slíkum
laugum að kveldi eða 20—30 tonn
af + 27° C heitu vatni hafi tap-
azt burtu.
Grípi nú forráðamaður laugar-
innar til þess ráðs að láta yfirborð-
ið eigi vera hærra yfirleitt en 20—
25 cm. hæð frá rennubrún, til þess
að eigi renni vatn burtu yfir brún-
irnar, þá viðhelzt og eykst stöð-
ugt sú fitubrák, sem flýtur ofan
á laugarvatninu, en í þessari brák
þrífast gerlarnir.bezt og þessi brák
leikur um andlit þeirra, er synda.
Með því að banna sundgestum að
hrækja eða snýta sér í rennurnar
og tengja frárennsli þeirra við
hreinsitækin þá vinnst þetta
þrennt, til enn meira hreinlætis
fyrir baðgestina:
1) minni úðun frá vitum bað-
gesta í laugarvatnið,
2) heitt vatn, sem er dýrt að
hita upp, tapast eigi burt,
3) ofan af lauginni er fleytt
fitubrák, sem mest er megnuð
gerlum.
Þessu fyrirkomulagi — bannað
að hrækja og snýta sér í rennur —
hefur verið komið við í Sundlaug
Akureyrar og Sundhöll Hafnar-
f jarðar. Er það álit fólks á báðum
þessum stöðum, að hreinlæti og
vistleiki lauganna hafi aukizt og
að enginn kvarti undan því að
þurfa að fara upp úr laug, ef hann
þarf að hrækja eða snýta sér. All-
ir hafi við athugun talið þetta
sjálfsagða endurbót. Unnið er nú
að því að koma þessu fyrirkomu-
lagi á við sem flestar ísl. laugar,
t. d. mun þetta fyrirkomulag verða
tekið upp í Sundhöll Búðakauptúns
nú þessa dagana.
Nú þegar Sundhöll Isafjarðar
verður opnuð aftur að lokinni hinni
myndarlegu endurbót, þá tel ég
rétt og nauðsynlegt, að þetta fyr-
irkomulag verði viðhaft.“
Skuoga-Sveinn.
U.M.F.B. sýndi leikritið Skugga-
Svein í Alþýðuhúsinu hér í bænum
þriðjudags- og miðvikudags kvöld
s.l. Bolvíkingar eru framtakssamir
um leiksýningar, og þeir virðast
hafa á að skipa góðum leikkröft-
um. Þessar sýningar á Skugga-
Sveini fóru leikendum yfirleitt vel
úr hendi. Aðalhlutverkið leikur
Guðmundur Eyjólfsson, sjómaður,
en hann mun hafa farið með hlut-
verk Skugga-Sveins 60—70 sinnum
og jafnan gert því hin beztu skil.
Öllum hugsandi mönnum, einn-
ig úr flokki sjálfstæðismanna,
hefur verið það næsta torraðin
gáta, hvernig stjórnarandstaða
Sjálfstæðisflokksins hefur verið í
framkvæmdinni síðan núverandi
stjórn tók við völdum.
1 blaðinu Tíminn frá 3. þ.m. er
í leiðara vikið að þessu efni á
hógværan hátt undir fyrirsögn-
inni: „Megineinkenni stjórnarand-
stöðunnar" Fer umrædd grein hér
á eftir:
„Sjálfstæðisflokkurinn er nú
búinn að vera þrjá ársfjórðunga
í stjórnarandstöðu. Ef menn virða
fyrir sér störf hans á þessum tíma,
koma þrjú höfuðeinkenni glöggt í
ljós. Þau eru:
Flokkurinn hefur ekki beitt sér
fyrir neinu jákvæðu málefni og
ekki bent á nein jákvæð úrræði
í þeim málum, sem nú eru næstu
vandamál þjóðarinnar, efnahags-
málunum. Það eina, sem hann hef-
ur gert í þeim efnum, er að halda
uppi algerlega neikvæðum áróðri
um ráðstafanir ríkisstjórnarinnar.
Flokkurinn hóf stjórnarandstöðu
sína með því að reyna að spilla
fyrir ríkisstjórninni með ósönnum
fréttasendingum úr landi. Þessu
hefur flokkurinn haldið áfram síð-
an og er nú upplýst, að forkólfar
hans hafa gert allt, sem þeir hafa
getað, til þess að spilla fyrir því
vestanhafs að lán fengist til nýju
Sogsvirkjunarinnar.
