Monitor - 11.11.2010, Blaðsíða 9

Monitor - 11.11.2010, Blaðsíða 9
Barði Jóhannsson er með svakalega ferilskrá og hefur farið um víðan völl. Hann hefur unnið mikið með frönsku tónlistarkonunni Keren Ann en saman skipa þau dúettinn Lady & Bird sem hefur notið mikilla vin- sælda, sérstaklega í Frakklandi. Barði og Keren Ann gáfu út tvær plötur saman og eru núna að vinna í franskri óperu. Barði hefur einnig samið tónlist við norna- myndina Haxan, unnið með íslenskum og búlgörskum sinfóníuhljómsveitum, samið tónlist fyrir frönsku hraðlestarnar og hannað föt. Þá samdi Barði tónlist fyrir kvikmyndina Reykjavik-Rotterdam, heimildarmynd um Andy Warhol, margar auglýsingar og ýmsa sjónvarps- þætti. Líklega þekkja flestir hann þó sem Barða í Bang Gang. Allt frá útgáfu fyrstu plötu Bang Gang, You, árið 1998 hefur hann unnið dag og nótt og gefið út plöturnar Something Wrong og Ghosts From The Past sem Bang Gang og fengið fádæma góðar viðtökur víða. Nýlega kom út safnplatan Best of Bang Gang en þar má finna alla helstu smelli sveitarinnar ásamt útgáfum annarra listamanna af lögum Bang Gang. Hvernig kom nafnið Bang Gang til? Það voru eiginlega mistök. Í lok menntaskóla byrjaði ég með Henrik vini mínum í hljómsveitinni og þá vorum við að gera surf- tónlist. Við fórum svo hvor í sína áttina, ég fór út í meiri rafpælingar og hann endaði sem hljómsveitin Singapore Sling. Ég ætlaði mér aldrei að verða forsöngvari í hljóm- sveit og fékk því Esther Thalíu með í lið sem söngkonu og sendi nokkur demó til útgefanda. Sá vildi gefa okkur út og þá vantaði nafn á hljómsveitina. Ég vissi ekkert hvað ég átti að skíra hana svo ég endaði á því að hringja í Henrik og spyrja hann hvort ég mætti nota Bang Gang nafnið. Þetta nafn passaði vel á surf-tónlistina sem við höfðum verið að gera en var minna viðeigandi við nýju stefnuna. Þar sem ég fann ekkert betra ákvað ég að láta vaða og nota nafnið. Ég hef hugsað um að skipta um nafn en þetta lítur vel út á prenti og það er full seint að breyta núna. Hefurðu lært eitthvað í tónlist? Ég lærði á flautu þegar ég var barn, lærði á píanó þegar ég var tíu ára og svo lærði ég á gítar og tónfræði í FÍH. Ég hætti tónlistarnámi af því ég átti svo erfitt með að spila coverlög og æfa skala. Ég var sendur heim með einhver ömurleg lög sem mér fannst menga mig. Að spila eitthvað leiðinlegt aftur og aftur drepur bara löngunina til að skapa tónlist. Mig langaði alltaf miklu meira að spila eigið efni. Ég er til dæmis algjörlega ópartífær á gítar. Ég kann engin lög og man enga texta, ég rétt svo man mína eigin. Það er tilgangslaust að rétta mér gítar og biðja mig um að spila einhver lög sem allir þekkja, af þeirri einföldu ástæðu að ég kann þau ekki. Sumir eru svo fljótir að ná coverlögum en ég hef ekki einbeitt mér að því enda aldrei viljað spila á balli. Hvernig varstu sem krakki? Ég gleymi því aldrei þegar ég var beðinn um að skila söguverkefni og kennarinn sagðist ætla að gefa helming af einkunninni fyrir frumlegheit. Ég skilaði verkefninu á mjög frumlegan hátt en kennarinn neitaði að taka við því. Þá hafði ég lesið inn á hálfum hraða alla ritgerðina og sett hljóðdæmi við. Þarna hef ég verið svona 13 eða 14 ára. Ég var rosalega sár og pirraður því hann hafði beðið um frumlegheit. Hann var með einhverja staðlaða ímynd um hvað væri frumlegt sem er í rauninni eins og í sjónvarpinu. Ef einhver á að vera flippaður í sjónvarpi