Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1969, Qupperneq 4

Ísfirðingur - 15.12.1969, Qupperneq 4
4 ÍSFIRÐINGUR Maðurinn Jesús Eivind Berggrav er einn a£ fremstu mönnum kirkjunnar í Noregi á þessari öld. Hann fæddist árið 1884, var á yngri árum lýðskólakennari en jafníramt ritstjóri að kirkjulegu riti en byrjaði prestskap 1918 og var í þjónustu kirkjunnar upp frá því. Hann var um skeið fangelsisprestur, varð doktor í guðfræði og heiðursdoktor við háskólann í Limdi, síðar biskup á Hálogalandi og loks í Osló. Eivind Berggrav skrifaði margar bækur xun kirkjuleg mál- efni og fleira. Á íslenzku er til eftir hann bókin Hálogaland. Auk þess voru um skeið kenndar í bamaskólum hér biblíu- sögur eftir hann, en þróun í kennslubókagjörð er harla ör hér á landi svo að þeirra tíð er víst liðin. Ein af bókum Berggravs heitir Maðurinn Jesús. Það er ætlunin að minna á lxana með þessari grein og segja örlítið frá henni. Smá kaflar verða þýddir og annað endursagt, en auðvitað verður hér þó ekki um annað að ræða en ágrip af vissum þáttum bókarinnar. Samt er vonandi að þetta kynni að geta leitt huga einhvers á þær slóðir, sem ekki eru óviðeigandi á jólum. Sérhver á sinn eigin Jesús. Sé ekki svo á hann engan Jesús. Þær myndir, sem við sáum af honum í bernsku, festa hjá okkur þær hugmynd ir að til sé ákveðin mynd af honum og þá hugsum við síður um það, að við eigum hver fyrir sig að skapa okkar mynd. Við heyrum það sem sagt er og kennt er um hann og loks höfum við svo ein- kennisklæddan Jesús, sem á að vera hinn viðurkenndi Jes- ús. Á þennan hátt þurrkast margir einkennandi drættir út. Það myndast bil milli hans og okkar. Það er ekki undarlegt að kaþólska kirkjan hefur fundið þörf á að hafa milliliði milli Krists og manna. Menn hafa ekki þorað eða kunnað að koma beint til hans. Evangeliskur kristin- dómur hefur framar öllu öðru reymt að halda fast við það, að, orðið varð „hold.“ Við höfum hins vegar haft til- hneigingu til að láta holdið verða orð. í umræðum um orðin hefur svo Jesús horfið mörgum. Sú mynd, sem á liðnum öldum hefur verið teiknuð fyrir okkur og mótast hefur af hugmyndum listamannanna og kenningum guðfræðing- anna, hefur verið gerð svo himnesk sem mest mátti verða. Hið himneska átti að vera sem fjarlægast veruleik- anum. Þannig hefur eitthvað óljóst og almennt komist inn í Jesúmyndina. Hann átti ekki að líkjast öðrum mönnum. Því var hann oft teiknaður með óljósan og óákveðinn H. Kr. svip. Hann varð enginn mað- ur. Auk þess fannst mörgum að alltaf yrði að sýna hann með þjáningarsvip harmþrung ið andlit, sem gjaman vakti hugsun um þreyttan mann. Sem betur fer getur enginn teiknað „réttu“ myndina af Jesú. Einn er sá staður þar sem við getum fundið hann svo að mynd hans speglast í huga okkar. Það eru guð- spjöllin. Oft er talað um fjórða guðspjallið sem óná- kvæmara en hin þrjú. Það er af því að Jóhannes birtir okk- ur Jesúmyndina eins og hún speglaðist í huga hans. Það er sem gerir fjórða guðspjall- ið svo dýrmætt og kært mörg um. En hinir guðspjallamenn- irnir þrír gera meiri kröfur til okkar. Þeir sýna okkur drættina, segja frá orðum og atvikum en þegja um þau á- hrif sem þeir verða fyrir af þeim. Með því að lesa þessi guðspjöll geta menn fengið sína eigin Jesúmynd. Það er ekki eina rétta myndin, sem ég fæ þannig, en það er mín mynd, eins og hugsun mín, reynsla, þrár og langanir taka við henni. Það er slík spegilmynd af Jesú, sem hér er stefnt að, Ég hef lesið sögurnar um hann með þessa almennu spurningu í huga. Hvernig var hann eiginlega? Það er ekki til að gefa öðrum á- kveðna Jesúmynd að ég reyni þetta, fremur til þess að þeir reyni þá að búa til sína eigin mynd. Jesúmyndin verður aldrei fullgerð, aldrei tilbúin að festast í ramma. Hún mót- ast af lifandi kynningu sem verður ný og auðugri við aukna lífsreynslu. Ég vildi ekki gera hér neina tilfinningamynd. Ég hef reynt að sjá skapgerð hans og eigin leika eins og reynt er að skilja sálarlíf sögulegra per- sóna. Skemmtilegast hefði ver ið ef hægt væri að fá t.d. gáfaðan og glöggan japana, sem ekki væri kristinn og segja við hann: „Viltu vera svo góður að lesa þessar frá- sagnir og segja okkur svo. Hvemig var þessi maður, maðurinn Jesús, hvaða drætt- ir eru það sem móta persónu- leika hans?