Flokkurinn hefur reynt að ýta
undir nýja verðbólgu eftir megni.
Hann hefur látið iðnrekendur
bjóða fram kauphækkun á sama
tíma og þeir kvarta mjög undan
bágri afkomu iðnaðarins. Hann
fagnar sérhverri uppsögn á kaup-
samningum í blöðum sínum. Hann
deilir jafnframt hart á verðlags-
yfirvöldin fyrir að leyfa ekki
meiri verðhækkanir. Takmark hans
er bersýnilega það að reyna að
koma nýrri kauphækkunar- og
verðhækkunarskriðu af stað.
Þegar athuguð eru þessi megin-
einkenni á stjórnarandstöðu Sjálf-
stæðisflokksins, getur áreiðanlega
ekki hjá því farið, að menn sjái
hve fullkomlega ábyrgðarlaus hún
er. Hún er eins og miðuð við það
að skapa þjóðinni áföll og erfið-
leika, eins og hlotist hefði af því,
ef lánið til Sogsvirkjunarinnar
hefði ekki fengist, eða hljótast
myndi af því, ef ný kaup- og verð-
hækkunarskriða færi af stað. Hér
er ekki hugsað neitt um þjóðar-
hagsmuni, heldur það eitt að valda
ríkisstjórninni erfiðleikum. ef það
markmið næst, er allt í lagi, þótt
þjóðin verði fyrir tjóni.
Forkólfar Sjálfstæðisflokksins
hafa það sér ekki til afsökunar, að
þeir viti ekki hvað þeir eru að
gera. Engum er ljósara en þeim,
sem hafa árum saman reynt á-
rangurslaust að fá lán til Sogs-
virkjunarinnar, hvaða erfiðleikum
það hefði valdið, ef þetta lán hefði
ekki fengist hú. Skrif þeirra um
verkfallið 1955 og afleiðingar þess,
eru ótvíræð sönnun þess, að þeir
vita vel, hvaða afleiðingar kaup-
hækkanir hefðu nú fyrir atvinnu-
vegina, og hvað þýðingarlausar
þær væru til að bæta afkomu laun-
þega.
Það, sem hefur stjórnað þessum
ábyrgðarlausu gerðum Sjálfstæðis-
flokkssins, er hatrið á stjórninni
og vonin um það, að þeir gætu
knúið fram stjórnarskipti, ef þeim
tækist að gera nógu mikið til bölv-
unar. En forkólfar Sjálfstæðis-
flokksins fara hér villtir vegar.
Þeir vinna sjálfum sér mest tjón
með þessum vinnubrögðum, því að
allt hugsandi og sanngjarnt fólk
fær andúð á þeim fyrir óbilgirni
þeirra og ábyrgðarleysi. Því meira,
sem þeir gera af slíkum verkum,
því ljósari verður líka nauðsyn
þess, að treysta núverandi stjóm-
arsamstarf og skapa því sem
traustastan framtíðargrundvöll.
Með þessari framkomu sinni
treysta forkólfar Sjálfstæðis-
flokksins ríkisstjórnina í sessi, sem
ekki er aðlasta, þótt tilgangurinn
sé raunar allt annar.
Forkólfar Sjálfstæðisflokksins
ættu vissulega að fara að hugsa
ráð sitt betur og láta ekki alveg
stjórnast af reiðinni yfir því að
hafa misst ráðherrastólana. Þeir
eiga langa stjórnarandsstöðu fyrir
höndum og því lengri, sem þeir
haga sér lengur á þann hátt, sem
þeir hafa gert að undanförnu.
Þéir verða að leitast við að gera
sér ljóst það hlutskipti og haga
sér samkvæmt því.“
—oOo—
Tilhynning.
Með tilvísun til laga og reglugerðar um iðnfræðslu þykir rétt
að prófnefndir í umdæmi Iðnfulltrúans á Vesturlandi hafi þann
hátt á, að taka eigi nemendur til prófs, fyrr en þær hafa lagt
fyrir fulltrúann skjöl þau, er fylgja skulu prófbeiðni.
Að gefnu tilefni skal þeim, sem hlut eiga áð máli, bent á, að
umsóknir um iðnnám skal senda til iðnfulltrúa.
Samningar skulu síðan sendir honum til staðfestingar áður
en mánuður er liðinn af námstíma.
ísafirði, 30. marz 1957.
Iðnfultrúinn á Vesturlandi,
Daníel Kristjánsson.