Monitor - 01.07.2010, Side 3
NNDB.COM eða Notable
Names Database er gagnagrunnur
um allt sem þig langar að vita um
fræga fólkið, það
er með hverjum
þau eru, með
hverjum þau
hafa verið,
hvað mamma
þeirra heitir,
hvað börnin
þeirra heita, hver
kynhneigð þeirra er
og svo framvegis. Gagnagrunnurinn
inniheldur safaríkar staðreyndir um
37 þúsund einstaklinga.
Á vefsíðunni
GoGoYoko.com geta tónlistar-
áhugamenn keypt íslenska tónlist
milliliðalaust. Þar getur
þú líka skráð þig inn
og hlustað á lögin
í heild sinni áður
en þú kaupir þau
og þú getur búið
til playlista með
uppáhaldslögunum
þínum. Partíið er
því ekki ónýtt þótt iPod
húsráðandans sé ómögulegur.
Kaffismiðja
Íslands á Kárastíg 1 opnar klukkan
hálf níu á morgnana og er vel sótt
af skipulögðu fólki sem drattast
aðeins fyrr á fætur til að geta gefið
deginum aðeins
betri byrjun.
Kaffið er
reitt fram
afverðlaun-
uðum kaffi-
barþjónum.
Monitor varnafnið á fyrsta
dagblaðinu sem gefið
var út í Póllandi. Það
kom fyrst út árið
1765, en útgáfunni
var hætt árið 1785.
Monitor er lítill bær íIndiana-fylki, en þar
býr því miður enginn í dag.
Monitor er nafnið ástjórnmálatímariti
sem gefið er út í Svart-
fjallalandi.
Monitor var listaþáttursem hóf göngu sína
í breska ríkissjónvarpinu
árið 1958, en var tekinn af
dagskrá árið 1965.
Monitor varútvarpsþáttur í
Bandaríkjunum sem NBC
Radio hóf að
útvarpa um
helgar árið
1955. Hann var tekinn af dagskrá
árið 1975.
Monitor erlíka nafn
á eðlutegund.
Monitor-eðlan
er víst að gera
það gott og
sumir hafa
gengið svo
langt að fá sér
Monitor-eðlu
fyrir gæludýr. Út
með hunda og
ketti, inn með
Monitor-eðlur.
„Hann heyrði einhvern tímann í okkur og sagði
bara: „Þetta er snilld, það geta allir hlustað á
þetta. Ég ætla að hjálpa ykkur“,“ segir Bjartur
Guðjónsson, betur þekktur sem Beatur. Hann
á þar við norska athafnamanninn Jan Erik
Fredriksen sem hefur boðið hljómsveit Bjarts,
3Raddir&Beatur, til Noregs þar sem hann ætlar að
hjálpa sveitinni að koma ár sinni fyrir borð.
3Raddir&Beatur byrja á að spila á norskri
tónlistarhátíð í júlí og fara svo aftur út í ágúst til
þess að túra um landið, troða upp og koma fram í
sjónvarpinu. „Hann þekkir víst alla þarna í Noregi
og ætlar að koma okkur í morgunsjónvarpið og í
einhvern Jay Leno-þátt Noregs. Við erum svona
að byrja að kynna okkur út fyrir landsteinana,“
segir Bjartur.
„Þú ert heil hljómsveit“
3Raddir&Beatur er nokkuð sérstakt band.
Hljómsveitin notast ekki við hljóðfæri, en þess í
stað sér Bjartur um undirleik með því að bítboxa
og söngkonurnar Sandra, Kenya og Inga Þyri
syngja. Sú síðastnefnda er einmitt unnusta
Bjarts. „Stelpurnar byrjuðu að syngja saman
jólalög fyrir jólin 2008. Svo héldu þær áfram að
syngja saman og fengu mig í lið með sér í einu
lagi. Þá var ekki aftur snúið, þeim fannst það
svo geðveikt,“ segir Bjartur.
Hann segir viðtökurnar
góðar hvar sem þau koma
fram. „Þetta er að slá þvílíkt í
gegn. Þetta höfðar líka til svo
breiðs hóps,“ segir Bjartur
og játar að sumt eldra
fólkið viti ekki hvaðan á sig
stendur veðrið þegar það
heyrir bítboxið. „Maður fær
athugasemdir eins og: „Þú
ert bara heil hljómsveit“,“
segir Bjartur og hlær.
