Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.10.1965, Qupperneq 24

Skólablaðið - 01.10.1965, Qupperneq 24
24 - GuÖ sé með góðu mönnunum, djöfullinn með vondu mönnunum, en enginn með meðalmönnunum. ( Og er þér lesið þetta hrafl, þá minnizt þess, að bænin er deyfilyf hræsnarans ). ALLA nóttina hefur vindurinn tínt blöð- in af greinum trjánna. Eitt, tvö, falla þau eins og slokknandi geislar, unz aðeins naktar greinarnar toga 1 vindinn. Og þegar fyrirboði dagsins, morgunninn, kveikir i himninum, en dagurinn skráður gegnum sólmúrinn með kyrrstöðu leiðans í fang- inu, liggur góða fólkið 1 fletum sínum, í landinu, þar sem velmegunin rfkir ein. Það er sunnudagur. t dag sofa allir til hadegis nema nauðsynlegustu þjónar borg- arinnar og einstaka geðillur lögregluþjónn. En þegar dagurinn er einna bjartastui*, bröltir góða fólkið fram úr svefnsveittum fletum sínum, klórar sér varfærnislega á maganum, smjattar ánægjulega yfir helgi hafins dags og þakkar guði fyrir tilveru hins iðjulausa hvúldardags. Þá er að bera á sig loftræstingarkrem eða hylja ofátubólgu með púðri, torga steikinni, labba sig 1 kirkju, ef veðrið er gott, til þess að vera góður við guð. Og svo er kvöld. Góða fólkið háttar sig eftir vel heppn- að kvöld hjá kunningjanum, fer með bæn- irnar súnar og biður guð um nýjan minka- pels, tannstöngla eða kveikjaraumboð. Nótt. Og síðan framhald þess sem leið, svefn, svefn án draums. Þetta eru dag- arnir, gullgæðanna, 1 höndum þeirra, sem fá að sofa. En samt er eins og það sé stundum blóðlykt af vindum heimsins, jafnvel ilmur af brenndu mannakjöti eða eimur af gráti og kvalaópum. En þá er bara að loka augunum og taka fyrir nefið eins og j;óða fólkið. Enhver var að tala um strið, en hvað kemur góðu fólki við, þótt til seu svo vondir menn, að þeir berjist. Meira að segja góð og kirkjuelskandi kona var sárhneyksluð á, hvað dagblöðin gætu verið "ósívíirseruð" að birta mynd- ir af sundurskotnum börnum. Enda hafði líka maðurinn hennar stofnað félag, skömmu síðar, gegn viðbjóðslegum fréttaflutningi. Já, það er erfitt að láta ljúga að sér sannleikanum, og ennþá erfiðara að horfa í* blóðhlaupin augu mannvonzkunnar. Heimska og hjartagæzka eru eitt, vork- unn og meðaumkun ekkert. En hvers vegna að vera að þessu grenji, góðu fólki líður alltaf vel, bara að loka augunum og hella vellyktandi í vindinn. En næst , þegar heimurinn grætur og blóðið hitar lífvana moldina, munu góðii mennirnir koma á fót einhvers konar fjársöfnun eða happdrætti, og safna miklum peningum til þess að kaupa hlát- ursduft handa hinum hryggu. 10/10 '65 L

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.