grettir hann sig, drekkur eitthvað ógeð, hlær að eigin fyndni eða kemur með einhvern svona flippbúning. Það er til stöðluð ímynd af því hvern- ig frumlegheit eiga að vera og helst á það að vera flipp. Hvernig týpa varstu í menntaskóla? Ég var ömurleg týpa. Enn að finna mér stíl. Ég var í listafélaginu og gerði einhver árshátíðarlög og svona. Þetta er tími þar sem maður er rosalega óöruggur en líka mjög skemmtilegur tími. Það segja allir að maður þurfi að nýta tímann í menntaskóla því það séu skemmtilegustu árin og svo þegar maður kemur í háskóla er þetta líka sagt og svo framvegis. Það er alltaf verið að segja manni að njóta nútímans því allt verði svo leiðinlegt seinna. Svo er kannski einhverjum sem líður illa í menntaskóla og allir eru að hamra á því að þetta eigi að vera besta tímabil lífsins. Það er ekki mjög uppörvandi og tómt kjaftæði. Öll tímabil hafa sína kosti og galla. Menntaskólinn er ekkert endilega hápunkturinn á tilverunni. Ertu hrifinn af ungu íslensku tónlistarfólki í dag? Ég hlusta á allt sem ég kemst yfir og það eru fullt af skemmtilegum ungum tónlistarmönnum. Það kom einhver hola en núna eru að koma rosalega góðir og einbeittir tónlistarmenn fram á sjónarsviðið. Það er gaman að sjá metnaðinn og ég er búinn að vera að bíða eftir þessari kynslóð. Þeir hafa verið að undirbúa sig vel í skúrunum. Var mikið basl hjá þér í byrjun ferilsins? Ég var í fullt af hljómsveitum og alltaf að gefa út spólur í grunnskóla- hljómsveitinni Öpp Jors. Mesta vesenið var eftir að allt fór af stað og þá byrjaði í rauninni baslið. Ég hef aldrei verið með neinn eiginlegan umboðsmann til að gera samninga, vinna endalausa pappírsvinnu og svoleiðis fyrir mig. Ég er meira og minna búinn að vinna dag og nótt síðan. Hvað varstu að gera áður en þú fórst á fullt í tón- listina? Ég lærði að sauma í eitt ár og fór í íslensku í háskólanum í hálft ár. Svo hef ég alltaf ætlað að taka einhverja kúrsa en ekki haft tíma því það er búið að vera svo mikið að gera. Ég starfaði við allan fjandann, afgreiddi á bensínstöð, var flokkstjóri í unglingavinn- unni, með útvarpsþátt, blaðamaður o.s.frv. Ég fór samt frekar snemma að vinna eingöngu við tónlist. Það er búið að vera skemmtilegur og lærdómsríkur tími síðan ég kláraði menntaskóla. Að sjálfsögðu er lífið samt aldrei eingöngu upp á við. Lögum þínum hefur verið lýst sem sorglegum. Ertu leiður maður? Hver og einn sem er að gera tónlist hlýtur að setja eitthvað af sjálfum sér í verkin og það gefur músíkinni líf. Síðasta platan mín var svolítið beint út þó ég sé ekki með einhverjar raunlýsingar á mér sjálfum. Ég hlustaði á einhverja plötu um daginn þar sem var raunlýsing á einhverri skrifstofu sem var einhvern veginn svona: „Ég sit á skrifstofunni og hér eru víxlar sem þarf að borga.“ Þetta á að vera eitthvað rosa skemmtilegt en mér finnst raunlýsing á skrifstofuvinnu og víxlum ekki eiga heima í tónlist. Tónlist á að vera meira inn á við frekar en vettvangslýsingar af daglegu lífi, að mínu mati. Annars er mér nokkuð sama hvað fólk er að gera, ég kann að slökkva á raftækjum, þannig að það truflar mig ekki. Enda geri ég enga kröfu á að allir fíli mína tónlist. Tekurðu þér aldrei frí? Ég held ég hafi tekið mér nokkur tveggja til fjögurra daga frí á síðustu tíu árum. Fólk er að væla yfir löngum vinnudögum og er kannski í fríi allar helgar. Ég veit ekki hvar ég væri staddur í dag ef ég hefði alltaf