Monitor - 11.11.2010, Side 5
Austfirsku drengirn-
ir í hljómsveitinni Miri gáfu nýverið
út fyrstu breiðskífu sína sem ber
nafnið Okkar. Um er að ræða
stórgóða og kröftuga
plötu sem
allir verða
að kaupa
sér hið
snarasta.
Nær ekkert
er sungið í
lögum Miri
en ekki láta
blekkjast, þau
eru samt flott.
Nú eru strákarnir í Tjakk
rassi mættir aftur og það í þrívídd.
Jackass 3D gefur
fyrri uppátækj-
um Johnny
Knoxville og
félaga ekkert
eftir og í
þessari mynd
ganga þeir
jafnvel lengra í
fíflaskapnum en
áður. Monitor er að
gefa miða á myndina á Facebook.
Nýjasta æðið
í eldhúsinu eru vafalaust hinar
dísætu cupcakes. Allskonar skraut
og föndur fylgir gerð þessa krúttlega
sætabrauðs og nú er meira að segja
hægt að fara á
námskeið í
cupcake
skreytingum.
Brátt hefst lærdómsátak fyrirjólaprófin hjá skólafólki og jólin
nálgast óðum. Það er mikilvægt að
missa sig ekki í nammiáti á þessum
tíma og halda heilbrigðinu vel
við. Smá prófaljóta og jólaspik eru
eðlileg en það er hægt að koma í veg
fyrir hvort tveggja með einföldum
aðgerðum. Í prófunum er til dæmis
mjög gott að hreyfa sig milli þess
sem maður hellir sér í lærdóminn og
getur það verið virkilega hressandi.
Einnig væri sniðugt að sleppa
öllu prófanamminu og borða til
dæmis vínber í staðinn. Hvað varðar
aðventuna er alveg fráleitt að ætla
sér að sleppa öllu sætabrauði og
nammi á þeim tíma en öllu þarf að
stilla í hóf. Upplagt væri að reyna
að gæða sér á hollu hátíðafæði eins
og mandarínum, sem eru virkilega
jólalegt góðgæti sem allir elska. Ekki
missa ykkur á næstu mánuðum. Þið
gætuð séð eftir því.
Monitor
mælir með
Í SPILARANN
Í BÍÓ
5
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is) Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is) Sigyn Jónsdóttir
(sigyn@monitor.is) Auglýsingar: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson
Grafík: Elín Esther Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569-1136 Netfang: monitor@monitor.is
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Monitor
Feitast í blaðinu
Friðrik Dór og
Sveppi mætast
í undanúrslitum
popppunkts
fræga fólksins. 6
Í kvikmynda-
húsum landsins
verður heilmikið
um að vera um
helgina.
Barði Bang Gang
nennir ekki að
flippa, en er í stór-
skemmtilegu
viðtali.
11
Arnar Grant er
ekki bara líkamlegt
musteri. Hann
þreytir
Lokaprófið. 14
Stíllinn í stjörnu-
stríði og ræðir við
stelpur sem standa
fyrir
skransölu. 12
8
Högni Egilsson
Eigum við að
hætta að tala
um tilfinningar
og spila smá
músík? 9. nóvember kl. 22:37
Vikan á...
Óli Geir Svanur
hjá Tattú og
Skart búin að
setja síðustu
myndina inní
sleevið mitt sem hann er að
gera, ekkert smá sáttur! Ég
á bara eitt session eftir og
það er í byrjun des, þá er
hendin reddý :) Á bara eftir að
skyggja á gera bakrunnnnn!
9. nóvember kl 19:13
Tobba og Kalli ætla að láta gott af sér leiða og gefa eintök
af Dömusiðum og Næstu jól undir jólatréð í Smáralind.
Blaz Roca
er ógeðslega
sáttur með
rosalegustu
útgáfutónleika
í mannkynssögunni. takk
fyrir allt þetta rosalega pepp,
luuuuuuuuuuuuuuuuuv!
