Monitor - 12.08.2010, Blaðsíða 10

Monitor - 12.08.2010, Blaðsíða 10
Við Bragi Hinriksson, leikstjóri, gerðum hana eiginlega bara tveir og þetta var mikill skóli. Finnst þér mikill munur á því að semja efni fyrir börn og fyrir fullorðna? Það hentar mér bara mjög vel að semja efni fyrir börn og mér finnst það mjög gaman. Þegar ég og Villi erum að skemmta þá reynum við samt yfirleitt að skemmta fullorðna fólkinu líka. Það er ekkert leiðinlegra heldur en að vera fullorðinn á barnaskemmtun og það er bara verið að sinna börnum. Það er svo mikið atriði að þetta sé svona svolítið eins og Toy Story og Shrek sem eru svona myndir sem eru fyrir börn en höfða til fullorðinna líka. Svo er von á næstu mynd frá ykkur í september og hún er fyrsta íslenska þrívíddarmyndin. Var hún þá margfalt flóknari og dýrari í framleiðslu? Mér fannst eitthvað spennandi og töff við að búa til fyrstu þrívíddarmyndina á Íslandi. Hvað þá þegar ég komst að því að þetta væri fyrsta leikna þrívíddarmyndin á Norðurlöndunum! Bragi er náttúrulega ótrúlegur og hafði farið á eitthvað þrívíddarnámskeið og lært hvernig á að gera þetta í grunninn og honum fannst þetta ekkert svo mikið mál. Þá ákváðum við bara að kýla á þetta. Við keyptum bara græjur og æfðum okkur svolítið og byrjuðum svo. Og þetta var alls ekkert svo stóraukinn kostnaður. Þú hefur líka verið að vinna að þætti sem heitir Ameríski draumurinn. Þar ferðastu í gegnum Bandaríkin með vinum þínum og keppir í allskyns þrautum. Eruð þið ekki bara að fá borgað fyrir að gera hluti sem aðrir myndu borga fyrir? Jú. Það er dálítið þannig og þannig ætla ég að reyna að haga lífi mínu, að fá borgað fyrir að gera skemmtilega hluti! Þetta voru ég, Auddi, Egill Gillzenegger og Villi Naglbítur og við erum allir ágætis vinir. Við ferðuðumst í gegnum Bandaríkin í tveimur liðum og kepptum á móti hver öðrum. Framleiðendurnir lögðu fyrir okkur allskonar þrautir sem við vissum ekki af fyrirfram en svo vorum við líka með allskonar reglur og við gátum safnað stigum. Til dæmis gat maður fengið stig fyrir að snerta dverg. Ef við sáum dverg þá bara tók maður upp myndavélina og fann leið til að koma við hann. Fór kannski upp að honum og sagði svo bara „sorry, I thought you were somebody else!“ Úr þessu varð til alveg rosalega mikið efni og fyrsta flokks afþreying sem kemur á Stöð 2 núna 20. ágúst. Þú hefur unnið mikið og náið með Auðunni Blöndal. Nú var hann kosinn óviðkunnanlegasta stjarna Íslands í útvarpsþætti á X-inu um daginn. Hvað segir þú um það? Er erfitt að vinna með honum? Ég hló mjög mikið að því og hef skemmt mér mjög mikið yfir því. Lét hann alveg heyra það. En það er voðalega notalegt að vinna með honum. Hann er alls ekki óviðkunnalegur enda var þetta nú ekki Capacent, þetta var X-ið! Hann er manna skemmtilegastur þegar hann er að skemmta sér. Þá er hann bara að gera það með sínum vinum, án þess að vera eitthvað ókurteis og er þá ekkert að hlaupa upp um allt og reyna að vera hressi gæinn fyrir öllum. Hann tók þetta mjög lítið nærri sér. Hvernig sérðu framtíðina svo fyrir þér? Verður maður aldrei of gamall til að láta svona? Maður er náttúrulega orðinn fullorðinn maður og með tvö börn og getur ekki endalaust pissað í buxurnar. Dóttir mín er farin að horfa á DVD-diska sem voru gefnir út þegar ég var að byrja. Þar eru atriði sem maður er svolítið að fá í bakið núna. Þannig að við erum farnir að færa okkur svona aðeins úr því. Maður veit ekkert hvenær fólk fær bara ógeð á manni eða nennir ekki að horfa á meira og þá þarf maður náttúrulega að hugsa hvað maður ætlar nú að gera þegar maður verður stór. Ég gæti til dæmis hugsað mér að vera meira á bak við myndavélina að framleiða þætti. Nú erum við búnir að búa til eina bíómynd sem gekk mjög vel og önnur er á leiðinni. Mér finnst það magnað og okkur langar jafnvel að búa til þá þriðju. Þannig að það er þessi heimur sem heillar mig og það er haugur af dóti sem mig langar til að gera. 10 Monitor FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010 Svo hætti ég í skóla af því ég fékk tilboð frá Hagkaup sem ég gat ekki hafnað.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.