Ísfirðingur - 15.12.1969, Qupperneq 15
ÍSFIRÐINGUR
15
Úr
sókna-
lýsingum
1 SóknalýsingumVestfjarða
segir svo m.a. um Selárdals-
sókn og Selárdal:
„Selárdalssókn liggur vest-
an fram yst í Amarfirði. Á
suðaustursíðuna, eður að inn
anverðu, nær hún til Otradals
sóknar og skilst frá henni af
kletti þeim á Galtarfjörum,
sem nær úr fjailshlíð og fram
í fjöru. Hann er hér um 9
álnir á hæð og kallast al-
mennt Göltur. Á suðvestur-
síðuna takmarkast sóknin af
fjallgarði þeim, er aðskilur
Arnarfjörð og Tálknafjörð. Á
vestursíðuna og norðvestursíð
una liggur hún út með firð-
inum og kringum Kópanes og
nær vestur að Kálfadalsá"....
„... 1 Skandanum, sunnan
til við Skandadal, er hellir
lítill upp í fjalli, sem færustu
fjallgöngumenn geta ekki að
komist. Mælt er, að skessa sú,
er glímdi við Árumkára, hafi
haft þar hýbýli, þá hún hvíld-
ist.“ ...
„ ... Hér fiskast þorskur,
steinbítur, ýsa, skata, hrogn-
kelsi og heilagfiski, bæði á
haldfæri og smáönglalóðir,
hrognkelsi í þráðarnetum. Lit
il sem engin selveiði. En
refar eru talsvert drepnir með
byssuskotum og hundum.
Veiðistöðvar era ein í Kópa-
vík og svo í Ystadal og Mið-
dal á vorin, en á haustin hafa
flestir heimræði, því fiskimið
liggja í firðinum fram und-
an hverjum bæ, og eru þá
allstaðar lagðar lóðir. Nóta-
lagnir eru engar, en net eru
lögð á vorin, bæði í veiði-
stöðunum og heima, nema í
Kópavík, sem heita má aflögð,
og þar er ekki brúkað utan
Kirkjustaðurinn Selárdalur í Arnarfirði
(Ljósm.: Jón Páll Halldórsson)
haldfæri. í Krossavík er og
vorveiðistaða.
Stundaðar era fiskveiðar
hér frá sumarmálum þar til
12 vikur eru af sumri, með
haldfæri á haf út, en lóðum
í firðinum. Á haustin frá
Mikaelsmessu til jólaföstu
einasta með lóðir, og má með
sanni segja, að veiðum fer
fram“....
. .. „Innivinna á vetrum
er ullartóvinna, einkanlega
til vaðmála. Útivinna að hirða
um kýr og sauðfénað og ann-
ast hvað annað nauðsynlegt.
Á vorin að hirða og þrífa tún
og fiskiföng.
Sláttur byrjast almennt um
13. viku sumars og endast 21
viku af sumri“ . ..
... „Engin innlend með-
öl hefur almúgi hér við sjúk-
dómum, utan blávatn, grasa-
vatn, blóðberjavatn, seyði af
æruprís og rjúpnalaufi.“ ...
. .. „Steinn stendur hér í
Selárdal, mitt á milli kirkju.
og bæjardyra, líklega höggv-
inn, kantaður. 1 hann eru, án
efa, klappaðar þrjár holur lík
ar bollum. Tekur hver þeirra
hér um bil hálfan pott. Sagt
er, að Árumkári hafi borið
hann heim í kápulafi sínu ...“
... „Selárdalur er á hæð
nokkurri neðar en í miðjum
dal, norðanmegin árinnar, er
Selá heitir, og rennur eftir
miðjum dalnum til sjóar. Bak
við bæjinn er Selárdalsfjall,
bein, brött og klettótt og í
skriðum framhlaupin fjalls-
hlíð. Heitir fjallið Staðarfjall,
og nær það fram að Skanda-
dalsskarði í útnorður úr Selár
dal.
„Kvikfjárrækt og
sjávarafli eru helztu bjarg-
ræðisvegir." ...
... „Til skemmtunar hafa
menn vinnuna og að lesa blöð
og búnaðarrit og fleiri fræði-
bækur, en helzt fornsögur-
nar“....
(Það, sem hér að ofan er
birt, er skráð af prestunum
Einari Gíslasyni, sem var
prestur í Selárdal 1829 — 64
og Benedikt Þórðarsyni, sem
var prestur í Selárdal 1863
til 1873.)
□
Sérkennilegur steinn í Selárdal. (sjá að ofan).
(Ljósm.: Jón Páll Halldórsson)
rr$^*^=3 r=$^*^=a
Iðkiö böð og sund. Það eykur vellíðan
og lengir lífið
GLEÐllFG JÓL! FARSÆLT NÝTT ÁR!
Þökkurh vioskiptrn á líðandi ári.
SUNDHÖLL ISAFJARÐAR
tfiamsóhu.alj)éla<j Hsfy'ibincja Oj
i iélatj unjla t'iamsólzna'iniaiMa
ÍSAFIRÐI
| óska Yestfirðingum og öðrum
| gleðilegra jóla og hamingjuríks
í komandi árs.
4' -»' IB,
lCjöÚœmissamiani ttamsóínalmatma
í Ves^jaiíalzjöíicemi
óskar öllum íbúum kjördæmisins
gleðilegra jóla og gæfuríks
komandi árs.
V
i
i
i
Í
i
i
i
i