8. nóvember kl. 04:20
Efst í huga Monitor
Prófaljóta og jólaspik óþörf
PRÓFIN OG JÓLIN FARA
ILLA MEÐ MARGA Á VIGTINNI
„Fólk getur hlustað á diskinn hans á meðan
það les um stefnumót eða eldar upp úr bókinni
minni,“ segir fjölmiðlaprinsessan Tobba Marín-
ósdóttir. Hún hefur sent frá sér sína aðra bók,
Dömusiðir, á sama tíma og kærastinn hennar,
Karl Sigurðsson, kenndur við Baggalút, hefur
sent frá sér jólaplötuna Næstu jól. „Ég er búinn
að lesa bókina hennar og þetta er alveg fullkomið
lesefni á meðan maður er að hlusta á diskinn,“
segir Kalli. „Við ætlum að vinna þetta eins mikið
saman og við getum og vera dugleg að tala hvort
annað upp,“ segir hann og er greinilegt að þau
hafa myndað með sér mikið skjallbandalag.
Prumpað fyrir framan kærastann
Dömusiðir er önnur bók Tobbu en sú fyrsta,
Makalaus, kom út í vor og seldist feikivel. „Þetta
er dömuhandbók sem kennir konum hvað ber að
varast á Facebook, hvernig á að skipta um dekk,
hvernig á að forðast klamydíu og hvernig hægt
er að prumpa fyrir framan kærastann án þess
að hann hætti með þér. Og allt þar á milli,“ segir
Tobba. Nafn bókarinnar minnir óneitanlega á
bók Gillzeneggers, Mannasiðir, sem kom út um
síðustu jól. „Það var Egill sjálfur sem stakk upp á
því að ég myndi skrifa þessa bók,“ útskýrir Tobba.
„Við erum fínir félagar og höfum þekkst síðan
hann var að deita frænku mína þegar við vorum
unglingar í Kópavogi. Þá var hann með fjólublátt
hár og vann á pítsastaðnum Papinos í Kópavogi.“
Óttalegir jólakarlar
Jólaplata Baggalúts, Næstu jól, er sjötta platan
sem flokkurinn gefur út. „Við erum óttalegir
jólakarlar,“ segir Kalli. „Við höfum gefið út að
minnsta kosti eitt jólalag á ári frá árinu 2001. Við
gáfum út jólaplötu 2006, en á þessari plötu er að
finna þau sjö lög sem við höfum gefið út síðan þá
auk fjögurra nýrra,“ segir hann.
Baggalútur heldur fjóra jólatónleika og seldist
upp á þá alla á mettíma án þess að þeir væru
auglýstir nokkuð. „Við höfum fengið ákúrur frá
fólki sem náði ekki að kaupa miða en við höfum
ekki tækifæri til þess að bæta við tónleikum,
bæði út af salarkynnum og eins vegna tímaleysis
hjá okkur. En við erum hvergi nærri hættir að
halda jólatónleika,“ segir Kalli.
Vefur Baggalúts hefur verið starfandi frá árinu
2001 en hefur aldrei verið vinsælli en nú og er
á meðal aðsóknarmestu vefja landsins. Það
er freistandi að spyrja hvort Baggalútsmenn
hafi ekki rætt um að reyna að hagnast á sölu
auglýsinga á vefnum. „Það hefur ekki komið til
umræðu hjá okkur. Okkur langar ekkert til þess
að menga hann með einhverjum utanaðkomandi
öflum. Ekki fyrr en við erum orðnir staurblankir,“
segir Kalli og hlær.
Tobba Marínós gefur út bók á meðan kærastinn hennar
Kalli og félagar hans í Baggalúti gefa út jólaplötu.
Mynd/Golli
Engin barátta
á milli okkar PLÖTUR BAGGALÚTSPabbi þarf að vinna (2005)
Aparnir í Eden (2006)
Jól og blíða (2006)
Nýjasta nýtt (2008)
Sólskinið í Dakóta (2009)
Næstu jól (2010)
Auðunn Blön-
dal hahahaha
og ég sem var
farinn að halda
að enginn sem
ég þekkti á facebook héldi
með Liverpool...sjá þessa
lúða spretta út eins og beljurn-
ar á vorin eftir 1 nettann og
þakklátann heimasigur :)
7. nóvember kl. 18:24
Ingólfur
Þórarinsson
ég er alveg eins
à djamminu og
knattspyrnu-
vellinum. Legg meira upp fyrir
fèlagana en èg skora sjàlfur.
6. nóvember kl. 15:59
FYRIR SÆLKERA