Monitor - 01.07.2010, Side 13

Monitor - 01.07.2010, Side 13
stíllinn 10Topp 1. Emmanuel Chriqui 33 ára - Kanadísk Leikkona 2. Marisa Miller 32 ára - Bandarísk Fyrirsæta 3. Kate Beckinsale 37 ára - Bresk Leikkona 4. Alessandra Ambrosio 29 ára - Brasilísk Fyrirsæta 5. Jessica Alba 29 ára - Bandarísk Leikkona 6. Beyoncé Knowles 29 ára - Bandarísk Söng- og leikkona 7. Penelope Cruz 36 ára - Spænsk Leikkona 8. Cheryl Cole 27 ára - Bresk Söngkona 9. Eva Mendes 36 ára - Bandarísk Leikkona 10. Miranda Kerr 27 ára - Áströlsk Fyrirsæta Fallegustu 6 milljónir karla kusu á www.askmen.com ...að mati karlakonur heims Hvernig er starf stílista? Það er mjög margbreytilegt, sem er kosturinn við það. Ég vinn aðallega í auglýsingum en tískumyndatökur eru skemmtileg verkefni með. Ertu menntuð? Nei, það er þrjóskan sem kom mér áfram. Hvernig hófst ferill þinn? Ég var mikið inni á saumastofu hjá ömmu í æsku og fór út frá því að hanna föt. Stílistastarfið vatt í raun bara upp á sig út frá fatahönnuninni og var fyrirtækið mitt Snyrtilegur Klæðnaður til 1999. Starfa margir stílistar á Íslandi? Nei, það eru innan við fimm sem starfa í fullri vinnu sem stílistar. Það reyna margir fyrir sér sem halda að þetta snúist bara um að vera smart og kunna að klæða sig en það er nú minnsti parturinn. Starfið snýst að miklu leyti til um samskipti og tilfinninguna sem maður hefur fyrir umhverfi sínu. Ég hef lagt mikið upp úr því að setja saman lúkk sem lifir lengi, að fatnaður í auglýsingu verði ekki orðinn úreltur eftir þrjá mánuði. Hvernig er dæmigerður vinnudagur? Hann er ekki til. Ég mæti til vinnu á öllum tímum sólarhrings. Hver finnst þér smekklegasti Íslendingurinn? Dorrit hefur vissan klassa við sig, hún er eins og Jackie Kennedy. Smekklegasta erlenda stjarnan? Kate Moss. Er eitthvað áberandi slakt í tísku íslenskra kvenna? Almennt þykir mér íslenskar konur ekki taka sig til, þær eru latar að punta sig og herma gjarnan hver eftir annarri. Hvað varðar íslenskar tískudömur finnst mér þær reyna allt of mikið, það sem kemur frá hjartanu og er einlægt það kemur best út. Þú hefur verið að koma íslenskum fyrirsætum erlendis, hvernig gengur það? Það er lítið hliðarverkefni hjá mér en ég rek casting fyrirtæki þar sem ég finn fólk í auglýsingar og kynntist í gegnum það íslenskum strák sem ég hafði mikla trú á. Ég fór ásamt samstarfskonu minni Tinnu til New York og við fundum góða módelskrifstofu fyrir hann og honum hefur gengið ofsalega vel. Hann hefur tekið nokkrar Marc Jacobs sýningar og fleiri stór merki. Klæðir þú þig upp daglega? Já, ég reyni það. Skemmtilegasta verkefnið? Þau eru yfirleitt úti á landi og man ég þá helst eftir tónlistarmyndbandi fyrir Ash sem er skosk hljómsveit. Það var erfitt verkefni þar sem ég saumaði nóttina fyrir tökur og við unnum lengi, en það var rosalega skemmtilegt. Svo var líka myndband fyrir Jeff Who, Barfly, sem ég gerði og var rosalega skemmtilegt. ALDA B. GUÐJÓNSDÓTTIR ER VINSÆLASTI STÍLISTI ÍSLANDS Íslenskar konur eru latar að hafa sig til Alda B. Guðjónsdóttir er stílistinn bak við flestar auglýsingar sem við sjáum í íslensku sjónvarpi. Hún er ein af fáum stílistum á landinu og ein sú eftirsóttasta. Stíllinn ræddi við Öldu um starfið og stílinn á Íslandi. Mynd/Ernir HÉR STÍLISERAÐI ALDA FYRIR NORDIC REACH BLAÐ SEM KEMUR ÚT Í NEW YORK. LJÓSMYNDARI ER ODDVAR HJARTARSON. HÉR STÍLISERAÐI ALDA FYRIR NÝTT LÍF. LJÓSMYNDARI ER VERA PÁLSDÓTTIR. Stíllinn kíkti í helstu tískuvöruverslanir bæjarins og fann níu sjóðheita hluti sem nauðsynlegt er að eignast í sumar. 1. Kápa, Zara 12.995 kr. 2. Samfestingur, Zara 7.995 kr. 3. Armbönd, Topshop 3.490 kr. 4. Lola Marc Jacobs ilmvatn, Boutique Bella, 10.900 kr. 5. Taska, Zara 6.995 kr. 6. Ray Ban sólgleraugu, Profil Optic 24.800 kr. 7. Mac varasalvi, 3.990 kr. 8. Skór, Topshop 26.990 kr. 9. Slæða, Zara 4.995 kr. Heitt í bænum 1 2 3 4 5 6 7 8 9 13FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Monitor

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.