Morgunblaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is BÆÐI myntkörfulánamálin munu fara fyrir Hæstarétt en fyrri dómn- um hefur þegar verið áfrýjað og að sögn Halldórs Jörgenssonar, for- stjóra Lýsingar, verður nýlegri dómnum einnig áfrýjað en í honum varð niðurstaðan að gengistrygging láns Lýsingar væri óheimil. Hæstiréttur hefur áður dæmt í málum þar sem deilt var um lögmæti gengistryggingar fjárskuldbindinga og var hún þá talin óheimil. Var það í tíð eldri laga en ekki hefur orðið efn- isleg breyting á lögunum hvað þetta varðar. Í greinargerð með núgildandi lög- um segir að það sé „ekki heimilt að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við dagsgengi erlendra gjald- miðla.“ Fyrir héraðsdómi var deilt um hvort lögin sjálf væru skýr hvað þetta varðar og hvort viðskiptin hefðu í raun verið í erlendri mynt vegna tengingar þeirra við gengi erlendra gjaldmiðla þó að allar greiðslur hefðu verið í ís- lenskum krónum. Ólíkar niðurstöður í héraði Í dómi hinn 12. febrúar síðastliðinn komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að óskýrleika lána- samnings um hvort lánaður væri er- lendur gjaldeyrir yrði að skýra Lýs- ingu í óhag þar sem fyrirtækið hefði yfir að búa sérþekkingu á lána- viðskiptum. Til grundvallar yrði að leggja að lánið væri veitt í íslenskum krónum og lög um vexti og verð- tryggingu tækju því til lánsins og þau girtu fyrir gengistryggingu. Þó var ekki fallist á að lánasamningurinn teldist ógildur í heild sinni. Í desember féll dómur fyrir sama dómstóli þar sem ekki var talið and- stætt lögum að gengistryggja lán með þessum hætti. Var þar á því byggt að ákvæði laga um vexti og verðtryggingu væru ekki fortakslaus um þetta efni. Þá var talið að um hefði verið að ræða lán í erlendri mynt og að lög stæðu ekki í vegi fyrir að skuldari greiddi sömu upphæð og hann fékk að láni í erlendum gjald- miðli þrátt fyrir gengisbreytingar. Bæði málin snúast um kaupleigu- samninga um bifreiðir og eru þau samkynja að mati Björns Þorra Vikt- orssonar, verjanda lántakandans í málinu frá í desember. Hann telur því að Hæstiréttur muni komast að sam- bærilegri niðurstöðu í þeim. Samningunum breytt eftir á? Í eldri dómum hefur Hæstiréttur brugðið á það ráð að fella niður verð- tryggingarákvæði gerðra samninga sem ekki voru talin standast lög. Í þessum málum var um að ræða skammtímaskuldbindingar en kaup- leigusamningarnir sem nú eru til skoðunar eru til fjögurra og sjö ára. Fari svo að gengistrygging mynt- körfulána verði dæmd ólögleg og langtímasamningar gerðir óverð- tryggðir með öllu getur það komið mjög illa við lánveitendur. Til að sporna við þessu kemur til greina að dómstólar beiti heimild 36. gr. samningalaga og breyti ákvæðum samninganna. Í ljósi þess að ætlunin var upphaflega að verðtryggja láns- féð og mjög hæpið verður að telja að lántaki hefði nokkurn tíma fengið lán- ið óverðtryggt hlyti að teljast eðlilegt að verðtryggja það á grundvelli vísi- tölu neysluverðs svo sem heimilað er í lögum um vexti og verðtryggingu. Morgunblaðið/Ómar Bílalán Mörg myntkörfulán voru tekin til að fjármagna bílakaup fyrir bankahrun en hafa síðan rokið upp úr öllu valdi. Myntkörfur í Hæstarétt  Tveir ólíkir héraðsdómar um gengistryggð bílalán hafa fallið með stuttu millibili  Lögmæti verðtryggðra lána óljóst  Báðum málunum áfrýjað til Hæstaréttar Tveir dómar hafa fallið í Héraðs- dómi Reykjavíkur um lögmæti svonefndra myntkörfulána. Nið- urstöðurnar eru hvor á sinn veg- inn, í fyrra málinu voru þau talin lögmæt en ólögmæt í því seinna. Morgunblaðið/Kristinn „MÖNNUM hef- ur aldrei verið heimilt að búa til sinn eigin verð- tryggingargrunn og Hæstiréttur hefur staðfest það,“ segir Ey- vindur G. Gunn- arsson, lektor við lagadeild HÍ, og kveður gengis- tryggingu myntkörfulána fela í sér slíkan tilbúinn grunn. Hann segir að með hliðsjón af fordæmum séu líkur á að hún verði dæmd ólögleg í Hæstarétti. „Það er enginn vafi um það að gengistrygging er ólögmætt fyrir- bæri,“ segir Eyvindur en bætir við að niðurstaðan ráðist af því hvort lánin teljist í erlendri mynt eða ekki þar sem ekkert í lögum banni slík lán þó gengistrygging lána í ís- lenskum krónum sé ólögleg. Eyvindur fjallar ítarlega um gengistryggð lán og verðtryggingu í grein í Úlfljóti, tímariti laganema við HÍ, sem út kom í byrjun