“ Þannig hlutlaus athugun þess, sem stendur utan við, er naumast möguleg nokkr- um, sem upp er alinn í hinni kristnu Evrópu. Vísindamenn þeir, sem hafa reynt að kveða upp svokall- aðan hlutlausan dóm hafa allir, án þess að vita það, verið undir áhrifum eigin óska og samúðar. ★ Jesús var gáfaður ungling- ur. Það var eitt það fyrsta sem þeir tóku eftir, sem hon- um voru nánastir og reyndar eini eiginleikinn sem beinlínis er sagt frá í guðspjöllunum. Þeir urðu undrandi gömlu fræðimennirnir í Jerúsalem, þegar þessi unglingur stóð fyrst frammi fyrir þeim í musterinu og talaði við þá. Og það er sagt berum orðum að hann hafi vaxið að vizku eftir því sem hann eltist. Þó við tölum um vizku og speki Jesús á það ekki skylt við venjulega heims- speki. Ef til vill skiljum við bezt hvað vitur hann var ef við lítum á hann sem mót- setningu venjulegrar heims- speki. Þjóðverjar sem átt hafa margt heimsspekinga, eiga sér snjallt orðatiltæki um þá. Heimsspekingamir, segja þeir, eru menn, sem komast að þeirri niðurstöðu að gátur lífsins séu óleysanlegar. Það eru sem sé menn, sem reikna og reikna reikningsdæmi lífs- ins án þess að finna nokkra úrlausn. Gætu þeir leyst dæm ið hefðu þeir þar með tapað réttinum til að vera heims- spekingar í augum heimsins. Jesús var ekki svo. Hann talaði ekki óljóst. Orð hans voru sem leiðaimerki, — eins og blossandi viti á heiðarauðn um mannlífsins. Þegar hann kveikti þessi ljós notaði hann líkingar úr mannlífinu. Við skynjum vizku hans fyrst þar sem við sjáum hvað eftirtekt hans var glögg. Þar hefur hann líka sérstöðu frá almennum spekingum og hugsuðum. Þeir hafa oft tak- markaðan sjóndeildarhring og hættir einkum við að fjar- lægjast daglegt líf og meira eða minna svífa utan og ofan við hversdagslegt mannlíf. Það er eins og slíkir sjái að- eins í fjarska en ekki það, sem er fyrir fótum þeirra. Enginn getur sagt, að Jesús sæi ekki langt fram. Því merkilegra er hversu glöggt auga hans var fyrir því öllu sem lá fyrir fótum hans. Skrif uð stendur lítil, skemmtileg athugasemd frá fyrstu komu hans í musterið sem fulltíða manns. Það er sagt að hann hafi litið yfir allt. Enginn hafði eftirtekt á við hann. Okkur myndi ekki bregða þó að hann, sem sá alla til- veruna í átökum milli lífs og dauða og skynjaði hlutverk sjálfs sín og alvöru þess svo glöggt og var auk þess ó- þreytandi að vara mennina við því að glepjast ekki af smámunum og hégóma — þó að hann hefði verið óskyggn á venjulegt starf venjulegra manna. tn hvort heldur um er að ræða hversdagslegt mannlíf eða náttúruna finnum við, að hann hefur tekið eftir öllu. Hann hefur af allri sálu tekið þátt í hversdagslegu lífi. Það sjáum við af því efni sem hann sótti þangað til að kveikja leiðarljósin fyrir göngu mannanna frá hversdagsleikanum til guðs- ríkisins. Við megum ekki gleyma því að hann var þrjátíu ára gam- all þegar hann fór að heiman. Þá hefur hann allt frá þeim aldri, sem við köllum ferming araldur verið sá, sem bar heimilið uppi og kom móður sinni í stað heimilisföður. Það er athyglisvert, að jafn vel maður eins og Grundtvig freistast til að breiða sunnu dagsljóma yfir bemskuheimili Jesú þegar hann ræðir um það. Þar var allt svo fínt og eins og í brúðuskáp og átti sér engan líka. Að svo miklu leyti, sem við getum gert okkur nokkra hug mynd um þetta heimili, er samleikurinn þveröfugur við þetta. Það hefur verið eins og heimili ótal annarra. Hvemig átti það að geta haldist eins Vestfirðingar! Vér óskum yður gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Vér þökkum fyrir hin góðu og vaxandi viðskipti við Vestfirðinga þetta ár. Laugavegi 26, Reykjavík Sími 22900.

x

Ísfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.