Morgunblaðið - 15.02.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
2 9 3 6 1
5
4 3 1 2
1 9 5
3 7 6 2
4 1
5
6 7 9
2 4 7
1 3
2 9
7 6 4 5
9 6
3 5 9 1
4 2 3
6
3 2
5 2 7 6
4 3 5
2 9 8 3
9 7 2
6 4
7 3 9
4 5 7
5 3
2 6 7
7 2
1 2 5 6 8 9 3 4 7
7 3 8 1 2 4 5 6 9
9 6 4 5 3 7 2 1 8
5 9 1 8 6 2 4 7 3
6 8 3 4 7 5 1 9 2
4 7 2 3 9 1 8 5 6
8 1 6 7 5 3 9 2 4
2 4 7 9 1 8 6 3 5
3 5 9 2 4 6 7 8 1
7 6 5 1 4 8 9 3 2
9 1 8 6 2 3 7 5 4
2 4 3 5 9 7 8 1 6
3 8 7 2 1 6 4 9 5
1 2 9 8 5 4 3 6 7
4 5 6 3 7 9 1 2 8
5 9 2 4 8 1 6 7 3
6 7 4 9 3 5 2 8 1
8 3 1 7 6 2 5 4 9
3 1 4 2 5 7 8 6 9
5 7 9 6 8 4 2 3 1
2 8 6 1 9 3 4 5 7
7 3 8 5 6 1 9 2 4
9 4 2 3 7 8 5 1 6
1 6 5 9 4 2 7 8 3
6 2 7 4 1 5 3 9 8
8 9 3 7 2 6 1 4 5
4 5 1 8 3 9 6 7 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 15. febrúar,
46. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Andinn opinberast í sér-
hverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.
Kor. 12, 7)
Víkverji er áhugamaður um svínenda eru þessir vinalegu fer-
fætlingar ein mesta guðsgjöf jarð-
arinnar. Hver einasti partur af svín-
inu er ætur og svínaafurðir gera
nánast hvern einasta mat betri. Ís-
lensk svín eru engir eftirbátar
starfsbræðra sinna í öðrum löndum
þegar kemur að matreiðslu.
x x x
Það er því þyngra en tárum takiþað metnaðarleysi sem virðist
vera landlægt í svínaframleiðslu hér
á landi. Skýrasta dæmið um þetta er
það beikon sem er á. Um er að ræða
örþunnar sneiðar sem standast alls
engan samanburð við það beikon
sem fæst í nágrannalöndunum. Nú
þegar gjaldeyrir er af skornum
skammti á komandi áratugum er það
enn brýnna en ella að svínabændur
taki sig til og setji sérstakan metnað
í verkun almennilegs beikons.
x x x
Talandi um gjaldeyristekjur: Vík-verji sá á dögunum furðufrétt
sem fjallaði um að fiskverð hér á
landi væri of hátt. Einhvern tíma
hefðu menn fagnað því að fiskverð
erlendis færi hækkandi. Það er
greinilegt að tímarnir eru breyttir.
x x x
Í þessari frétt var vísað í tilraunirsjávarútvegsráðherra til þess að
stemma stigu við þessari varasömu
þróun, meðal annars með því að
setja sérstakt útflutningsálag á
ferskan fisk. Það er undarleg ráð-
stöfun sem grefur undan gjaldeyr-
istekjum þjóðarinnar enda er fiskur
allajafna verðmætari þegar hann er
sem minnst unninn og ferskastur.
x x x
Í raun og veru er þessi ráðstöfunsambærileg því að ráðamenn í
hinum suðlægari löndum myndu
banna útflutning á ferskum ávöxt-
um, sem mannfólkið er svo sólgið í,
og þess í stað krefjast að hann yrði
allur settur til vinnslu í niðursuðu-
verksmiðjum. Af einhverjum ástæð-
um hefur ekki heyrst af slíkum ráð-
stöfunum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 undir eins, 4
áhöldin, 7 fálætið, 8
sundfuglinn, 9 spök, 11
þvengur, 13 báru, 14
sterk, 15 nokkuð köld,
17 klettasnasar, 20 gera
vitstola, 22 tungl, 23 ótti,
24 víður, 25 heyið.