febrúar. Ólöglegt að gengistryggja Eyvindur G. Gunnarsson 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010 „ÉG HELD að það blasi nú við að það yrðu ekki góðar fréttir fyr- ir fjármögn- unarfyrirtækin,“ segir Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra um áhrif þess að Hæstiréttur stað- festi seinni dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og taldi gengistryggingu lána óheimila. Gylfi segir þessi mál aðallega snerta fjármögnunarfyrirtækin en þess megi vænta að svipuð mál verði höfðuð gegn bönkunum verði dómurinn staðfestur. Þeir hafi þó bolmagn til að takast á við óhag- stæðar niðurstöður slíkra mála þar sem reiknað hafi verið með nokk- urri óvissu um heimtur af eignum og kröfum. „Þetta hefur áhrif á það sem stjórnvöld eru að gera með ýmsum hætti,“ segir Gylfi. Hann segir mál- ið í skoðun hjá stjórnvöldum og fylgst sé með því en hyggur að sér- stakar aðgerðir séu ekki tímabærar fyrr en endanleg niðurstaða liggi fyrir. Væntir mála gegn bönkunum Stjórnvöld bíða dóms Hæstaréttar í málinu Gylfi Magnússon Friðrik Ó. Frið- riksson, formað- ur Hagsmuna- samtaka heimilanna, er ánægður með dóm héraðsdóms í máli Lýsingar. Hann segir að staðfesti Hæsti- réttur dóminn geti það komið sér vel fyrir heimilin í landinu sem mörg þurfa nú að eiga við gengis- tryggð lán sem hækkuðu mjög við bankahrunið. Þá segir hann brýnt að nauðungarsölum verði frestað þar til óvissu um lögmæti gengis- tryggðra lána sé eytt. Friðrik segir samtökin vara fólk við því að fallast á skilmálabreyt- ingar á gengistryggðum lánum áð- ur en endanleg niðurstaða fæst. Að minnsta kosti skuli fólk halda til haga fyrirvörum um mögulegan betri rétt sinn að gengnum dómi. Heimilin nytu góðs af staðfestingu Friðrik Ó. Friðriksson Hver er lagagrundvöllur verð- og gengistryggingar? 13. og 14. gr. laga 38/2001 um vexti og verðtryggingu heimila, að spari- og lánsfé í íslenskum krónum sé verðtryggt á grundvelli vísitölu neysluverðs. Deilt er um hvort ann- ars konar verðtrygging sé heimil. Hvað felur 36. gr. sml. í sér? Með 36. gr. laga 7/1936 um samn- ingsgerð, umboð og ógilda löggern- inga (sml.) er veitt heimild til að víkja löggerningi til hliðar í heild eða að hluta og breyta honum ef það telst ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hann fyrir sig. Hvað er gengistrygging? Verðtrygging felst í því að verð- gildi peninga er tengt við vísitölu eða gengi. Gengistrygging er ein tegund verðtryggingar og felst í því að miða fjárskuldbindingar í íslenskum krón- um við gengi erlendra gjaldmiðla. Af- borganir af gengistryggðum lánum sveiflast þannig í takt við gengis- breytingar þeirra gjaldmiðla sem virði lánsfjárins er tengt við. S&S HAGSMUNASAMTÖK íbúa á Álftanesi voru stofnuð í gærkvöldi á borgarafundi í íþróttahúsi bæjarins. Um hundrað manns sóttu fundinn. Brynja Guðmundsdóttir, forsvars- maður samtakanna, sem tók þátt í undirbúningi fundarins segir að samtökin séu algerlega þverpólitísk og sé ætlað að virkja kraft og hug- myndir íbúanna á jákvæðan hátt til þess að tryggja lífsgæði þeirra og mannréttindi. Það sé verið að tala um að hækka útsvar og fast- eignaskatta og skera niður alla þjónustu. Samtökin vilji koma að málum til að viðhalda sambærilegri þjónustu á sama verði og í ná- grannasveitarfélögum. „Við erum að taka á okkur tvöfalt bankahrun. Það er verið að hækka á okkur álögur frá ríkinu vegna hruns Íslands. Svo erum við að taka til viðbótar hrun Álftaness. Okkur finnst þetta vera komið nóg.“ Fundað aftur að viku liðinni Brynja segir að hin nýstofnuðu samtök vilji fá fulltrúa til að hitta og ræða við rannsóknarnefnd Ríkis- endurskoðunar, fjárhaldsstjórnina sem fer með fjárhag sveitarfé- lagsins og Samband sveitarfélaga. Þá vilji þau virka sem málpípa til að miðla upplýsingum á milli sam- félagsins og bæjaryfirvalda. Fyrstu mál á dagskrá samtak- anna verða að senda yfirlýsingu til ráðamanna og safna undirskriftum íbúa sveitarfélagsins á mánudag og þriðjudag. Um næstu helgi verður svo fundað aftur þar sem vinnuhóp- ar verða myndaðir til að ræða hin ýmsu málefni. Þá stendur til að kjósa stjórn samtakanna á fund- inum um næstu helgi. kjartan@mbl.is „Tökum á okkur tvöfalt bankahrun“ Kraftur Álftnesinga virkjaður Morgunblaðið/Ómar Vandi Álftanes á í kröggum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.