Of töff fyrir fiðluna
Bjartur segist vera
sjálflærður bítboxari, en
tæknina þróaði hann með sér á unglingsárunum.
„Ég fór ekkert í nám eða videokennslu. Þegar
ég var svona 15 ára fór ég að fikta mig áfram
þegar ég var að labba heim úr skólanum eða var
í sturtu. Seinna leyfði ég einhverjum að heyra
þetta, honum fannst þetta geðveikt og eitt
leiddi af öðru,“ segir Bjartur.
Hann segir nauðsynlegt
fyrir bítboxara að hafa góðan
ryþma og þá skemmi ekki
fyrir honum sjálfum að hann
hefur gott tóneyra. „Ég get
pikkað upp laglínur og gert
viðeigandi bassalínur fyrir
stelpurnar,“ segir Bjartur
sem hefur þó ekki stundað
tónlistarnám af ráði. „Ég var
settur í fiðlunám þegar ég var
sex ára, en entist ekki nema
tvo mánuði í því. Ég var bara
of töff fyrir fiðluna, vildi ekki
standa rétt og var bara rebel.“
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Sími: 569-1136
Blaðamenn: Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is), Vigdís Sverrisdóttir (vigdis@monitor.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson
Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Grafík: Elín Esther Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Friðrik Ómar
Ætla að bera á
mig sólarvörn í
dag og sleikja
síðan sólina
hérna í Stokkhólmi. Hef lært
af mistökunum. Brenndist svo
illa einu sinni að ég bólgnaði
allur upp í andlitinu og sá
vart út úr augum. Til að toppa
þetta þá þurfti ég að tefla
á skákmóti daginn eftir. Ég
tefldi eiginlega blindskák þann
dag....Það er BONGÓ hér í
hólminum:)
29. júní kl. 9:03
Egill Einarsson
Það er bùið
að ruglast à
mér og David
Beckham hérna
í USA 10sinnum og ég er
bùinn ad vera hérna ì korter!
Otholandi!!
26. júní kl. 15:36
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Monitor
Monitor
mælir með
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Ævintýraferðir eru
málið í dag þegar
utanlandsferðir
kosta fót- og
handlegg. 4
Vala Grand opnar
sig og skilur ekkert
eftir fyrir
ímynd-
unaraflið.
Vespum fjölgar ört
á Íslandi. Monitor
kynnti sér þennan
svala
fararskjóta.
8
Fílófaxið tekur
saman helstu við-
burði helgarinnar
á einum
stað. 15
Eru íslenskar konur
latar að taka sig
til? Stíllinn kemst
til botns í
málinu. 12
Á NETINU
Í SPILARANN
Í MORGUNSÁRIÐ
Ásdís Rán
er ekki bara
spurning um
að vera stolt af
llikamannum
og ánægð með það sem
maður hefur eftir allar þessar
barneignir and show it to the
world með stæl ;)
26. júní kl. 10:17
Efst í huga Monitor
Bjartur og stelpurnar í 3Raddir&Beatur heilluðu norskan athafnamann,
sem hefur boðið þeim til Noregs og vill hjálpa sveitinni að slá í gegn
LJÓSMYNDARA MONITOR BAR AÐ
GARÐI Á VIÐKVÆMRI STUNDU
Monitor um víðan völl
Mynd/Kristinn
6
ÓTRÚLEGT MYNDBAND
Bjartur er ekki einungis fær bítboxari.
Hann gerði á dögunum magnað myndband
fyrir fagnleik Kók, sem stendur yfir um
þessar mundir, og er á góðri leið með að
vinna kosninguna fyrir besta myndbandið.
Í myndbandinu skýtur Bjartur körfubolta
af hjólabretti frá miðjum körfuboltavelli og
hittir beint í körfuna. „Ég var að spila körfu
og ákvað að prófa þetta. Það fyndna er að
ég hitti strax í annarri tilraun. Ég ákvað að
reyna að ná þessu á filmu, en þá tók það
einhver 30 skipti áður en það heppnaðist,“
segir Bjartur. Myndbandið er hægt að sjá
á vefnum coke.is.
Bubbi
Morthens
sólin skín
þrastamóðir
á Eggjum
fyrstu rósir blómstra 2 faldur
Expressó Laxin komin og það
slatti Litla mín spjallar um Bíbí
Guð er góður
27. júní kl. 7:34
Milli býður í tónleikaferð