Lóðrétt | 1 daunn, 2
mannsnafn, 3 vitlaus, 4
naut, 5 ílát, 6 konu, 10
hefur í hyggju, 12 grjót,
13 smákorn, 15 býr til,
16 kvendýrum, 18
slægjulandið, 19 und-
irnar, 20 tryllir, 21 sárt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gæfulegur, 8 ruddi, 9 tudda, 10 nýi, 11 mærin,
13 lúrir, 15 árann, 18 sigur, 21 ætt, 22 mótað, 23 æskir,
24 hamslausa.
Lóðrétt: 2 ældir, 3 uxinn, 4 eitil, 5 undur, 6 fróm, 7 saur,
12 inn, 14 úti, 15 álma, 16 aftra, 17 næðis, 18 stæla, 19
gikks, 20 rýra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Bxc6
dxc6 5. Rc3 f6 6. d4 Bb4 7. 0-0 exd4
8. Rxd4 Bxc3 9. bxc3 Re7 10. Dh5+
Rg6 11. Ba3 Dd7 12. Rf5 Df7 13.
Hfd1 Bd7 14. Hd4 b6 15. Had1 Be6
16. Dg4 Hg8 17. De2 c5
Staðan kom upp á Kornax-mótinu,
Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur. Lenka Ptácní-
ková (2.315) hafði hvítt gegn Daða
Ómarssyni (2131). 18. Dxa6! Hb8
svartur hefði orðið mát eftir 18. …
Hxa6 19. Hd8#. 19. Db7! og svartur
gafst upp. Opna alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótið hefst innan tíðar
eða 24. febrúar næstkomandi og
verður haldið í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Nánari upplýsingar um mótið og
önnur mót eru aðgengilegar á
www.skak.is.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sanngirniskrafa.
Norður
♠54
♥G852
♦D7432
♣G9
Vestur Austur
♠8763 ♠DG109
♥976 ♥D1043
♦ÁK85 ♦G109
♣76 ♣105
Suður
♠ÁK2
♥ÁK
♦6
♣ÁKD8432
Suður spilar 6♣.
Með ellefu slagi á eigin hendi virðist
ekki nema sanngjarnt að reikna með
einum hjá makker. Líklega var sú
„sanngirniskrafa“ helsta ástæðan fyrir
slemmumeldingum sunnanmanna í tví-
menningi Bridshátíðar. Varla var það
vísindaleg nákvæmni, enda lykillinn að
tólfta slagnum tvíspil norðurs í spaða,
sem erfitt er að afhjúpa í sögnum. Í
hefðbundnu Standard-kerfi myndi suð-
ur vekja á alkröfu og norður afmelda
með 2♦. Síðan kæmu 3♣ og 3♦ á móti,
sem væri endurafmelding. Nú er
freistandi fyrir suður að styrkmelda
3♠, en því myndi norður svara með 3G.
Þá er suður á krossgötum. Slemma
virðist fjarlæg, en 3G gætu gefið 10-11
slagi, svo það kemur vel til álita að sitja
kyrr í gröndunum. Það gerðu ýmsir og
fengu lítið fyrir, en slemmumenn upp-
skáru 70% skor fyrir bjartsýni sína.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Máttur jákvæðrar hugsunar er
ómældur. Best er að þú sjáir hvar siða-
gildi þín stangast á við annarra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu það eftir þér að njóta dagsins
og gerðu eitthvað ánægjulegt fyrir
sjálfa/n þig. Gættu þess að þú fáir þá við-
urkenningu sem þú átt skilið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er ekki nóg að hugsa um
hlutina ef ekkert verður úr framkvæmd-
inni. Sökum stöðu himintunglanna fylgir
þér mikil gæfa og hamingja. Ekki hafa
samviskubit vegna ættingja, þeir sjá um
sig sjálfir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að fá að vera í einrúmi í
dag. Samskipti við hópa og félagasamtök
verða hugsanlega sífellt mikilvægari með
tímanum. Slepptu takinu af gamalli
bræði.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Samtöl við yfirmann, foreldra eða
annað áhrifafólk setja svip sinn á daginn í
dag. Mikil spenna er til staðar á heim-
ilinu, hún hjaðnar þó fljótt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hugulsemi vinar gefur til kynna að
hann kunni að meta þig. Einbeittur vilji
þinn vekur aðdáun. Sinntu heilsunni bet-
ur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er kominn tími til þess að gera
eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni
heima eða að heiman. Veldu það sem
skiptir máli og settu það í forgang.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Málin verða flóknari. Him-
intunglin hjálpa þér til þess að auka
áhrifamátt þinn. Gefðu þér tíma til þess
að undirbúa þig, þó að margir bíði eftir
þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú leggur þitt af mörkum í
deilumáli sem hófst löngu áður en þú
fæddist. Aðrir eiga erfitt með að átta sig
fyllilega á þér. Komdu því hreint fram.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Bryddaðu upp á einhverju nýju
til að setja lit á tilveruna. Framkoma þín
fer ekki framhjá augum yfirmanns þíns.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert sérlega sannfærandi í
dag og átt því auðvelt með að fá vini þína
til að hjálpa þér. Leggðu þig fram um að
vinna þér fylgismenn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert að flýta þér en hugsar vel
um alla á hlaupunum. Vertu raunsæ/r og
varastu að láta óskhyggjuna taka öll völd.
