Ísfirðingur - 15.12.1969, Blaðsíða 7
ÍSFIRÐINGUR
7
með afbrigðum vinsælir og
áttu ófáa aðdáendur. Það var
mikils virði í einangrun og
fámenni að hlíða á raddir
þeirra flytja fréttir og tíðindi
úr fjarlægðinni.
Margt það efni, sem út-
varpið flutti laðaði mjög
'hugi almennings. Má þar til-
nefna flutning Helga Hjör-
vars á útvarpssögunum. Svo
sem „Gróðri jarðar", „Krist-
ínu Lavransdóttur“ og
„Katrínu". Að ógleymdum
„Bör Börssyni". En lestur og
málsnild Helga, á þeim verk-
um, sem hann flutti voru
með slíkum ágætum að þjóð-
frægt varð.
Upphaf þáttanna um dag-
inn og veginn í höndum
þeirra Jóns Eyþórssonar og
Vilhjálms Þ. Gíslasonar veittu
hlustendum ógleymanlegar á-
nægjustundir. Mætti fleira
telja til svo sem flutning
söngs og hljóðfæraleiks.
Útvarpið náði þannig til-
gangi sínum, sem þjóðleg
menningarstofnun. Vitanlega
mætti útvarpið gagnrýni eins
og aðrar fjölmiðlunarstofnan-
ir.
Nú líður að jólum. Allsstað-
ar stendur undirbúningur jól-
anna fyrir dyrum.
Ungir sem aldnir fagna
komu þessarar ljóssins hátíð-
ar. Hjá hinum eldri endur-
óma strengir ljúfra minninga.
Tilfinning, sem liggur dulin
í hugarfylgsnum, við annir
hins daglega lífs leysist úr
læðingi, lundin verður léttari
og hugurinn mildari þannig
tökum við hin eldri þátt í
hreinni tilhlökkun og jóla-
gleði bamanna.
Brosandi bam með jólaljós,
túlkar þjóðskáldið Matthías
Jockumsson svo fagurlega í
kvæði sínu „Fullvel man ég
50 ára jól“. Og þegar skáld-
ið segir: Aldrei skyn né skil-
ningskraftur minn, skyldi bet
ur jólaboðskapinn", birtist
það ljóslega hvernig góð móð-
ir fær mótað helgiboðskap
jólanna í hjörtu bama sinna,
að þau beri gæfu til að láta
þann vita lýsa úr djúpi sálar
sinnar á vegferð lífsins.
Mætti boðskapur jólahátíð-
arinnar veita frið um gjör-
valla jörð.
MAGNOS FRÁ SKÓGI:
Jól við Norðurpól
Klukkur hringja, krakkar syngja
komin eru j ó 1,
liátið hátíðanna,
hátíð ljóss og fanna
nyrzt við Norðurpól.
Jólagjafir jafnan hafa
jólageðið kætt,
gjafir höfum hlotið,
helgrar gleði notið:
Barn er börnum fætt.
Jólastjarnan, Jesúbarnið,
jatan, Betlehem
fyrir sjónum svífa,
sýnir hugann hrífa:
Ég til Jesú kem.
Elskan tærust, skinið skærast
skín oss honum hjá,
þar er ljúft að læra,
lindir andans næra,
leiðsögn lífsins fá.
snjór, skídi og
HEKLU
peysuti
Hraðfrystihús Tálknafjarðar SVEINSEYRI Framleiðum úr beztu fáanlegum hráefnum:
★ Öskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla árs og friðar, og þökkum jafnframt HÖRPUSILKI, innan- og utanhúss- málningu í mörgum og fögrum litum. HARPÓ, ryðvarnarmálningu. JAPANLAKK, í mörgum litum. HARPÓLÍN, innanhúss- og olíumálningu. BÍLA- og VÉLALÖKK, í mörgum litum. SKIP AMÁLNIN GU.
samstarf og viðskipti
á líðandi ári. FÆST UM LAND ALLT.
★ HRAÐFRYSTIHÚS TÁLKNAFJARÐAR Harpa hf. REYKJAVlK.