Monitor - 01.07.2010, Síða 4
Monitor FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 20104
Monitor komst að því að ævintýraferðir
á Íslandi eru ekki bara ódýrari en sólar-
landaferðir, heldur mun skemmtilegri.
SNORKLING ER EIN HEITASTA
ÆVINTÝRAFERÐIN Í DAG
Ævintýri í
bakgarðinum
„Íslendingar eru að átta sig á því hvað
það er hægt að hafa gaman á Íslandi. Það
eru þvílík ævintýri í bakgarðinum hjá
okkur,“ segir Logi Karlsson markaðsstjóri
Arctic Adventures / Arctic Rafting,
stærsta fyrirtækisins sem sérhæfir sig
í ævintýraferðum á Íslandi. „Svona
ævintýraferðir hljóma kannski ekki
framandi fyrir sumum, en
hversu margir hafa til dæmis
farið í Austari-Jökulsá?
Þegar fólk sér hana, þá er
þetta bara geðveiki og það
er fátt sem toppar að sigla
þar niður.“
Ódýrari en
matarkarfan
Logi segir hlutfall
Íslendinga og
útlendinga, sem
sækja í ferðirnar,
nokkuð jafnt.
„Íslendingar
virðast vera að
ferðast mikið
innanlands í ár,
enda er orðið
fáránlega dýrt að
fara til útlanda. Þá
erum við heppin
að það sé svona
stutt í ótrúlega öflug
ævintýri,“ segir Logi.
Hann segir verðin
á ævintýra-ferðum hafa
haldist óbreytt undanfarin
ár, enda kostnaðurinn að
mestu í íslenskum krónum.
„Viðmiðin eru aðeins að
breytast. Einu sinni þótti
mikið að borga 12 þúsund kall
fyrir rafting-ferð fyrir norðan. En þegar
matarkarfan er farin að kosta 20 þúsund
kall er ekki dýrt að fara í svakalega
flúðasiglingu fyrir 12 þúsund kall,“ segir
Logi.
Þarft ekki að vera Iron-Man
Logi segir mikilvægt að fólk leiti til
fyrirtækja eins og Arctic Adventures
þegar farið er í ævintýraferðir. „Þótt þú
búir á Íslandi áttu ekki að rjúka bara
upp á jökul eða stökkva út í Silfru að
synda. Fólk á að borga fyrir réttan
búnað og leiðsögn. Þú færð 10
sinnum meira út úr því að vera
með fagmanni sem sér um þetta,
fer með þig á réttan stað og
sýnir þér réttu leiðina,“
segir Logi.
Hann neitar því
að menn þurfi að
vera þaulreyndir
útivistarkappar
eða sérlegir
líkamsræktar-
frömuðir
til að fara í
ferðirnar. „Þú
þarft ekki að
vera Magnús
Scheving
eða einhver
brjálaður Iron-
Man til að hafa
gaman af þessu.
Það væri lítið að
gera hjá okkur ef
það þyrftu allir að
vera í ofurformi,“
segir Logi.
River Rafting
í Austari-Jökulsá
„Sigling sem ítrekað hefur
verið valin
sem eitt það besta sem hæ
gt er að gera
á Íslandi af erlendum ferð
atímaritum,
og ekki af ástæðulausu. Þe
tta ævintýri
er stappfullt af adrenalíni
og fær
hjartað til að slá sem aldre
i fyrr.“
Hvar: Lagt er af stað frá
Hafgrímsstöðum í Skagafi
rði (um 15 km
frá Varmahlíð) og er siglt n
iður hluta af
Austari-Jökulsá.
Hve lengi: 4 klukkustundir.
Kröfur: Reynsla af rafting e
r æskileg.
Annars þurfa þátttakendu
r að vera í
þokkalegu formi og vel syn
dir, því í
þessari siglingu mun fólk
blotna.
Aldurstakmark: 18 ár.
Erfiðleikastig: 4+ af 5.
Verð: 12.990 krónur.
Sjókajak í Hvalfirði
„Mögnuð ferð á mögnuðum stað. Hvalfjörðurinn er kjörinn fyrir sjókajak og býðurupp á afar fallegt og rólegt umhverfi. Ferðin er góð kynning á frábærri afþreyingu,eitthvað sem flestir ættu að ráða við og prófa.
Hvar: Lagt af stað frá Hvammsvík í Hvalfirði.
Hve lengi: 2-3 klukkustundir.
Kröfur: Allur búnaður er innifalinn en mælt er með því að þátttakendur komi meðhlýjan fatnað, föt til skiptanna og sundföt.
Aldurstakmark: 16 ár.
Erfiðleikastig: 3 af 5
Verð: 12.990 krónur.
Fjórhjólaferð í nágrenni Reykjav
íkur
„Þrælskemmtileg ferð í nágren
ni Reykjavíkur.
Erfiðleikastig ferðarinnar er br
eytilegt og er tekið
mið af hverjum hópi fyrir sig, s
em gerir þetta að
ferð sem flestir ættu að geta h
aft gaman af.“
Hvar: Lagt af stað frá mótorkros
ssvæðinu gegnt
Litlu Kaffistofunni og keyrt eft
ir slóðum sem eru
á því svæðið.
Hve lengi: 1 klukkustund.
Kröfur: Þátttakendur þurfa að h
afa bílpróf en
frekari reynslu er ekki krafist.
Farið er yfir öll
öryggisatriði og kennt á hjólin
í upphafi ferðar.
Aldurstakmark: Bílprófsaldur.
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Verð: 9.990 krónur (tveir á hjóli)
.
River Rafting í Hvítá
„Lang vinsælasta ævintýraferð
landsins síðustu ár ef ekki áratugi.
Skemmtileg sigling fyrir þá sem eru í
ævintýraleit og alveg frábær fyrir vina- og
starfsmannahópa.“
Hvar: Lagt af stað frá Drumboddsstöðum í
Biskupstungum (u.þ.b. 75 mínútna akstur frá
Reykjavík) og er siglt niður hluta af Hvítá.
Hve lengi: Um þrjár klukkustundir.
Kröfur: Þetta er eitthvað sem flestir ráða við,
svo lengi sem þeir þola að blotna aðeins.
Allur útbúnaður er innifalinn en mælt er
með að þátttakendur komi með handklæði,
sundföt og hlýja peysu.
Aldurstakmark: 12 ára.
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Verð: 7.990 krónur.
Snorkling í Silfru
„Ótrúleg upplifun í íslenskri náttúru. Snorkling ereitthvað sem allir ráða við og Silfra býður upp á ótrúlegtsjónarspil, eitthvað sem erlendir kafarar hafa fyrirlöngu uppgötvað og er þetta meðal eftirsóknarverðustuköfunarstöðum heimsins í dag. Þeir hugrökku fá svo aðhoppa af kletti ofan í ískalt vatnið.“
Hvar: Í gjánni Silfru á Þingvöllum.
Hve lengi: Tekur um tvær klukkustundir.Kröfur: Engar kröfur um fyrri reynslu af köfun eðasnorkling. Búnaður innifalinn.
Aldurstakmark: 14 ár.
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Verð: 9.990 krónur.
FLÚÐASIGLING Á STERUM
Í AUSTARI-JÖKULSÁ
HVALFJÖRÐURINN ER
FALLEGUR STAÐUR
GÓÐ FERÐ FYRIR
VINAHÓPINN
STOKKIÐ Í HVÍTÁ
Í FLÚÐASIGLINGU
ÆVINTÝRAMAÐURINN
LOGI KARLSSON