Stjörnuspá
15. febrúar 1917
Kristín Ólafsdóttir lauk
læknaprófi fyrst íslenskra
kvenna og varð þar með fyrsta
konan sem lauk embættisprófi
frá Háskóla Íslands.
15. febrúar 1923
Ingibjörg H. Bjarnason, fyrsta
konan sem kosin var á löggjaf-
arþing Íslendinga, tók sæti á
Alþingi. Hún sat á átta þingum
og var jafnan eina konan.
15. febrúar 1940
Sigurður Nordal flutti fyrsta
útvarpserindið af sex undir
heitinu Líf og dauði. Þetta
varð „einn frægasti erinda-
flokkur í sögu Ríkisútvarps-
ins“, segir í bókinni Útvarp
Reykjavík.
15. febrúar 1944
Kvikmyndin Casablanca, með
Humphrey Bogart og Ingrid
Bergman í aðalhlutverkum,
var frumsýnd í Tjarnarbíói,
um mánuði áður en hún hlaut
Óskarsverðlaun. Í blaða-
auglýsingu var myndin sögð
„spennandi leikur um flótta-
fólk, njósnir og ástir“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.%
Þetta gerðist …
Birkir Rafn, Hákon Breki, Frið-
rik Þór, Birgir Þór, Brynja Dögg,
Lýdía Huld og Indía Anna á Rauf-
aröfn seldu muni sem þau bjuggu til
sjálf eða áttu, til styrktar börnum á
Haítí. Þau söfnuðu 10.326 krónum
og færðu Rauða krossinum.
Söfnun
Lilja Georgsdóttir er líklega búin að jafna sig eftir
fertugsafmælið sem hún hélt upp á laugardags-
kvöldið í golfskálanum á Selfossi. Þegar rætt var
við hana fyrir helgi stefndi í heljarinnar veislu.
Von var á um 70 manns, þ. á m. mörgum tónlist-
armönnum og söngvurum sem nóg er af í ættinni.
Meðal þeirra nafntoguðustu eru trúbadúrinn Her-
mann Ingi Hermannsson junior og Hermann Ingi
Hermannsson, Helgi Hermannsson og Ólafur
Bachman sem voru ásamt fleirum í Logum sem
líklega eru einna frægastir fyrir plötuna Minning
um mann sem rokseldist árið 1974.
Lilja er hárgreiðslumeistari og starfar á hárgreiðslustofunni Mensý
á Selfossi. Hún segir nóg að gera enda séu viðskiptavinirnir ekki ein-
göngu Selfyssingar heldur komi af stóru svæði, allt frá Vík í austri til
Hveragerðis í vestri.
Þegar Lilju er slegið upp í Google-leitarvélinni á netinu kemur í ljós
að hún keppti um titilinn ungfrú Suðurland árið 1990 en keppnin var
haldin á Hótel Örk. „Þetta var bara gaman,“ segir Lilja sem var valin
vinsælasta stúlkan í keppninni. „Maður er víst svo skemmtilegur,“
bætir hún svo við í léttum dúr. runarp@mbl.is
Lilja Georgsdóttir er 40 ára
Heljarveisla í golfskálanum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is