tekið helgarfrí. Það væri ábyggilega allt komið í rugl og ég ekki að vinna við tónlist. Ef ég fer í frí fæ ég yfirleitt einhverjar hugmyndir sem ég svo verð að koma í framkvæmd. Annars á ég örugglega uppsafnað frí sem nemur einhverjum árum. Það er aldrei að vita nema maður fari að huga að því að innleysa það. Þú ert kannski ekki týpan sem fer á Facebook í margar klukkustundir? Nei, alls ekki. Ég get ekki farið á sólarströnd til þess að liggja flatur og slappa af, maður stressast bara allur upp af því. Ég hef tvisvar farið hring- veginn á þremur dögum, það verður að vera eitthvað að gerast. Það er hægt að gera fullt skemmtilegt og ég er hrifinn af að búa til einhverja djöflasýru. Mér finnst gaman að framkvæma það sem maður talar um og það sem mér dettur í hug. Maður kemst aldrei að því hvort maður fíli eitthvað nema maður prófi það og láti bara vaða, svo framarlega sem það er innan siðsemismarka og skaðar engan. Þú hefur komið fram í Bandaríkjunum, Japan og um alla Evrópu. Hvar finnst þér best að vera? Ég kann rosalega vel við mig heima og í stúdíóinu. Ég gæti samt hugsað mér að búa í L.A. í einhvern smá tíma en ekki of lengi. Ég reyndi einu sinni að búa í París og entist í þrjár vikur. Samt finnst mér mjög gaman að vera þar og vinna en ég næ lélegri einbeitingu á svona stórum stöðum. Það er gaman að hafa komið víða þó maður nái oftast ekki að skoða neitt. Sumir staðir hafa náð að heilla mann en ég hef líka keyrt í gegnum skelfilegar borgir og alls ekki viljað koma þangað aftur nema tilneyddur. Þú og franska tónlistarkonan Keren Ann sem dúettinn Lady & Bird fenguð mikla athygli, sérstaklega erlendis. Já, önnur platan okkar var gefin út af EMI í Frakklandi og MUTE í Bretlandi, sem er sama útgáfufyrirtæki og Nick Cave og Depeche Mode eru hjá en ég held það viti enginn af því hérna á Íslandi. Þegar sumir Íslendingar fara á fund með einhverjum yfirmanni stórfyrirtækja í músíkbransanum hringja þeir það inn sem forsíðufrétt. Ég veit ekki hversu oft ég væri á forsíðum ef ég sæi ástæðu til að tilkynna hvern einasta fund sem ég hef átt með einhverjum yfirmanni í bransanum. Hvernig var að vinna með sinfóníunni? Það er mjög skemmtilegt að fá sinfóníu- Texti: Sigyn Jónsdóttir sigyn@monitor.is Myndir: Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is 9FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Monitor Lítið fyrir Barði Jóhannsson tónlistarmaður talar um ferilinn, menntaskólaárin, flipp, djöflasýru, Júróvisjón, appelsínugult fólk og að sjálfsögðu tónlistina sína. tilfinningarúnk Ég veit ekki hversu oft ég væri á forsíðum ef ég sæi ástæðu til að til- kynna hvern einasta fund sem ég hef átt með einhverjum yfirmanni í bransanum. HRAÐASPURNINGAR Eitthvað ógeðslegt: Það er svo margt. Til dæmis saur frá einhverjum sem tengist mér ekki eða kannski gröftur úr bólu einhvers sem tengist mér ekki. Eitthvað girnilegt: Nýi diskurinn minn, Best of Bang Gang, er mjög girnilegur. Mest pirrandi hljóð sem þú veist um? Annars vegar hljóðið sem kemur þegar hvítir korkar nuddast saman og hins vegar viðstöðulaus hátíðnihljóð. Fallegasti staður á Íslandi? Þeir eru margir, til dæmis Ásbyrgi. Besta kvikmyndin? Wild At Heart, Dead Ringers og Suspiria. Mesta prakkarastrik? Ég geri ekki svoleiðis. Fyndnasta manneskja í heimi? Kölski. Uppáhaldsnammi? Parketlegin uxahalasápa í Jóhannesarplúí.

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.