Monitor - 01.07.2010, Síða 14

Monitor - 01.07.2010, Síða 14
kvikmyndir Hæð: 185 sentimetrar. Besta hlutverk: Edward í Twilight-myndunum. Það er að minnsta kosti hlutverkið sem hefur tryggt honum lífstíðarbyrgðir af kvenhylli. Skrýtin staðreynd: Þykir góður tónlistarmaður og hefur gert lög sem heyrðust í Twilight- myndunum. Eitruð tilvitnun: „Stundum hugsa ég með mér „til fjandans með leiklistina“. Síðan fatta ég að ég gæti verið að vinna í skóbúð og það er miklu svalara að vera leikari.“ 1986Fæðist 13. maíí London á Englandi. 2003 Fær hlutverk Cedric Diggory í Harry Potter eftiráheyrnar- prufu hjá leikstjóranum Mike Newell. 2004Leikur ísjónvarpsmynd um Niflungahringinn og smáhlutverk í kvikmyndinni Vanity Fair sem skartaði Reese Witherspoon í aðalhlutverki. 2005Harry Potter andthe Goblet of Fire er frumsýnd og Pattinson þykir sína góða frammistöðu. 2007Harry Potter andthe Order of the Phoenix frumsýnd. Pattinson er aftur í hlutverki Cedric Diggory. 2008Fyrsta Twilight-myndin lítur dagsins ljós og er Pattinson í aðalhlut- verkinu sem vampíran Edward. Myndin nýtur brjálæðis- legra vinsælda og Pattinson verður heitasti draumaprins heims. 2009The TwilightSaga: New Moon er frumsýnd og nýtur enn meiri vinsælda en fyrri myndin. Pattinson er heitari en möttulstrókur og tímaritið Glamour velur hann kynþokkafyllsta mann heims. 2010Þriðja Twilight-myndin frumsýnd. Auk þess leikur hann aðalhlutverkið í og framleiðir kvikmyndina Remember Me. Robert Pattinson FERILLINN 14 Monitor FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Frumsýningar helgarinnar The Twilight Saga: Eclipse Leikstjóri: David Slade. Aðalhlutverk: Robert Pattinson, Kristen Stewart, Taylor Lautner, Bryce Dallas Howard, Ashley Greene og Dakota Fanning. Lengd: 124 mínútur. Dómar: IMDB: 3,2 / Metacritic: 5,8 / Rotten Tomatoes: 50% Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára. Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Keflavík, Akureyri og Selfossi. Bella (Stewart) og Edward (Pattinson) eru sameinuð á ný en forboðinni ást þeirra er ógnað af illri vampíru sem leitar hefnda. Bella neyðist til að velja á milli ástar sinnar á Edward og vináttunni á milli hennar og Jacob (Lautner) á meðan að vampírur og varúlfar halda áfram að kljást. En Bella á enn annan kost fyrir sér, dauðleiki eða ódauðleiki? Popp- korn Leonardo DiCaprio segist sérstaklega spenntur fyrir nýrri víkinga- mynd sem hann mun leika í undir leikstjórn Mel Gibson, en myndin hefur enn ekki hlotið nafn. Aldrei hafi verið gerð almennileg stórmynd um víkinga og því sé kominn tími til enda hafi víkingarnir verið einhverjir mestu níðingar sögunnar. Þar að auki segist hann vera mikið sögunörd og að hann hafi gaman af sögulegum myndum, ekki síst þegar Mel Gibson eigi í hlut. Fimmta Final Desti- nation myndin er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári en til að breyta örlítið út af vananum verður nafn mynd- arinnar ritað 5nal Destination. Þá verður upphafs- harmleikur þessarar myndar þegar brú í stórborg hrynur. Og að þessu sinni verður allt í þrívídd. Stórframleiðandinn Jerry Bruckheimer hefur lýst yfir áhuga á að gera framhald af myndinni Top Gun en Tom Cruise yrði að sjálfsögðu ómissandi í hlutverk orrustu- flugmannsins Maverick. Að sögn Bruckheimer hefur þó margt breyst í flugheiminum síðan fyrri myndin var gerð og því segir hann að finna þurfi nýja leið til að blanda karakter Maverick inn í söguþráðinn.. Nicole Kidcman deilir ekki áhuga Bruckheimer á að fá Tom Cruise inn í líf sitt á ný en hún og tónlistarmaðurinn Keith Urban fögnuðu á dögunum fjögurra ára brúðkaupsafmæli sínu. Annars er það að frétta af Kidman að hún vinnur nú að framleiðslu myndarinnar The Danish Girl þar sem hún mum sjálf leika fyrsta einstakling sögunnar sem gengst undir kynleiðréttingaraðgerð. Það er Uma Thurman sem mun leika eiginkonu hennar í myndinni sem er væntanleg árið 2012. Þeir eru fleiri sem vildu hafa fæðst af öðru kyni en Angelina Jolie segir að dóttir hennar, Shiloh, vildi helst vera strákur. Hún klæðist eingöngu strákafötum, vilji vera stuttklippt eins og strákur og að hún líti á sig eins og einn af bræðrum sínum. Jolie segir stíl Shiloh vera í anda Svartfellinga. Í Svartfjallalandi klæði sig allir svona. STUNDUM VILJA EDWARD OG BELLA BARA KÚRA SAMAN, BORÐA NAMMI OG HORFA Á FRIENDS Killers Leikstjóri: Robert Luketic. Aðalhlutverk: Ashton Kutcher, Katherine Heigl, Tom Selleck og Catherine O‘Hara. Lengd: 93 mínútur. Dómar: IMDB: 3,6 / Metacritic: 2,1 / Rotten Tomatoes: 12% Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára. Kvikmyndahús: Smárabíó, Háskólabíó og Laugarásbíó. Spencer Aimes (Kutcher) er leigumorðingi á vegum bandarískra yfirvalda sem fellur fyrir Jen Kornfeldt (Heigl), kvænist henni, flytur í úthverfi og leggur byssuna á hilluna. Dag einn komast þau að því að milljónir hafa verið lagðar til höfuðs Spencer og leigumorðingjar hafa fylgst með honum í langan tíma. Nú er bara spurning hvort það eru nágrannar þeirra, vinir eða vinalegi gaurinn í matvörubúðinni? Svakalegustu hasargellurnar Rotten Tomatoes hefur tekið saman 10 svakalegustu hasargellur kvikmyndasögunnar. Hvort sem menn eru sammála valinu eða ekki, þá er ljóst að fæstir þora að fokka í þessum skvísum. 1. Englar Charlies úr Charlie‘s Angels 2. Leia prinsessa úr Star Wars-myndunum 3. Foxy Brown úr Foxy Brown 4. Inspector Yang úr myndinni Supercop 5. Sarah Connor úr Terminator 6. Fox úr myndinni Wanted 7. Jóhanna af Örk úr Passion of Joan of Arc 8. Ellen Ripley úr Alien-myndunum. 9. Brúðurin úr Kill Bill-myndunum 10. Mononoke úr Princess Mononoke

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.