Monitor - 11.11.2010, Side 12
12 Monitor FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Linda Benediktsdóttir
22 ára, módel og nemi í lífefnafræði
Hvernig er að vera í lífefnafræði? Það er
svakalega mikil vinna, en samt skemmtilegt.
Þetta er náttúrulega mitt áhugasvið og þetta
er gaman.
Hvaða litum klæðist þú helst? Svörtum, ég
á mjög mikið af dökkum fötum. Núna á ég
reyndar líka mikið af kamellituðum bolum,
það var eitthvað mikið í sumar.
Hvar finnst þér skemmtilegast að versla? Ég
verslaði mikið í New York og Boston í sumar en
það eru bestu staðirnir til að versla. Ég reyni að
nýta mér þegar ég fer erlendis og versla þar.
Hvaða tónlist getur þú alltaf hlustað á?
Hljómsveitin the XX, ég fæ ekki nóg af þessari
hljómsveit. Spila það til dæmis mikið þegar ég
er að læra.
Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn? Mér
finnst Chanel alltaf klassískt. Annars er ég
mjög hrifin af MiuMiu og Chloé, þó að þeir séu
alveg endalaust fleiri sem eru í uppáhaldi.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Ég keypti mér
eina rosalega kósí peysu úti frá DKNY og það
er hægt að breyta henni eins og maður vill svo
hún er eins og ný og ný flík. Hún er í miklu
uppáhaldi núna.
Hvort kaupir þú þér frekar skó eða föt? Föt
en ég er örugglega með þeim fáu sem finnst
skemmtilegra að kaupa mér föt.
Hlýtt fyrir
veturinn
Linda Benediktsdóttir
í vetrarfatnaði frá Vír
EF LINDA VÆRI BUFF VÆRI HÚN
LINDUBUFF, ÞVÍ HÚN ER SVO SÆT
Lindsay Lohan og Kim Kardashian klæddust
sama kjólnum frá Brian Lichtenberg. Hettan
hjá Lindsay gerir hann svolítið rokkaralegan en
Kim er í flottari og grófari skóm sem passa mun
betur við kjólinn. Þær deila því titlinum.
Það er óhætt að segja strax að Rihanna rústar
Jennu Elfman í þessari baráttu. Þær klæðast
röndóttum kjól frá Alexander McQueen. Jenna
er kvenlegri á meðan Rihanna rokkar hann
upp með fylgihlutum og hettunni.
Söngkonan LeAnn Rimes klæðist hér kjól frá
Julia Clancey en það gerir einnig fegurðardísin
Shanna Moakler. Stílnum finnst þær báðar
púlla kjólinn einstaklega vel. Shanna fær þó
vinninginn þar sem skórnir hennar eru fallegri.
Anne Hathaway og fyrirsætan Chanel Iman
féllu báðar fyrir Marc Jacobs kjólnum sem fer
líkamsbyggingu þeirra beggja vel. Chanel ber þó
sigur úr bítum því Stílnum þykir að þessu sinni
fallegra að vera sokkabuxnalaus við kjólinn.
Stjörnustríð
Linda klæðist fötum
frá vinnufataverslun-
inni Vír og 66°Norður
66°N Logn hettu-
peysu 16.500 kr.
Laugavegur dúnjakki
28.500 kr.
Dickies cargo buxur
12.500
Dickies skór
16.000 kr.
stíllinn
„Þetta er svolítið meira en bara
venjulegur fatamarkaður,“ segir
Björt Ólafsdóttir en hún, ásamt
hópi föngulegra kvenna og karla,
stendur fyrir vetrarmarkaðnum
SKRANANAS sem haldinn verður
laugardaginn 13. nóvember frá kl.
11-18 í Hugmyndahúsi Háskólanna.
Hópurinn sem stendur fyrir
skransölunni samanstendur af fólki
úr ýmsum áttum að sögn Bjartar.
„Þetta eru kennarar, húsmæður í
barneignarleyfi, hönnuðir og bara
allur skalinn af fólki,“ segir Björt og
bætir við að til sölu verði fallegar
flíkur. „Við erum allar mjög smart
stelpur svo það verður margt fallegt
á boðstólum,“ segir Björt en ásamt
fötum verða þær ásamt mökum
með ýmislegt fleira á boðstólum.
„Það verða líka heimilistæki, skór,
geisladiskar, barnaföt og auðvitað
strákaföt,“ segir Björt, svo strákar
mega alls ekki láta sig vanta á
skransöluna. „Strákarnir eru
aðallega að selja skó og geisladiska
en auðvitað margt annað líka.“
Björt verður með hágæðafatnað
til sölu og allt verður á mjög góðu
verði að hennar sögn. „Ég verð
aðallega með vönduð föt,“ segir
Björt en í gegnum tíðina hefur hún
hent lélegu eintökum fataskápsins.
„Föt úr H&M og einhver úr lélegum
efnum fóru bara beint í ruslið
þegar ég hætti að nota þau svo
það sem eftir stendur eru virkilega
flottar flíkur úr vönduðum efnum,“
segir Björt um það sem verður á
boðstólnum hjá henni. „Þetta eru
föt sem ég hef aldrei tímt að henda
en hef samt ekki notað í einhvern
tíma,“ segir Björt ánægð með
úrvalið. „Fötin eru úr KronKron og
frá Opening Ceremony, Kishimoto
og svo verð ég með vintage föt
úr Spútnik og margar fallegar
yfirhafnir.“
Skransalan SKRANANAS verður með
allt mögulegt á boðstólnum eins og til
dæmis hátískufatnað og heimilistæki.
Vandaðar
vörur á
skransölu
Mynd/Árni Sæberg
BJÖRT, MARTA OG SUNNA
DÖGG SELJA SKRAN UM HELGINA
Sirkus Sóley
Sigríður Guðnadóttir
Sirkus Ísland
NÆSTA VIKA:
Nánar á www.tjarnarbio.isUnglist
Hjaltalín
18.NÓV.
5.-13.NÓV.
FORSÝNING
16.NÓV.
19.-20.NÓV.
FRUMSÝNING
17.NÓV.Mojito
Nýtt leikverk eftir Jón Atla
TÓNLEIKAR
ÚTGÁFUTÓNL.
SUNNUDAGAR
ERU FJÖL-
SKYLDUDAGAR
Miðasalan er opin
virka daga frákl.13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
SUN 14.NÓV.