Morgunblaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir ríkisstjórnina ekkert
geta gert í því þótt bankarnir veiti
sérstaka fyrirgreiðslu nokkrum ein-
staklingum sem skulda en ætla ekki
að greiða tugi eða hundruð millj-
arða króna. Þetta kom fram á at-
hyglisverðum blaðamannafundi fyr-
ir helgi.
Forsætisráð-
herra telur að
þeir menn sem
eru í þessari
stöðu eigi „að sjá
sóma sinn í“ að
víkja til hliðar á
meðan mál
þeirra séu rann-
sökuð en hún
segist sjálf ekki
geta hlutast til
um að neitt sé gert. Hún er að vísu
forsætisráðherra með þingmeiri-
hluta á bak við sig en alveg áhrifa-
laus.
Spurð um þetta segir hún að það séu
„bæði eftirlitsnefnd, bankasýsla og
bankastjórn sem eiga að sjá um
þetta,“ og bætir því að við rík-
isstjórnin hafi fyrst og fremst verið
að vinna að því að hér sé „fullkomið
gegnsæi að því er varðar bankana
og jafnræði milli aðila og það er
fyrst og fremst okkar hlutverk“.
Þá var hún spurð hvað henni þætti
þegar „gegnsæið“ og aðrar aðgerð-
ir skiluðu þeirri niðurstöðu sem
raun bæri vitni. Eftir nokkurt hik
sagði hún það vera þeirra „sem hafa
verið að vinna með þessi mál“ að
svara fyrir það og að ef til vill væri
„eitthvað eðlilegt sem réttlætir það
að þannig sé staðið að málum“.
Jóhanna hefur sem sagt komist að
þessari niðurstöðu: 1) Ríkisstjórnin
getur ekkert gert. 2) Aðrir verða að
svara fyrir það ef eitthvað hefur
farið úrskeiðis hjá ríkisstjórninni. 3)
Það getur vel verið að máls-
meðferðin gagnvart risaskuld-
urunum sem ekki ætla að borga sé
bara í góðu lagi.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Ekki benda á mig …
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -1 skýjað Lúxemborg -3 snjókoma Algarve 11 skýjað
Bolungarvík -4 snjókoma Brussel -1 snjókoma Madríd 4 heiðskírt
Akureyri -3 snjókoma Dublin 6 skýjað Barcelona 8 léttskýjað
Egilsstaðir 2 skýjað Glasgow 8 skýjað Mallorca 7 súld
Kirkjubæjarkl. 1 léttskýjað London 4 skýjað Róm 9 skýjað
Nuuk -1 skýjað París 1 skýjað Aþena 13 skýjað
Þórshöfn 6 léttskýjað Amsterdam -2 snjóél Winnipeg -19 léttskýjað
Ósló -2 heiðskírt Hamborg -2 snjókoma Montreal -4 snjóél
Kaupmannahöfn -2 heiðskírt Berlín -2 skýjað New York 0 léttskýjað
Stokkhólmur -4 skýjað Vín -1 alskýjað Chicago -7 léttskýjað
Helsinki -7 skýjað Moskva -12 snjókoma Orlando 9 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
15. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.09 0,5 7.18 4,0 13.32 0,4 19.32 3,8 9:23 18:02
ÍSAFJÖRÐUR 3.06 0,3 9.10 2,1 15.33 0,2 21.20 1,9 9:38 17:56
SIGLUFJÖRÐUR 5.20 0,2 11.35 1,3 17.45 0,1 23.59 1,2 9:22 17:39
DJÚPIVOGUR 4.34 2,0 10.43 0,3 16.42 1,9 22.52 0,2 8:55 17:28
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Norðan og norðaustan 8-13
m/s. Léttir til sunnan heiða, en
annars víða él, einkum á norð-
austurhorninu. Frost 0 til 8
stig, mildast við suðurströnd-
ina.
Á miðvikudag og fimmtudag
Norðlæg átt, fremur hæg. Él
norðan- og austanlands, en
annars yfirleitt léttskýjað. Kalt í
veðri.
Á föstudag og laugardag
Útlit fyrir ákveðna norðaust-
anátt með vaxandi ofankomu
norðan og austan til en dregur
úr frosti.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Viðvörun: Búist er við stormi
norðvestan til á landinu og á
miðhálendinu fram eftir
morgni. Spá: Norðaustan
hvassviðri eða stormur fram
eftir morgni, áfram hvassast
norðvestan til með snjókomu
fyrir norðan og austan. Hiti um
eða rétt undir frostmarki víðast
hvar.
„VIÐ höfum alltaf tryggt að allir á vinnumarkaði
og óháð stéttarfélagsaðild búi við mjög öflug lág-
marksréttindi,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ. Hugmyndir ASÍ um breytt fyrirkomulag at-
vinnuleysistryggingakerfisins voru til umfjöllunar
í miðstjórn ASÍ í seinustu viku.
Tillögur hafa verið mótaðar og verða ræddar við
forsvarsmenn annarra launþegasamtaka á næstu
dögum.
Þegar kjarasamningar voru framlengdir sl.
haust var meðal annars gengið út frá því við
stjórnvöld að samtök á vinnumarkaði kæmu meira
að umsýslu þessara mála. Var það m.a. forsenda
þess að Samtök atvinnulífsins féllust á hækkun at-
vinnutryggingagjaldsins.
Litlar sem engar viðræður eru þó enn farnar í
gang við stjórnvöld. „Það hefur alveg vantað allan
raunverulegan áhuga af hálfu ríkisvaldsins,“ segir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. SA
og samtök launafólks hafi rætt þessi mál og eru
mjög samstiga.
Gylfi segir að það hafi verið afstaða ASÍ að
verkalýðshreyfingin hefði, líkt og á Norðurlönd-
unum, meira um framkvæmd Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs að gera eins og hún hafði á árum áður.
„Verkalýðshreyfingin var mjög ósátt við það þeg-
ar málaflokkurinn var tekinn frá okkur 1997. Það
var í andstöðu við verkalýðshreyfinguna þegar
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks færðu þetta frá okkur og til Vinnumála-
stofnunar,“ segir hann.
„Það er engin launung á því að við höfum viljað,
bæði hvað varðar móttöku og skráningu atvinnu-
lausra, fá meira samband við okkar félagsmenn til
að geta nýtt betur velferðarkerfi okkar á vinnu-
markaðinum.“ omfr@mbl.is
Kynna tillögur um breytt kerfi
„Það hefur alveg vantað allan raunverulegan áhuga af hálfu ríkisvaldsins“
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111